Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Við erum í miklum fram- kvæmdum í sumar við göngustíga á friðlýstum svæðum,“ sagði Aðal- björg Birna Guttormsdóttir, deild- arstjóri á deild náttúruverndar hjá Umhverfisstofnun. Á vegum Um- hverfisstofnunar hefur verið unnið að því í sumar að laga svæði sem lentu á svonefndum „rauða lista“ og „appelsínugula lista“ þegar gerð var athugun á þolmörkum og ástandi ferðamannastaða árið 2010. Víða unnið að stígagerð Í sumar hefur m.a. verið unnið að gerð göngustígs við Dynjanda í Arnarfirði. Þar lögðu hönd á plóg bæði verktakar og erlendir sjálf- boðaliðar. Unnið er við göngustíga í Vatnsfirði og framkvæmdir að hefjast við göngustíga í Grábrók- argígum í Borgarfirði og við Eld- borg á Mýrum. Áfram verður unn- ið við göngustíga við Gullfoss en þar var einnig unnið í fyrrasumar. Þar er búið að gera nýja göngu- palla, afmarka og bera í göngu- stíga. Einnig verða göngupallar á Hveravöllum lagaðir og endur- bættir í sumar. Sjálfboðaliðar eru í Þórsmörk þar sem þeir vinna við að laga gönguleiðir í samvinnu við Skóg- rækt ríkisins og Landgræðslu rík- isins. Þá hefur einnig verið unnið við göngustíga í Dyrhólaey og á fleiri svæðum. „Við erum í start- holunum á friðlýstum svæðum úti um allt land,“ sagði Aðalbjörg. Fáir Íslendingar bjóða sig fram Umhverfisstofnun fær um 200 erlenda sjálfboðaliða til starfa í sumar. Sumir eru hér allt sumarið við störf en aðrir dvelja skemur. Aðalbjörg sagði að ekki hefði gengið sem skyldi að fá íslenska sjálfboðaliða til starfa við göngu- stígagerð. Það var reynt í fyrra- sumar en fáir gáfu sig fram. Morgunblaðið fjallaði á föstudag um slæmt ástand á mörgum gönguleiðum og taldi Andrés Arn- alds hjá Landgræðslunni nauðsyn- legt að grípa til aðgerða þess vegna. Þær gönguleiðir eru oft ut- an friðlýstra svæða í heild eða að hluta eins og Laugavegurinn og Fimmvörðuháls. Aðalbjörg sagði að Umhverfis- stofnun héldi við þeim hluta Laugavegarins sem er innan frið- landsins, það er svæðinu í kringum Hrafntinnusker, og er það gert í samvinnu við Ferðafélag Íslands. Aðalbjörg sagði að Ferðafélagið hefði einnig séð um þann kafla Laugavegarins sem liggur frá frið- landinu og niður í Þórsmörk. Ljósmynd/Umhverfisstofnun Dynjandi í Arnarfirði Vinnuvél flytur fyllingarefni í göngustíginn. Svo annast sjálfboðaliðarnir frágang stígsins. Víða er unnið að gerð göngu- stíga á friðlýstum svæðum  Um 200 útlendir sjálfboðaliðar leggja Umhverfisstofnun lið í sumar Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Nýtt strandveiðitímabil hófst 1. júlí. Heimild er fyrir um 2300 tonna veiði á fjórum svæðum við landið. Árni Sigtryggsson hefur sótt sjó í 22 ár. Hann rær á þriggja tonna trillu á sumrin. Þess á milli starfar hann sem húsasmiður. Hann gerir út frá Hafnarfjarðarhöfn. ,,Það er lítið at hérna í Faxaflóanum. Af einhverjum ástæðum er best veiði hérna fyrir sunnan á vorin, en það er langmest veiði á Vestfjörðum,“ segir Árni. Um 160 bátar gera út frá svæði D sem nær til Faxaflóa. Heimild er fyr- ir veiðum á 225 tonnum á því svæði sem er lægsta veiðiheimild allra svæða. Árni segir að 280 krónur fáist fyrir hvert kíló sem er um 120 krón- um minna en fékkst í upphafi sum- ars. Sumt mætti betur fara Hann telur fyrirkomulag strand- veiða ágætt þó sumt mætti betur fara. ,,Það á vonandi eftir að þróast. Mörgum er illa við 14 klukkutíma há- markið,“ segir Árni en bátum er ein- ungis leyfilegt að vera að veiðum í 14 klukkustundir í einu. ,,Ég er á ferð- inni í 5 tíma til og frá þeim stað sem ég veiði á. Það gefur því augaleið að stundum gefst ekki nægur tími til að stunda veiðarnar eins og maður vildi,“ segir Árni. Hann leggur af stað á milli kl. 4 og 5 á morgnana en er kominn aftur til baka um kl. sex að kvöldi til. Hámarksafli á dag er 740 kíló. Árni segir að aflabrögð séu slæm um þess- ar mundir í Faxaflóa. Í gær fékk hann um 600 kíló af þorski. ,,Minnst hef ég fengið rétt um 100 kíló. Þá er ekkert annað að gera en að reyna á öðru svæði daginn eftir. Svo fær mað- ur fréttir af hinum. Stundum eru allir í einum hnapp að veiða,“ segir Árni. Í júlímánuði er heimild fyrir 858 tonna veiði á svæði A, 611 tonn má veiða á svæði B, 661 tonn á svæði C en 250 tonn á svæði D. Heildarheim- ild er því 2305 tonn fyrir landið allt. Í júnímánuði voru 680 bátar að strand- veiðum. Í gær voru 918 bátar á veið- um þegar best lét um tólf á hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Land- helgisgæslunni. Í júní var heimild fyrir 525 tonna veiði á svæði D en 20 tonn stóðu eftir við lok mánaðarins. Þau færast yfir á júlímánuð. „Stundum eru allir í einum hnapp“  Nýtt strandveiðitímabil hafið  Um 120 króna verðlækkun orðið á kílóverði á þorski frá því í vor  Heimild fyrir um 2.300 tonna veiði á strandveiðisvæðunum fjórum  918 bátar á veiðum í gær Nýtt strandveiðitímabil » Nýtt strandveiðitímabil hófst 1. júlí. » Um 280 krónur fást fyrir hvert kíló af þorski. » Heimild er fyrir um 2300 tonnum af afla í júlí. » Árni Sigtryggsson er nokkuð ánægður með strandveiðifyrirkomulagið en vonast til þess að sjá það þróast. » Hann segir suma ósátta við að geta einungis verið 14 klukkutíma að veiðum í einu. Morgunblaðið/Eggert Landar aflanum Árni Sigtryggsson kemur hér til hafnar í Hafnarfjarðarhöfn síðdegis í gær með um 600 kíló af þorski. Nýtt strandveiðitímabil hófst 1. júlí og er heimild fyrir veiðum á um 2.300 tonnum í mánuðinum. Þeirri hugmynd hefur oft verið hreyft í umræðunni um ástand vinsælla ferðamannastaða að láta ferðamenn borga gjald fyrir að heimsækja þá eða fyrir að ganga vin- sælar leiðir. Tekjunum yrði svo varið til þess að standa undir viðhaldi þessara staða. Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir, deildarstjóri hjá Um- hverfisstofnun, var spurð álits á slíkri gjaldtöku. Hún benti í því sambandi á stofnun Framkvæmdasjóðs ferða- mannastaða sem fær tekjur af gistináttagjaldi. Fjármagn úr honum á að renna til uppbyggingar ferðamannastaða. Hún taldi heimild skorta í lögum til að rukka ferðamenn beint fyrir að ganga tilteknar leiðir. „En sú hugmynd hefur komið upp að koma fyrir söfnunarkössum svo fólk geti skilið þar eftir smá framlög til að viðhalda leiðunum. Það er gert víða erlendis,“ sagði Aðalbjörg. Kassar fyrir frjáls framlög? FERÐAMANNASTAÐIR LÁTA Á SJÁ VEGNA MIKILS ÁGANGS SÉ EKKI BRUGÐIST VIÐ ÁLAGINU OG ÞEIM HALDIÐ VIÐ Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest ákvörðun matsnefndar um að íslenska ríkið skuli greiða 13,9 milljónir í bætur til bænda á Suður- landi vegna riðusmits sem greindist í kind á bænum. Riða greindist í kind frá bænum haustið 2007. Matsnefnd eignar- námsbóta mat tjón bóndans og varð niðurstaða hennar að það væri 13,9 milljónir. Ríkið var ósátt við niður- stöðu nefndarinnar, en dómarinn taldi að niðurstaða matsnefndar væri í meginatriðum rétt. Ríkinu var gert að greiða 600 þúsund kr. í málskostnað. Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson Dómur Bændur fengu bætur. Greiði bætur vegna riðu Óskað var eftir aðstoð lögregl- unnar á Selfossi í dag vegna deilna sem brutust út eftir að ökumað- ur olli miklum gróðurskemmd- um á landi í Út- hlíð. Ökumað- urinn ók inn í skóglendi með tilheyrandi skemmdum. Hann seg- ist hafa orðið að bregðast við þegar önd gekk skyndilega í veg fyrir bíl- inn. Lögreglan fór á vettvang og greiddi úr málinu. Var ljóst talið að ökumaðurinn yrði að greiða ein- hverjar bætur vegna tjónsins sem hann olli. Önd fipaði ökumann Tjón Önd varð völd að útafakstri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.