Morgunblaðið - 04.06.2012, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2012
Ég verð bara að vinna í dag og mun svo njóta afgangsins afdeginum með fjölskyldunni, yndislegri konu minni ogtveimur yndislegum börnum,“ segir afmælisbarn dagsins,
Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdastjóri, sem er 36 ára í dag. Af-
mælið er stórafmæli í kínverska dagatalinu: „Nú er ár drekans og
ég er fæddur á ári drekans, og við erum að sækja um á Drekasvæð-
inu, þannig að þetta tengist allt saman mjög vel og er allt saman
mjög viðeigandi“. Gunnlaugur er því fjarska bjartsýnn á að fyrir-
tæki hans, Eykon Energy og kolvetni, muni hljóta leitar- og vinnslu-
leyfi til olíuleitar á Drekasvæðinu í ljósi þessara góðu teikna.
Gunnlaugur gaf einnig nýverið út bókina Ábyrgðarkver, en hún
greinir orsakir bankahrunsins 2008 út frá persónulegri ábyrgð
manna. Hann hefur farið víða undanfarið og haldið fyrirlestra um
efni bókarinnar fyrir félagasamtök og fyrirtæki. Gunnlaugur segir
að það hafi verið gaman að spjalla við fólk og skiptast á skoðunum
og hugmyndum út frá efni bókarinnar. En hvað finnst Gunnlaugi
um viðtökur kversins? „Ég er ánægður með það hversu vel bókinni
hefur verið tekið, sérstaklega af fólki sem er hér og þar í stjórn-
málum, þar sem ég reyndi að vera málefnalegur og grafa mig ekki í
pólitískar skotgrafir. Þessi tími hefur því verið mjög ánægjulegur.“
sgs@mbl.is
Gunnlaugur Jónsson 36 ára
Með mörg járn í eldinum Gunnlaugur Jónsson hefur í nógu að snú-
ast þessa dagana.
„Fæddur á ári
drekans“
S
igrún fæddist í Garði í Mý-
vatnssveit og ólst þar upp.
Hún var í Barnaskólanum
á Skútustöðum, í gagn-
fræðaskóla að Laugum og
lauk landsprófi á Húsavík.
Fór suður sextán ára
Sigrún fór síðan suður að vinna,
stundaði nám við MS og lauk þaðan
stúdentsprófum 1974.
Sigrún starfaði við umönnun, m.a.
á Kópavogshælinu í tæp fimm ár, hóf
nám í hjúkrunarfræði 1981 og lauk
hjúkrunarfræðiprófi frá Hjúkr-
unarskóla Íslands 1984. Hún hóf síðar
MS-nám í öldrunarhjúkrun við HÍ og
lauk MS-prófi 2008.
Sigrún var hjúkrunarfræðingur við
Borgarspítalann 1984-89, í Kaup-
mannahöfn 1990-91, aftur við Borg-
arspítalann 1991-98, var deildarstjóri
á Grund í eitt ár og í Skógarbæ 2000-
2003 en hefur síðan lengst af sinnt
öldrunarhjúkrun á Landakotsspítala.
Manstu systir bernskuna blíðu
Á Landakotsspítala hefur Sigrún
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir hjúkrunarfræðingur 60 ára
Í Suðurlandssudda Sigrún Huld með sínu fólki. Frá vinstri: Ingibjörg, Hallgerður, Anna með Iðunni í fanginu, þá
Sigrún Huld og Theodór Ísar fyrir framan hana, þá Óskar.
Leiðsögumaðurinn um
landið og fortíðina
Morgunblaðið/Ásdís
Í betri stofunni á Landakoti Frá vinstri: þær stöllurnar Sigrún Huld Þor-
grímsdóttir, Berglind Indriðadóttir og Borghildur Árnadóttir.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Alexander Þór fæddist 27.
maí 2011 kl. 10.58. Hann vó 3.252 g og
var 48,5 cm langur. Foreldrar hans eru
Þóra Dögg Júlíusdóttir og Daníel
Kristinn Kristinsson.
Nýir borgarar
Garðabær Guðmundur Alex fæddist
30. desember. Hann vó 3.990 g og var
54 cm langur. Foreldrar hans eru
María Kristjánsdóttir og Jóhannes
Bjarni Guðmundsson.
Nýir borgarar
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isBíldshöfði 14 » 110 Reykjavík » Sími 567 6744 » gsvarahlutir.is
Triscan gormar, bremsu- og stýrishlutir
Pöntum á fimmtudögum, varan komin á mánudegi