Morgunblaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012
Óánægjuraddir hafa heyrst eftir að
stjórnendur WOW air þjónuðu um
borð í jómfrúarferð félagsins. Flug-
þjónar þurfa að standast strangar
kröfur til að fá starfsleyfi enda fel-
ur starf þeirra einnig í sér öryggis-
gæslu. Að sögn Valdísar Ástu Að-
alsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa
Flugmálastjórnar Íslands, heyrir
málið ekki undir Flugmálastjórn Ís-
lands þar sem WOW air er ferða-
skipuleggjandi sem tilheyrir lithá-
íska flugfélaginu Avion Express.
„Starfsemi Avion Express er
undir eftirliti flugmálayfirvalda í
Litháen. Flugmálastjórn Íslands er
ekki kunnugt um hvaða þjálfun
stjórnendur Wow Air eða Avion Ex-
press hafa hlotið.“
Valdís segir að samkvæmt gild-
andi reglum í Evrópu þurfi að vera
lágmarksfjöldi öryggis- og þjón-
ustuliðs um borð og að brot á því
hafi ekki borist þeim til eyrna.
davidmar@mbl.is
Stjórnend-
ur sem
flugþjónar
Fellur undir yfir-
völd í Litháen
Jómfrúarferð Stjórnendur þjónuðu
farþegum í fyrsta fluginu.
Farþegaskipið Ventura er í jómfrú-
ferð sinni til Íslands og er vænt-
anlegt að Skarfabakka í Sundahöfn
klukkan átta í fyrramálið. Ventura
er 116.017 brúttótonn og næst-
stærsta skemmtiferðaskipið sem
kemur til landsins í sumar.
„Þetta er mikið skip,“ segir Ágúst
Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóa-
hafna, en það var tekið í notkun
2008, tekur um 3.100 farþega í
tveggja manna klefum á 15 hæðum
auk þess sem 1.239 manns eru í
áhöfn. Í skipinu eru meðal annars
fjórar sundlaugar, æfingasalur, 12
veitingahús og kvikmyndasalur/
leikhús sem tekur 785 manns í sæti.
Reykjavík og Akureyri
Ventura lagði af stað frá South-
ampton 3. júní í tveggja vikna ferð
og var í Dublin 5. júní. Skipið heldur
frá Reykjavík klukkan 18 annað
kvöld áleiðis til Akureyrar og fer
þaðan til Noregs en viðkomustaðir
þar eru Álasund, Olden, Bergen og
Stavanger. Þaðan verður siglt til
Belgíu og ferðinni lýkur í Southamp-
ton 17. júní.
Ágúst segir að þjónusta við
skemmtiferðaskipin og farþegana sé
í föstum skorðum. Margir noti dag-
inn og fari í ferðir þar sem „Gullni
hringurinn“ – Þingvellir, Geysir og
Gullfoss – og Bláa lónið séu vinsæl-
ustu staðirnir. steinthor@mbl.is
Eitt stærsta skipið á leiðinni
Skemmtiferðaskip Ventura er væntanlegt að Skarfabakka í fyrramálið.
Skemmtiferðaskipið Ventura til Reykjavíkur í fyrramálið
Um 3.100 farþegar og um 1.200 í áhöfn á fimmtán hæðum
Í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 7.
júní, hefjast
kvöldgöngur í
þjóðgarðinum á
Þingvöllum. Þá
mun rithöfund-
urinn Einar
Kárason ræða um
landnámið, Þing-
velli og sögurnar,
eins og segir í tilkynningu.
Einar ritaði m.a. bækurnar Óvina-
fagnað og Ofsa sem byggjast á per-
sónum Sturlungaaldar. Í gönguferð-
inni fjallar hann um tengslin við
Þingvelli en flakkar einnig um í tíma
og ræðir aðra sögulega atburði sem
gerst hafa á Þingvöllum.
Gönguferðin hefst klukkan 20.00
og tekur um tvo tíma og eru allir vel-
komnir. Fyrstu fimmtudags-
kvöldgöngurnar byrja við Valhall-
arreitinn en þaðan verður gengið í
Almannagjá og að öðrum stöðum.
Hægt er að skoða frekar dagskrá á
vef þjóðgarðsins, www.thingvellir.is.
Gengið um
Þingvelli með
Einari Kárasyni
Einar Kárason