Morgunblaðið - 05.05.2012, Side 15

Morgunblaðið - 05.05.2012, Side 15
samlega. Það hefur allt kapp verið lagt á að hafa umfangið eins lítið og kostur er.“ Nokkuð frá Eldvörpunum er ann- ar og mun stærri borteigur, um 6.000 fermetrar að stærð, sam- kvæmt lauslegri mælingu. Á honum eru tvær niðurdælingarholur fyrir Svartsengi og Ásbjörn segir að það hafi verið sú stærð sem þurfti fyrir tvær holur. Þá tekur Ásbjörn fram að HS Orka vinni náið með Grindavíkurbæ að undirbúningi framkvæmda við Eldvörp. Svæðið sé hverfisverndað og ekki verði hróflað við gígunum, enda séu þeir friðaðir. Teigarnir verði að mestu við núverandi veg og pípur og annað lagðar meðfram hon- um. Meðal þess sem hefur verið rætt um að gera er að leggja hraunhellur/ hraungrýti yfir þá borteiga sem ekki nýtast, þ.e. ef holurnar gefa ekki af sér orku. Þá megi nánast afmá um- merki um rask, líkt og hafi verið gert við hús Bláa lónsins. Slíkt sé ekki hægt að gera við vinnsluholur því þær þurfi að hreinsa reglulega með bortæki. Deiliskipulagstillaga að fram- kvæmdum í Eldvörpum er nú til meðferðar hjá Grindavíkurbæ. Borholur Nokkru fyrir neðan borholuna sem er á myndinni er önnur borhola. Teigurinn er heldur stærri. Hraun Við gígaröðina Eldvörp er ætlunin að gera fimm nýja borteiga. Óskabörn í fyrsta bekk fá hjálm frá Eimskip og Kiwanis Skráðu barnið þitt á www.oskaborn.is fyrir 10. maí Stuðlum að öryggi barnanna okkar í umferðinni með því að láta þau vera með hjálm þegar þau hjóla út í sumarið. www.eimskip.is MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 Skannaðu kóðann til að lesa nánar um málið á mbl.is Ómar Smári bendir á að tilviljun ein hafi ráðið því að vegurinn sem liggur upp að efra bor- stæðinu við Trölladyngju hafi ekki verið lagður yfir gamalt sel en tóftir þess kúra í hlíðinni. Raunar hafi vegurinn verið lagð- ur án gilds framkvæmdaleyfis. Þessar fornminjar hafi raunar hvergi verið skráðar. Hið sama eigi við um tóftir í Krýsuvík sem að óbreyttu muni fara undir borplan. Þar séu auðsjáanlega fornminjar sem hvergi hafi verið skráðar eða rannsakaðar. Aðspurður segir Ómar Smári að með tillögu HS orku vegna borunar í Krýsuvík hafi fylgt fornleifaskráning sem unnin var af Fornleifavernd rík- isins. „Í skýrslunni eru þessar tóftir ekki tilgreindar og það eru ekki nógu góð vinnubrögð,“ segir Ómar Smári. Þá mætti auðveldlega hafa borplanið á öðrum stað, aðeins nokkrum tugum metra frá séu ónýt útihús sem mætti rífa og nota svæðið sem borplan. Óskráðar fornminjar TILVILJUN RÆÐUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.