Morgunblaðið - 05.05.2012, Síða 10

Morgunblaðið - 05.05.2012, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9-18, LAUGARDAGA: 11-14 , MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM SJÓNMÆLINGAR– LINSUMÁTANIR TRAUS T OG GÓ Ð ÞJÓNU STA Í YFIR 1 5 ÁR T I L B O Ð GLERAUGU FRÁ 19.900,- Fimmtudaginn 10. maí býður Íslandsstofa til fræðslufundar þar sem Vlad Vaiman, prófessor í alþjóðlegri stjórnun, lýsir árangursríkri tækni við samninga í ólíkum menningarheimum. Meðal spurninga sem leita á svara við á fundinum eru: Af hverju er mikilvægt að skilja sinn eigin menningarheim? Hvernig tryggjum við árangursrík samskipti milli menningarheima? Hvernig forðumst við vandamál í samskiptum og samningum Fundurinn verður á Hilton Reykjavík Nordica kl. 9:00-10:30. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig í síma 511 4000 eða með tölvupósti á islandsstofa@islandsstofa.is Nánari upplýsingar veita: Björn H Reynisson, bjorn@islandsstofa.is og Hermann Ottósson, hermann@islandsstofa.is Vlad Vaiman er prófessor í alþjóðlegri stjórnun og forstöðumaður framhaldsnáms í viðskiptafræði við Háskóla Reykjavíkur. Hann er með doktorsgráðu í fjölmenningarstjórnun frá Háskólanum í St. Gallen í Sviss. María Ólafsdóttir maria@mbl.is S heila Rietscher starfar sem yfir markaðsstjóri hjá þýska postulínsfyrirtæk- inu Kahla. Undir starfssvið hennar heyrir hönnun, samskipti og markaðsstörf en að- alhönnuður fyrirtækisins er Barbara Schmidt. Voru þær nýverið staddar hérlendis til að velja nemendur frá Myndlistarskóla Reykjavíkur til að starfa tímabundið hjá fyrirtækinu. Stutt við ungt fólk Kahla var stofnað árið 1844 en endurstofnað árið 1994 af Günther Ra- ithel. Hann er enn hluthafi en sonur hans Holger hefur verið fram- kvæmdastjóri í fjölskyldufyrirtækinu frá árinu 2005. Hönnun frá Kahla hef- ur hlotið margs konar verðlaun. En mikilvægur hluti af starfseminni er stuðningur við ungt hæfileikafólk. Frá árinu 1994 hafa verið haldnar smiðjur með listamönnum og hönnuðum, haldnar hönnunarsamkeppnir og unn- ið í samvinnu við hönnunarskóla. Einnig er nú starfandi Günther Rait- hel-stofnunin sem starfar sjálfstætt að því að styrkja ungt hæfileikafólk. Fallegar og þægilegar Hönnun Kahla vefst í kringum nútímalegan lífsstíl en Sheila segir ákveðinn stíl skipta mestu máli. „Postulínssafn varir að eilífu svo það er í raun ekki hægt að hanna hluti eftir því sem er samkvæmt nýjustu tísku þar sem að tíska þýðir að hlut- urinn uppfyllir aðeins óskir til styttri tíma. Því er stíll okkur mikilvægari en tíska og hann má t.d. móta með litum og notkunargildi. Markhópur okkar er alþjóðlegur en um leið við viljum vera trú okkar lífsspeki sem við köllum porselín fyrir skilningarvitin. Það felur í sér að við viljum að vörurnar séu fallegar fyrir augað. En líka að það sé þægilegt að koma við þær og nota og að þær hafi fjölbreytt notagildi. Þannig er t.d. hægt að nota disk fyrir lok á skál eða sem undirskál. Eins viljum við að fólk geti ungt haft efni á hlutunum okkar og byrjað snemma að safna,“ segir Sheila. Yfirsýn með framleiðslunni Fyrirtækið hefur einnig skapað sér sérstöðu hvað varðar umhverf- isvernd og starfar eftir umhverf- isvænum leiðum eins og unnt er. Þannig hefur til að mynda sérstök orkustöð verið byggð fyrir fyrirtækið á þaki verksmiðjunnar sem framleiðir Postulín fyrir skilningarvitin Þýska postulínsfyrirtækið Kahla er eitt þekktasta og elsta slíka fyrirtækið í heim- inum. Hjá fyrirtækinu er lögð áhersla á að styðja við bakið á ungum hönnuðum og hefur Myndlistarskólinn í Reykjavík verið í samstarfi við fyrirtækið í tvö ár. En annar hópur nemenda hefur nú verið valinn til að starfa tímabundið hjá fyrir- tækinu. Hjá Kahla er lögð áhersla á stílhreina hönnun sem þolir tímans tönn. Morgundögg Hönnun Sunnu Shabnam Halldórudóttur. Saggur Dagmar Erla Jónasdóttir færir gamla steinhlaðna reykkofann heim. Vefsíðan thebellyproject.com er, líkt og nafnið gefur til kynna, verkefni sem snýst um maga. Hugmyndin varð til upp úr spjalli vinkvenna sem lang- aði að sýna að magar kvenna eru al- veg jafn misjafnir og þeir eru margir. Svo þær fóru á stúfana og leituðu til vinkvenna sinna um að fá að mynda á þeim magann. Magarnir á síðunni eru nafnlausir og án andlits. En þó segir á vefsíðunni að margar konur hafi verið afar tregar til að láta mynda á sér þennan mikilvæga hluta líkam- ans. Enda eru konur oft mjög meðvit- aðar um magann á sér og jafnvel feimnar við að sýna hann, sér- staklega eftir aðgerðir eða með- göngu og fæðingu. En myndirnar á þessari vefsíðu sýna myndir af alls konar konum sem hafa hreint ekkert til að skammast sín fyrir. Flatur magi eða með fellingum, með örum eða blettum, hann er þinn og bara þinn! Vefsíðan www.thebellyproject.wordpress.com Malli Það er ágætt að hafa eitthvað smá til að grípa í. Sjáðu sæta mallakútinn minn Alþjóðlegur hláturdagur er á morgun, sunnudaginn 6. maí 2012. En þá verð- ur, samkvæmt venju, farið í hlátur- göngu í Laugardalnum. Safnast verð- ur saman við gömlu þvottalaugarnar kl. 13.00, gengið um dalinn, hlegið og sungið. Það er indverski læknirinn dr. Madan Kataria sem er upphafsmaður hláturjógahreyfingarinnar. Boð- skapur hans er að með því að hlæja og gleðjast saman efli fólk skilyrðis- lausan kærleika og frið meðal ein- staklinga og þjóða á jörðinni okkar. Leggjum okkar af mörkum til að efla frið og kærleika. Fjölmennum í Laug- ardalinn. Gleðjumst saman. Endilega … … hlæið dátt á hláturdegi Hlegið Hressandi og gott er að hlæja. Morgunblaðið/Kristinn Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.