Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012 Í fyrrasumar viðruðu valda-menn í Reykjavík ýmsar af- sakanir fyrir óræktinni. Meðal þess sem þá var nefnt var að sprett- an hefði verið óvenjulega mikil sökum vætutíðar. Glöggt mátti sjá að minna hafði rignt á Seltjarnarnesi en í Reykjavíkurborg. Var áberandi hve rigningin hafði fylgt borgarmörkunum og mun það vera einsdæmi í veraldar- sögunni.    Í ár vill svo til að leikurinnendurtekur sig. Enn gerist það að gras og illgresi sprettur fyrirstöðulaust í borgarlandinu en helst í skefjum handan borgar- markanna.    Og nú er það væntanlega ekkivætutíðin sem stuðlar að stjórnlausri sprettunni í Reykja- víkurborg, heldur brakandi þurrkurinn sem hefur valdið því að ekki verður við neitt ráðið.    En þurrkurinn hefur ekki leik-ið grasflatirnar á Seltjarn- arnesi jafn grátt og þar hefur ill- gresið ekki getað nýtt sér hann til að vaxa bæjarbúum upp í hné.    Þar er af einhverjum ástæðumenn jafn snyrtilegt um að lit- ast og í fyrra. Og í Reykjavík er af jafn óútskýrðum ástæðum enn jafn ósnyrtilegt og í fyrra.    Það eina sem fyrir liggur er aðskýringanna er ekki að leita í Ráðhúsi Reykjavíkur, því eins og borgarstjóri hefur bent á þá stjórnar hann ekki snjókomunni og þá örugglega ekki gróð- ursprettunni heldur. Jón Gnarr Kristinsson Stjórnar ekki sprettunni STAKSTEINAR Veður víða um heim 2.7., kl. 18.00 Reykjavík 13 skýjað Bolungarvík 14 skýjað Akureyri 13 alskýjað Kirkjubæjarkl. 12 skýjað Vestmannaeyjar 10 skýjað Nuuk 8 léttskýjað Þórshöfn 8 skýjað Ósló 13 skúrir Kaupmannahöfn 17 skýjað Stokkhólmur 20 heiðskírt Helsinki 17 heiðskírt Lúxemborg 17 léttskýjað Brussel 21 heiðskírt Dublin 17 skúrir Glasgow 16 alskýjað London 16 skýjað París 22 heiðskírt Amsterdam 22 heiðskírt Hamborg 20 skýjað Berlín 22 heiðskírt Vín 33 heiðskírt Moskva 26 heiðskírt Algarve 27 heiðskírt Madríd 30 heiðskírt Barcelona 25 heiðskírt Mallorca 26 léttskýjað Róm 32 léttskýjað Aþena 27 léttskýjað Winnipeg 30 skýjað Montreal 25 léttskýjað New York 27 heiðskírt Chicago 31 skýjað Orlando 30 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 3. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:12 23:54 ÍSAFJÖRÐUR 2:07 25:08 SIGLUFJÖRÐUR 1:44 24:57 DJÚPIVOGUR 2:29 23:36 „Mótið tókst vel og nú er aðalvand- inn fyrir hestamenn að láta tímann aðeins líða og vera ekki að draga of miklar ályktanir eftir mótið, heldur fagna því að mótið tókst vel og nýta það besta. Við höldum áfram að þróa þann viðburð. Næsta mót verð- ur á Hellu og það er næsta verkefni að gera það vel úr garði,“ sagði Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga, aðspurður hvernig Landsmót 2012 í Víðidal í Reykjavík hefði tekist. Snýst um þá sem lifa af hestum „En við þurfum jafnframt að taka umræðuna um hvernig við viljum láta þennan viðburð þróast inn í framtíðina. Mesta vandamálið er að hrinda engum frá, stuða ekki neinn og fara ekki að draga þær ályktanir: „Reykjavík og aldrei nema Reykja- vík.“ Við eigum að forðast slíkar umræður og reyna að láta þennan viðburð sem slíkan þróast og þrosk- ast í höndunum á okkur,“ sagði Haraldur og bætti við: „Í mínum huga hefur þetta aldrei snúist um svæðið heldur um hestinn og þá sem lifa af honum. Hvernig við get- um nýtt þennan viðburð þannig að fleiri geti komið inn í þetta og gert hestinn að sínu lifibrauði. Það er okkar keppikefli að láta ekki neitt villa okkur af þeirri braut.“ ipg@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Landsmót hestamanna Það var mikið um dýrðir í Víðidalnum í Reykjavík í síðustu viku. Þegar mótið stóð sem hæst á laugardagskvöldið var brekkan þétt setin eins og sést og nutu gestir í senn veðurblíðu og einstakra gæðinga á vellinum. Næsta landsmót hestamanna verður haldið á Hellu. „Þróum þennan við- burð áfram“Full búð af fallegum fatnaði á alla fjölskylduna! F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M ! KRINGLUNNISími: 5513200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.