Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012 ✝ Kristinn Krist-insson fæddist á Sólvangi í Hafn- arfirði 20. apríl 1958. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 24. júní 2012. Hann var sonur hjónanna Kristins Kristinssonar, húsasmíðameist- ara, f. í Reykholti í Borgarfirði 3. október 1937 og Guðrúnar Sveinsdóttur, lækna- ritara, f. á Barðsnesi við Norð- fjörð 7. desember 1934, d. 24. ágúst 2011. Kristinn var elstur af fimm systkinum, þau eru: 1) Sigríður, f. 1959, maki Bergur Þorgeirsson, f. 1958. 2) Bergljót, f. 1962, maki Andrés I. Guð- mundsson, f. 1957. 3) Sveinn, f. 1964, maki Ásta Rut Sigurð- ardóttir, f. 1966. 4) Dagbjört, f. 1966, maki Matthías Jónasson, f. 1966. Þann 26. desember 1981 lendssyni, f. 8. mars 1983. Börn þeirra eru Erlendur Óli, f. 1. nóvember 2008 og Kristinn Leó, f. 31. janúar 2012. c) Tinna Björk, f. 28. maí 1988, í sambúð með Brynjari Rafni Ólafssyni, f. 20. maí 1987. Kristinn lauk barnaskóla í Kópavogi 1971, Víghólaskóla, 1975, 4. stigi í Vélskóla Íslands 1979 og sveinsprófi í vélvirkjun 1980. Hann var vélvirkjanemi í Vélsmiðjunni Kletti hf. 1978-80, vann í Vélsmiðju Hafnarfjarðar 1982-83, í fiskimjölsverksmiðju hjá Ströndum hf. á Reykjanesi 1983-85, var vélstjóri hjá Sjóla- stöðinni hf. á Otri 1985-89 og hjá Meitlinum hf. á Jóni Vídalín 1989-91. Hann var vélstjóri hjá Vinnslustöðinni hf. á Hoffelli SU 80 sem síðar varð Jón Vídalín VE 82, 1991-2002 og yfirvél- stjóri frá 2002 þangað til hann veiktist vorið 2011. Kristinn lauk grunnnámi í rafvirkjun frá FB samhliða starfi vorið 2009. Hann gerðist meðlimur í Frí- múrarareglunni árið 2006. Kristinn og Steinunn Lilja bjuggu allan sinn búskap í Hafn- arfirði. Kristinn verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 3. júlí 2012, kl. 13. kvæntist Kristinn Steinunni Lilju Sig- urðardóttur. Stein- unn Lilja er fædd 24. september 1958 á Sólvangi í Hafn- arfirði. Foreldrar hennar voru Sig- urður Dagnýsson, verkamaður í Hafn- arfirði, f. 25. júlí 1925 á Seyðisfirði, d. 3. nóvember 2002 og Katrín Sigurðardóttir, f. 24. júlí 1926 á Norðfirði, d. 5. mars 1962. Uppeldismóðir Steinunnar Lilju var Helga Sveinsdóttir, f. 18. nóvember 1920, d. 4. desember 2002. Börn Kristins og Steinunnar eru: a) Katrín Helga, f. 28. febrúar 1977 í Reykjavík, gift Snæbirni Sigurðssyni, f. 31. mars 1977. Börn þeirra eru Sigurður Ari, f. 12. júlí 2003 og Kristinn Páll, f. 21. september 2007. b) Guðrún Harpa, f. 21. apríl 1983 í Reykja- vík, í sambúð með Sigurði Er- Elsku pabbi minn, stórt skarð hefur nú myndast í lífi mínu. Hugsunin um það að þú sért far- inn særir svo mikið að orð fá því ekki lýst. Ég sit með tárin í aug- unum og rifja upp allar minning- arnar um þig, sem hefðu átt að verða svo miklu fleiri. Þú sem varst svo ótrúlega lífsglaður og viljugur að rækta fjölskylduna. Við áttum margar ógleymanlegar stundir saman sem ég er svo þakklát fyrir að hafa átt með þér. Þar má nefna kvöldstundirnar okkar við eldhúsborðið þar sem við spiluðum á spil og öll ferðalög- in þar sem maður var ósjaldan settur á landakortið til að þylja upp allt sem fyrir augu bar. Þú varst svo drífandi og viljugur að stunda áhugarmálin með okkur systrunum, þær eru mér minnis- stæðar allar skemmtilegu skíða- ferðarnar í Bláfjöll og Skálafell þar sem þú varst búinn að græja allt og kominn að sækja mig um leið og skólinn var búinn. Þú varst mikill tónlistarunnandi og frábær gítarspilari og vaktir alltaf mikla lukku hvar sem þú spilaðir. Ég á mikið eftir að sakna þess að heyra þig ekki spila á gítarinn og syngja. Það er mér einnig minnisstætt þegar ég var í yngri bekkjum grunnskólans og þú komst, ásamt fleiri foreldrum, og hélst starfs- kynningu um vélstjórastarfið á sjó. Ég man hvað ég var montin að eiga svona flottan pabba. Mér fannst alltaf svo gaman að fara með mömmu að sækja þig þegar þú varst að koma heima af sjón- um. Minningin um þig þreyttan en glaðan, alskeggjaðan með sjó- pokann á öxlinni og rembingskoss situr svo fast í huga mér. Þegar þú komst í land varstu aldrei verk- efnalaus, þú fannst þér alltaf ein- hvað að gera og nýttir alla daga til fulls. Ég er svo ótrúlega glöð að hafa fengið þig og mömmu í heim- sókn til mín til Danmerkur vorið 2010, sú ferð verður lengi í minni höfð. Eins og við systurnar og mamma segjum þá varst þú klett- urinn okkar, sterki pabbi okkar sem gat allt. Þú varst svo hand- laginn og allt sem þú tókst þér fyrir hendur gerðir þú af fullum hug. Þú og mamma hafið alltaf verið svo samrýmd og eignast allt ykkar með eigin dugnaði. Ég hef oft hugsað hversu heppin ég er að hafa fæðst inn í svona samrýmda fjölskyldu og átt þig og mömmu sem foreldra. Þú og mamma hafið alla tíð verið svo kærleiksrík og lagt fyrir okkur systurnar lífsgild- in og erum við endalaust þakklát- ar fyrir það. Elsku yndislegi pabbi minn, ég kveð þig með ólýsanlegum sökn- uði og sorg. Ég mun aldrei gleyma þér. Þín Tinna Björk. Elsku yndislegi pabbi minn er búinn að kveðja þennan heim, svo alltof ungur. Við sem áttum eftir að gera svo margt saman. Mikið rosalega er sárt að hugsa til þess að eiga ekki eftir að hitta hann aft- ur. Margar góðar minningar streyma fram í hugann meðan ég sit hérna með tárin í augunum að skrifa þær niður á blað. Eins og t.d. þegar pabbi fór með mig í inntökupróf í Rokk- lingana. Við æfðum okkur heima áður, pabbi spilaði á gítar og ég söng með, svo þegar á hólminn var komið þá þorði ég ekki að syngja. Eitt sumarið er mér mjög minnisstætt en þá tókum við pabbi okkur til og fórum í sund snemma á morgnana þegar hann var í landi og syntum eins og her- foringjar og lágum svo í pottinum þegar við vorum búin. Pabbi var mikill matmaður og ég veit um fáar manneskjur sem var eins gaman að bjóða í mat. Honum fannst nánast allt gott og kláraði alltaf matinn sinn, og sagði svo þegar hann var búinn: Þetta var alveg æðisgengið, Guð- rún mín. Pabbi spilaði á gítar og gerði mikið af því, fór með gítarinn með sér nánast hvert sem hann fór. Það var alltaf svo notalegt að vera heima hjá mömmu og pabba og hlusta á hann spila á gítarinn. Ég man þegar við systurnar vorum litlar þá tók pabbi oft upp á kass- ettu meðan hann spilaði og við sungum saman. Ég var alltaf svo stolt af að eiga pabba sem var svona flinkur á gítar. Pabbi keypti sér atvinnuhús- næði fyrir nokkrum árum og var að vinna við það, í sínum frítíma, að gera það fínt. Hann gat verið þar tímunum saman þegar hann var í landi. Svo var hann að fá mig til að hjálpa sér við það að teikna húsnæðið upp í teikniforriti, og það sem hann hafði gaman af því að fylgjast með því og læra. Hann hafði svo gaman af afa- strákunum sínum og var svo stolt- ur af þeim. Ljómaði alltaf allur þegar ég kom með strákana mína til hans. Ég verð dugleg að segja þeim sögur af afa Didda, hvað hann var góður maður. Elsku pabbi minn, að þurfa að kveðja þig er það erfiðasta sem ég hef þurft að gera í mínu lífi. Við sem vorum svo lík. Við erum eins, eins og þú sagðir. Hver minning sem ég á um þig er mér sem dýrmæt perla. Ég elska þig óendanlega mikið, pabbi minn, ég mun aldrei gleyma þér. Takk fyrir allt. Þín pabbastelpa, Guðrún Harpa. Elsku afi Diddi. Við eigum svo góðar minningar um þig. Okkur fannst svo gaman þegar þú spilaðir á gítarinn og fékkst okkur til að syngja með þér. Og þegar þú bauðst okkur í heita pottinn með þér, það var sko fjör. Við söknum þín svo mikið. Við kveðjum þig með þessari bæn: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Takk fyrir allt. Þínir afastrákar, Sigurður Ari, Kristinn Páll, Erlendur Óli og Kristinn Leó. Hann stóri bróðir minn er dá- inn. Burtu tekinn í blóma lífsins, aðeins 54 ára gamall. Hann sem alltaf var til staðar fyrir alla, ávallt tilbúinn að rétta hjálparhönd, óþreyjufullur og orkumikill. Hann sem leiddi mig um ref- ilstigu unglingsáranna, kynnti mig fyrir lífi hinna fullorðnu, oft- ast tilbúinn að hafa litlu systur með í för. Hann sem spilaði stóru Bítla- bókina með mér aftur á bak og áfram, pældi í gegnum flókin grip og kenndi mér allt sem ég kann á gítar. Hann sem söng og spilaði dú- etta með mér uppi á herbergi öll unglingsárin og jafnan er við hitt- umst eftir það. Hann sem leyfði mér að spila á bassa í bílskúrsbandinu sínu, upp- örvandi og fullur vissu um getu litlu systur. Hann sem hjálpaði mér óum- beðinn að gera við fyrstu bíl- skrjóðana sem ég eignaðist. Hann sem aldrei bað um neitt en lagði hart að sér alla tíð að sjá fyrir fjölskyldu sinni þannig að vel væri. Hann sem neitaði að skilja hugsunarhátt útrásarvíkinga og sá ekki framlegðina sem þeir sáu. Hann sem var samkvæmur sjálfum sér, hreinskiptinn og full- ur af umhyggju. Elsku Lilja og dætur, yljum okkur við ljúfar minningar um Didda stóra bróður minn, þær verða ekki frá okkur teknar. Bergljót Kristinsdóttir. Það er sárt að þurfa kveðja ást- vini sem eru enn í blóma lífsins en við verðum að trúa því að einhver tilgangur sé þar að baki. Diddi bróðir kvaddi okkur á sólríkum og björtum júnídegi. Eftir baráttu við krabbamein í rúmt ár var von- in tekin frá okkur og viku fyrir andlát sitt fékk hann inni á líkn- ardeild, þar sem hann lést þann 24. júní. Í hópi fimm systkina var Diddi elstur, en ég yngst. Við ólumst upp í stórri samheldinni fjöl- skyldu í Reynihvammi í Kópavogi þar sem alltaf var líf í tuskunum. Það eru níu ár á milli mín og Didda og þegar ég hugsa til baka man ég eftir dúfnakofanum hans, stóra hjólinu, gítarspili, Fíatinum úti í bílskúr sem hann var alltaf að laga og hve erfiðlega gekk að vekja hann á morgnana. Ég man þegar hann kynntist Lilju og enn betur þegar þau birtust með Kötu með sér sem þá var um tveggja ára gömul. Diddi var mikill fjölskyldumað- ur, ákveðinn og með mikla rétt- lætiskennd en umfram allt mikið ljúfmenni. Fjölskyldan var í fyrsta sæti hjá honum og hann vantaði sjaldnast í okkar föstu við- burði. Hans fyrsta verk þegar hann kom af sjó var að koma við hjá mömmu og pabba áður en hann fór heim til sín. Eftir að mamma kvaddi okkur fyrir tíu mánuðum, passaði hann að kíkja reglulega til pabba á meðan hann hafði heilsu til, ég veit að þeirra heimsókna verður sárt saknað. Þegar framkvæmdir lágu fyrir þá lá Diddi ekki á liði sínu. Hann gekk rösklega til verks og eftir hann liggja mörg handtök í Kiðja- bergi og á Barðsnesi sem hvoru tveggja eru sameiginlegir fjöl- skyldustaðir. Hann fékk snemma áhuga á ættfræði og varð með tímanum uppflettibók fjölskyld- unnar um fjölskyldu- og ættar- tengsl aftur í tímann. Gítarinn hefur verið órjúfanlegur hluti af Didda frá því að ég man eftir mér. Hann var fljótur að pikka upp ný lög og var hrókur alls fagnaðar þegar við fjölskyldan gerðum okkur glaðan dag. Hann leið- beindi syni okkar sem stundar gít- anám og lét hann vita að hann yrði að taka við sem undirleikari. Elsku Lilja, Kata, Harpa og Tinna, þetta er stór missir og sár söknuður sem við fjölskyldan þurfum að vinna úr og við munum án efa sameinast um að styðja hvert annað í því sem öðru. Dagbjört Kristinsdóttir. Diddi mágur, skólabróðir en umfram allt vinur minn verður jarðaður í dag. Ég hitti þig fyrst vorið ’88, ég nýtekinn saman við Dæju litlu systur þína. Í fyrstu fannst mér þú vera heilli kynslóð á undan mér, ráðsettur með konu og þrjár dætur og að auki nokkuð sjóaður sem vélstjóri. Ég var nýútskrif- aður úr vélskólanum og því nokk- uð viss um að verða tekinn í bak- aríið, svona grænn sem ég var. Sá ótti reyndist ástæðulaus því þú tókst mér strax sem jafningja og sagðir: „Maður var sjálfur jafn vitlaus til að byrja með.“ Árin liðu, bilið minnkaði og vin- Kristinn Kristinsson ✝ Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG ÁRMANNSDÓTTIR, Lindasíðu 2, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn 23. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Bestu þakkir til starfsfólks Hlíðar og Bakkahlíðar fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur. Hákon Aðalsteinsson, Ármann Þ. Björnsson, Ellen Þorvaldsdóttir, Aðalsteinn Hákonarson, Sigurlína Hilmarsdóttir, Elías Hákonarson, Dröfn Jónsdóttir, Hákon Hákonarson, María B. Ívarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur okkar, bróðir, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTINN H. BENEDIKTSSON ljósmyndari, Grindavík, lést laugardaginn 23. júní á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Útför hans fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði miðvikudaginn 4. júlí kl. 15.00. Benedikt Sveinsson, Þórdís Kristinsdóttir, Steinunn M. Benediktsdóttir, Sverrir Friðbjörnsson, Svava B. Benediktsdóttir, Gestur Kristjánsson, Jóel Kristinsson, Linda Þóra Grétarsdóttir, Hildur Sigrún Kristinsdóttir, Pétur L. Lentz, Rakel Kristinsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TRAUSTI KRISTINSSON vörubifreiðastjóri, Laufásvegi 50, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk fimmtu- daginn 28. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Halla Guðný Erlendsdóttir, Málhildur Traustadóttir, Guðmundur Vésteinsson, Anna Erla Guðbrandsdóttir, Egill Sveinbjörnsson, Margrét Traustadóttir, Ámundi Halldórsson, Hjördís Steina Traustadóttir, Kristinn Jónsson, Erlendur Traustason, Björg Sigrún Ólafsdóttir, Þórður Ólafur Traustason, Ágústa Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓHANN JÓHANNSSON, Lindasíðu 2, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar miðvikudaginn 27. júní. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 5. júlí kl. 13.30. Svava Valdimarsdóttir, Lovísa Sigurðardóttir, Þorsteinn Guðnason, Jóhanna Hartmannsdóttir, Bjarki Sigurðsson, Hólmfríður Jónasdóttir, Valdimar Sigurðsson, afa- og langafabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og dóttir, ERLA GUÐMUNDSDÓTTIR, sem lést á Landspítalanum Fossvogi, deild B7, miðvikudaginn 27. júní, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 5. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gigtarfélag Íslands. Sigurður Vilhjálmsson, Brynjar Hólm Sigurðsson, Anna María Sveinsdóttir, Guðrún Lilja Sigurðardóttir, Hafliði Már Brynjarsson, Sigurður Hólm Brynjarsson, Guðrún Stefanía Jóhannsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.