Morgunblaðið - 03.07.2012, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3. J Ú L Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 153. tölublað 100. árgangur
JÓGA ÚTI Í NÁTT-
ÚRUNNI ALLAN
ÁRSINS HRING ENDURKOMUR Á ÚTIHÁTÍÐ
TÍMAMÓT HJÁ
FIMMTUGUM
TOM CRUISE
FJÖLDI ATRIÐA Á BESTU ÚTIHÁTÍÐINNI 32 AF STÓRRI STJÖRNU 31BÓK UM ÚTIJÓGA 10
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það hefur ekki verið hætt við
stækkunina, henni hefur verið frest-
að, en ætlunin var að stækka verk-
smiðjuna um 60-70%. Um þessar
mundir framleiðum við um 6,5-7
milljónir fermetra á ári sem eru
rúmlega 70% af fullri afkastagetu
verksmiðjunnar,“ segir Rúnar
Sigurpálsson, fjármálastjóri Becro-
mal í Krossanesi, um þá ákvörðun
að slá stækkun verksmiðjunnar á
frest.
Ládeyða í orkugeiranum
Rúnar rekur ákvörðunina til erf-
iðs efnahagsástands í Evrópu og
horfir þar einkum til sólar- og vind-
orkumarkaðarins.
Aflþynnuverksmiðjan kostaði um
10 milljarða í byggingu og hefur
komið fram að um milljarða fram-
kvæmd yrði að ræða.
Veltan var um 12,36 milljarðar á
síðasta uppgjörsári og eru starfs-
menn um 110. Þrátt fyrir samdrátt-
inn bindur Rúnar vonir við að geta
bætt við fólki fljótlega. Hann sjái
merki um hægan bata.
MEvrukreppan »4
Framleiðslan dregst saman
AFP
Danskt vindorkubú Samdráttur í
vindorku kemur niður á Becromal.
Becromal bregst við evrukreppunni Áætlun um að stækka um 60-70% frestað
Ládeyða er á sólar- og vindorkumarkaði Vonast þó til að geta bætt við fólki
Þessi múkki var alls ósmeykur þar sem hann tók við lifur og öðru góðgæti
úr hendi Árna Halldórssonar, skipstjóra á Níelsi Jónssyni EA 106, sem var í
hvalaskoðun og á sjóstöng út af Hauganesi á Eyjafirði í gær.
Vanalega hafa fýlar varann á sér þótt boðið sé til slíkrar veislu. Helst
nálgast þeir menn þegar hvasst er í veðri enda stormfuglar. Að þessu sinni
lét einn tilleiðast viðstöddum ferðamönnum til mikillar ánægju.
Frakkur múkki lét tilleiðast og tók við lifur
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Heimtur upp í meðlagskröfur
voru mun betri árið 2011 en árin á
undan. Mismunur milli krafna og
greiðslna var rúmar 753 milljónir í
fyrra, samanborið við 934 milljónir
2010 og 944 milljónir 2009.
Jón Ingvar Pálsson, forstjóri Inn-
heimtustofnunar, segir að merkja
megi á greiðslugetu meðlagsgreið-
enda að minna rót sé á tekjum og
atvinnu en síðustu ár.
Jón nefnir einnig að stofnunin
veiti vinnuveitendum nú aukið að-
hald vegna krafna í laun auk þess
sem greiðslur frá fólki, sem flutti til
Norðurlanda, séu farnar að skila
sér. »14
Heimtur meðlags
sýna minna rót
Talið er að á milli átta til tíu þús-
und manns kafi ofan í gjána Silfru á
Þingvöllum á hverju ári. Þetta segir
Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðs-
vörður í samtali við blaðamann. Þá
er áætlað að árleg velta í Silfru sé á
bilinu 120-150 milljónir íslenskra
króna.
„Nú þegar er búið að leggja á aðra
milljón á þessu ári í bætta aðstöðu,“
segir Ólafur sem hafnar þeim ásök-
unum að á bak við hið 750 kr. gjald,
sem stefnt er á að taka fyrir köfun
ofan í Silfru í framtíðinni, sé engin
þjónusta.
„Ég hef t.d. verið að kafa hérna í
24 ár og það hefur rauninni ekkert
verið gert annað
en einn stígur
hérna á þeim
tíma og einn stigi
settur hér niður,“
segir Finnbjörn
Finnbjörnsson,
eigandi fyrirtæk-
isins Scuba Ice-
land. Aðspurður
hvort köfun ofan í
Silfru sé stór iðnaður segir Finn-
björn: „Ef við gefum okkur að þetta
séu um 10 þúsund manns, þá eru
þetta um 120 milljónir sem skiptast
niður á 5 til 6 fyrirtæki sem þýðir um
25 milljónir á hvert fyrirtæki.“ »18
Átta til tíu þúsund manns kafa ofan
í gjána Silfru á Þingvöllum á ári hverju
Ólafur Örn
Haraldsson
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Búið var að taka ákvörðun í 3565
umsóknum um greiðsluaðlögun sem
borist höfðu umboðsmanni skuldara
1. júlí. Úrræðið var kynnt til sög-
unnar 1. ágúst ár-
ið 2010 og síðan
þá hafa 4099 sótt
um greiðsluaðlög-
un skulda. Af
þeim málum sem
tekin hafa verið
til athugunar hjá
umboðsmanni
skuldara hefur
410 verið synjað
um greiðsluaðlög-
un en 2941 mál
hefur verið samþykkt. 314 mál hafa
verið afturkölluð að frumkvæði
skuldara. 434 umsóknir eru í vinnslu.
Eftir að umboðsmaður hefur sam-
þykkt greiðsluaðlögun fer málið til
umsjónarmanns sem er lögfræð-
ingur og milligöngumaður um
greiðslukjör skuldara við kröfuhafa.
1910 mál bíða niðurstöðu hjá um-
sjónarmönnum en 1755 mál hafa
verið verið afgreidd með samningi á
milli skuldara og kröfuhafa.
1860 hafa sótt um fjármálaráðgjöf
hjá umboðsmanni skuldara frá 1.
ágúst og eru 534 mál í vinnslu hjá
embættinu nú. Um þriðjungur ráð-
gjafamála endar í greiðsluaðlögun.
Enn koma mál inn á borð umboðs-
manns en umsóknir eru mun fátíðari
en áður. Fyrirfram var ljóst að um-
svif embættisins myndu minnka með
færri umsóknum. Hinn 1. september
mun starfsmönnum fækka úr 98 í 70.
„Við erum búin að fara yfir stóran
hluta málanna og því munu umsvif
embættisins minnka eitthvað. Einn-
ig erum við að færa fólk til í starfi.“
segir Svanborg Sigmarsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi umboðsmanns skuld-
ara.
Stærstur
hluti mála
unninn
Fækkar í starfsliði
umboðsmanns skuldara
Svanborg
Sigmarsdóttir
Atvinnuleysi kemur verst niður á
ungu fólki og einstaklingum með
litla menntun. Stór hópur fólks hef-
ur verið frá vinnumarkaði í meira
en eitt ár og fjölgar ört í honum.
Þetta kemur fram í samantekt um
ástand í atvinnumálum sem unnin
var á vettvangi Alþýðusambands Ís-
lands.
Átak í þágu atvinnulausra hafi
skilað ágætum árangri. Enn er þó
þörf á því að ráða bót á ástandinu
með frekari eftirfylgni.
40. þing ASÍ verður haldið í októ-
ber og verður samantektin til um-
fjöllunar þegar unnið verður að til-
lögum á þinginu. Þá verða einungis
2-3 mánuðir til stefnu þar til for-
sendur kjarasamninga koma til
endurskoðunar. »6
Samantekt sýnir að ört vaxandi hópur
fólks glímir við langtímaatvinnuleysi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ungt fólk Margt ungt fólk þarf að horfast
í augu við atvinnuleysi.