Morgunblaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012
Sigyn Jónsdóttir
sigyn@mbl.is
V
innumiðlunarátakið
Nýttu kraftinn var sett
á laggirnar haustið 2008
af þeim Maríu Björk
Óskarsdóttur viðskipta-
fræðingi og Sigríði Snævarr sendi-
herra. Hugmyndin á bak við átakið
er „að hvetja og styðja atvinnuleit-
endur“ eins og segir á heimasíðu
átaksins. „Mín hugsjón er sú að
menn geti horft til baka til þess tíma
sem þeir voru án vinnu og hugsað
með sér að sá tími hafi að einhverju
leyti orðið til góðs,“ segir Sigríður
um hugmyndafræðina sem hún og
María þróuðu haustið 2008 og hafa
starfrækt síðan.
Ekki hnakkafundir
„Við höfum aldrei kallað þetta
námskeið heldur er þetta ferli eða
átak. Þetta eru ekki svokallaðir
hnakkafundir þar sem fólki er raðað
í raðir og það horfir aftan á hnakka
næsta manns,“ segir Sigríður um
fyrirkomulag ferlisins. „Það fyrsta
sem ég geri er að fjalla um hvernig
skal verja sig. Þú stendur kannski
úti í búð og hittir kunningja sem
hrópar yfir alla búðina: „Ertu ennþá
atvinnulaus?“ Það er mjög algengt.
Við tökum æfingar í þessum að-
stæðum, við tökum æfingar í
atvinnuviðtölum og ýmsu fleiru,“
útskýrir Sigríður.
„Við hvetjum fólk til að vinna
með styrkleika sína og koma sér á
framfæri. Fólk sem hefur misst
vinnuna þarf að markaðssetja sig,“
segir María og bætir við að ekki sé
nóg að bíða eftir að atvinnuauglýs-
ingum fjölgi. „Gríðarlega stór hópur
fólks situr við tölvuna og bíður eftir
að næsta auglýsing detti inn en
raunin er sú að einungis 30% ráðn-
inga fara fram í gegnum auglýs-
ingar. Hin 70% verða þegar atvinnu-
rekandi og atvinnuleitandi ná saman
eftir öðrum leiðum,“ segir hún, en á
fundunum er einmitt tekið fyrir
hvernig fólk geti nýtt sér þær leiðir
sem virka best í atvinnuleit. „Við
fjöllum um hvernig fólk getur unnið
með tengslanetið sitt og haft frum-
kvæði,“ segir María.
Áður hefur hver hópur unnið í
ferlinu yfir þriggja mánaða tímabil
en í næstu viku hefst styttra ferli
Verkfærakista fyrir
atvinnuleitendur
María Björk Óskarsdóttir og Sigríður Snævarr standa fyrir vinnumiðlunarátak-
inu Nýttu kraftinn sem fer af stað með nýjan hóp næsta þriðjudag. „Mín hugsjón
er sú að menn geti horft til baka til þess tíma sem þeir voru án vinnu og hugsað
með sér að sá tími hafi að einhverju leyti orðið til góðs,“ segir Sigríður um
hugmyndafræðina sem hún og María hafa þróað.
Reuters
Starf Það skiptir miklu máli í lífi fólks að hafa atvinnu.
Á vefsíðunni Anda.is er Ragnheiður
Ýr Grétarsdóttir með ýmislegt um
heilsuráðgjöf og heilsueflingu. Ragn-
heiður er jógakennari, sjúkraþjálfari
og tölvunarfræðingur og heilsuefl-
ingin og ráðgjöfin eru í formi fyrir-
lestra og hreyfingar. Reglulega eru
haldin námskeið í „skógarjóga“ sem
standa öllum opin og einnig eru í
boði fyrirlestrar um gildi hreyfingar,
streitu og slökun og að komast í form
eftir barnsburð, sem og ungbarna-
nudd. Ragnheiður sendi frá sér í síð-
asta mánuði bókina Útijóga – nátt-
úruleg orka með útiveru og æfingum.
Ragnheiður verður með kynningar-
göngu í kvöld kl 18-18:40 í útijóga/
skógarjóga þar sem megináhersla
verður lögð á að kynna æfingarnar
sem sýndar eru í bókinni. Lagt verður
upp frá Laugardalslaug. Önnur slík
ganga verður 14. júní. Þátttaka í
þessum gönguferðum er ókeypis.
Vefsíðan www.anda.is
Morgunblaðið/G.Rúnar
Útijóga Að stunda jóga utandyra er sérlega heppilegt á sumrin.
Kynningarganga á útijóga
Þriggja daga ráðstefna kennd við
húðflúr hefst í dag á Bar 11 og næsta
víst að þar verður mikið um dýrðir.
Húðflúrsnillingar frá öðrum löndum
sækja okkur heim og má gera ráð fyr-
ir að húðflúrað fólk verði meira áber-
andi en venja er í Reykjavík. Sam-
hliða hátíðinni verður blásið til
tónleikaveislu þar sem mörg góð
bönd koma fram. Í kvöld spila Dusty
Miller og Texas Muffin. Á morgun,
föstudag, spila Sólstafir, Foreign
Monkeys og Endless Dark. Á laugar-
dag spila Sykur, Samaris og RetRo-
Bot. Tónleikar hefjast öll kvöld klukk-
an 21 og er aðgangur ókeypis.
Endilega…
…njótið húð-
flúrs og tóna
RetRoBot Spila á laugardag.
Fjarðarkaup
Gildir 7. - 9. júní verð nú áður mælie. verð
Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Svínalundir úr kjötborði .............. 1.598 2.198 1.598 kr. kg
Nautabuff úr kjötborði ................ 1.798 2.398 1.798 kr. kg
Hamborgarar 2x115g m/brauði .. 420 504 420 kr. pk.
KF jurtakryddað lambalæri.......... 1.398 1.498 1.398 kr. kg
Hagkaup
Gildir 7. - 10. júní verð nú áður mælie. verð
SS ítalskar grísahnakkasneiðar ... 1.799 2.398 1.799 kr. kg
Holta kjúklingabringur ................ 2.283 2.854 2.283 kr. kg
Holta kjúklingur heill .................. 749 998 749 kr. kg
Holta kjúklingal. í Texas kryddl..... 699 998 699 kr. kg
Lambaprime ferskt..................... 2.924 3.898 2924 kr. kg
Kjarval
Gildir 7. - 10. júní verð nú áður mælie. verð
SS kryddl. lambatvírifjur ............. 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Italpizza pitsa, 3 teg................... 498 598 498 kr. pk.
Heilsubrauð ný bakað ................ 415 519 415 kr. stk.
Cheerios, 397 g ........................ 498 519 498 kr. pk.
Homeblest, 300 g...................... 229 249 229 kr. stk.
Krónan
Gildir 7. - 10. júní verð nú áður mælie. verð
Ungnauta Entercote erlent .......... 3.219 4.598 3.219 kr. kg
Ungnauta mínútusteik erlend...... 2.298 3.849 2.298 kr. kg
Ungnauta rumpsteik erlend ........ 2.298 3.998 2.298 kr. kg
Heilkorna flatkökur, 4 stk. ........... 135 150 135 kr. pk.
Ferskur ananas .......................... 199 297 199 kr. kg
Nóatún
Gildir 7. - 10. júní verð nú áður mælie. verð
Lambalærissn. úr kjötborði ......... 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Lambasirloinsn. úr kjötborði ....... 1.389 1.598 1.389 kr. kg
Lamba grillleggir úr kjötborði....... 1.298 1.498 1.298 kr. kg
Ungnautahamborgari, 120 g ...... 198 289 198 kr. stk.
Laxasteik mangó/chilli úr fiskbb.. 1.998 2.298 1.998 kr. kg
Þín Verslun
Gildir 7. - 10. júní verð nú áður mælie. verð
Lambaprime úr kjötborði ............ 2.998 3.489 2.998 kr. kg
Kinda innralæri úr kjötborði ........ 2.898 3.298 2.898 kr. kg
Ísfugl kjúklingabringur ................ 2.199 2.749 2.199 kr. kg
Egils appelsín, 2 ltr .................... 249 298 125 kr. ltr
Capri Sonne appelsínusafi 10 í
pk. ...........................................
599 779 599 kr. pk.
H
el
ga
rt
ilb
oð
in
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.