Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 Íslenska ullin er einstök Kíktu eftir uppskriftabókum í næstu verslun. Sjá sölustaði á istex.is Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar Starfsemi LsA 2011 Allar fjárhæðir í milljónum króna Breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris 31.12 2011 2010 Samtals Samtals Iðgjöld 107 102 Lífeyrir -189 -177 Fjárfestingartekjur 81 78 Fjárfestingargjöld -7 -4 Rekstrarkostnaður -7 -6 Lækkun/hækkun á hreinni eign á árinu -15 -7 Hrein eign frá fyrra ári 916 923 Hrein eign til greiðslu lífeyris 901 916 Efnahagsreikningur Verðbréf með breytilegum tekjum 259 196 Verðbréf með föstum tekjum 531 500 Veðlán 18 19 Bankainnistæður 75 127 Kröfur 5 5 Aðrar eignir 908 920 Skuldir -7 -4 Hrein eign til greiðslu lífeyris 901 916 Kennitölur Nafn ávöxtun 7,6% 7,7% Hrein raunávöxtun 2,3% 4,9% Hrein raunávöxtun - 5ára meðaltal -4,1% -3% Fjöldi sjóðfélaga 52 54 Fjöldi lífeyrisþega 220 211 Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,8% 0,7% Eignir í íslenskum krónum í % 96,1% 95,6% Eignir í erlendum gjaldmiðlum í % 3,9% 4,4% Eign umfram heildarskuldbindingar í % -83,1% -81,6% Eign umfram áfallnar skuldbindingar í % -84,7% -83,2% Birt með fyrirvara um prentvillur Hægt er að sjá ársreikning LsA 2011 í heild sinni á heimasíðu LSS: www.lss.is Ársfundur 2012 Ársfundur Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar verður haldinn föstudaginn 11. maí nk. kl. 12.00, í Bæjarþingsalnum á skrifstofum Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, Akranesi. Stjórn og framkvæmdastjóri Í stjórn lífeyrissjóðsins eru Árni Múli Jónasson, stjórnarformaður, Sævar Freyr Þráinsson og Valdimar Þorvaldsson. Framkvæmdastjóri sjóðsins er Jón G. Kristjánsson Aðsetur sjóðsins er hjá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga, Sigtúni 42, 105 Reykjavík, sími 570 0400, lss@lss.is - www.lss.is FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is „Þetta eru betri vaxtakjör en við átt- um von á,“ segir Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra, um erlent skuldabréfaútboð íslenska ríkisins sem haldið var á miðvikudag, en nið- urstaða þess var að fagfjárfestar frá Bandaríkjunum og Evrópu keyptu bréf fyrir milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði 124 milljarða króna, á ávöxt- unarkröfunni 6%. Árlegur vaxtakostn- aður af lántökunni nemur því 7,44 milljörðum króna. Í samtali við Morgunblaðið segir Oddný að lánið verði notað til að greiða niður gjaldeyrislán Norðurlandanna sem voru tekin í tengslum við efna- hagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Íslands. „Við viljum borga sem fyrst til baka þau neyðarlán sem við fengum frá okkar nágrannaþjóðum og AGS og sýna fram á að efnahagshorf- urnar séu góðar á Íslandi,“ segir Oddný, sem telur að útboðið sendi þau skilaboð að Ísland njóti trúverðugleika á mörkuðum. Það er hins vegar ljóst að vaxta- kostnaður gjaldeyrisforðans mun með þessu móti aukast til skemmri tíma þar sem gjaldeyrislán Norður- landanna, sem eru í evrum, eru á tölu- vert lægri vöxtum eða um 3,25% í dag. Á það er bent af Greiningu Íslands- banka að þetta þýði að af hverjum milljarði evra þarf ríkið nú að greiða 5,3 milljarða króna, en ríflega 7,4 millj- arða af nýja skuldabréfinu. Oddný telur aftur á móti að það skipti máli í þessu samhengi að með því að tryggja stórt erlent lán til tíu ára þá takist íslenska ríkinu að lengja umtalsvert í endurgreiðsluferli gjald- eyrisforðans. „Það mun vinna með okkur til lengri tíma.“ Hún bendir enn- fremur á að það skipti ekki síður máli að íslenska ríkið ryðji brautina – með því að fara á erlenda lánamarkaði og ná góðum vaxtakjörum – fyrir þau fyr- irtæki hérlendis sem þurfa að sækja sér erlenda fjármögnun á komandi misserum. Lönd í „tómu rugli“ Ef litið er til ríkja á evrusvæðinu þá sést að aðeins Portúgal og Grikkland eru með hærri ávöxtunarkröfu á tíu ára ríkisskuldabréf en Ísland um þess- ar mundir. Einn viðmælandi Morgun- blaðsins segir að það komi á óvart að Ísland sé að fjármagna sig á sömu kjörum og lönd á evrusvæðinu sem eru í „tómu rugli.“ Aðeins tvær vikur eru síðan spænska ríkið, sem er með mikinn halla á ríkisfjármálum og nánast gjald- þrota bankakerfi, gaf út ríkisskulda- bréf til tíu ára á 5,74% vöxtum. Sú staðreynd að Ísland er að fjármagna sig á sambærilegum kjörum og Spánn og Ítalía – lönd sem eru bæði með tölu- vert hærri lánshæfiseinkunn en Ísland – gæti hins vegar gefið til kynna sterk- ari undirliggjandi lánshæfiseinkunn hjá íslenska ríkinu. Þorbjörn Atli Sveinsson, hagfræð- ingur hjá greiningardeild Arion banka, telur jákvætt að íslenska ríkinu hafi tekist að gefa út erlent skuldabréf til langs tíma og að vaxtakjörin séu enn- fremur ásættanleg. „Þau stinga ekki í stúf miðað við aðstæður á markaði,“ segir Þorbjörn, en bætir því við að „eftir sem áður þá stendur sú spurning ósvöruð hvað við ætlum að gera við all- an þennan gjaldeyrisforða. Honum fylgir gríðarlegur vaxtakostnaður.“ Vaxtakostnaður mun hækka til skemmri tíma  Lengt í endurgreiðsluferlinu  Sambærileg kjör og Spánn Milljarða dala lán » Fjórföld eftirspurn var í milljarða dala skuldabréfaút- boði íslenska ríkisins. » Lánið notað til að greiða gjaldeyrislán Norðurlandanna, sem eru á lægri vöxtum. » Vaxtakjörin sambærileg og á spænskum og ítölskum ríkis- skuldabréfum. Há vaxtakjör í evrópsku samhengi ávöxtunarkrafa á eftirmarkaði á tíu ára ríkisskuldabréf Heimild: Financial Times 25% 20% 15% 10% 5% 0 Dan mö rk Þýs kala nd Sví þjó ð Fin nla nd Bel gía Ítal ía Spá nn Ísla nd Por túg al Grik klan d Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Engar hópupp- sagnir bárust Vinnumálastofnun í aprílmánuði síð- astliðnum. Undan- farna 5 mánuði hefur aðeins ein hópuppsögn verið tilkynnt en í febr- úar var 21 manns sagt upp í bygging- ariðnaði. Á sama tíma í fyrra hafði tæplega 300 manns verið sagt upp störfum í samtals átta hópuppsögnum, að því er fram kom í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka í gærmorgun. Engar hópuppsagnir bárust í aprílmánuði Atvinna Færri hópuppsagnir. ● Tap varð á rekstri Icelandair Group á fyrstu þremur mánuðum ársins og nam það 13,2 milljónum dala, jafnvirði um 1,6 milljarða króna. Á sama tíma í fyrra var hins vegar 9,1 milljón dala tap á rekstri félagsins. Rekstrartekjur námu alls 157,7 milljónum á tímabilinu, sem er 20,7% aukning frá sama tíma í fyrra. Rekstrarkostnaður jókst einnig, eða um 21,5% og nam 160,7 milljónum dala. Í tilkynningu frá félaginu er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni , forstjóra Ice- landair Group, að afkoma félagsins á fyrsta ársfjórðungi hafi verið betri en áætlanir fyrirtækisins gerðu ráð fyrir og einkennst af innri vexti. Aukning í far- þegatekjum var 31%. 13,2 milljón dala tap hjá Icelandair á 1. fjórðungi STUTTAR FRÉTTIR                                           !"# $% " &'( )* '$* +,-./- ,00.,1 +,2.+2 ,+.3-+ ,+.145 +3.,14 +-2.+4 +.21+, +5+.+4 +4,.1 +,1.0- ,00./- +,2.2, ,+.352 ,+.2-, +3.,55 +-2.21 +.212/ +5+./- +4,.32 ,++.1522 +,1.-- ,0+.,, +,2.35 ,+.525 ,+.252 +3.-2, +-2.5, +.220, +5,.- +4-.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.