Morgunblaðið - 05.05.2012, Page 39

Morgunblaðið - 05.05.2012, Page 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 ✝ Karl Frey-steinn Hjelm fæddist í Viðfirði í S-Múlasýslu 26. júní 1939. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 25. apr- íl 2012. Foreldrar hans voru Karl Hennig Hjelm frá Örebro í Svíþjóð, f. 4. mars 1883, d. 2. janúar 1950 og Sigríður Sveinsdóttir frá Viðfirði, f. 26. mars 1899, d. 26. feb. 1989. Bróðir Karls var Frið- þór Sófus, f. 26. ágúst 1940, d. 8. ágúst 1974. Karl ólst upp í Við- firði en fluttist til Neskaupstaðar ásamt móður sinni og bróður ár- ið 1955. Sambýliskona Karls um árabil var Þuríður Una Péturs- dóttir, f. 9. janúar 1957 og henn- ar dóttir er Olivera Ilic, f. 26. febrúar 1980. Karl hafði miklar félags Norðfjarðar um árabil. Hann safnaði frímerkjum og átti gott safn af þeim. Karl var ástríðufullur steinasafnari og leitaði sér mikillar þekkingar á því sviði sem og jarðfræði al- mennt. Hann var góður ljós- myndari og framkallaði megnið af sínum myndum sjálfur. Karl var sjálfmenntaður á öllum sín- um áhugasviðum og las allkyns fróðleik um þau á íslensku og á öðrum tungumálum. Karl hafði einnig áhuga á tónlist og byrjaði ungur að spila á harmonikku og var góður nikkari eins og stund- um er sagt. Karl tók þátt í ýms- um félagsstörfum og vann mikið með æskufólki og var með klúbba í skák, ljósmyndun og frí- merkja- og steinasöfnun á vegum æskulýðsráðs Neskaupstaðar. Útför Karls Freysteins verður frá Norðfjarðarkirkju í dag, 5. maí 2012, kl. 14. mætur á Oliveru og tókst með þeim traust vinátta og fylgdist hann grannt með frama hennar. Karl lauk barnaskóla í Heima- vistarskóla Norð- fjarðarhrepps sem og gagnfræðaprófi í Neskaupstað. Einn- ig stundaði hann kennaranám einn vetur í Kennaraskólanum í Reykjavík. Karl vann um tíma á skrifstofum bæjarsjóðs Neskaup- staðar en lengst af vann hann hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað. Vann þar við ýmis störf í síld- arbræðlsunni, í saltfiski og við landanir. Karl hafði margvísleg áhugamál sem hann stundaði af miklum áhuga. Hann var góður skákmaður og vann titla í þeirri íþrótt og var formaður Tafl- Ég hitti Kæ fyrst á myndlist- arnámskeiði sem ég hélt vorið 1984. Mér fannst hann efnilegur í listinni og eftir því sem ég kynnt- ist honum betur kom betur í ljós hve fjölhæfur og greindur hann var. Hann tók gullfallegar ljós- myndir, gekk á fjöll og safnaði fal- legum steinum. Hann heillaði mig með harmonikkuleiknum og hann var fjölfróður um flesta hluti og vel lesinn. Kæ orti bæði gamanvís- ur og önnur kvæði og var mikill náttúruunnandi. Við trúlofuðum okkur á Jóns- messunótt þá um sumarið og hóf- um sambúð í Víðimýrinni. Olivera dóttir mín var þá fjögurra ára og urðu þau Kæ strax mjög hænd hvort að öðru. Við fórum í steina- ferðir og skoðuðum austfirska dali og fjöll og ávallt var hann stoltur af því hvað litla uppeldisdóttirin var dugleg að ganga langar leiðir. Í samskiptum okkar þriggja ríkti gleði og hamingja. Barnið og nátt- úran urðu honum að myndefni og alltaf þótti honum gaman að spila fyrir Oliveru og vinkonur hennar. Þá var oft dansað á lóðinni við undirleik harmonikkunnar. Þegar Olivera byrjaði í skóla og fór að stunda íþróttir og spila á hljóðfæri var Kæ alltaf tilbúinn til að keyra hana í keppnir og fylgjast með henni á tónleikum. Alltaf fylgdist hann stoltur með náminu hjá henni og vildi hennar veg sem mestan. Það var alltaf skemmti- legt að heyra hve gott vald hann hafði á íslenskri tungu og ekki laust við að sum orðin sem hann notaði væru nokkuð forn í málinu. Þetta öryggi og það lifandi um- hverfi sem hann bjó okkur öll þau ár sem við bjuggum hjá honum voru okkur öllum óendanlega dýr- mætt veganesti fyrir framtíðina. Þegar Olivera var á sautjánda ári fór hún suður í skóla til geta menntað sig meira í hljóðfæraleik og í framhaldsskóla. Það var erfitt fyrir Kæ að horfa á eftir auga- steininum sínum suður en hann fylgdist þó áfram vel með hennar framgangi. Þegar ég fór suður ári seinna í nám gat hann ekki hugsað sér að yfirgefa sína heimabyggð. Honum var þó annt um að okkur vegnaði vel og héldum við góðum vinskap alla tíð. Ekki leist Kæ alveg á blikuna þegar Olivera gerðist lögreglu- maður og hélt að það væri of erfitt fyrir hana en þegar hann sá hvað hún stóð sig vel í námi og starfi varð hann sáttur. Þegar hún fór síðan í háskólanám varð hann yfir sig ánægður og stoltur af stúlk- unni sem hann leit ævinlega á sem dóttur sína. Kæ hafði mikinn kærleik að gefa og reyndist okkur umhyggju- samur og gefandi. Við biðum alltaf spenntar eftir bókapakkanum frá honum um jólin og fylgdumst allt- af með helstu fréttum frá Norð- firði í gegnum Kæ. Að morgni 24. apríl var hringt í mig frá Landspítalanum að beiðni Kæ en hann var þá á leið í hjarta- aðgerð eftir að hafa fengið hjarta- áfall þá um morguninn. Við Oli- vera fórum til hans en ekki tókst að bæta skaðann eftir áfallið. Morguninn eftir kvaddi Kæ þessa jarðvist. Innilegustu þekkir fyrir alla þá birtu sem þú hefur veitt okkur frá okkar fyrstu kynnum og alla tíð síðan. Við Olivera munum sakna þín sárt. Þuríður Una Pétursdóttir. Okkur langar til að minnast frænda okkar Kaj, eins og hann var alltaf kallaður, en Freysteinn faðir okkar og hann voru systk- inasynir og ólust upp á sama heimili í Viðfirði. „Skírðu hann í hausinn á mér,“ hafði pabbi sagt við Karl Henning Hjelm, föður hans, og þá svaraði hann að bragði: „Ætli að sé ekki best að hann heiti í hausinn á okkur báð- um.“ Þá var komið nafn á dreng- inn, Karl Freysteinn Hjelm. Kaj var tíður gestur á heimili okkar og var spennandi að vera barn í kringum hann því hann hafði tíma fyrir og áhuga á ýmsum hlutum og gerði flest annað en fullorðna fólk- ið í kringum okkur. Kaj var oft með myndavél og/eða bakpoka á leið í eða úr fjallgöngu. Oft voru í för áhugasamir krakkar, enda mikill galdur í að henda gráum hversdagslegum steinum í urðina og sjá hvað gerðist þegar þeir hrukku í sundur og fá fyrirlestur um heiti og uppruna, en aðalmálið var hvort gimsteinar leyndust í næsta broti. Kaj safnaði frímerkj- um og var áhugaljósmyndari og hélt nokkrar sýningar. Hann hafði einnig áhuga á skák og spilaði á harmonikku. Margar góðar minn- ingar leita á hugann úr firðinum fagra, gangur lífsins heldur áfram, lífið verður öðruvísi án Kaj og þökkum við systkinin vináttu og frændsemi. Ólína, Stefanía, Ingvar og Páll. Í dag kveðjum við Karl Hjelm, kæran frænda og vin. Kaj ólst upp í Viðfirði, hjá foreldrum sínum og bróður. Í Viðfirði bjó stórfjöl- skyldan þar sem margt var um manninn, ólust þau þar upp saman frændsystkinin og systkinabörn, m.a. móðir okkar og bræður henn- ar. Viðfjörður hafði víðtæk áhrif á Kaj Hjelm sem kom fram í nátt- úrufræðiáhuga hans og steina- safni. Kaj hafði gaman af að ganga á fjöll og finna sérstaka steina sem hann var auk þess mjög fróður um. Austfirðir, þar á meðal Við- fjörður, eru þekktir fyrir fallega steina og sérstakar holufyllingar sem eru fallegri og fjölbreyttari en í öðrum landshlutum. Þetta fengum við systkinin að upplifa í bernsku þegar við heimsóttum Kaj með ömmu og mömmu, því Kaj hafði safnað ógrynni steina. Meðal annars steinum sem hann kenndi okkur að slá saman þann- ig, að lýsti í myrkri. Við systkinin vöktum mikla lukku í Hafnarfirði þegar við héldum ljósasýningu með kalsítinu frá Kaj. En einnig mátti finna, agat, onyx, silfurberg, kalsedon og steina í alls konar lit- um eins og rauða jaspis, brúna og græna opal, holufyllingar eins og skólesít, stílbít og heulandit. Nöfnin festust í minni, Kaj var óþreytandi að kenna okkur, „ah gat“ var til dæmis orðið yfir agat með hringlaga rendur og með gati í miðjunni. Onyx var með þver- rendur og því sagði Kaj „Ó nix“ sem sagt ekkert gat. Takk Kaj, fyrir að kenna okkur að meta fallega steina og náttúr- una. Handan ár horfa fjöllin um heima þeirra er lifðu. Mættu þau málið hafa margt gætu eflaust talað. En þau eru þvingunareiðum þrítugra kletta bundin. Hljóðlát á söguna hlusta hulin eilífðarbláma. Grasið grænkar á leiðum gamalla vina og frænda. Fyrnist allt fas og æði fjöllin yfir þeim vaka. (Indriði G. Þorsteinsson) Þín frændsystkin, Guðríður, Sigríður, Þórarinn Viðar og Auðunn Guðni. Látinn er æskuvinur, Karl Hjelm. Hann kom til Norðfjarðar árið 1955 frá Viðfirði, sem margir þekkja af Viðfjarðarundrum Þór- bergs Þórðarsonar. Við Kæi, eins og hann var kallaður, urðum fljótt góðir vinir. Sameiginleg áhugamál voru að spila á harmonikku og reyna að mála myndir af fjalls- toppunum í kringum fjörðinn. Karl ólst upp hjá móður sinni, Sig- ríði í Viðfirði, fram yfir fermingu. Þeir voru tveir bræðurnir, Karl hinn eldri en Friðþór yngri. Frið- þór var fermingarbróðir minn, en hann lést af slysförum fyrir mörg- um árum. Hlý vinátta var á milli okkar Kæja alla tíð, þótt tónlistaráhugi okkar leitaði í ólíkar áttir, ekki síð- ur en myndgerðin. Kæi var mikill náttúruunnandi og fagurkeri, fjöl- fróður og sjálfmenntaður vel í steinafræði og ljósmyndun. Þar var ekki hrokanum fyrir að fara, heldur látlausri kímni og lág- stemmdu brosi út í viðburði dags- ins. Ég hafði gert mér vonir um að sjá minn gamla vin hér „fyrir sunnan“ núna í vor, en svo verður ekki. Ég sendi aðstandendum ein- lægar samúðarkveðjur. Far þú vel, gamli vinur. Tryggvi Ólafsson. Kæri vinur. Það mun hafa verið um miðja síðustu öld að ég sá þig fyrst. Ég hafði farið í berjamó til Viðfjarðar með móður minni og fleira fólki. Þú á hestbaki áttir leið fram hjá okkur berjatínslufólkinu. Við horfðumst í augu örskotsstund á meðan þú mjakaðist hjá og meiri urðu tengsl okkar ekki í það sinn. Nokkrum árum síðar fluttist þú með móður þinni og bróður til Neskaupstaðar og þá lágu leiðir okkar saman svo úr varð ævilöng vinátta. Það sem einkum tengdi okkur í fyrstu var „hin siðfágaða kyrrð manntaflsins“ svo ég vitni í Laxness. Við lifðum og hrærð- umst í heimi skákarinnar og sam- an endurlífguðum við Taflfélag Norðfjarðar sem starfaði af krafti árum saman undir dyggri stjórn þinni. En allt hefur sinn tíma. Þú hafðir fleiri áhugamál: steinafræði og steinasöfnun, ljósmyndun og hamónikkuleik og skákin var sett til hliðar þó að áhugi þinn á mann- taflinu héldist og þú fylgdist vel með því sem þar var að gerast. Og það varð vík milli vina, ég fluttist á brott tímabundið. En vináttan hélst og af og til hittumst við, í síðasta sinn fyrir rúmu ári þegar ég átti leið austur og við sátum dagstund heima hjá þér og rifjuðum upp gamla daga. Nú ertu genginn á vit feðra þinna. Ýmsir telja að til sé annað tilverustig. Ef svo reynist rétt vera eigum við eftir að hittast. Þá er næsta víst að við röðum upp mönnunum á taflborðinu og tök- um að minnsta kosti eina létta. Á meðan bíð ég hérna megin og fer með í huganum Haustvísu eftir Hannes Pétursson: Störin á flánni er fölnuð og nú fer enginn um veginn annar en þú. Í dimmunni greinirðu daufan nið og veizt þú ert kominn að vaðinu á ánni... Eiríkur Karlsson. Karl Freysteinn Hjelm HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Sendum frítt hvert á land sem er Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, LÁRA LÁRUSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Gullsmára 7, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans laugar- daginn 28. apríl. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju miðvikudaginn 9. maí kl. 15.00. Erlingur Þór Sigurjónsson, Margrét Þóra Baldursdóttir, Magnús Þór Erlingsson, Þuríður B. Sigurjónsdóttir, Jóhannes Elíasson, Elísa Jóhannesdóttir, Sylvía Rut Jóhannesdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HERDÍS JÓHANNA VIGFÚSDÓTTIR, Hraunteigi 21, Reykjavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 17. apríl. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Vigdís Björg Aðalsteinsdóttir, Kristján Sæmundsson, Magndís Birna Aðalsteinsdóttir, Eiríkur Jónsson, Jóhanna Júlía Aðalsteinsdóttir, Guðni Ásgrímsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Við þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTU INGIBJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR. Sérstakar þakkir viljum við færa Jóni Örvari Kristinssyni, lækni og Karítas heimaþjónustu fyrir einstaka aðstoð og umhyggju. Guðmundur Ingólfsson, Halla Hauksdóttir, Þorsteinn Ingólfsson, Una Bryngeirsdóttir, Haraldur Már Ingólfsson, Sofía Björg Pétursdóttir, Ástríður Helga Ingólfsdóttir, Kristján Valsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DAGBJÖRT JÓNSDÓTTIR, Nesvöllum, áður Sýrfelli Bergi, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju þriðju- daginn 8. maí kl. 14.00. Ólafur J. Guðmundsson, Halla J. Guðmundsdóttir, Sveinbjörn G. Guðmundsson, Hildur Jóhannsdóttir, Aðalsteinn K. Guðmundsson, Auður H. Jónatansdóttir, Brynjólfur S. Guðmundsson, Elín R. Ólafsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Sverrir G. Hauksson, Guðmundur Á. Guðmundsson, Hafdís L. Guðlaugsdóttir, Dagbjartur H. Guðmundsson, Tatjana Latinovic, barnabörn og langömmubörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, PERLA K. ÞORGEIRSDÓTTIR, andaðist að morgni föstudagsins 4. maí. Fyrir hönd aðstandenda, Brandur Þorsteinsson. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SIGURLAUGAR B. ALBERTSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Eir, áður Huldulandi 5. Kærar þakkir til starfsfólks Hlíðarhúsa og hjúkrunarheimilisins Eirar fyrir hlýju og góða umönnun. Gréta Gunnarsdóttir, Birna Bjarnadóttir, Hólmgeir Baldursson, Kristjana Sif Bjarnadóttir, Steingrímur S. Ólafsson, Arnar Bjarnason, Rakel Halldórsdóttir, langömmubörn og langalangömmubarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.