Morgunblaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Í sannleika sagt þá er mér ómögulegt að gera upp á milli sinfónía Beethovens, því það er allt- af sú sem ég er að vinna með hverju sinni sem er í mestu uppáhaldi,“ segir Hannu Lintu, en hann stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í kvöld kl. 19:30 og á aukatónleikum annað kvöld kl. 19:30. Á efnisskránni eru sin- fónía nr. 8 og sinfónía nr. 9, Óðurinn til gleð- innar, eftir Ludwig van Beethoven. Einsöngv- arar kvöldsins eru Hulda Björk Garðarsdóttir, Nathalía Druzin Halldórsdóttir, Andrew Kennedy og Ágúst Ólafsson auk þess sem Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar tekur þátt í flutningnum. Með þessum tónleikum lýkur Beethoven- hringnum svokallaða, en Sinfóníuhljómsveitin hefur á fernum tónleikum á yfirstandandi starfsári leikið allar níu sinfóníur Beethovens í réttri röð. „Þetta hefur verið mjög áhugavert ferli fyrir mig sem stjórnanda. Ég hef í gegn- um tíðina margsinnis stjórnað sinfóníum Beethovens, en aldrei öllum í réttri röð. Sú nálgun hefur hins vegar opnað augu mín fyrir því hversu mjög sinfóníurnar eru tengdar í höfundarverki Beethovens. Fyrirfram mætti auðveldlega færa rök fyrir því að 5, 7, 9 og jafnvel 3 sinfónían skeri sig úr í hópi hinna sinfóníanna. En þegar maður fer í gegnum verkin í réttri röð þá verður t.d. aug- ljóst að hann hefði ekki getað samið þriðju sin- fóníuna nema að undangenginni þeirri annarri og eins eru hlutir í níundu sinfóníunni sem ekki hefði verið hægt að hugsa sér án þeirrar áttundu. Ég hef því lært mjög mikið um Beethoven sem tónskáld í þessu ferli og það var ein aðalástæða þess að ég tók verkefnið að mér,“ segir Lintu og tekur fram að uppsetning tónleikanna hafi verið mjög krefjandi. „Venjulega er aðeins leikin ein sinfónía Beethovens á hverjum tónleikum. Við hófum verkefnið með því að leika sinfóníur nr. 1, 2 og 3 á einum og sömu tónleikunum. Það er alls ekki á færi allra hljómsveita því það krefst gríðarlegs úthalds bæði líkamlega og sálrænt. Þessi uppsetning skilar tónleikum sem eru langir og mjög krefjandi fyrir alla hlutaðeig- andi, en að sama skapi mjög gefandi og lærdómsríkt.“ Að sögn Lintus eru verk kvöldsins afar ólík. „Þannig er áttunda sinfónían sú stysta og ní- unda sinfónían sú lengsta. Bæði verk búa þó yfir sömu hrynvitfirringu. Hlutir í lokakafla áttundu sinfóníunnar kallast á við marga staði í níundu sinfóníunni. Áttunda sinfónían hefur léttleikandi yfirbragð sem helgast helst af því að það eru engir hægir kaflar í verkinu, á með- an níunda sinfónían er mun þyngri og hægari.“ Vinnugleði, orka, nákvæmni og áhugi Hannu Lintu hefur stjórnað mörgum helstu hljómsveitum Norðurlanda síðan hann bar sig- ur úr býtum í Norrænu stjórnendakeppninni í Bergen árið 1994. Meðal hljómsveita sem hann hefur stjórnað eru Fílharmónían í Bergen, Danska útvarpshljómsveitin og Konunglega fílharmónían í Stokkholmi. Hann hefur um nokkurt skeið gegnt stöðu aðalstjórnanda við Fílharmóníuhljómsveitina í Tampere í Finn- landi, en var nýverið ráðinn aðalstjórnandi Finnsku útvarpshljómsveitarinnar í Helsinki og tekur við þeirri stöðu á næsta ári. Ekki er hægt að sleppa Lintu án þess að heyra álit hans á hljómburðinum í Eldborgar- sal Hörpu. „Það er mikið ánægjuefni að Sin- fóníuhljómsveit Íslands skuli loksins vera komin í svona gott húsnæði með afbragðs- hljómi. Hins vegar er ekkert launungarmál að það tekur allar hljómsveitir nokkurn tíma að venjast og læra inn á breyttar aðstæður og hljómburð, jafnvel þrjú til fjögur ár,“ segir Lintu og bendir á að Sinfóníuhljómsveitin í Helsinki sé í sömu sporum, en hún flutti í nýtt tónlistarhús á sama tíma og SÍ flutti í Hörpu. „Ég er sérlega ánægður með samstarfið við Sinfóníuhljómsveit Íslands og get í einlægni sagt að mér líkar andinn sem ríkir í hljóm- sveitinni. Hann einkennist af mikilli vinnu- gleði, orku, nákvæmni og áhuga. Mér finnst líka gott að finna hversu tilbúnir hljóðfæra- leikararnir eru til að nálgast hlutina á nýjan hátt og fylgja mér í minni sýn og áherslum,“ segir Lintu og tekur fram að markmið sitt sé að draga fram öll hin áhugaverðu smáatriði í tónlist Beethovens. „Þessi smáatriði heyrast því miður alltof sjaldan, því stundum virðist eins og hljómsveitarstjórar kynni sér einfald- lega ekki nóturnar nægjanlega vel.“ „Krefst gríðarlegs úthalds“ Morgunblaðið/Ómar Áhugavert „Þetta hefur verið mjög áhugavert ferli fyrir mig. Ég hef í gegnum tíðina marg- sinnis stjórnað sinfóníum Beethovens, en aldrei öllum í réttri röð,“ segir Hannu Lintu.  Óðurinn til gleðinnar eftir Beethoven ómar í kvöld og annað kvöld Starfsstyrkjum Hagþenkis til rit- starfa var úthlutað við hátíðlega at- höfn í gær. Alls var úthlutað 14,6 milljónum, en samtals bárust 80 umsóknir um starfsstyrki til rit- starfa og nam heildarupphæðin sem sótt var um 40 milljónum. Úthlutað var styrkjum til 31 verkefnis og hlutu 16 þeirra hæsta styrk eða 600.000 krónur. Meðal þeirra sem hlutu styrk voru Árni Heimir Ingólfsson tón- listarfræðingur, Jónína Einars- dóttir mannfræðingur, Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur, Harpa Björnsdóttir myndlistar- maður, Jón Viðar Jónsson leiklist- arfræðingur, Jón Þ. Þór sagnfræð- ingur, Sigríður Matthíasdóttir sagnfræðingur og Þóra Björg Sig- urðardóttir heimspekingur. Þrjár umsóknir vegna handrits- gerðar hlutu styrk, samtals 600.000 krónur. Í úthlutunarráði að þessu sinni voru Arnþór Helgason sagn- fræðingur, Hilmar Malmquist nátt- úrufræðingur og Rannveig Lund menntunar- og uppeldisfræðingur. Ljósmynd/Ingólfur Júlíusson Styrkþegar Hagþenkis Alls var úthlutað 14,6 milljónum til 31 verkefnis. Hagþenkir úthlutar 14,6 milljónum Franski bandóneonleikarinn og myndlistarmaðurinn Oli- vier Manoury opnar sýningu á vatnslitamyndum frá Ís- landi í Þjóðmenningarhús- inu á morgun kl. 17. Á sýn- ingunni verða landslags- myndir sem hann hefur málað á ferðum sínum um Ísland undanfarin ár, auk mynda sem afhjúpa reyk- vískt borgarlandslag með óvæntum hætti. Sýn- ingin stendur til loka ágúst og verður opin dag- lega frá kl. 11-17. Á opnuninni mun Olivier, ásamt eiginkonu sinni Eddu Erlendsdóttur pí- anóleikara, og fleiri landsþekktum tónlist- armönnum, leika tónlist fyrir gesti og gangandi og eru allir boðnir velkomnir. Myndlist Vatnslitamyndir Eitt verka Oliviers. Tónlistarhátíð unga fólks- ins verður haldin í fimmta sinn dagana 8.-19. ágúst. Hátíðin samanstendur af námskeiðum, tónleikum og fyrirlestrum sem allir eru velkomnir á. Umsóknar- frestur er til 10. júní nk. Í ár verður hægt að taka þátt í hljóðfæra- og söng- námskeiðum, strengjasveit, kammernámskeiði og Alex- andertæknitímum. Allir þátttakendur geta síð- an sótt fyrirlestra, jógatíma og tónleikaröð svo fátt eitt sé nefnt. Allar nánari upplýsingar má finna á vefnum: musicfest.is. Tónlist Hátíð ungs fólks Hátíðin er opin öll- um tónlistarnemum. Hugarástand nefnist sýning Önnu Óskar Erlingsdóttur sem opnuð verður í Ljós- myndasafni Reykjavík- ur í dag kl. 12. Anna Ósk lærði ljósmyndun við TAFE Sunshine Coast listaskólann í Ástralíu. Hún hefur fengist við listræna port- rett- og tískuljósmyndun og hafa myndir hennar birst á síðum tískutímarita, ljósmynda- blaða og bóka víða um heim. Sýningin stendur til 14. ágúst og er opin virka daga kl. 12-19 og um helgar kl. 13-17. Ljósmyndir Hugarástand Ein mynda Önnu Óskar. MANOUK SKART SEM TEKIÐ ER EFTIR FJÖLBREYTT ÚRVAL -MARGIR LITIR Töskur Hanskar Seðlaveski Ferðatöskur Tölvutöskur Belti Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta Kíktu inn á drangey.is SJÓN ER SÖGU RÍKARI 8.500 kr. 14.700 kr. 14.700 kr. Smáralind Stofnsett 1934 Sími: 528 8800 drangey.is Drangey | Napoli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.