Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 11
gönguferð í upphafi, meðal annars til að halda á okkur hita. Svo stopp- um við, helst þar sem er falleg nátt- úra og skjól, og þar eru gerðar æf- ingar. Allar æfingarnar eru standandi jógaæfingar, svo útfæri ég þannig að þær passi því umhverfi og þeim aðstæðum sem við erum í hverju sinni,“ segir Ragnheiður og bendir þar sérstaklega á tímana þar sem kalt er í veðri. „Það er til dæm- is ekki hægt að leggjast niður í ískaldan snjóinn.“ Líka fyrir byrjendur Í bók Ragnheiðar má finna leið- beiningar fyrir öndunaræfingar, jógaæfingar, næringu og ýmislegt fleira sem getur nýst jógaiðkendum. „Þetta eru meira og minna þær æf- ingar sem við höfum verið að gera í hópunum,“ útskýrir Ragnheiður. „Þegar ég hef spurt fólk úr hóp- unum hvort það hafi verið duglegt í pásunni yfir sumarið hef ég komist að því að oft stoppar það fólk að muna æfingarnar ekki nákvæmlega og þá gerir það ekki neitt,“ segir hún. „Mér fannst því ágætt að vera með bók þannig að fólk gæti flett upp í henni og rifjað upp. Það þarf oft bara að sjá myndina og þá kviknar á perunni,“ segir Ragnheið- ur og bætir við að bókin henti ekki einungis þeim sem hafa stundið jóga áður. „Ég fékk einstaklinga sem hafa ekki gert jóga áður til að prófa að gera æfingarnar eftir lýsingum í bókinni og það gekk ágætlega hjá þeim þannig að fólk á að geta bara verið með bókina þó það sé ekki vant að gera jóga,“ segir Ragnheið- ur. „Svo er náttúrulega mikilvægt fyrir byrjendur og lengra komna að muna að hlusta á líkamann.“ Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.anda.is. Hressandi Ragnheiður Ýr segir tilvalið að stunda jóga úti í náttúrunni og hefur haldið útijógatíma frá árinu 2007. Hún segir bókina Útijóga henta öllum sem vilja stunda jóga, alveg sama hvort þeir hafi gert það áður eða ekki. Morgunblaðið/G.Rúnar DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012 Tour de Hvolsvöllur, ein magnaðasta götuhjólreiðaáskorun landsins, fer fram laugardaginn 7. júlí. Er þetta í annað sinn sem áskorunin fer fram og stefnir í metþátttöku í ár, en áskorunin var endurvakin í fyrra með vel heppnuðum hjólreiðadegi. Boðið er upp á þrjár vegalengdir: 110 km frá Reykjavík, 48 km frá Selfossi og 14 km frá Hellu fyrir þá sem vilja taka þetta á rólegu nótunum. Tíma- taka verður frá Reykjavík og Sel- fossi, auk þess sem bætt hefur verið við liðakeppni frá Reykjavík. Frábær þátttaka var á lengstu leiðinni í fyrra en 64 skráðu sig til leiks á þeirri vegalengd en um 120 manns tóku þátt í heildina. Þeir sem hraðast fóru yfir komu í mark á rúm- um þremur tímum og verður spenn- andi að sjá hvort einhverjir geri bet- ur í ár. Hjólaleiðin liggur að stórum hluta eftir þjóðvegi 1 og eru vegfarendur því beðnir um að sýna aðgát meðan á áskoruninni stendur en sjálfsagt að hvetja þátttakendur. Fjöldi manns kemur að Tour de Hvolsvöllur og verða vel valdir aðilar á hverri stöð sem sjá til þess að allt gangi vel og snurðulaust fyrir sig. Við endamarkið á Hvolsvelli verð- ur tekið vel á móti þátttakendum og fylgdarfólki þeirra með dagskrá í miðbænum frá kl. 10.00. Allar nánari upplýsingar um áskorunina og dag- skrána á Hvolsvelli má nálgast inni á www.hvolsvollur.is. Tour de Hvolsvöllur um helgina Stefnir í metþátttöku Dugnaður Keppendur í Tour de Hveragerði. Áskorunin fer fram um helgina. Garpar Vinningshafar síðan í fyrra saman komnir eftir góða keppni. Vert er að minna á Hleðsluhlaupið á Ísafirði sem hlaupið er fyrsta fimmtudag hvers mánaðar. Næsta hlaup verður því nú á fimmtudaginn, 5. júlí, og hefst kl 18:00 við hringtorg hjá Ísafjarðarkirkju, þ.e í hjarta Ísafjarðar. Hlaupnir eru 5 km á hlaupastígum og er leiðin alveg flöt og góð til að ná hraða og er tímataka í hlaupinu. Einnig er boðið upp á 2,5 km hlaup/göngu og 11 km hjólreiðar eftir hraðbraut frá Ísafirði, langleiðina út á flugvöll og til baka. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Umsjón- armenn Hleðsluhlaupsins eru Benni Sig (bennisig@vik- ari.is) og Martha Ernstdóttir. Hleðsluhlaupið á Ísafirði Hressandi Sum- arhlaup.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.