Morgunblaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Rétt rúmar þrjár vikur eru í að for-
setakosningarnar fari fram en ekk-
ert liggur þó ennþá fyrir um hve-
nær störfum Alþingis muni ljúka.
„Það er algjörlega galið að vera
með þingið svona nálægt forseta-
kosningum vegna þess að þá fá
kosningarnar ekki þá athygli og
það vægi sem þær áttu að fá. Að
sama skapi fá þessi stóru mál sem
við erum að ræða, sjávarútvegs-
málin sem eru gríðarlega mikilvæg,
ekki heldur þá athygli sem þau
ættu að fá,“ segir Gunnar Bragi
Sveinsson, þingflokksformaður
Framsóknarflokksins, aðspurður
hvort ekki sé rétt að ljúka þingi eða
a.m.k. fresta því og veita forseta-
kosningunum um leið smá rými.
Að sögn Gunnars Braga óttast
hann jafnframt að forsetakosning-
arnar gætu með einhverjum hætti
borist inn í þingsal. „Það er
auðvitað ekki gott heldur ef það
gerist og þarafleiðandi er ekkert vit
í að halda þessu áfram,“ segir
Gunnar Bragi. Hann bætir við að
stjórnarmeirihlutinn hafi sett þing-
ið í þessa stöðu með því að koma of
seint fram með illa unnin mál en
það sé hinsvegar þingsins að
ákveða hvort það verður sumarþing
eður ei.
Verður aðeins gert í sátt
„Mér finnst í rauninni alveg
fáránlegt að vera að horfa á eitt-
hvert sumarþing á meðan stjórn-
armeirihlutinn hefur ekki ennþá
sagt okkur hvaða áherslumál það
eru sem hann vill klára núna á
þessum dögum sem mögulegt er að
klára mál á,“ segir Gunnar Bragi
aðspurður út í möguleikann á því að
haldið verði sumarþing. Gunnar
segir að ef stjórnarmeirihlutinn
ákveður að halda sumarþing í and-
stöðu við stjórnarandstöðuna þá
muni stjórnarandstöðuliðar að sjálf-
sögðu mæta en þeir muni líka
áskilja sér allan rétt til þess að
fjalla mjög vandlega um þau mál
sem þar munu koma fram. „Þetta
verður ekki gert nema í sátt en því
miður er það nú ekki sterkasta hlið
þessarar ríkisstjórnar að hafa sátt
um einhver mál,“ segir Gunnar
Bragi og bætir við að menn tali
saman á göngum þingsins en menn
séu þó ekki ennþá farnir að höggva
á neina hnúta.
Virðingarleysi við kosningar
„Það er algjört virðingarleysi við
forsetakosningarnar að þingið skuli
ekki draga sig í hlé,“ segir Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins, og
bætir við: „Ef Jóhanna Sigurðar-
dóttir telur sig vera þess umkomna
að láta þingið koma saman aftur í
júlí þá gerir hún það en hún á þá að
sjá sóma sinn í því að hætta núna
og gefa forsetaframbjóðendum og
kjósendum næði til þess að einbeita
sér að forsetakosningunum.“
Aðspurð hvort allt stefni í að
haldið verði sumarþing segir Ragn-
heiður Elín að hægt væri að ljúka
þessu núna ef ríkisstjórnin áttaði
sig á raunveruleikanum, þ.e. hver
staðan sé. „Hún er með mál sem fá
slæmar viðtökur hjá hagsmunaaðil-
um, umsagnaraðilum, sérfræðing-
um, sveitarfélögum, öllum, og ef
menn væru ekki drifnir áfram af
einhverri þvílíkri þrjósku og væru
með aðeins meiri raunveruleika-
tengingu þá held ég að flestir for-
sætisráðherrar myndu átta sig á að
til þess að ná lendingu þarf að gefa
eitthvað eftir.“
Að sögn Helga Bernódusonar,
skrifstofustjóra Alþingis, hefur
aldrei áður reynt á það að flýta
þurfi þinghaldi vegna
forsetakosninga.
Kosningar í skugga þingfunda
Þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna segja mikilvægt að þingið veiti forsetakosningunum
smá rými Skrifstofustjóri Alþingis segir aldrei hafa reynt á svona áður Enn er óvíst með sumarþing
Sumarþing Enn er ekki víst hvort
haldið verður sumarþing í júlí.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Upphrópanir og öfgar bloggara og
annarra álitsgjafa gegn fyrirtækj-
unum og starfsfólki þeirra eru þeim til
skammar og lýsa best fáfræði þeirra.
Veltum við hér í verksmiðjunni fyrir
okkur hvaða hvatir liggja að baki og
hvort þetta fólk hafi nokkru sinni stig-
ið um borð í skip, inn í fiskvinnslu eða
fiskimjölsverksmiðju,“ segja starfs-
menn fiskimjölsverksmiðju Eskju á
Eskifirði. Áskorun þeirra er dæmi um
fjölda yfirlýsinga sem Morgunblaðinu
hafa borist frá starfsfólki sjávar-
útvegsfyrirtækjanna, í kjölfar vinnu-
staðafunda sem stjórnendur fyrir-
tækjanna hafa boðað til á meðan
skipin hafa verið bundin við bryggju.
Í mörgum yfirlýsinganna er lýst yf-
ir stuðningi við viðkomandi fyrirtæki
og jafnvel aðgerðir LÍÚ og fram
koma áhyggjur af afleiðingum fisk-
veiðifrumvarpanna fyrir fyrirtækin,
afkomu starfsfólks og byggðarlögin.
Einstaka ályktanir hafa borist frá fé-
lögum sjómanna og landverkafólks en
þar er ýmist tekið undir áhyggjur
starfsfólks af frumvörpunum eða að-
gerðum LÍÚ mótmælt. Þá eru stjórn-
völd hvött til samráðs við hags-
munaaðila.
Formaður Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna er ánægður
með stuðninginn. „Ég tel það mik-
ilvægt að starfsmenn okkar sýni okk-
ur samstöðu í því sem við erum að
gera. Sjómenn og landverkafólk gera
sér grein fyrir því að veiðigjöld geta
haft veruleg áhrif á kjör þeirra,
byggðarlög og búsetuskilyrði. Það
hefur gífurleg áhrif á nærsamfélagið
þegar fjármunir eru fluttir frá sveit-
arfélögunum til fjármálaráðuneyt-
isins,“ segir Adolf Guðmundsson.
Samið verði um lausn
Áhafnirnar á fjórum skipum Síldar-
vinnslunnar í Neskaupstað taka það
fram að þær styðji aðgerðir LÍÚ að
öllu leyti, enda hafi ekki verið tekið
neitt mark á umsögnum um sjávar-
útvegsfrumvörp ríkisstjórnarinnar.
„Áhafnirnar sjá fram á mikla tekju-
og lífskjaraskerðingu ef frumvörpin
verða óbreytt að lögum. Áhafnirnar
skora því á ríkisstjórn Íslands að setj-
ast niður með hagsmunaaðilum og
semja um lausn sem allir geta verið
sáttir við,“ segir í ályktun áhafnanna.
Yfirlýsingar áhafna þriggja skipa
Eskju á Eskifirði og FISK Seafood á
Sauðárkróki voru áður komnar fram
en þær eru í sama anda. Einnig yfir-
lýsing sjómanna Samherja og Út-
gerðarfélags Akureyringa sem beint
er til stjórnvalda. Þar kemur fram að
sjómennirnir standi með fyrirtæki
sínu og LÍÚ. „Það er með öllu óskilj-
anlegt að stjórnvöld skuli ekki setjast
niður með hagsmunaaðilum í þeirri
grein sem mæðir mest á við endur-
reisn samfélagsins eftir hrun. Með
því mætti komast hjá fyrirsjáan-
legum stóráföllum í greininni í fram-
tíðinni,“ segja sjómenn Samherja og
ÚA í yfirlýsingu sem samþykkt var
einróma.
Áður hefur verið sagt frá fjölmenn-
um fundi landverkafólks og sjómanna
í Eyjum þar sem fram kom það álit að
fiskveiðifrumvörpin væru óheilla-
skref.
Starfsmenn fiskimjölsverksmiðju
Eskju segja í yfirlýsingunni sem vitn-
að hefur verið til að stjórnvöld og
fylgisfólk þeirra verði að átta sig á því
að á bak við þessi fyrirtæki standa
þúsundir starfsmanna og fjölskyldur
þeirra sem treysta á að öryggi sé í
rekstri og launaþróun. „Með þessum
frumvörpum tapa allir – við starfs-
menn, bloggarar, álitsgjafar og al-
menningur allur.“
Ummæli álitsgjafa til skammar
Starfsfólk sjávarútvegsfyrirtækjanna ósátt við árásir á fyrirtækin og starfsfólk þeirra
Það styður fyrirtækin og óttast áhrif fiskveiðifrumvarpanna á kjör þeirra og byggðarlögin
Morgunblaðið/Ómar
Vinnustaðafundur Starfsfólk Brims var hugsi á fundinum um áhrif fiskveiðfrumvarpa stjórnarinnar en lét forstjórann um málflutninginn.
Reikna má með að þrír til fjórir
tugir skipa sigli inn í Reykjavík-
urhöfn í dag til að áhafnirnar geti
sótt samstöðufund sem útvegs-
mannafélögin og starfsfólk fyrir-
tækjanna boða til á Austurvelli
klukkan 16 í dag. „Mér sýnist að
það sé góð samstaða meðal sjó-
manna og samstarfsfólks okkar
um að koma til fundar,“ segir
Adolf Guðmundsson, formaður
LÍÚ.
Ýmsir aðilar standa að fund-
inum með útvegsmönnum og
starfsfólki fyrirtækjanna en Adolf
segir að það komi í ljós í dag
hverjir það eru. Einstök félög sjó-
manna og landverkafólks eru þar
á meðal. „Ég á líka von á því að
fyrirtæki sem þjónusta sjávar-
útveginn og starfsfólk þeirra
styðji okkur,“ segir Adolf.
Skip sigla til fundarins frá Vest-
mannaeyjum, Reykjanesi, Snæ-
fellsnesi og Vest-
fjörðum og
bætast í hóp
skipa sem fyrir
eru í höfninni.
Búist er við 30-
40 skipum. Adolf
tekur fram að
enginn sjómaður
sé skikkaður til
að mæta til fund-
arins, þangað komi aðeins þeir
sem vilja. Sjómenn og annað
starfsfólk fyrirtækjanna koma
einnig með hefðbundnari sam-
göngutækjum.
Vekur athygli á málinu
Samstöðufundurinn á Austurvelli
markar lokin á aðgerðum útvegs-
manna sem ekki hafa sent skip sín
á veiðar frá sjómannadegi. Skipin
halda til veiða í kvöld og á morg-
un.
„Við erum að sýna samtakamátt
okkar og samstöðu. Ég tel að
menn átti sig á því og að mikill
stuðningur er við okkar málflutn-
ing,“ segir Adolf um aðgerðirnar.
Fiskveiðifrumvörpin sem verið er
að mótmæla eru enn til umræðu í
þinginu og stjórnvöld hafa ekki
tekið áskorun útvegsmanna um að
setjast að samningaborði með
þeim. Adolf telur eigi að síður að
aðgerðirnar hafi heppnast og vísar
til samstöðunnar og athyglinnar
sem þær hafi vakið á málstaðnum.
„Ef það verður munum við ráða
ráðum okkar um framhaldið,“ seg-
ir Adolf þegar hann er spurður um
það hvort útgerð verði stöðvuð ef
fiskveiðifrumvörpin verða að lög-
um. „Það gæti alveg gerst en til-
laga um það hefur ekki komið
fram. Þetta fer alveg eftir því
hvernig mál þróast í þinginu,“
segir Adolf. helgi@mbl.is
Búist við að 30-40 skip sigli til Reykjavíkur
FUNDUR ÚTVEGSMANNAFÉLAGA OG STARFSMANNA VERÐUR Á AUSTURVELLI KL. 16 Í DAG
Adolf
Guðmundson