Morgunblaðið - 05.05.2012, Page 18

Morgunblaðið - 05.05.2012, Page 18
Norðmanna mikið traust til dóms- kerfisins þar í landi. Hann sagði að ekki væri hægt að fjalla um tiltrú almennings án þess að horfa á málið í víðara samhengi, setja þyrfti það í efnahagslegt og pólitískt samhengi. Hann vísaði í könnun um traust almennt en þar kom fram að um þrjátíu prósent svarenda teldu að flestum mætti treysta. „Traust á náunganum mælist hins vegar um sextíu prósent í nágrannalöndum okkar. Það er eitthvað skrítið í gangi hér á landi sem þarf að horfast í augu við. Traust fer minnkandi.“ Traustmælingar á dómskerfinu ekki góður mælikvarði Í erindi sínu sagði Róbert að það væri liðin tíð að rómantísk sýn á dómskerfið sæist. Hann reyndar dró í efa að almennar traustmælingar á dómskerfinu væru góður mæli- kvarði því fólk gerði eflaust ekki greinarmun á hæstaréttardómara og formanni lögmannafélagsins. All- ir leikendur væru því undir og því væri mælikvarðinn ekki réttur. Þá sagði hann að of margir mynd- uðu því ytra byrðið og almenningur vissi því of lítið um eðli dómstóla. Hann vísaði til þess að í Danmörku hefðu dómstólar útbúið kynningar- efni sem dreift var víða, en þar var sýnt fram á með aðgengilegum hætti út á hvað dómstólar gengju í landinu. Ennfremur benti Róbert á að ekki væri hægt að líta á fjölmiðla sem áreitisvald. Þvert á móti ætti í rekstri dómstóla að gera ráð fyrir samstarfi við fjölmiðla. Fjölmiðlar ættu að hafa sérstakan forgang að dómsmálum, og jafnvel ætti að koma upp stöðu löglærðs upplýsingafull- trúa hjá dómstólum. Að endingu sagði Róbert að nál- arauga fjölmiðla og almennings væri orðið stærra og það skipti máli hver ásýnd mála væri. Þó yrði að taka fram að íslenska dómskerfið væri mjög gott og gríðarlega skilvirkt. Markmið dómstólalaganna um aukna tiltrú hefur ekki náðst  Um 80% Norðmanna treysta dómskerfi sínu vel en aðeins 38% Íslendinga Morgunblaðið/Ernir Réttur Færri Íslendingar treysta dómskerfi sínu en aðrir Norðurlandabúar. SVIÐSLJÓS Andri Karl andri@mbl.is „Vanþekking skapar vantraust, það er grundvallaratriðið í þessari um- ræðu,“ sagði Róbert Spanó, prófess- or og forseti lagadeildar Háskóla Ís- lands, í málstofu um traust á dómstólum og tjáningarfrelsið á lagadeginum sem haldinn var á Nor- dica Hilton í gær. Hann kallaði eftir nánara samstarfi við fjölmiðla og að dómstólarnir kynntu starfsemi sína betur. Lagt var upp með að rætt yrðu um hvort réttarríkinu væri hætta búin vegna umfjöllunar um dómsmál í fjölmiðlum og hverjar væru skyld- ur og ábyrgð þeirra. Einnig hvers vegna traust almennings á dómstól- um hefði dalað á undanförnum árum og hvort of mikil fjarlægð væri á milli almennings og réttarkerfisins Þá var rætt um mikilvægi tjáning- arfrelsis og því velt upp hvernig vörslumenn réttarríkisins gætu staðið þéttar vörð um traust á dóm- stólum. Traust á dómstóla hefur minnkað frá 1999 Samkvæmt mælingu sem gerð var nýverið mælist traust á dómskerfinu meðal almennings 38%. Í erindi Arnars Þórs Jónssonar, sérfræðings við lagadeild Háskólans í Reykjavík, kom fram að traustið hefði aðeins einu sinni farið yfir 40% frá árinu 1999 og ljóst væri að markmið laga um dómstóla sem sett voru árið 1998 hefði augljóslega ekki náð markmiði sínu. Hann benti á að í greinargerð með frumvarpinu segði að megintil- gangur þeirra væri að styrkja stöðu og sjálfstæði dómstóla en ekki síður að auka tiltrú fólks á réttarkerfinu. Arnar benti á að það sem væri jafnvel meira truflandi væri að dóm- stólar annars staðar á Norðurlönd- um nytu mun meira trausts en ís- lenskir. Þannig bæru um 85% 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 ÞAÐ KOSTAR LÍKA AÐ ÞVO SJÁLFUR! LÁTTU OKKUR SJÁ UM ÞÍNAR SKYRTUR. 330 KR. SKYRTAN hreinsuð og pressuð -ef komið er með fleiri en 3 í einu Fullt verð 580 kr. Hverafold 1-3, 112 Reykjavík Grettisgötu 3, 101 Reykjavík Smáralind, 201 Kópavogur - NÚ Á ÞREMUR STÖÐUM Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is Efnalaug - Þvottahús Svandís Svav- arsdóttir um- hverfisráðherra uppfyllti ekki hæfiskröfur þeg- ar að hún stað- festi breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgar- svæðisins fyrir árin 2001-2024, þetta er álit Um- boðsmanns Alþingis. Beinir umboðs- maður því jafnframt til umhverfis- ráðuneytisins að taka umrædda staðfestingu til endurskoðunar. Um- boðsmanni Alþingis barst kvörtun vegna aðkomu Svandísar að málinu þegar hún sinnti störfum sem borg- arfulltrúi í Reykjavík og sem fulltrúi í skipulagsráði Reykjavíkur og í borgarráði. Breytingarnar sem um ræðir eru breytingar á svæðisskipulagi höf- uðborgarsvæðisins 2001-2024, „græni trefillinn“, á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024, Hólmsheiði („græni trefillinn“)-losunarstaður jarðvegs, og á aðalskipulagi Reykja- víkur 2001-2024, aðstaða fyrir fisflug og breytt stígakerfi, Hólmsheiði. Í fréttatilkynningu frá umhverfis- ráðuneytinu vegna álits Umboðs- manns Alþingis segir orðrétt: „Um- boðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að umhverfis- ráðherra hafi ekki uppfyllt hæfis- kröfur við staðfestingu og auglýs- ingu á tilteknum breytingum á skipulagsáætlunum Reykjavíkur- borgar og höfuðborgarsvæðisins. Niðurstaðan byggist á fyrri aðkomu ráðherra að málunum í borgarstjórn Reykjavíkur. Í álitinu beinir um- boðsmaður þeim tilmælum til um- hverfisráðuneytisins að það taki um- ræddar afgreiðslur til endurskoðunar. Ráðuneytið mun þegar í stað taka álitið til umfjöll- unar og endurskoða fyrri afgreiðslu í ljósi athugasemda og ábendinga um- boðsmanns og jafnframt hafa þær til hliðsjónar við afgreiðslu sambæri- legra mála hér eftir.“ skulih@mbl.is Uppfyllti ekki hæfis- kröfur Svandís Svavarsdóttir  Mun endurskoða fyrri afgreiðslu sína Hjallastefnan tekur við rekstri Tálknafjarðarskóla á komandi hausti. Samkvæmt viljayfirlýsingu sem skrifað var undir í gær mun Hjallastefnan reka skólann sem til- raunaverkefni í þrjú ár. Innan Tálknafjarðarskóla er grunnskóli, leikskóli og tónlistar- skóli. Nemendur eru í heildina um sjötíu. Þetta er í fyrsta skipti sem Hjallastefnan tekur að sér að annast unglingadeild grunnskóla og tónlist- arskóla. Breytingar eru í farvatninu vegna þess að skólastjóri Tálknafjarðar- skóla ákvað að hætta. Eyrún Ingi- björg Sigþórsdóttir, oddviti Tálkna- fjarðarhrepps, segir að foreldrar hafi haft frumkvæði að því að ganga til liðs við Hjallastefnuna og það hafi orðið niðurstaðan. Hún segir að starfsfólk skólans standi með hreppsnefnd og foreldrar séu al- mennt jákvæðir. „Markmiðið er að gera góðan skóla betri,“ segir Ey- rún. helgi@mbl.is Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson Skóli Nemendur fylgjast með staðfestingu samkomulags Margrétar Pálu Ólafsdóttur og Eyrúnar Ingibjargar Sigþórsdóttur í Tálknafjarðarskóla. Hjallastefnan rekur Tálknafjarðarskóla Eiríkur Tómasson hæstaréttar- dómari sagði við málstofu að þjóðfélagslega séð væri best að málum vegna hrunsins lyki sem fyrst. Þetta væru þó mál sem þyrfti að rannsaka til hlítar, þjóðfélagið gerði beinlínis kröfu um það, og óæskilegt væri ef það tækist ekki. „Ég held að traust muni ekki aukast ef við stöndum uppi eftir fimm til tíu ár og ekkert af þeim málum hafi verið upplýst. Það getur verið að það verði enginn sakfelldur eða fáir, færri en menn halda kannski. Þannig verður það að vera. Við getum ekki sveigt rétt- arríkið fyrir almenningsálitið. En það er óviðunandi að þau verði óupplýst.“ Einnig sagði hann að afar mik- ilvægt væri að efnislega væri leyst úr málum. Að hans mati væri slæm niðurstaða ef vísa þyrfti máli frá, en einnig ef sek- ir menn væru dæmdir sýknir saka, en það kæmi fyrir af og til. „Það er það verð sem við gjöldum fyrir réttarríkið. Þetta skilja lögfræðingar en almenn- ingur á erfitt með að skilja það, að réttaríkið er keypt þessu verði.“ Meðal viðstaddra var Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak- sóknari, sem kvaddi sér hljóðs. Sagði hann að útundan yrðu í umræðunni þau mál sem ekki væri lokið með ákæru, þau mál sem felld væru niður eða vísað frá rannsókn. Þau skiptu tug- um. Þá sagði hann að rannsókn í töluvert mörgum stórum mál- um mundi ljúka á þessu ári. Getum ekki sveigt réttarkerfið ÞJÓÐFÉLAGSLEGA BEST AÐ LJÚKA HRUNSMÁLUM SEM FYRST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.