Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 ✝ Hlíf Ólafsdóttirfæddist á Brim- ilsvöllum á Snæ- fellsnesi 23. nóv- ember 1927. Hún lést á sambýli aldr- aðra í Roðasölum 30. maí 2012, þar sem hún dvaldist í skamma stund til hvíldar. Foreldrar henn- ar voru Kristólína Kristjánsdóttir frá Norður-Bár í Eyrarsveit, f. 4. ágúst 1885, d. 29. nóvember 1960, og Ólafur Bjarnason, frá Hofi á Kjal- arnesi, bóndi og hreppstjóri á Brimilsvöllum, f. 10. apríl 1889, d. 3. ágúst 1982. Systkini Hlífar: Sigurður Ólafsson, f. 7. mars 1916, lyfsali í Reykjavík, d. 14. ágúst 1993. Rögnvaldur Ólafs- son, f. 18. júlí 1917, fram- kvæmdastjóri á Hellissandi, d. 24. nóvember 1994. Hrefna Ólafsdóttir, f. 26. apríl 1919, d. 6. janúar 1934. Björg Ólafs- dóttir, f. 19. mars 1921, hús- móðir í Reykjavík, Bjarni Ólafs- son, f. 30. janúar 1923, póst- og símstjóri í Ólafsvík, d. 3. maí 2010, Kristján Ólafsson, f. 7. aði landbúnaðarstörf fram til ársins 1950 en hóf þá störf sem tæknilegur aðstoðarmaður í re- ceptur hjá Sigurði bróður sínum í Reykjavíkurapóteki. Hún vann þar fram til ársins 1960 og flutt- ist þá til Kaupmannahafnar þar sem hún vann við sömu störf hjá Gammel Torvs Apotek. Á ár- unum 1961 og 1962 vann hún við blóðrannsóknir á Statens Serum Institut í Kaupmannahöfn. Frá 1963 til starfsloka árið 1993 var Hlíf deildarmeinatæknir hjá Sauðfjárveikivörnum á Til- raunastöð Háskólans á Keldum. Hún fékk ráðherrabréf til full- gildingar starfsréttinda sem meinatæknir árið 1974. Það starfsheiti breyttist svo árið 2005 og var Hlíf eftir það líf- eindafræðingur. Þau Magnús og Hlíf bjuggu í Reykjavík, lengst af á Bollagötunni. Þau voru þó í nokkur ár búsett í Ísrael þar sem Magnús starfaði fyrir Sam- einuðu þjóðirnar. Hlíf var mikil ferða- og útivistarkona og stundaði skíðaíþróttina af kappi fram yfir áttrætt og var þar mörgum fyrirmynd. Hún var fé- lagi í Jöklarannsóknarfélagi Ís- lands og fór í margar jöklaferð- ir. Útför Hlífar verður gerð frá Háteigskirkju í dag, 7. júní 2012, og hefst athöfnin kl. 15. október 1924, d. 7. október 1945. Miðvikudaginn fyrir páska, 25. apríl 1964, gekk Hlíf að eiga Magn- ús Hallgrímsson verkfræðing, f. 6. nóvember 1932. Foreldrar Magn- úsar voru: Hall- grímur Einarsson, f. 20. feb. 1878, myndasmiður á Akureyri, d. 26. sept. 1948, og Laufey Jóns- dóttir, f. 7. okt. 1907, húsmóðir á Akureyri, d. 10. ág. 1953. Börn Hlífar og Magnúsar eru: 1) Hörður, f. 1965, maki: Linda Björk Þórðardóttir, börn: Óskar Magnús, f. 2000, Ásta Hlíf, f. 2002. 2) Hallgrímur, f. 1966, maki: Elín Sigurveig Sigurð- ardóttir, börn: Snædís, f. 2002, Magnús Snær, f. 2005, Halldís Ylfa, f. 2009. Hlíf ólst upp í foreldrahúsum á Brimilsvöllum og stundaði nám í farskóla í Fróðárhreppi í tvö ár. Hún lauk síðan gagn- fræðaprófi úr Flensborgarskóla í Hafnarfirði eftir nám á ár- unum 1944 til 1947. Hún stund- Skemmtileg kona er kvödd í dag. Hlíf móðursystir mín, eða Dedda, fór um margt óvenju- legar leiðir í sínu lífi miðað við fólk af hennar kynslóð. Yngst sjö fjörmikilla systkina frá Brimilsvöllum á Snæfellsnesi þurfti hún tíðum sem barn að standa fast á sínu til vera talin marktæk og að fá að vera með. Slíkt er hlutskipti þeirra yngstu. Dedda varð sjálfstæð ung kona, menntaði sig sem meinatæknir, ferðaðist og vann erlendis og fór ekki að viðtekn- um venjum í útliti og fatastíl. Hún kynntist ekki lífsförunautn- um fyrr en hún var komin hátt á fertugsaldur. Og Maggi er ekki neitt venjulegt eintak held- ur. Verkfræðingur, sem gekk á jökla, talaði norðlensku, borðaði hrátt hangikjöt og úldna osta og kaus ekki Sjálfstæðisflokkinn. Fæstu af þessu hafði stórfjöl- skyldan kynnst áður. Synina Hörð og Hallgrím eignaðist hún sem háöldruð kona í augum 10 ára gamals systursonar, á 38. og 39. aldursári. Heimili Deddu og Magga í Ljósheimum og síðar Bollagötu var ævintýraheimur þar sem hægt var að kynnast munum, myndum og bókum frá fjarlæg- um löndum sem þau höfðu sank- að að sér á heimshornaflakki sínu. Maggi var eftirsóttur starfsmaður hjá Rauða kross- inum og Sameinuðu þjóðunum við að skipuleggja flóttamanna- búðir á stríðshrjáðum svæðum eða illa förnum vegna náttúru- hamfara og Dedda var aldrei langt undan. Þau tileinkuðu sér og sögðu frá framandi siðum og venjum og hjá þeim borðaði maður fyrst sterkkryddaða pottrétti frá Miðausturlöndum, lambalæri eldað á norðurafrísk- an máta, drakk rótsterkt kaffi og framandi te. Dedda var íþróttakona góð vel fram yfir sjötugt, stælt og grönn, gekk á fjöll og renndi sér hratt og vel á skíðum. Í Hlíðarfjalli gekk hún um tíma undir nafninu „gula hættan“ brunandi um brekkurn- ar í heiðgulum skíðagalla. Hún setti eitt sinn tímatöku á Skíða- móti Íslands í uppnám þegar hún renndi sér óvart á fullri ferð yfir marklínuna í stórsvigi á leið sinni niður á hótel til að ná ellefubjórnum. Bros hennar bræddi mótstjórn, sem var ekki skemmt, og urðu engin eftirmál. Dedda var góð mamma, amma, frænka og systir. Hún og Björg móðir mín voru bestu vinkonur og hvor annarri ómet- anlegar í blíðu og stríðu. Ein- hver skemmtilegasta minning mín um Deddu er þegar við Ás- laug fengum þær systur með okkur í langa helgarferð til Kaupmannahafnar haustið 2006. Mamma var þá 85 ára, Dedda að verða 79. Þar var Dedda á heimavelli. Öl á Hvids vinstue, steikt rauðspretta á Cafe Sor- genfri, Borsen, týnd sólgleraugu og gleymd veski út um alla borg, hlátursköst, gloss og al- mennt fjör og vitleysa. Syst- urnar frá Brimilsvöllum í hnot- skurn. Síðustu æviár Deddu voru henni á margan hátt erfið. Lík- aminn var orðinn mjög lélegur og hún var oft sárkvalin af gigt og bakverkjum. Maggi sinnti Deddu sinni af einstakri um- hyggju og þolinmæði síðustu misserin og sýndi svo um mun- aði hvaða mann hann hefur að geyma. Minning um góða og skemmtilega konu lifir. Hvíl þú í friði elsku Dedda. Kristján Sigurjónsson (Diddi). Í dag kveðjum við Hlíf föð- ursystur mína. Hlíf var yngst sjö barna afa míns og ömmu á Brimilsvöllum. Meðal ættingja og vina var hún oftast kölluð Dedda en í seinni tíð notaði ég þó oftast hennar eigið skírnar- nafn. Eins og algengt var á síð- ustu öld notuðu börn til sveita sína eigin heimatilbúnu leiki. Fyrir utan kindabein í stað nú- tíma leikfanga var oft notast við alls kyns líkamlega tjáningu eins og grettur og flaut en einn- ig voru sagðar sögur og farið með vísur, einkum þulur. Þegar Dedda kom í heimsókn, hvort sem það var í sveitinni hjá afa og ömmu eða í öðrum fjöl- skylduboðum, hópaðist yngsta kynslóðin í kringum hana, hékk utan á henni eins og apar á apa- mömmu, kyssti hana og faðm- aði. Dedda frænka var svo góð og skemmtileg. Hún var sannur gleðigjafi. Hún var líka í uppá- haldi hjá mínum börnum þegar þau komu til sögunnar. Dedda átti sína uppáhalds þulu sem hún var óþreytandi að fara með, ví-va-vúlla-púdda. Þegar ég var sjö ára tókst mér að hnoða sam- an þuluna um sultubrauðið. Sú þula er aðallega eftirminnileg fyrir það hvað Deddu þótti hún skemmtileg. Magnús og Hlíf voru á sí- felldum þeytingi innanlands sem utan. Þau fóru til fjarlægra landa og heimsóttu m.a. Galapa- gos eyjar en þar er fegursti staður á jarðríki eins og Hlíf orðaði það. Þau fóru í óteljandi skíðaferðir, m.a. upp í Tindfjöll, og til útlanda. Hlíf skrapp í skíðaferðalag tæplega áttræð eins og unglingur væri. Ekkert kom manni á óvart. Á undan- förnum árum kíktu Magnús og Hlíf reglulega í heimsókn til mín og var þá jafnan glatt á hjalla við eldhúsborðið. Síðustu árin fór heldur að halla undan fæti, heilsan fór að bila. Hlíf mun þó hafa verið með allra besta móti þegar hún féll skyndilega frá í síðustu viku. Hennar verður sárt saknað. Elsku Maggi, Hörður, Hall- grímur og fjölskyldur. Ég votta ykkur innilega samúð mína og fjölskyldu minnar. Jón Sigurðsson (Jonni). Þá hefur elskuleg frænka mín hún Hlíf kvatt þennan heim. Hún kvaddi snöggt, sem var kannski alveg í hennar stíl, ætíð snör í snúningum og frá á fæti í lifanda lífi. Hún Hlíf eða Dedda eins og ég kallaði hana alltaf var eig- inlega þriðja amman mín. Við bjuggum í sama húsi öll ung- lingsárin mín og ég var algjör heimagangur hjá henni og Magga. Það var ekki amalegt að fá að gramsa í öllu dótinu henn- ar. Hún var nefnilega svo rosa- lega smart alltaf. Það var ekki að sjá að hún væri ca. 50 árum eldri en ég. Mann langaði hrein- lega að eiga allt í fataskápnum hennar. Svo átti hún býsnin öll af alls kyns glingri frá öllum heimshornum, en eins og allir vita höfðu þau hjónin ferðast heimshorna á milli og sankað að sér svo fallegum hlutum á ferða- lögum sínum. Hún Dedda var engum lík og langt fram yfir áttrætt var hún á faraldsfæti og lét ekkert stoppa sig. Það er frekar hægt að telja upp þau lönd sem þau hafa ekki heimsótt. Í seinni tíð fóru þau hjónin á skíði a.m.k. einu sinni á ári og við fjölskyld- an slógumst einu sinni í för með þeim. Það var sko eftir þeirri gömlu tekið í brekkunum enda skíðastíllinn ekkert slor. Dedda var hressust af öllum, hló hátt, brosti breitt og var hrókur alls fagnaðar og þau Maggi voru svo sannarlega glæsileg hjón og svo óskaplega samrýnd. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar elsku Maggi minn, Hörð- ur, Hallgrímur og fjölskyldur. Ykkar frænka, Björg (Bagga litla). Við systkinabörnin á Völlum kölluðum hana Hlíf alltaf Deddu. Hún var yngst af systk- inunum og var ólofuð þegar við krakkarnir vorum í sveitinni á 6. áratugnum. Hún var alltaf hress og kát og var mikill vinur okkar allra. Móðir mín, Björg, og hún voru afar nánar systur alla tíð og dvaldi hún mikið á heimili okkar. Hún var mér því eins og önnur móðir. Hún giftist þegar ég var orðin unglingur og átti fljótlega strákana sína. Ég passaði þá oft, bæði í Breiða- gerðinu og í Ljósheimum. Síðar styrktist sambandið enn meir þegar við Siggi fluttum á Bolla- götuna og bjuggum á hæðinni fyrir neðan þau í sjö ár. Þau tengsl sem mynduðust þá á milli fjölskyldnanna voru afar góð og brá aldrei skugga á þá sambúð. Við ferðuðumst saman – fórum á skíði og í gönguferðir og það var gaman að ganga á fjöll með Deddu. Hún hljóp upp brekk- urnar, hvíldi sig á milli og var alltaf léttust á sér. Maggi var með allt annan stíl því hann kom hægt og sígandi á eftir og stoppaði aldrei. En þótt þau Maggi væru ólík að þessu leyti og öðru voru þau alltaf mjög samhent og hamingjusöm. Þau voru ótrúlega áhugasöm og dug- leg að hreyfa sig og tóku strák- ana alltaf með svo það er ekki skrýtið að synirnir skuli hafa smitast af fjallabakteríunni. Þau heimsóttu okkur þegar við vor- um í námi á Bretlandi og við fórum til þeirra til Ísraels í ógleymanlega ferð. Dedda var góð manneskja, með ákveðnar skoðanir, rösk og stundum dálít- ið hvatvís en það var skemmti- legur eiginleiki í hennar fari. Við áttum margt sameiginlegt og hún var alltaf mikil vinkona mín. Ég mun sakna hennar en er þakklát fyrir allan þann tíma sem við höfum átt saman. Kveðja til fjölskyldunnar og þá sérstaklega til Magga því missir hans er mikill. Hrefna. Hlíf var einstök og góð mann- eskja, sem okkur langar að minnast hér með nokkrum orð- um. Á árunum í kringum 1980 átt- um við heima á neðri hæðinni á Bollagötu 3, nokkrir óharðnaðir unglingar utan af landi, komnir í höfuðstaðinn að sækja okkur menntun. Uppi á lofti bjuggu Hlíf og Maggi ásamt sonum sín- um. Hjónin á efri hæðinni voru komin lengra í tilverunni en við, svo ekki hefði komið á óvart þótt samskiptin hefðu orðið yf- irborðsleg og fjarlæg hjá svo ólíkum hópum. En þau Hlíf og Magnús tóku okkur frá fyrstu stundu sem jafningjum og höfðu alltaf tíma aflögu handa okkur. Okkur fannst það eðlilegt þá, en eftir á að hyggja var það ekki sjálfgefið. Heimilislífið á efri og neðri hæð rann oft saman og nutum við góðs af því. Við vor- um ávallt velkomin upp til þeirra, ýmist til að horfa á sjón- varpið, borða, eða bara til að spjalla. Hlíf var hvetjandi við okkur og ef á þurfti að halda var hvergi betra að leita ráða en hjá henni. Hún var laus við for- dóma og vandlætingar, tilgerð og smámunasemi. Við munum hana ekki öðruvísi en káta og jákvæða og alltaf var hún til í eitthvað skemmtilegt. Heimilis- haldið endurspeglaði afslappað og glaðlegt viðmót hennar og jafnframt smekklegheit á allan hátt. Hlíf kenndi okkur sitthvað í matargerð enda var hún sífellt að prófa alls kyns framandi rétti, ræktaði kryddjurtir, bak- aði fjölmargar gerðir brauða og franska lærið og chiliréttirnir hennar hafa sett svip sinn á okkar matargerð. Hlíf og Maggi kunnu að njóta lífsins og virtist okkur líf þeirra sem samfellt ævintýri, fjallgöngur, skíðaferð- ir og ferðalög bæði um Ísland og fjarlægar heimsálfur. Enginn hversdagsleiki var þar á ferð. Vinátta hennar var einlæg og endalaus og eigum við henni margt að þakka. Innilegar sam- úðarkveðjur til fjölskyldunnar. Sigurkarl, Sigurborg og Anna Kristín. Hlíf Ólafsdóttir lífmeinafræð- ingur frá Brimilsvöllum á Snæ- fellsnesi hefur kvatt þennan heim, eftir langvinnt lokastríð við þann, sem ekkert gefur eft- ir. Hún var samstarfskona mín á Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum um langt árabil eftir að ég hóf störf þar árið 1963. Hlíf var kappsfull, afkasta- mikil og vel verki farin. Fas hennar var þannig að öllum þótti vænt um hana fyrir lífs- gleðina sem smitaði yfir á allt og alla samverkamenn hennar, hláturmild í besta lagi og gam- ansöm. Hún bar sig vel, var léttbyggð, í meðallagi há og kvik í hreyfingum, bláeyg, dökkhærð. Áhugamál hennar voru fjölbreytt. Hún var ferða- fús, félagi í jöklarannsókna- félaginu og stundaði rannsókna- vinnu með félögum sínum á jöklum með sama kappi og á rannsóknarstofunni á Keldum. Ég minnist hennar með hlýju og þökk fyrir samvinnuna og bið blessunar fólki hennar öllu, sem misst hefur mikið, ekki síst maður hennar Magnús Hall- grímsson verkfræðingur, en þau voru samrýnd í besta máta og fylgdust jafnan að, hvort heldur sem var í ferðum um byggðir, hálendi eða jökla landsins. Hún studdi og stóð þétt við hlið manns síns í langdvölum í Aust- urlöndum, þar sem Magnús sinnti merkilegum verkefnum við uppbyggingu eftir stríðs- hörmungar og var krossaður síðar fyrir störf sín. Hlýjar samúðarkveðjur sendi ég ástvinum, ættingjum og sam- verkamönnum á Keldum og annars staðar. Sigurður Sigurðarson dýralæknir. Hún Hlíf er farin heim. Þann- ig komst Magnús vinur minn Hallgrímsson að orði þegar hann tilkynnti mér andlát eig- inkonu sinnar. Magnús notaði þar tungutak og málvenju skáta þegar þeir lýsa ferðinni yfir móðuna miklu til sólheima enda vinur minn landsþekktur skáti. Kynni mín af þeim hjónum hófust fyrir réttum 40 árum í júní 1972 þegar sá er þetta ritar hóf ungur störf á verkfræðistof- unni Hönnun þar sem fyrir voru margir reyndir verkfræðingar og þeirra á meðal Magnús. At- vik höguðu því svo að við Magn- ús unnum mikið saman í verk- efnum sem tengdust byggingu háspennulína fyrir Landsvirkj- un. Magnús var meistari okkar yngri verkfræðinganna og stýrði liði sínu af mikilli þekk- ingu og röggsemi. Við nánari kynni af Magnúsi varð ég þeirr- ar gæfu aðnjótandi að kynnast hans ágætu eiginkonu Hlíf Ólafsdóttur sem ættuð var frá Brimilsvöllum á Snæfellsnesi. Þau kynni áttu síðan eftir að þróast yfir í einlæga vináttu við þau hjón bæði. Sú vinátta hefur orðið mér dýrmætt veganesti á lífsleiðinni. Hlíf var í senn einstaklega hispurslaus og ærleg. Það var gaman og gefandi að hitta hana og ræða við hana um menn og málefni. Hún ræddi mál af hreinskilni og skoðanir hennar fóru ekki á milli mála. Hún var sterkur persónuleiki og mikill gleðigjafi og tók gjarnan yfir sviðið í margmenni og þar var Magnús aldrei langt undan. Ég veit fá dæmi þess að hjón hafi verið svo samrýnd sem þau Hlíf og Magnús og voru þau oftar en ekki nefnd í sömu andrá. Það er gott að geta litið til baka yfir 40 ára farinn veg og ornað sér við góð og gjöful kynni við Hlíf. Þar bar aldrei skugga á. Fyrir það ber að þakka. Ég færi Magnúsi vini mínum, sonum þeirra hjóna og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur frá mér og mínum. Þorgeir J. Andrésson. Hlíf Ólafsdóttir Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys, hnígur að Ægi gullið röðulblys. Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd, og báran kveður vögguljóð við fjarðarströnd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. – Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró. (Jón frá Ljárskógum) Addi var orðinn þreyttur. Hann sagði mér einu sinni að Guðjón Arnór Árnason ✝ Guðjón ArnórÁrnason fædd- ist í Reykjavík 13. júní 1916. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Ísafirði 8. maí 2012. Útför Arnórs fór fram frá Holts- kirkju í Önund- arfirði 19. maí 2012. hann héldi að hann yrði 101 árs en hann hafði orð á því fyrir um mánuði að hann myndi ekki ná því. Nú er hann kominn í draumalandið sem hann var búinn að spekúlera svo mikið í. Við töluðum mikið um það eftir að hann fluttist yfir á Dvalarheimilið Tjörn á Þingeyri, frá Sólborg á Flateyri í janúar 2011. Þá var hann kominn hring, því hann ólst upp í Dýrafirði en þurfti að dvelja á Þingeyri sem ungur maður vegna slyss sem hann varð fyrir 1939. Hann þekkti gömlu húsin sem standa enn, sum höfðu speglast í gegnum herbergisgluggann í spegilinn á veggnum. Hann lá fótbrotinn í rúminu. Síðastliðið sumar, 62 ár- um seinna, fór hann margar ferðir um Þingeyrina á rafskutl- unni og skoðaði sig um. Hann bar Flateyri og Þingeyri saman, fann kosti og galla á báðum stöð- um. En hann vildi hvíla í Önund- arfirði, það var alveg öruggt. Honum fannst gaman að spjalla og það var alveg unun að hlusta á allan orðaforðann sem hann hafði, kjarnyrt íslenska. Hann fór aldrei í skóla en var vel les- inn. Við gátum talað um allt og hann lét mig lýsa fyrir sér starf- inu mínu, kennslunni. Honum fannst mikið til þess koma þegar ég færði honum eðlisfræðibæk- urnar sem eru kenndar í dag. Hann las þær, sagðist þekkja sumt en annað hefði hann aldrei heyrt um. Mér fannst það ólík- legt. Hann gat líka lesið ensku og dönsku, brá þeim stundum fyrir sig og hafði gaman af. Næst síðasta skiptið sem ég fór til hans kvaddi ég hann með því að segja: „Við sjáumst, Addi minn,“ Hann svaraði: „Já, next time.“ Þakka þér fyrir allar samveru- stundirnar Addi minn, þín sýn á lífið hefur fylgt manni frá upp- hafi, svo vinnur hver og einn úr því á sinn hátt. Hvíldu í friði. Þín bróðurdóttir, Guðrún Rakel Brynjólfsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.