Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 AFP Gíraffi trónir yfir dvergflæmingjum í Oloidien-vatni nálægt Naivasha í Kenía. Dvergflæmingjum hefur fjölgað mjög á þurrustu svæðunum í Kenía eftir að mik- ið úrhelli breytti seltunni í mörgum stöðuvötnum. Það varð til þess að fæða flæmingjanna, plöntusvif, er þar af skornum skammti og þeir færðu sig á þurrari svæði. Svangir flæmingjar í fæðuleit Nýtt met mun hafa verið slegið í Ástralíu í gær þegar 97 ára gamall maður, Allan Stewart, útskrifaðist með meist- aragráðu í læknavísindum frá Southern Cross-háskól- anum. Stewart sló þar með eigið met sem hann setti árið 2006 þegar hann lauk lagaprófi, þá 91 árs að aldri. Hann komst þá í Heimsmetabók Guinness sem sagði hann elsta útskriftarnema heims. Stewart er á eftirlaunum og starf- aði lengi við tannlækningar áður en hann lauk doktors- prófi í tannskurðlækningum. Hann segist nú vera hættur námi en viðurkennir að hann hafi einnig sagt það þegar hann lauk lögfræðináminu fyrir sex árum. „Ég hef bara svo mikinn tíma og ég vil halda heilanum í lagi.“ 97 ára útskrifaðist úr háskóla François Hollande, forsetaefni sós- íalista, kvaðst í gær vonast eftir „fullnægjandi sigri“ í síðari umferð forsetakosninganna í Frakklandi á morgun. Staða Hollande styrktist þegar miðjumaðurinn François Bayrou lýsti yfir stuðningi við hann. Bayrou fékk 9,1% fylgi í fyrri umferðinni. Hann sagði að Sarkozy hefði leitað of langt til hægri í kosningabaráttunni og kvaðst ætla að kjósa Hollande þótt hann hefði efasemdir um efna- hagsstefnu sósíalista. Síðustu skoðanakannanir bentu til þess að Hollande væri með 5-7 pró- sentustiga forskot þótt munurinn hefði minnkað síðustu daga. Hollande kvaðst vonast eftir skýru umboði frá kjósendum til að geta ráðist í nauðsynlegar aðgerðir til að leysa efnahagsvanda landsins. „Ég vil fullægjandi sigur,“ sagði hann. „Þegar þjóðin þarf að velja ætti hún að gera það með skýrum hætti, þannig að forsetinn hafi burði og umboð til að grípa til aðgerða.“ Neitar því að hann hafi fengið fé frá stjórn Gaddafis Sarkozy spáði þó enn tvísýnum kosningum og skoraði á „þögla meirihlutann“ að nýta atkvæðisrétt sinn og kjósa hann í síðari umferð- inni. Forsetinn neitaði í gær þeirri staðhæfingu lögfræðinga fyrrver- andi forsætisráðherra Líbíu, Bagh- dadi al-Mahmudi, að einræðisstjórn Muammars Gaddafis hefði lagt fé í kosningasjóð Sarkozys fyrir forseta- kosningarnar árið 2007. Lögfræð- ingarnir sögðu að fulltrúar Sarkozys hefðu tekið við greiðslum að andvirði rúmra átta milljarða króna frá stjórn Gaddafis. Talsmaður Sarkozys neitaði þessu og sagði að ekki væri hægt að trúa orðum gamalla samstarfsmanna stjórnar Gaddafis sem vildu hefna sín á franska forsetanum fyrir að taka þátt í hernaðinum gegn einræðisstjórninni. bogi@mbl.is Hollande enn með forskot  Vonast eftir skýru umboði frá frönsk- um kjósendum AFP Á atkvæðaveiðum Sarkozy heilsar kjósendum í Toulon í gær. Ertu að gera upp gamalt hús? Laugavegi 29 - sími 552 4320 www.brynja.is - brynja@brynja.is Byggjum á langri hefð og eigum mikið úrval af alls kyns járnvöru. Hurðarhúnar, glugga- og hurðalamir, stormjárn, læsingar, útiljós o.fl. Sérpöntunar- þjónusta á hurðarhúnum, raflagnaefni o.s.frv. Líttu við – sjón er sögu ríkari. Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919 Áratuga þekking og reynsla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.