Morgunblaðið - 04.06.2012, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 156. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. 25,6 stiga hitamunur á landinu
2. Skölluð í andlitið á skemmtistað
3. Hentist upp og lenti á höfðinu
4. Mæting Þóru var staðfest
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Vilborg Einarsdóttir og Hlín Jó-
hannesdóttir fengu fyrir helgi, í sam-
starfi við tvö norræn ungmennaleik-
hús, 63 milljóna styrk úr Norræna
menningarsjóðnum til að halda Nor-
ræna listahátíð unga fólksins 2013-
2014.
Halda barnalista-
hátíðina Norðurljós
Um þessar
mundir stendur
yfir samsýning
tveggja ungra
listamanna í Ar-
tíma Galleríi,
þeirra Örnu Ótt-
arsdóttur og Loga
Höskuldssonar.
Í verkum þeirra
beggja á þessari sýningu er unnið
með handverkshefðina og hún sett í
nýjan búning poppkúltúrsins, einfald-
leikans og glimmers.
Handverkshefð í
búningi poppkúltúrs
Bæjar-, fjölskyldu- og tónlistarhá-
tíðin Kótelettan verður haldin í þriðja
sinn á Sel-
fossi 8.-10.
júní nk. Með-
al þeirra tón-
listarmanna
sem fram
koma á
henni eru
Björgvin
Halldórsson
og Páll Óskar
Hjálmtýsson.
Kótelettan haldin í
þriðja sinn á Selfossi
Á þriðjudag og miðvikudag Norðan og norðaustan 5-10 m/s.
Rigning með köflum N- og A-lands og slydda til fjalla. Skúrir á S- og
V-landi, einkum síðdegis. Hiti 2 til 13 stig, mildast S-lands.
Á fimmtudag Snýst í austanátt með rigningu. Heldur hlýnandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG NA 3-8 m/s um landið norðanvert, þykknar
upp og kólnar heldur, en horfur á skúrum S-lands síðdegis.
VEÐUR
ÍA heldur eins stigs forystu
í úrvalsdeild karla í knatt-
spyrnu, Pepsi-deildinni, eft-
ir að sjöttu umferð lauk á
laugardaginn. Skagamenn
gerðu jafnefli við Grindvík-
inga, 2:2. FH og KR koma
fast á hæla ÍA eftir að hafa
unnið sína leiki. KR lagði
Fram en FH-ingar kjöldrógu
Fylkismenn með átta
marka sigri, fáheyrðum
yfirburðum í leik í úr-
valsdeild karla. »3-5
ÍA efst en FH og
KR sækja á
Guðjón Valur Sigurðsson kvaddi
danska meistaraliðið með meistara-
titili á laugardagskvöldið en hann er
á förum til annars meistaraliðs, Kiel,
sem varð meistari í Þýskalandi með
fáheyrðum yfirburðum um helgina.
Guðjón Valur var valinn í úrvalslið
dönsku deildarinnar um helgina og
eigandi AG-liðsins bauð upp á alvöru
diskótek í búningsklefanum strax
í leikslok. „Mesta stuðið var
samt runnið af mönnum þeg-
ar komið var til Kaup-
mannahafnar eftir fjögurra
tíma rútuferð frá Jótlandi á
fimmta tím-
anum á
sunnudags-
morguninn,“
sagði Snorri
Steinn Guð-
jónsson,
leik-
maður
AG. »1
Guðjón Valur í liði árs-
ins í Danmörku
„Liðið lék langt undir getu stóran
hluta leiksins og það gengur einfald-
lega ekki á útivelli gegn Úkraínu,“
sagði Ágúst Þór Jóhannsson, lands-
liðsþjálfari kvenna í handknattleik,
eftir tap 22:20, fyrir Úkraínu í loka-
leik undankeppni Evrópumótsins í
gær. Tapið þýðir að íslenska lands-
liðið kemst ekki í lokakeppni EM sem
fram fer í Hollandi í desember. »2
Lék langt undir getu og
EM-draumurinn er úti
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Hjartveika tíkin Nala er fyrsti
hundurinn sem fengið hefur hjálp
hjartastuðtækis hér á landi. Hún
hefur glímt við hjartveiki frá síð-
ustu jólum og hefur í þrígang
fengið hjartastuð.
Bjargað síðla kvölds
„Hún er hjartveik, blessunin.
Hún var alveg að gefa upp öndina
þegar við gáfum henni rafstuð,“
segir Felix Valsson, sérfræðingur í
svæfinga- og gjörgæslulækningum
á Landspítalanum, sem er eigandi
Nölu. Um jólin fór Felix með Nölu
til dýralæknis þar sem hún var
orðin þollítil og lystarlaus, sem var
ólíkt henni. „Þegar ég fór með
hana til Hönnu Arnórsdóttur,
dýralæknis á Dýraspítalanum í
Garðabæ, kom í ljós að hún var
með óreglulegan hjartslátt. Stuttu
síðar varð hún fárveik og ég
hringdi í Hönnu um ellefuleytið að
kvöldi til. Þá var hundurinn alveg
við dauðans dyr. Ég fór með hana
til hennar og við svæfðum hana.
Því næst gáfum henni stuð sem
bjargaði henni. Hún var í mjög
krítísku ástandi um nóttina, en
braggaðist í kjölfarið,“ segir Felix.
Óhefðbundin meðferð
Felix þekkir vel til hjartavanda-
mála og hefur meðal annars unnið
að rannsókn á kælingu, aðferð sem
beitt er til að minnka líkur á heila-
skaða þeirra sem fara í hjarta-
stopp og eru endurlífgaðir.
Því miður er Nala aftur orðin
slöpp en hún er á hjartalyfjum
sem hjálpa henni. „Hún er búin að
fá nokkuð góðan tíma og greyið er
búið að fá heilan helling af alls
kyns hjartalyfjum,“ segir Felix.
Ekki er óalgengt að hundum séu
gefin hjartalyf og mörg dæmi þess
að þau séu gefin við hjartabilun.
Dýralæknar eru hins vegar ekki
útbúnir hjartastuðtækjum hér á
landi og því um óhefðbundna með-
ferð að ræða. Víða á Vesturlöndum
eru dýraspítalar þó útbúnir hjarta-
stuðtækjum. Ekki hefur gefist
fjármagn til slíkra kaupa hér á
landi.
„Ég fékk lánað rafstuðtæki sem
ekki var lengur í notkun hjá þyrlu
Landhelgisgæslunnar,“ segir
Felix.
Hann vill koma á framfæri sér-
stöku þakklæti til Hönnu og
starfsfólks á Dýraspítalanum í
Garðabæ.
„Þetta eru frábærlega faglegir
dýralæknar með mikinn metnað
fyrir hönd skjólstæðinga sinna,“
segir Felix.
Nala nýtur læknavísindanna
Fyrsti hundur-
inn sem fær hjarta-
stuð á Íslandi
Morgublaðið/Ómar Garðarsson
Felix og Nala Felix Valsson hjartalæknir með labradortíkinni Nölu, sem þrívegis hefur fengið stuð úr hjartastuð-
tæki. Talið er að hún sé fyrsti hundurinn hér á landi sem fengið hefur rafstuð til meðferðar við hjartveiki.
Ljósmynd/Felix Valsson
Rafstuð Hanna Arnórsdóttir, dýralæknir hjá Dýralæknaspítalanum í
Garðabæ, gefur labradortíkinni Nölu rafstuð úr hjartastuðtæki.