Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012 Helga Þórdís Guðmundsdóttir, organisti og kór- stjóri við Ástjarn- arkirkju í Hafn- arfirði, leikur á hádegistónleikum í Dómkirkju Krists konungs í Landakoti á morgun milli kl. 12:00-12:30. Um er að ræða fyrstu tónleikana í tón- leikaröð sem nefnist Orgelandakt og haldin er nú fjórða sumarið í röð. Orgelandakt verður haldin hvern miðvikudag í júlí og ágúst. Ýmsir organistar leika og er aðgangur ókeypis og öllum frjáls. Orgelandakt í Kristskirkju Helga Þórdís Guðmundsdóttir Hjónin Rósa Valtingojer og Zdenek Patak hafa opnað sýn- ingu á handverki sínu í Listmuna- horninu í Árbæj- arsafni. Rósa sýnir þar ís- lenska fugla unna úr leir og Zdenek sýnir ljós frá hönnunarvinnslu þeirra hjóna byggð á endurvinnslu á efni sem til fellur í samfélaginu. Rósa og Zdenek eru búsett á Stöðvarfirði sem er heimabær Rósu en Zdenek er fæddur og uppalinn í Prag. Árið 2008 stofnuðu þau hönn- unarvinnsluna Mupimup, sem rekur vinnustofur og verslun á Stöðvar- firði. Sl. ár hafa Rósa og Zdenek unnið að uppbyggingu á Stöðvarfirði með verkefni sínu sem kallast Sköp- unarmiðstöð og snýst um að nýta fyrrverandi frystihús staðarins í samfélags- og menningarlegum til- gangi. Þar fyrir utan taka þau þátt í rekstri Gallerí Snærósar á Stöðvar- firði sem var stofnað 1988 af for- eldrum Rósu, þeim Ríkharði Valt- ingojer og Sólrúnu Friðriksdóttur. Sýna hand- verk í Ár- bæjarsafni Lóa Einn af fuglum Rósu. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Alla leið inn í stofu er yfirskrift tónleika sem kammerhópurinn Nordic Affect heldur í Lista- safni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld kl. 20.30. Tón- leikarnir marka upphaf sumartónleikaraðar safnsins í ár, en næstu níu þriðjudaga verður boðið upp á fjölbreytta tónleikadagskrá í safninu. „Á tónleikunum munum við bjóða upp á tón- listarkvöld í anda þeirra skemmtana sem fram fóru í Evrópu um aldamótin 1800,“ segir Halla Steinunn Stefánsdóttir, fiðluleikari og listrænn stjórnandi hópsins, en auk hennar koma fram á tónleikunum þær Guðrún Hrund Harðardóttir víóluleikari og Hanna Loftsdóttir sellóleikari. Eins og venjan er á tónleikum Nordic Affect mun Halla Steinunn segja frá verkunum og tónskáld- unum á milli verka. Stuldur eða tilvitnun? Á efnisskránni í kvöld verða verk eftir þekkt tónskáld á borð við Joseph Haydn, Franz Schu- bert og Ludvig van Beethoven, en einnig minna þekkt tónskáld eins og Nicolas Dalayrac og Jo- hann Nepomuk Hummel. „Við munum m.a. leika dúett fyrir fiðlu og víólu eftir Dalayrac sem fæst- ir þekkja í dag, en hann var eitt vinsælasta óperutónskáld í París um 1800. Tónlist hans er mjög lagræn, falleg og ljúf í eyru,“ segir Halla Steinunn. Spurð hvers vegna hann hafi fallið í gleymskunnar dá segir Halla Steinunn ekki ein- falt að útskýra. „Ef til vill helgast það af því að hann var aðallega óperutónskáld og hefur gleymst þegar óperur hans féllu úr tísku.“ Að sögn Höllu Steinunnar var mjög algengt hjá tónskáldum 17. og 18. aldar að lauma inn í verk sín alls kyns vísunum í þekkt tónverk ann- arra tónskálda. „Þannig vitnar t.d. Hummel í óp- eru eftir Mozart,“ segir Halla Steinunn og bendir á að Hummel hafi verið lærlingur hjá Wolfgang Amadeus Mozart sem barn. „Mozart tók Hummel í læri án greiðslu sökum þess að Hummel var svo mikið undrabarn. Í þessu tríói sem við spilum úr má í lokin heyra til- vitnun í eina óperu Mozarts. Það er skemmtilegt að velta fyrir sér hvort þetta sé stuldur eða að- eins gert til heiðurs gamla kennaranum. Þetta getur líka hafa verið hugsað sem trikk til að skemmta áhorfendum þess tíma, því þarna var þá komin laglína sem allir þekktu.“ Kammerhópurinn Nordic Affect var stofnaður 2005 með það að markmiði að miðla tónlist 17.og 18. aldar sem og að flytja samtímatónlist. Með- limir hópsins eiga allir að baki nám í sagn- fræðilegum hljóðfæraleik og koma reglulega fram víða um Evrópu. Spurð hvað framundan sé hjá hópnum segir Halla Steinunn hann vera á leið í upptökur á diski sem væntanlegur er á næsta ári og styrktur er af Menningarsjóði Hlað- varpans. „Síðar í vikunni byrjum við að taka upp geisla- disk með nýjum verkum eftir íslensk kven- tónskáld, m.a. Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, Hafdísi Bjarnadóttur, Þuríði Jónsdóttur og Önnu Þorvaldsdóttur,“ segir Halla Steinunn. Allar nánari upplýsingar um sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar má finna á vef safnsins: lso.is. Morgunblaðið/Ómar Fyrstar Halla Steinunn Stefánsdóttir fiðluleikari, Guðrún Hrund Harðardóttir víóluleikari og Hanna Loftsdóttir sellóleikari á æfingu í gær. Lagræn tónlist og ljúf í eyru  Tónleikar kammerhópsins Nordic Affect í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld kl. 20:30 marka upphaf sumartónleikaraðar listasafnsins í ár „Tónlist frá ýmsum löndum – Rúss- land, Frakkland, Ítalía, Svíþjóð, Ís- land, Rúmenía og Írland“ er yfirskrift sumartónleikaraðar Kammerhópsins Stillu sem hefst annað kvöld með tónleikum í Mið- garði í Skagafirði kl. 20:00. Hóp- urinn treður upp í Bergi á Dalvík fimmtudaginn 5. júlí kl. 20:00 og í Selinu á Stokkalæk laugardaginn 21. júlí kl. 16:00. Kammerhópurinn Stilla er skip- aður strengjakvartett og söngv- urum. Á tónleikunum verða leikin allt frá fjörugum þjóðlögum til há- dramatískra sönglaga, auk þess sem dúettar og tríó úr heimi óp- erunnar fá að hljóma. Flutt verða verk eftir m.a. Rachmaninoff, Bell- ini, Sibelius og Bizet auk íslenskra söngperla eftir Karl O. Runólfsson, Atla H. Sveinsson, Eyþór Stef- ánsson og Friðrik Jónsson. Einnig flytur strengjakvartettinn fjöruga þjóðdansa í eigin útsetn- ingum. Stilla Kammerhópurinn Stilla kemur fram á þrennum tónleikum í sumar. Hádramatísk sönglög sem og fjörug þjóðlög                             !  " # $   % &            $   &               $   $%&               $   &      ! "         ## "   '  "         

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.