Morgunblaðið - 05.05.2012, Page 56
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 126. DAGUR ÁRSINS 2012
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Jóhanna skammaði Ragnheiði
2. Farinn í meðferð - tilbúinn í júní
3. Hef hatað Di Matteo síðan 1997
4. Foreldrar í mál vegna eineltis
Gítarleikarinn Bill Frisell mun koma
fram á Jazzhátíð Reykjavíkur í haust
og leika tónlist eftir John Lennon
ásamt hljómsveit sinni á tónleikum 1.
september.
Bill Frisell á Jazz-
hátíð Reykjavíkur
Kór Grafar-
vogskirkju og
Stúlknakór
Reykjavíkur
ásamt Camerata
Musica munu í
dag kl. 17 flytja
Carmina Burana
eftir Carl Orff í
Grafarvogskirkju.
Stjórnendur verða Hákon Leifsson og
Margrét J. Pálmadóttir. Einsöngvarar
verða Hlín Pétursdóttir sópran, Einar
Clausen tenór og Jón Svavar Jós-
epsson barítón.
Carmina Burana í
Grafarvogskirkju
Ókeypis mynda-
sögudagurinn er
haldinn hátíðleg-
ur víða um heim í
dag en eins og
nafnið ber með
sér getur fólk orð-
ið sér úti um
myndasögur í
verslunum án
endurgjalds. Verslunin Nexus á
Hverfisgötu 103 er ein þeirra og mun
hún gefa teiknimyndasögur frá kl. 13
í dag, á meðan birgðir endast. Það
borgar sig því að mæta tímanlega.
Ókeypis myndasögur
í Nexus í dag
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Bjartviðri en þykknar upp NA-til í kvöld og stöku él þar á morgun.
Hiti 1 til 8 stig að deginum, hlýjast SV-til, víða næturfrost í nótt.
Á sunnudag og mánudag Norðaustlæg átt, 3-10 m/s og dálítil él NA-lands en annars
víða bjart veður. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast SV-lands, en víða næturfrost.
Á þriðjudag Hægviðri, skýjað með köflum og smáskúrir eða él S-til á landinu. Áfram
fremur svalt.
Enska knattspyrnuliðið Reading mun
hagnast langmest á sölu landsliðs-
mannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar
fari svo að hann verði seldur frá
þýska félaginu Hoffenheim í sumar
eins og margt bendir til. FH og
Breiðablik gætu fengið um 8 milljónir
króna í svokallaðar samstöðubætur
ef kaupverðið verður 8,2 milljónir
punda eins og fjölmiðlar telja. »1
Breiðablik og FH gætu
fengið um 8 milljónir
Valur jafnaði metin 1:1, í ein-
vígi liðsins við Fram um Ís-
landsmeistaratitilinn í
handknattleik kvenna í gær.
Framlengja þurfti leikinn en
staðan eftir venjulegan leik-
tíma var 19:19. Valur reynd-
ist sterkari í framlenging-
unni og hafði að lokum eins
marks sigur 23:22. Drama-
tíkin var allsráðandi en Þor-
gerður Anna Atladóttir
tryggði sigur Vals. »3
Valur jafnaði ein-
vígið við Fram
Íslandsmótið í knattspyrnu hefst á
morgun með fimm leikjum í fyrstu
umferð Pepsi-deildar karla. Suður-
landsslagur Selfoss og ÍBV er fyrstur
en margra augu beinast að viðureign
KR og Stjörnunnar því báðum liðum
er spáð góðu
gengi á kom-
andi tímabili.
Svo eru Skaga-
menn mættir
í efstu deild
á ný og
sækja
Breiðablik
heim. »4
Áhugaverð viðureign í
Vesturbænum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íslenska fótboltavertíðin hefst fyrir
alvöru með Íslandsmóti karla, 1.
umferð í Pepsi-deildinni á morgun,
en þá hvílir körfuboltafjölskylda í
Hafnarfirði lúin bein og safnar
kröftum fyrir næsta vetur.
Hjónin Sverrir Hjörleifsson og
Svanhildur Guðlaugsdóttir hafa ver-
ið á kafi í körfubolta hjá Haukum
frá barnsaldri. „Ég gat aldrei neitt,
dinglaði bara með í yngri flokk-
unum, en var svo betur fallinn til
þjálfara- og stjórnunarstarfa,“ segir
Sverrir, sem var í stjórn Hauka í
um 20 ár frá 1990 og lengi formað-
ur. „Svanhildur náði lengra og varð
meðal annars bikarmeistari með
Haukum,“ heldur hann áfram.
Sverrir segir að þau hjónin hafi
ekki ýtt börnunum í körfuna heldur
hafi það gerst sjálfkrafa. „Helena
og Guðbjörg voru svolítið í fótbolta
en við erum svo miklir trukkar, höf-
um ekki þessa fótboltabyggingu, og
karfan varð ofan á,“ segir hann og
leggur áherslu á að körfuboltinn
hafi algjöran forgang í fjölskyld-
unni.
Forfallin fjölskylda
„Við erum eiginlega forfallin
körfuboltafjölskylda. Við foreldr-
arnir mætum á allt hjá krökkunum,
eltum allt út um allt. Dagskráin er
eiginlega skipulögð utan um
körfuboltann þannig að allt
gangi upp.“ Í þessu sam-
bandi nefnir hann að fram-
undan sé Norðurlandamót
kvennalandsliða í Osló í
Noregi og þau hjónin ætli
að fylgjast þar með Helenu
og liðsfélögum hennar. Þess
má geta að Helena, sem er 24
ára, var 14 ára þegar hún lék sinn
fyrsta A-landsleik og á að baki 38
landsleiki.
Helena er mikil fyrirmynd yngri
systkina sinna og ætlar sér sjálf enn
lengra í íþróttinni. „Þau hafa öll
hæfileika til þess að ná eins langt og
þau vilja og eiga sér draum sem
byggist á körfunni,“ segir Sverrir.
Helena lék með skólaliði TCU-
háskólans í Texas í fjögur ár áður
en hún fór til Slóvakíu í fyrra og
segir Sverrir að Kristján sé farinn
að leiða hugann að því að fara svip-
aða leið og komast í háskólakörfuna
í Bandaríkjunum.
Þótt Haukar standi næst hjarta
fjölskyldunnar halda foreldrarnir að
sjálfsögðu með liðum barna sinna
hverju sinni. „Helsta vandamálið er
að við höfum átt það til að kalla
áfram Haukar þótt við höfum verið
að hvetja Hamar eða Val,“ segir
Sverrir.
Körfuboltinn hefur forgang
Skipuleggja
dagskrána utan
um íþróttina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Körfuboltafjölskyldan Fremri röð frá vinstri: Helena með hundinn Tinna, Sverrir Hjörleifsson og Svanhildur Guð-
laugsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Guðbjörg með köttinn Töru, Davíð Arnar og Kristján Leifur.
Sverrir og Svanhildur eiga
fjögur börn sem hafa öll
tekið ástfóstri við körf-
una nema hvað frum-
burðurinn, Davíð
Arnar, hefur sveigt
af leið, stundar
crossfit og er Ís-
landsmeistari í ólympískum
lyftingum. Helena er besta
körfuboltakona landsins, at-
vinnumaður í íþróttinni
og varð tvöfaldur meistari með
liði sínu, Góðu englunum, í Sló-
vakíu á nýliðnu tímabili. Guð-
björg lék með meistaraflokki
Vals í vetur en var áður með liði
Hamars í Hveragerði eftir að
hafa verið margfaldur Íslands-
meistari upp alla flokka með
Haukum. Kristján Leifur gefur
heldur ekkert eftir og er nýbak-
aður Íslands- og bikarmeistari
með 10. flokki Hauka.
KÖRFUBOLTAFJÖLSKYLDA ÚR HAUKUM
Helena
Sverrisdóttir
Margfaldir Íslandsmeistarar