Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 31
31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012
Sólskinsdagar Þessi kríli voru alsæl með vorkomuna og góða veðrið þar sem þau sátu í kerrunni sinni og virtu fyrir sér mannlífið, búið að draga frá tjaldið og hvað eina.
Golli
Nú liggur fyrir Al-
þingi frumvarp frá
fjármálaráðherra þar
sem ráðherrann fer
fram á heimild til að
lána hlutafélagi fé til
að grafa svokölluð
Vaðlaheiðargöng.
Þetta verkefni hefur
verið tekið út fyrir
vegaáætlun á þeirri
forsendu að um sé að
ræða einkaframkvæmd. Félagið
sem á að taka við láninu heitir
Vaðlaheiðargöng hf. sem er í eigu
Vegagerðarinnar og félags sem
heitir Greið leið ehf. Hlutafé á að
verða 600 milljónir, þar af leggur
Greið leið ehf. til 400 milljónir en
Vegagerðin 200. Hluthafar Greiðr-
ar leiðar ehf. eru að meginstofni til
sveitarfélög á Norðurlandi eystra.
Verkefnið er skiljanlega mikið
kappsmál fyrir þetta landsvæði en
því miður hefur verið haldið þannig
á málinu á Alþingi að ekki er hægt
að styðja verkefnið.
Risalán – lítið eigið fé
Vaðlaheiðargöng voru tekin í for-
gang út fyrir samgönguáætlun á
þeirri forsendu að um væri að ræða
einkaframkvæmd sem byggðist á
innheimtu veggjalda. Ég er hlynnt-
ur því að nota veggjöld þar sem því
verður við komið og ég er hlynntur
einkaframkvæmdum þar sem þær
eiga við. En hér stendur hnífurinn í
kúnni. Þessi framkvæmd er ekki
einkaframkvæmd. Fyrirtækið sem
á að fá lán frá ríkissjóði er að lang-
stærstum hluta í eigu opinberra að-
ila, þ.e. Vegagerðarinnar og sveit-
arfélaga og það þarf að teyga sig
ansi langt til að halda því fram að
hér sé einkaaðili á ferðinni. Það
sem meira er, þá stendur til að
lána 8.700 milljónir til fyrirtækis
með hlutafé upp á 600 milljónir.
Óþarfi er að hafa mörg orð um það,
hver ber áhættuna af verkefninu
þegar einungis um 6,5% eru fjár-
mögnuð með eiginfé.
Prófsteinn fjárlaganefndar
Fjárlaganefnd hefur nú þetta
mál til umfjöllunar. Innan nefnd-
arinnar hefur að undanförnu farið
fram mikil umræða um eftirlits-
hlutverk Alþingis, mikilvægi vand-
aðrar fjárlagavinnu og mikilvægi
þess að fjárlög séu
virt. Fjárlaganefnd
getur ekki komist að
neinni annarri nið-
urstöðu en þeirri að
hafna beri þessu frum-
varpi. Hér er á ferð-
inni opinber fram-
kvæmd sem á að búa í
búning einka-
framkvæmdar. Ríkið
ætlar að færa 8,7
milljarða sem lán á
bókum sínum en í
raun er verið að fjár-
festa fyrir þessa upphæð. Allt tal
um að líklegt sé að ríkið fái lánið
endurgreitt með veggjöldum skiptir
ekki máli í þessu samhengi.
Framkvæmt á réttum
forsendum
Ég er ekki á móti því að ráðist
verði í Vaðlaheiðargöng, þvert á
móti þá er þetta mikilvæg sam-
göngubót fyrir héraðið og Vega-
gerðin heldur því fram að fram-
kvæmdin sé þjóðhagslega
hagkvæm. En þetta réttlætir ekki
að svona sé staðið að málum. Hér
er um opinbera framkvæmd að
ræða og það á að fara með hana
sem slíka. Búa þarf málið upp á
nýtt og í ljósi þess að hægt er að
innheimta veggjöld á þessari leið,
þá er hægt að ná pólitískri sam-
stöðu um að taka þessa fram-
kvæmd fram fyrir í samgönguáætl-
un og ráðast strax í hana. En það
að kalla fjárfestingu lán og opin-
bera framkvæmd einkaframkvæmd
býður hættunni heim. Grikkir eru
gagnrýndir fyrir að blekkja með
sínu ríkisbókahaldi, það er ekki
ástæða fyrir okkur til að feta þá
braut.
Eftir Illuga
Gunnarsson
» Það sem meira er, þá
stendur til að lána
8.700 milljónir til fyrir-
tækis með hlutafé upp á
600 milljónir. Óþarfi er
að hafa mörg orð um
það, hver ber áhættuna
af verkefninu þegar ein-
ungis um 6,5% eru fjár-
mögnuð með eiginfé.
Illugi Gunnarsson
Höfundur er alþingismaður.
Grískt bókhald
Þekkt er úr sögunni
að röng viðbrögð við
efnahagskrísu valda oft
meira efnahagstjóni en
krísan sjálf. Ýmsir
bentu Íslendingum á
þessa hættu fljótlega
eftir fall bankanna.
Ég benti nýverið á að
stefna ríkisstjórnar-
innar og viðbrögð henn-
ar við falli bankanna
hefðu valdið samfélag-
inu meira tjóni en bankahrunið sjálft.
Það varð til þess að blogglúðrasveit
og netdólgar ríkisstjórnarflokkanna
hrukku af hjörunum. Annar eins fúk-
yrðaflaumur hefur líklega ekki komið
úr þeirri átt frá því að ég tók upp á
því að tjá mig um mikilvægi þess að
ráðast í almenna skuldaleiðréttingu,
snemma árs 2009.
Það staðfestir að maður hafi hitt
naglann á höfuðið í pólitískri gagn-
rýni þegar andstæðingarnir eiga ekki
önnur svör en að ryðja úr sér per-
sónulegum svívirðingum. Einhverjir
hættu sér þó út í tölfræði og töldu að
fráleitt væri að ætla að ríkisstjórnin
hefði valdið jafnmiklum skaða og
8.000 milljarða tapi fjármálakerfisins
af efnahagshruninu.
Eftir á að hyggja hefði ég átt að bú-
ast við því að stjórnarliðar hefðu ekki
síður áhyggjur af tapi Deutsche Bank
og annarra erlendra kröfuhafa en
tapi íslensks almennings. Öll stefna
ríkisstjórnarinnar hefur gefið það til
kynna. Það er því rétt að árétta að
þegar ég segi að ríkisstjórnin hafi
valdið meira tjóni en bankahrunið þá
er ég að tala um áhrifin á íslenskt
samfélag.
Samanburðurinn
Óhjákvæmilegur kostnaður af
bankahruninu skiptist einkum í fernt.
Lífeyrissjóðir og sparifjáreigendur
sem áttu hluta- og skuldabréf í bönk-
unum töpuðu verulegum fjárhæðum
þegar bankarnir féllu. Skattgreið-
endur töpuðu á veðum Seðlabankans
og auk þess tapaði almenningur á
þeirri kaupmáttarrýrnun sem banka-
hrunið olli. Verstu áhrifin voru hins
vegar þau sem helst mátti komast
hjá, þ.e. tap skuldsettra heimila
vegna höfuðstólshækkunar skulda.
Endanlegt tap Seðla-
bankans nemur líklega
um 200 milljörðum
króna, en hann getur
prentað krónur. Lífeyr-
isþegar og aðrir sem
lögðu sparifé sitt í
hlutabréf urðu fyrir
miklu áfalli. Margir
voru sviptir lífeyri sín-
um. Slíkt er gríðarlegt
áfall fyrir þá sem í hlut
eiga. Hvað varðar áhrif
á samfélagið í heild
standa þó skuldamálin
upp úr.
Þegar skuldir millitekjufólks
aukast skyndilega og eigið fé þurrk-
ast út hefur það gríðarleg áhrif á
stöðu ótal heimila og dregur úr virkni
hagkerfisins. Neysla og skatt-
greiðslur dragast saman, fólksflótti
eykst og svo framvegis. Ofan á þetta
bættist kaupmáttarrýrnun vegna
falls krónunnar, aukins atvinnuleysis
og lægri launa. Möguleikar stjórn-
valda til að koma í veg fyrir þetta tjón
voru borðliggjandi. Það að nýta ekki
þau tækifæri olli því að tjónið af
bankahruninu varð miklum mun
meira en það hefði þurft að vera.
Tækifærin
Allar forsendur voru til að leiðrétta
stökkbreytinguna á lánum heim-
ilanna. Ef lánin hefðu verið færð frá
gömlu bönkunum yfir í Íbúðalánasjóð
á eðlilegum afslætti hefði mátt leið-
rétta fyrir öllum áhrifum verðbólgu-
skotsins og meira til. Það sama á við
um lán bankanna til rekstrarfélaga.
Þannig mátti endurskipuleggja
skuldir heimila og fyrirtækja hratt.
Auk þess hefði ríkið eða Seðlabank-
inn átt að kaupa skuldabréf bankanna
á meðan þau voru til sölu á hrakvirði
(eins og við lögðum til). Slík fjárfest-
ing hefði alltaf verið hagstæð enda ís-
lensk lánasöfn verðmætari fyrir Ís-
lendinga en fyrir vogunarsjóði sem
ætla að ná skammtímagróða. Þetta
hefði meira en vegið upp tap Seðla-
bankans af veðlánum.
Með pólitískum stöðugleika, skyn-
samri skattastefnu og orkufram-
leiðslu hefði fjölmörgum stórum at-
vinnuskapandi verkefnum verið hrint
í framkvæmd á undanförnum árum.
Þúsundir manna hefðu þá fengið
vinnu. Ef 6.000 manns væru án at-
vinnu í stað 13.000 hefði það skilað
samfélaginu tugum milljarða. Slíkt
var raunhæft og borðliggjandi miðað
við aðstæður 2009 eins og m.a. kom
fram í kosningaauglýsingum Sam-
fylkingarinnar og margítrekað í máli
forsætisráðherra.
Raunin
Hér voru allar aðstæður til að fjár-
festing yrði vel yfir meðallagi, eins og
iðulega gerist eftir niðursveiflu.
Stefna ríkisstjórnarinnar hefur leitt
til þess að fjárfesting er sú lægsta frá
því að mælingar hófust. Tap sam-
félagsins af þeim mun er ekki undir
75 milljörðum á ári.
Í stað þess að leiðrétta lán heim-
ilanna samhliða stofnun nýju bank-
anna var komið til móts við erlenda
kröfuhafa. Það skaðaði heimilin beint
og jók á snjóhengjuna sem hefur
haldið krónunni í höftum og valdið
samfélaginu ómældu tjóni. Í ofanálag
dældi ríkisstjórnin tugum milljarða
inn í gjaldþrota fjármálafyrirtæki án
heimildar frá Alþingi. Ólögmæt
myntkörfulán voru færð yfir í nýju
bankana sem lögmæt þrátt fyrir við-
varanir. Tap ríkisins af því gæti num-
ið 150 milljörðum. Í ofanálag hafa svo
skatta- og gjaldahækkanir ríkis-
stjórnarinnar hækkað lán heimilanna
og þar með kröfur erlendra lánar-
drottna um tugi milljarða.
Niðurstaðan
Lauslega áætlað og með vísan til
þekktra auglýsinga er niðurstaðan
um það bil þessi:
Hrun heils fjármálakerfis: 670
milljarðar.
Sósíalistastjórn í 3 ár: 890 millj-
arðar.
Kosningar og ný ríkisstjórn sem
nýtir hin óendanlegu tækifæri Ís-
lands öllum til hagsbóta: Ómetanlegt.
Eftir Sigmund
Davíð Gunnlaugsson » Það staðfestir að
maður hafi hitt nagl-
ann á höfuðið í pólitískri
gagnrýni þegar and-
stæðingarnir ryðja úr
sér persónulegum sví-
virðingum.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Höfundur er formaður Framsóknar-
flokksins.
Kostnaðurinn af
skaðlegri ríkisstjórn