Morgunblaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012
Á komandi kynslóðum verður alveg
kjörið að kynna sem frumlegasta
nýjung fyrir gestum okkar erlendis
frá, þar sem nú í
umræðunni er
minnt á að við
þyrftum að efla
sem mest gjald-
töku af ferða-
mönnum fyrir
veitta þjónustu
frekar en að telja
ferðamennina
sjálfa. En ferða-
menn leita eins
og alkunna er
eftir sem áhrifamestri upplifun
þekktra og frumlegra staða. En
það þarf að hýsa gesti okkar og
veita þeim örugga hvíld um nætur
á landinu okkar. En það er spurn-
ing hvort er friðsælla um nætur of-
an eða neðan sjávar?
Umdeildar hugmyndir fyrr á
þessu ári að byggingu hótels í
innbæ á Akureyri hafa knúið mig
sem fjöllistamann í huglægar til-
raunir. Við þurfum ekki fleiri stein-
kassa til að hýsa gesti okkar er-
lendis frá, heldur að bjóða þeim
upp á eins frumlega upplifun og
kostur er, hvort sem er í vöku eða
draumi. Ég er að tala um hönnun
sem hefði sem minnsta sjón-
mengun fyrir innbæinn og þar með
er hugmyndin meira og minna
komin undir sjávarmál, ef við
sjáum fyrir okkur garðslönguna
heima á lóð – en þó í manngengri
yfirstærð – jafnvel bílgengri stærð.
En tilvalið er að byrja á stuttum
göngum sem hefðu inngang við
Leirunesti og þjóðbraut í austur og
þar þyrfti að koma smá-landfylling
fyrir bílastæði. Og þar við inngang
í botnsjávargöngu yrðu gestir
boðnir velkomnir og boðið upp á
gjaldtöku við inngang. Gestir
ganga síðan inn göng niður eftir
botni pollsins til hvalaskoðunar á
annan hátt en áður á Íslandi. Kjör-
ið tilraunaverkefni fyrir fjársterka
eldhuga og mundi skapa störf til
aukinnar umferðar en minnkandi
umferðar til Vinnumálastofnunar.
Göng sem mundu liggja til að byrja
með í smá-hring eða í U-beygju.
En ég sé þetta þó fyrir mér mun
stærra: Ef við sjáum fyrir okkur
líkan af botni Akureyrarpolls og
þar yrði komið fyrir glærum plasts-
löngum í þéttriðnu neti. En þessi
hugmynd er stór og flókin og erfitt
að gera grein fyrir henni hér í
stuttu máli. En betri myndræn
kynning verður á öðrum vettvangi.
En slönguhótel úr glæru plasti,
gleri og öðrum efnum sem verk-
fræðingar finna best. En hótel ein-
ingar hyldýpis í hylkjaveröld her-
bergja í friðsælum samtölum við
forvitið lífríki sem gæti eflst við
nýja byggingu í stað þess að
skemmast. Og gróðurlíf bindur sig
við nýjan gest og hvalirnir yrðu
forvitnir í manngert eðli sköpunar
ekki síður en ferðamannaáhugi á
hvölum.
ATLI VIÐAR
ENGILBERTSSON,
fjöllistamaður.
Slöngu/gönguleið um
botninn á Akureyrarpolli
Frá Atla Viðari Engilbertssyni
Atli Viðar
Engilbertsson
Bréf til blaðsins
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
Það borgar sig að
nota það besta!
Bíla- og vélavörur
...sem þola álagið!
Kúplingar- og höggdeyfar
Stýrisendar og spindilkúlur
Hjólalegusett Hjöru- og öxulliðirHemlahlutirKúlu- og rúllulegur
Viftu- og tímareimar
Húsnæðið er ca 1.100 m2,
- Verslunarhúsnæði á 1. hæð (götuhæð), ehl. 02-0101 og 02-0102 ca 550 m2
- Lagerhúsnæði og verkstæðisaðstöðu, ehl. 01-0101 ca 320 m2
- Skrifstofuhúsnæði á 2. hæð ehl. 02-0201 ca 230 m2
Eignin selst í því ástandi sem hún er í nú.
Áskilinn er réttur til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er.
Nánari upplýsingar veitir, Jóhann Baldursson, hdl.
skiptastjóri þb. Heiðrúnar ehf, sími 896-5020
Þrotabú Heiðrúnar ehf
auglýsir til sölu hluta
fasteignarinnar
Ármúla 40, Reykjavík