Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012 ✝ Erla Jóhanns-dóttir, hjúkr- unarfræðingur, fæddist á Heiði á Langanesi 13. nóv- ember 1930. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 23. júní 2012. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jó- hann Snæbjörn Snæbjörnsson húsasmiður frá Barká, Hörg- árdal, f. 2. sept. 1902, d. 2. sept. 1978 og Lára Lárusdóttir, hús- freyja, frá Heiði á Langanesi, f. 12. des. 1908, d. 8. apr. 1998. Systkini Erlu eru Bragi, f. 7. okt. 1931, d. 18. júní 2010, Arn- þrúður Heiðrún, f. 15. des. 1932, d. 21. mars 1990, Hörður, f. 18. júlí 1934, Baldur, f. 18. júlí 1934, Birna, f. 26. sept. 1938, Her- mann, f. 25. sept. 1941, Sigrún, f. 15. des. 1942, Sæmundur Snorri, f. 22. mars 1947, Lárus Margeir, f. 11. ágúst 1948, Trausti, 12. maí 1951. Erla giftist Hauki S. Magn- ússyni, lækni, 1954. Foreldrar hans voru Magnús Björgvin Guðmundsson frá Sleðbrjótsseli í Jökulsárhlíð, f. 3. febr. 1897, Langanesi. Hún var í Héraðs- skólanum á Reykjum í Hrúta- firði 1944 til 1946, Húsmæðra- skólanum á Akureyri 1948 til 1949. Lauk námi frá Hjúkr- unarskóla Íslands árið 1954. Hún hélt til Kaupmannahafnar árið 1950. Þar dvaldi hún um eins árs skeið og vann á sauma- stofum Illum Magazin. Hún sett- ist á skólabekk í Hjúkr- unarskóla Íslands árið 1951. Að loknu prófi árið 1954 starfaði hún við hjúkrun en var einnig heimavinnandi húsmóðir milli þess sem hún vann hjúkr- unarstörf. Hún starfaði á handl.d. Landspítalans í nokkra mánuði að loknu prófi, á sjúk- arhúsi Akraness frá janúar 1955 til október 1956, á Kleppsspítala frá febrúar 1957 til 1960. Hún vann á gjörgæsludeild Borg- arspítalans frá opnun deild- arinnar til ársins 1975 en þá hóf hún störf á Flókadeild Klepps- spítalans, göngudeild fyrir drykkjusjúklinga, og starfaði þar næstu tíu árin. Eftir það starfaði hún á hjúkrunarheim- ilinu Hrafnistu eða þar til hún lét af störfum árið 2002. Erla flutti með fjölskyldu sinni til Eg- ilsstaða árið 1962 og bjó þar næstu fimm árin. Þaðan fluttist fjölskyldan til Svíþjóðar 1968 og bjó hún þar næstu tvö árin. Útför Erlu verður gerð frá Áskirkju í Reykjavík í dag, 3. júlí 2012, og hefst athöfnin klukkan 13. og Jónína Geir- mundsdóttir frá Hóli í Hjalta- staðaþinghá, f. 10. okt. 1901, d. 19. maí 1962. Börn þeirra eru: 1) Jóhann upp- lýsingafulltrúi, f. 1. nóv. 1953, maki Ingveldur G. Ólafs- dóttir dag- skrárgerðarmaður, f. 26. nóv. 1959. Fyrri maki Jóhanns var Þórdís Ósk Sigtryggsdóttir, f. 19. okt. 1954, börn þeirra eru: a) Sig- tryggur Ari, f. 15. júní 1974 og b) Erla, f. 23. maí 1983, 2) Magn- ús framkvæmdastjóri, f. 13. nóv. 1954, maki Ragnheiður Hall- dórsdóttir, f. 4. jan. 1959, börn þeirra eru: a) Haukur Sig- urbjörn, f. 14. febr. 1981, maki Julia Staples, f. 5. nóv. 1979, b) Salóme Katrín, f. 3. sept. 1995, c) Guðmundur Björgvin, f. 19. apr. 1997, 3) Jónína Eir hjúkr- unarfræðingur, f. 12. nóv. 1961, maki Ingólfur Guðjónsson, f. 1. júní 1959, börn þeirra eru: a) Steingrímur Gauti, f. 26. sept. 1986, b) Brynjólfur Haukur, f. 16. apr. 1996. Erla óst upp á Þórshöfn á Hún mamma er dáin. Eftir að hafa hlýtt á úrskurð um ban- vænan sjúkdóm lagðist hún í sjúkrarúm sitt á Landspítalan- um í Fossvogi og lést aðeins nokkrum sólarhringum síðar. Það var engu líkara en hún hefði ákveðið innra með sér að nú væri komið nóg. Tveimur dögum fyrir andlátið sagði hún æði skýrt og greinilega við okk- ur sem hjá henni vorum: „Ég segi það satt, ég dey innan tveggja daga. Það er búið að segja mér það.“ Enginn gat hafa sagt neitt slíkt við hana og í mínum eyrum hljómaði þetta sem yfirþyrmandi vitrun. Mamma mín var sannkallað- ur forkur. Hún var hlýjan og festan. Hún var aginn og rétt- sýnin. Hún var skjólið og ör- yggið, ekki aðeins fyrir okkur systkinin, heldur einnig barna- börnin sem hún annaðist svo vel í uppvextinum. Það gerði hún ekki síst með því að fá þeim eitthvað að gera, kenna þeim að vinna ýmis verk líkt og hún hafði gert við sín börn. Sjálfur var ég varla nema tíu ára þegar ég var orðinn bærilega þjálf- aður í uppvaski og pönnuköku- bakstri. Tengslin við hana urðu sterk af þessum sökum, einnig barnabarnanna og þegar dró að leiðarlokum sást vel hve óum- ræðilega vænt þeim þótti um ömmu sína. Erla Jóhannsdóttir, móðir mín, fæddist á Heiði á Langa- nesi 13. nóvember 1930. Hún var elst 11 barna Láru Lár- usdóttur húsmóður frá Heiði og Jóhanns Snæbjörns Snæbjörns- sonar húsasmíðameistara úr Hörgárdal. Hún lærði því snemma að annast yngri systk- ini sín og létta ömmu heim- ilisstörfin á Þórshöfn. Vinnu- semina og ábyrgðina endurkvað hún síðar með sínum börnum og barnabörnum. Ekki aðeins það, því hún ræktaði einnig sambandið við stórfjölskyldu sína, systkinin og stækkandi fjölskyldur þeirra. Þegar mamma fór um ferm- ingaraldur til náms við Héraðs- skólann að Reykjum í Hrúta- firði vissi hún áreiðanlega ekki að þar með væri hún svo gott sem farin að heiman. Fjölskyld- an fluttist að vísu skömmu eftir stríð frá Þórshöfn til Borgar- ness og þar bar fundum aftur saman. Eftir nám við Húsmæðra- skólann á Akureyri og ársdvöl í Kaupmannahöfn innritaðist hún í Hjúkrunarskóla Íslands. Það- an brautskráðist hún árið 1954. Á þeim tíma voru aðeins skráð- ar 133 hjúkrunarkonur í föstum stöðum á öllu landinu. Um 80 til viðbótar áttu aukaðild að Félagi íslenskra hjúkrunarkvenna eða voru þar heiðursfélagar. Íbúar landsins voru um 150 þúsund og lætur því nærri að einn hjúkr- unarfræðingur hafi verið um hverja eitt þúsund íbúa. Nú er einn hjúkrunarfræðingur fyrir hverja 100 íbúa. Þessi breyting endurspeglar mikil umskipti og uppbyggingu heilbrigðiskerfis- ins í meira en hálfa öld. Þessar breytingar upplifði mamma og tók stolt þátt í þeim. Mamma var mikið heimavið síðustu árin enda fór krafturinn þverrandi. Það er tómlegt að horfa nú á stólinn hennar í eld- húsinu. Merkin um hana eru alls staðar en hún er hvergi. Ég sé mynd af henni í fullu fjöri. Ég horfi á skó hennar og finn enn ilminn af henni. En hún er farin. Ég sakna hennar óumræðilega mikið en hugga mig við að hún lifir áfram með okkur afkomendun- um. Blessuð sé minning hennar. Jóhann Hauksson. Hún situr efst á steintröpp- unum og horfir hlæjandi út á hlaðið. Sólin hlær líka í heiðinni og brosir blítt við Heiði svona í leiðinni. Þær eru skemmtilegar þessar tvær, sólin og litla stúlk- an og ekki svo ólíkar. Húsið er reisulegt og nýbyggt steinhús sem pabbi hennar byggði. Það stendur á mörkum hins byggi- lega heims og næsti viðkomu- staður er sennilega norðurpóll- inn. En hún hugsar ekki mikið um það. Hún á allt lífið fram- undan og ískalt hafið og gróð- urlítið umhverfið breytir engu þar um. Þeir sem byggðu þenn- an stað voru hugdjarfir og helj- armenni. Þeir óttuðust ekkert og það gerir hún ekki heldur. Hún fær þetta allt með móð- urmjólkinni. Þannig byrjaði þetta einhvernveginn. Lífið hófst og það eina sem var öruggt þá var að því myndi ljúka einhverntímann. Hún var elst margra systkina og lærði fljótt að vinna og bera ábyrgð á öðrum. Það var hennar skylda í lífinu. En hún var sérstök og skar sig úr fjöldanum. Hún vildi sjá meira og kynnast þessum heimi sem Guð hafði ákveðið að gefa henni hlutdeild í. Til hvers að láta gefa manni eitthvað ef maður ætlar ekki að nota það? Hún fór ung til mennta og hélt síðan áfram að hjálpa og bera ábyrgð á öðrum. Hjúkraði og vakti yfir okkur hinum alla sína ævi. Og enginn gerði það betur. Það er einhvernveginn þannig að þeir sem veljast til að gæta okkar hinna eru stærri en flest- ir. Og þannig var hún. Hún var risastór. Allt varð stórt í kring- um hana. Hún var drottningin í fyrirmyndarríkinu þar sem eng- inn var skilinn útundan og allir fengu nóg að borða. Allir fengu rúm til að sofa í og svo fengu allir kökur í morgunmat. Hún meira að segja tók að sér ungan prins að beiðni móður hans, kom honum til mennta og gaf honum svo falleg og góð börn. En hún fékk líka til baka ást og aðdáun allra sem kynntust henni. Lífið var henni oftast gott. En ef lífið væri endalaus dans á rósum lærði maður sennilega aldrei neitt. Hún lærði og þroskaðist í sínu lífi eins og hún kenndi og hjálpaði okkur hinum að öðlast einhvern þroska. Og nú eru þegnarnir í ríkinu harmi slegnir því Guð kallaði á hana og bað hana að hjálpa til annars staðar. Hún er farin með sama kraftinum og dugnaði sem einkenndi allt hennar líf. Ekki fleiri sögur fyr- ir okkur og ekki meiri söngur. Ekki meira kaffi og ekki fleiri kökur. Búið að kenna öll fanta- brögðin og horfa á síðustu bíó- myndina. Ekki lesnar fleiri bækur og ekki eldaður meiri matur. En minningarnar ylja og kalla fram bros og hlátur. Þær eru okkar huggun og gleymast seint. Takk fyrir öll árin og takk fyrir að gefa mér Jónínu og strákana. Ingólfur. Þegar ég hugsa til þín, elsku amma, kemur margt upp í hug- ann. Lyktin þín, brosið þitt, fal- legu hendurnar þínar og faðm- lagið. Svo margar góðar minningar hefurðu gefið mér að ég veit ekki hvar ég á að byrja eða enda. En ég ætla samt að reyna. Ein af mínum allra fyrstu minningum er frá því þegar þú komst að heimsækja okkur í Svíþjóð. Ég sennilega rétt að verða 3 ára. Ég man að klukkan var margt, ég var í náttfötum, fékk Svala og svo knúsaðirðu mig það sem eftir var af kvöld- inu. Jafnvel þó svo þú sért farin í bili ertu enn að gefa mér góðar minningar. Nærvera þín var svo sterk og góð að hún lifir enn með okkur öllum. Elsku amma mín, nafna mín, rósin. Takk fyrir að bíða eftir mér kvöldið fyrir Jónsmessu og leyfa mér að kyssa þig bless. Ég hlakka til að hitta þig næst, og vona að það verði að sumarlagi. Þín Erla Jó. yngri. Á Langanesi var ættarmót. Sennilega árið 1981. Amma Erla hafði kippt mér með barn- ungum í ferðalag sem virtist óralangt. Hópurinn var stór sem hittist við bæinn Heiði, fæðingarstað þessarar glað- lyndu og ákveðnu konu, sem átti svo ríkan þátt í uppeldi okkar frændsystkinanna. Allir voru ungir, það var sungið við varðeld í fjörunni og vakað inn í sumarnóttina. Það er safn af minningum á borð við þessa sem gjarnan ger- ir fólk að Íslendingum, yst sem innst. Þessi minni koma við- stöðulaust fram, hjá Sigur Rós og Mugison líkt og hjá skáld- unum gömlu. Og þessum minningum miðl- aði amma Erla til sjö ára snáða. Síðan ferðuðumst við um landið vítt og breitt. Þrjátíu árum síðar hafði heilsunni sannarlega tekið að hraka. Inni á milli þessara síð- ustu sólarhringa leyndust nokkrir góðir dagar. Meðal annars þegar langmæðgurnar Erla og Þórdís Anna spjölluðu saman hluta úr degi í Fossvog- inum. Fyrir þetta er ég þakk- látur. Þakklátur reyndar fyrir allt uppeldið og hlýju kynnin, um- hyggjuna og verndina sem þessi góða kona færði mér. Sigtryggur Ari Jóhannsson. Kynni okkar og Erlu hófust fyrir hálfri öld. Hún var þá unga læknisfrúin á Egilsstöð- um. Íbúð þeirra hjónanna var í öðrum enda sjúkraskýlisins og þótti sjálfsagt að þeir sem hittu lækninn nýttu sér hreinlætisað- stöðu íbúðarinnar. Auk þess bjuggu margir ættingjar Hauks á Héraði. Það var því stöðugur straumur fólks á heimilinu en öllu þessu tók Erla eins og sjálfsögðum hlut. Hún átti auð- velt með að slá á létta strengi þegar við átti, segja hlutina hreint út en einnig að styðja þá sem bágt áttu. Þessir eiginleik- ar hennar hafa vafalítið komið sér vel í starfi hennar sem hjúkrunarkona hvort heldur hún hjúkraði þeim sem áttu við fíkn að stríða eða þeim sem voru sjúkir og aldraðir. Gest- risni Erlu er alkunn. Henni þótti sjálfsagt að hýsa nætur- gesti, ættingja eða aðra sem þau hjónin höfðu kynnst á lífs- leiðinni. Frá því er við settumst að í Reykjavík höfum við átt ótal ánægjustundir með þeim hjónum, oftar en ekki í eldhús- inu yfir kaffibolla og meðlæti sem ekki var af lakara taginu. Þarna við borðið heyrðum við margar sögur frá æsku Erlu og uppvaxtarárum, hvernig var að vera elst í stórum systkinahópi og hvað veðrið gat verið gott á Langanesinu. En þegar aldur- inn færist yfir og heilsan bilar er hvíldin langa kærkomin. Við erum þakklát fyrir allar sam- verustundirnar og vottum Hauki, börnunum og öðrum að- standendum okkar innilegustu samúð. Ívar Þorsteinsson og Sesselja Þórðardóttir. Erla Jóhannsdóttir ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURJÓNU SÍMONARDÓTTUR, Lautasmára 2, Kópavogi. Sérstakar þakkir til Önnu Þórhildar Salvars- dóttur læknis, Brynju Hauksdóttur hjúkrunarfræðings og starfsfólks kvennadeilda Landspítalans fyrir einstaka umönnun og hlýju. Elísabet Harpa Steinarsdóttir, Ástþór Ragnarsson, Sigríður Steinarsdóttir, Einar K. Þórhallsson, Gróa Dagmar Gunnarsdóttir, Þórhallur Ólafsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Bergsveinn Jóhannesson, Ragnar Victor Gunnarsson, Sveindís D. Hermannsdóttir, Guðrún Björk Gunnarsdóttir, Jón Ingi Magnússon og fjölskyldur. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, SIGURÐUR JÓNSSON, fyrrverandi prentsmiðjustjóri, Hlíf II, Ísafirði, sem lést á Heilbrigðisstofnuninni, Ísafjarðarbæ, laugardaginn 23. júní, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 6. júlí kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði. Árni Sigurðsson, Guðrún Halldórsdóttir, Jón Ólafur Sigurðsson, Jóhanna Oddsdóttir, Málfríður Þ. Sigurðardóttir, Þórhildur S. Sigurðardóttir, Guðmundur Hafsteinsson, afabörn, langafa- og langalangafabörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður míns og afa, HINRIKS AÐALSTEINSSONAR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hjúkrunarheimilisins Mörkin fyrir einstaka umönnun. Klara Berta Hinriksdóttir, Róbert Arnar Sigurþórsson. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, ömmu og tengdamóður, SIGRÍÐAR BJARGAR EGGERTSDÓTTUR, Skjólvangi 9, Hafnarfirði. Guðmundur Geir Jónsson, Jón Eggert Guðmundsson, Jóhannes Geir Guðmundsson, Pamela Perez, Björgvin Guðmundsson og barnabörn. ✝ Okkar ástkæra KRISTÍN G. SIGURÐARDÓTTIR lést aðfaranótt mánudagsins 2. júlí. Sigrún H. Karlsdóttir, Kristján Sveinsson, Sigurður Karlsson, Ellen María Ólafsdóttir, Magnús Þór Karlsson, Margrét H. Þórarinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs sonar míns og bróður, HINRIKS HINRIKSSONAR. Friðlín Valsdóttir, Klara Berta Hinriksdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.