Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
vegna kjörs forseta Íslands má hefj-
ast í dag. Samkvæmt lögum um
kosningar til Alþingis skal atkvæða-
greiðsla utan kjörfundar hefjast svo
fljótt sem kostur er eftir að kjördag-
ur hefur verið auglýstur, þó ekki fyrr
en átta vikum fyrir kjördag, sem er
núna, laugardaginn 5. maí 2012. For-
setakosningarnar fara fram 30. júní
næstkomandi.
Framboðsfrestur til forsetakjörs
rennur ekki út fyrr en á miðnætti
föstudaginn 25. maí. Það virðist
skjóta skökku við að það megi kjósa
áður en ljóst er hverjir verða í fram-
boði til kjörs. Þótt átta hafi gefið kost
á sér í embættið er enn óljóst hvort
nöfn þeirra allra verða á kjörseðlin-
um í júní.
Mega kjósa aftur og aftur
Samkvæmt upplýsingum úr inn-
anríkisráðuneytinu, sem fer með
framkvæmd kosninganna, er þetta
fyrirkomulagið samkvæmt lögum
um framboð og kjör forseta Íslands
frá 1945. Utankjörfundaratkvæði er
ekki endilega ónýtt ef kosinn hefur
verið frambjóðandi sem kemur síðar
í ljós að verður ekki í framboði. Því ef
menn hafa tök á mega þeir kjósa eins
oft og þá lystir utan kjörfundar. Er
það þá síðasta atkvæðið sem gildir.
Ef menn hafa ekki tök á að mæta aft-
ur og kjósa er öruggast að kjósa þá
sem þegar eru komnir með nægileg-
an fjölda meðmælenda til framboðs,
þ.e. ef þeir vilja eiga meiri möguleika
á að atkvæðið nýtist.
Þrátt fyrir að hafa kosið utan kjör-
fundar má mæta á kjörstað líka og
kjósa og eru þá utankjörfundarat-
kvæðin ónýt. Kjörstjórnir setja þau
ekki ofan í kassana fyrr en kjörfundi
lýkur. Þá er kannað hvort einhverjir
hafi mætt á báða staðina og fer nýj-
asta atkvæðið í kassann, samkvæmt
upplýsingum frá innanríkisráðu-
neytinu.
Rætt hefur verið um að stytta
þennan átta vikna tíma til utankjör-
fundaratkvæðagreiðslu en ekki
náðst samstaða um það, með því
yrðu þeir sem eru að fara í langan
tíma í burtu útilokaðir frá því að
kjósa.
Yfirmenn yfirkjörstjórna í
Reykjavíkurkjördæmunum, sem
rætt var við í gær, mundu ekki til
þess að einhver hefði misnotað sér
þetta ákvæði í lögunum og kosið aft-
ur og aftur utan kjörfundar, þó kæmi
fyrir að fólk kysi einu sinni utan kjör-
fundar og mætti svo líka á kjörstað.
Utankjörfundar-
atkvæðagreiðsla hafin
Morgunblaðið/Ómar
Bessastaðir Nú má kjósa á milli forsetaframbjóðenda utan kjörfundar.
Kosning til forseta hafin áður en framboðsfrestur rennur út
Utan kjörfundar
í Reykjavík
» Utankjörfundaratkvæða-
greiðsla vegna forsetakjörs
hefst við embætti sýslumanns-
ins í Reykjavík í dag. Atkvæða-
greiðslan fer í fyrstu fram á
skrifstofu embættisins í Skóg-
arhlíð 6, alla virka daga milli kl.
8:30 og 15. Um helgar er opið
frá 12-14.
Byggingavöruverslunin Bauhaus
verður loks opnuð í dag klukkan 8
en fyrst var tilkynnt um opnun
verslunarinnar hér á landi árið
2008.
Verslun Bauhaus í Grafarholt-
inu er sögð vera stærsta verslun
landsins en hún er samtals 22 þús-
und fermetrar að stærð og í henni
munu viðskiptavinir geta valið úr
rúmlega 120 þúsund vörunúm-
erum. „Það held ég ekki, við vit-
um að á Reykjavíkursvæðinu búa
um 200 þúsund manns og við
byggjum 22 þúsund fermetra
verslun sem lítur kannski út fyrir
að vera of stór. En af því að af-
hendingartíminn hér er aðeins
lengri ákváðum við að hafa búðina
og vöruhúsið í stærri kantinum,“
sagði Mads Jörgensen, forstjóri
Bauhaus á Norðurlöndunum, í
samtali við Sjónvarp mbl.is spurð-
ur hvort verslunin væri of stór.
Að sögn Halldórs Ó. Sigurðs-
sonar, framkvæmdastjóra Bau-
haus á Íslandi, á opnun verslunar-
innar í dag eftir að verða
sprenging inn á íslenskan markað.
„Já, alveg ótrúlega mikið og allt á
jákvæðum nótum, þannig að ég
held að dagurinn á morgun verði
alveg sprenging, mjög öflug
sprenging,“ sagði Halldór í sam-
tali við Sjónvarp mbl.is í gær að-
spurður hvort hann hefði fundið
fyrir mikilli eftirvæntingu fyrir
opnun verslunarinnar.
Klukkan 7 í dag hefst opn-
unarhátíð Bauhaus en henni stýrir
Felix Bergsson leikari. Við hátíð-
ina verður happdrættismiðum
dreift á meðal viðskiptavina en 10
heppnir þátttakendur munu vinna
100 þúsund króna úttekt í versl-
uninni sem verður opnuð klukku-
tíma síðar, klukkan 8.
skulih@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
22 þúsund fermetrar Verslun Bauhaus verður opnuð eldsnemma í dag.
Bauhaus-verslun
opnuð í dag
www.forlagid.i s – alvöru bókaverslun á net inu
MÖGNUÐ
SÖ GU F L É T T A
bbbbb
„... spenna sem grípur og heldur manni föstum ...“
E K S T R A BL A DE T
NÝ
KILJA! Hvern ætlar þú að
gleðja í dag?
Skannaðu
kóðann til að
skoða myndskeið