Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is Það eru alltaf þjálfarar þér til aðstoðar … Heilsurækt fyrir konur Sumarkortin komin í sölu 11.900 kr. Gilda til 10. ágúst Æfingin hjá okkur tekur aðeins 30 mínútur Hringdu og f áðu frían prufutím a STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Veiðimenn fengu aðgang að fjölda silungsveiðisvæða 1. maí síðastliðinn og hafa margir þegar haldið spennt- ir til móts við vorið með stöng í hendi. Og víða að berast fréttir af ágætum afla, eins og meðal annars má sjá á nýjum veiðivef Mbl.is. Margir eru spenntir fyrir Þingvalla- vatni, enda mega duglegir veiði- menn eiga von á að setja í stóra urr- iða á þessum tíma árs, þegar þeir leita upp á grunnið í leit að æti. Veiðimaður einn setti strax í og landaði tveimur sannkölluðum bolt- um, 14 og 18 punda. Tók hann þá á flugu og sleppti að viðureign lokinni. Heyrst hefur að menn hafi sett í stöku fiska hér og þar í þjóðgarðs- landinu, suma væna. Þá taka ein- hverjar bleikjur fluguna en það er þó frekar fátítt þetta snemma; reynsluboltarnir segja bleikjuna fara að gefa sig þegar birkið brumar í þjóðgarðinum en það er venjulega upp úr 20. maí. Tóku þungar púpur Urriðaveiði hófst 1. maí efst í Ell- iðaánum, uppi undir vatni eins og síðustu vor. Veiðimenn sem veiddu á stangirnar tvær í fyrradag sögðu mikið vatn í ánni og aðstæður frekar erfiðar. „Við fengum þó sjö urriða og sá stærsti var mjög fallegur, 50 cm. Þeir tóku flestir mjög þungar púpur í Höfuðhyl og þar í kring,“ sagði hann. Hlíðarvatn í Selvogi er eitt hinna vinsælu silungsvatna sem veiðimenn flykktust að í vikunni. Reyndar er aðeins veitt á 14 stangir í vatninu, á vegum fimm veiðifélaga, og þær voru allar mannaðar fyrstu veiðidag- ana eins og venjulega er raunin í maí og júní, enda umhverfið hrífandi og Hlíðarvatnsbleikjan heillandi í dynt- um sínum – og einstaklega bragð- góð. Blaðamaður var við vatnið og get- ur tekið undir orð veiðimanns sem hann hitti eftir fyrsta veiðidaginn. „Það virðist vera fiskur á öllum helstu veiðistöðum, við félagarnir höfum verið að fá einn eða tvo á hverjum stað og verðum enn meira varir en þetta eru grannar tökur,“ sagði hann. Vildu bara litlar flugur Þrátt fyrir svala gjólu þarna við suðurstöndina tókst að ná upp bleikjum hér og þar, á nafnkunnum veiðistöðum á borð við Kaldós og Mosatanga. Athygli vakti að þetta voru mikið fallegir fiskar, um og yfir 40 cm, og stútfullir af æti. Lífríki vatnsins virðist vera í góðu standi. Ekki var þó hægt að tala um neina „myljandi töku“ fyrr en flugur voru smækkaðar og Peacock númer 14 sökk vel á afmörkuðum bletti út frá Hlíðarey; þar tóku fimm bleikjur í beit og daginn eftir aðrar fjórar, þær tóku reynda fluguna Ölmu Rún, einnig númer 14. Hinn 1. maí veiddi félagi í Ár- mönnum afar væna bleikju í Hlíð- arvatni, hún tók Teal & black við Kaldóshólma, reyndist 52 cm löng og tæp fimm pund á þyngd. Nils Folmer Jörgensen og Ásta Ólafsdóttir settu í sannkallaða stór- fiska í Minnivallalæk á dögunum þegar þau lönduðu, og slepptu eins og þar ber að gera, 10 og 16 punda urriðum og nokkrum fleirum sem voru ekki miklu minni. Þetta eru staðbundnir fiskar, sem ná þessari stærð þar sem veitt hefur verið og sleppt um árabil í þessari merku urriðaá í Landsveitinni. Næst- stærsti fiskurinn tók þurrflugu en báðir þeir stóru veiddust í Stöðv- arhyl, sem hefur verið sannkallaður stórfiskahylur gegnum árin. Stórurriðar að taka við Þingvelli Morgunblaðið/Golli Myndarlegur Gísli Harðarson með 50 cm urriða sem hann veiddi neðan við Höfuðhyl í Elliðaánum í vikunni.  Ágæt bleikjuveiði í Hlíðarvatni Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég setti saman virkjanavefinn í þeirri barnalegu trú að þekking geti aldrei skaðað. Ég er hræddur um að öfgakennd um- ræða um virkjan- ir hafi fælt marga frá því að kynna sér virkjanir og mikilvægi þeirra. Krafa er gerð um að menn skipi sér í fylkingar, með eða á móti virkj- unum, og fyrir vikið þora margir ekki að láta álit sitt í ljós,“ segir Sig- urður Ingi Friðleifsson, fram- kvæmdastjóri Orkuseturs, um að- draganda þess að hann settist niður og bjó til upplýsinga- og spurninga- vef um vatnsafls- og jarðvarmavirkj- anir á Íslandi. Er vikið að því hvern- ig hægt er að nálgast vefinn í hnot- skurninni hér til hliðar. Einfaldanir og rangfærslur „Kostir einstakra virkjana vilja drukkna í einfölduninni: Að vilja virkjanir eða vera á móti virkjunum. Annað atriði varðar fullyrðingar um að verið sé að fórna endanlega til- teknum virkjunarkostum þegar gerðir eru samningar um sölu á raf- orku til stórra kaupenda. Það er okk- ar val og næstu kynslóða að ákveða hvað verður um orkuna þegar samn- ingarnir renna út. Virkjunin og ork- an verða enn til staðar og gætu þess vegna knúið rafbíla í framtíðinni. Vegna einsleitni í umræðu vilja aug- ljósir kostir orkukerfisins gleymast. Til að gera illt verra veit íslenskur almenningur ekki mikið um þær virkjanir sem þegar er búið að taka í gagnið, þrátt fyrir að við séum ein merkasta orkuþjóð heims. Ég hugsa til dæmis að fleiri myndu þekkja steinasafn Petru á Stöðvarfirði en Sigölduvirkjun. Með fullri virðingu fyrir safninu gæti þessi eina virkjun séð öllum íslenskum heimilum fyrir rafmagni. Samt er almenn vitneskja um þessa tilteknu virkjun takmörk- uð. Hvort sem okkur líkar betur eða verr eru virkjanir stærstu mannvirki Íslands. Við höfum ekki stór hring- leikahús, Colosseum, eða stórar dómkirkjur. Eins ættu virkjanirnar að vera veigameiri hluti af landa- fræðikennslu. Það er engin ástæða til að fela þær á landakortinu,“ segir Sigurður Ingi og víkur að hreinleika raforkuframleiðslunnar á Íslandi. Íslendingar eiga heimsmetið „Það vita ekki allir að við eigum heimsmet í raforkuframleiðslu á hvern íbúa og erum í hópi tíu efstu ríkja í framleiðslu á grænni raforku í Evrópu, án höfðatölutengingar. Ís- lendingar geta gengið að ódýrustu grænu orkunni sem völ er á. Hver einasta rafmagnsinnstunga gefur grænt og kolefnisfrítt rafmagn. Samt er lítið gert með sérstöðu Ís- lands í orkumálum. Erlendis er t.d. algengt að einstök hótel auglýsi það í bak og fyrir ef þau kaupi græna og endurnýjanlega orku. Hér er hvert einasta hótel keyrt á 100% grænu rafmagni og hita. Þó er þetta hvergi sérstaklega tekið fram eða út á þetta gert í ferðaþjónustunni. Á hótelher- bergi hér getur ferðamaður t.d. horft á sjónvarp án þess að auka útblástur gróðurhúsaloftegunda í leiðinni,“ segir Sigurður Ingi en jafnframt er hægt að finna ýmsan fróðleik á öðru vefsetri hans, orkusetur.is. Nýr virkjanavefur slái á öfgar í umræðu  Framkvæmdastjóri Orkuseturs vill kynna virkjanir betur Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hvaða virkjun er þetta? Hægt er að nálgast upplýsingar um Sigölduvirkj- un á upplýsinga- og spurningavefnum um vatnsafls- og jarðvarmavirkjanir. Sigurður Ingi Friðleifsson Nýr vefur » Virkjanavefinn er að finna á vefslóðinni kennsluvefur.is- mennt.is/virkjanir. » Þar er hægt að finna fróð- leik, gera ýmsar æfingar og taka próf þar sem spurt er út í einstakar virkjanir, afl þeirra og margt, margt fleira.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.