Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012 anna 1987-91, var forseti efri deildar Alþingis 1983-87 og varaforseti Sameinaðs þings 1988-91 og var stjórnarformaður Þjóðmenning- arhússins á árunum 1996-2011. Salome er heiðursborgari Mosfellsbæjar frá 2007. Nýflutt úr Mosfellsdalnum Salome er nýflutt úr Mosfells- dalnum og í öryggisíbúðir aldraðra að Hlaðhömrum: „Þetta eru óneitan- lega miklar breytingar á mínum högum en ég er mjög ánægð með þetta nýja heimili mitt og sé ekki eft- ir því að hafa komið mér hér vel fyrir meðan ég er við góða heilsu og get notið lífsins. Nú hef ég meiri tíma fyrir barnabörnin sem eru orðin átta talsins og langömmubörnin sem einnig eru átta að tölu.“ En fylgist Salome með pólitíkinni? „Já, ég er alltaf jafn pólitísk og fylgist vel með þjóðmálunum. Ég get nú ekki sagt að mér lítist á blikuna. Það er óvissa um flesta hluti nema óvinsældir þessarar ríkis- stjórnar. Hún hefur staðið sig illa á flestum sviðum en verst í þeim mál- efnum sem lagt var upp með, að standa vörð um hag heimila og vel- ferðarmál. Það veldur vonbrigðum.“ Fjölskylda Salome giftist 22.2. 1947 Jóel Kristni Jóelssyni, f. 22.1. 1921, d. 16.6. 2007, garðyrkjubónda. Hann var sonur Jóels Kristins Jónssonar, skipstjóra í Reykjavík, og k.h., Mar- grétar Jónu Sveinsdóttur húsmóður. Börn Salome og Jóels Kristins eru Anna, f. 29.5. 1947, MA í uppeldis- og kennslufræði og myndlistar- maður, búsett í Bandaríkjunum, gift dr. George Thomas Fox, prófessor í uppeldis- og kennslufræði, og á hún tvo syni frá fyrra hjónabandi; Jóel Kristinn, f. 21.2. 1951, verslunar- maður, búsettur á Seltjarnarnesi, kvæntur Kristínu Orradóttur skrif- stofumanni og eiga þau tvö börn, auk þess sem hann á dóttur frá fyrrv. sambúð; Þorkell, f. 28.5. 1952, tónlistarmaður, búsettur í Mosfells- bæ, kvæntur Sigrúnu Hjálmtýsdótt- ur söngkonu og eiga þau þrjár dætur. Systkini Salome eru Ingibjörg, f. 15.3. 1926, fyrrv. fulltrúi, búsett í Kópavogi; Sigurður, f. 23.2. 1932, fyrrv. ríkisféhirðir, búsettur í Reykjavík; Kristín, f. 4.12. 1936, auglýsingateiknari og myndlist- armaður, búsett í Kópavogi. Foreldrar Salome: Þorkell Sig- urðsson, f. 18.2. 1898, d. 1.3. 1969, vélstjóri í Reykjavík, og k.h., Anna Þorbjörg Sigurðardóttir, f. 18.9. 1900, d. 6.5. 2000, húsfreyja. Úr frændgarði Salome Þorkelsdóttur Sigurður Gunnarsson hákarlaskipstj. í Saurbæ í Vatnsdal. Þorbjörg Jóelsdóttir húsfr. í Saurbæ Sigríður Jónsdóttir húsfr. í Óseyrarnesi Þorsteinn Guðmundsson b. á Flóagafli Guðrún Bjarnadóttir húsfr. á Flóagafli Salome Þorkelsdóttir Þorkell Sigurðsson vélstj. í Rvík. Anna Þorbjörg Sigurðardóttir húsfr. í Rvík. Kristín Jóhannesd. húsfr. á Reykjanesi Sigurður Sigurðsson vitav. á Reykjanesi Sigurður Þorsteinsson rith. og form. í Þorlákshöfn Ingibjörg Þorkelsdóttir húsfr. í Þorlákshöfn Þorkell Jónsson hreppst. í Óseyrarnesi í Flóa. Árni Sigurðsson fríkirkjupr. í Rvík Ásgeir Sigurðsson skipstj. Sigurður I. Sigurðss. oddviti á Selfossi Jóhannes Sigurðsson prentari og trúboði Stefán Sigurðss. trésmiður í Hafnarf. Ásmundur Sæmundsson b. að Hvarfi í Aðaldal Valdimar Ásmundsson ritstj. Héðinn Valdimarsson alþm. og forstjóri. Jóhannes Torfason b. í Miðhrauni í Aðaldal. Sæmundur Torfason b. í Þingeyjars. Gunnlaugur Stefánsson kaupm. í Hafnarf. Stefán Gunnlaugss. fyrrv. bæjarstj. í Hafnarf. Sigríður yngri húsfr. á Stokkseyri Vilhjálmur Árnason útgerðarm Árni Vilhjálmss hagfræðiprófessor Börnin Þorkell, Anna og Jóel, börn Salome og Jóels Kristins. Konráð Gíslason, málfræð-ingur og Fjölnismaður,fæddist 3. júlí 1808 á Löngu- mýri í Skagafirði. Hann var elsta barn hjónanna Gísla Konráðssonar sagnaritara og Efemíu Benediktsdóttur. Konráð fékk tilsögn frá föður sín- um og séra Jóni Konráðssyni. Við átján ára aldur fór hann suður til sjóróðra og vann um sumarið fyrir Hallgrím Scheving, kennara við Bessastaðaskóla. Hallgrímur kom auga á námshæfileika hans og veitti honum styrk til skólagöngu í Bessastaðaskóla. Vorið 1831 lauk Konráð námi, sigldi til náms við Kaupmannahafn- arháskóla um haustið að nema lög- fræði. Fljótlega náði áhugi hans á norrænum fræðum og íslenskri tungu yfirhöndinni. Árið 1834 stofnaði Konráð tímarit- ið Fjölni ásamt skólafélögum sínum úr Bessastaðaskóla og Höfn, þeim Jónasi Hallgrímssyni, Brynjólfi Péturssyni og Tómas Sæmundssyni. Fyrsta tölublaðið leit dagsins ljós árið eftir. Konráð var mikilvirkur málfræð- ingur og brautryðjandi á sviði rann- sókna á íslenskri tungu. Hann hafði mikil áhrif á íslenskt ritmál og reyndi meðal annars að laga íslenska stafsetningu að framburði og reyndi að innleiða nýja stafsetningu í öðrum árgangi Fjölnis. Árið 1839 var hann styrkþegi Árnastofnunnar og vann að orða- bókargerð og rannsóknum á ís- lensku máli. Hann setti saman Danska orðabók, 1851 og átti stóran þátt í íslensk-enskri orðabók sem kennd er við R. Cleasby og Guð- brand Vigfússon. Hann rannsakaði fornmálið og gerði fyrstur grein fyr- ir muninum á íslensku fornmáli og nútímamáli og birti niðurstöður sín- ar í ritinu „Um frumparta íslenzkrar túngu í fornöld“ (1846). Konráð gaf út m.a. út Njálu (1875-1889) þar sem hann valdi saman texta úr ólíkum handritum. Hann var kennari í norrænum fræðum við Kaupmannahafnar- háskóla og prófessor 1853. Konráð lést 4. janúar 1891. Merkir Íslendingar Konráð Gíslason 85 ára Guðrún Sigvaldadóttir Guðrún Sólveig Jónasdóttir Ragna H. Hjartar Salome Þorkelsdóttir Sjöfn Lára Janusdóttir 80 ára Dagmar Guðmundsdóttir Hlíf Valdimarsdóttir Sigvaldi Jóhannsson Sæmundur Örn Sveinsson 75 ára Gestur Óli Guðmundsson Guðlaug Þorgeirsdóttir Hólmfríður Friðriksdóttir 70 ára Arnar Haukur Bjarnason Bjarni Stefánsson Jón H. Halldórsson Lárus Þórðarson Sandra Lee Best Sólveig Ásta Ásgeirsdóttir Sveinberg Th. Laxdal Unnur Kristinsdóttir 60 ára Elín Benediktsdóttir Grétar Reynisson Guðni Björn Kjærbo Hafsteinn Þór Garðarsson Helga Alexandersdóttir Herdís J. Sigurbjörnsdóttir Jóhann Guðnason Magnús Valgarðsson Oddrún Jónasdóttir Ólafur Magnússon Sigrún Sigmarsdóttir 50 ára Árelíus Örn Þórðarson Baldvin Örn Berndsen Elínborg A. Benediktsdóttir Guðbjörg Oddfríður Friðjónsdóttir Hildur Magnúsdóttir Jóhann Lúther Einarsson Katrín Sigurjónsdóttir Phong Duc Nguyen Sigurveig Guðmundsdóttir Þráinn Valur Hreggviðsson 40 ára Ágúst Guðmundsson Árni Þór Jónsson Bee Boh Ding Dóra Guðmundsdóttir Freyja Hálfdanardóttir Sigrún Þuríður Geirsdóttir Védís Elfa Torfadóttir 30 ára Ásta Sigurlaug Ólafsdóttir Brandi Leigh Carlson Edyta Iza Kurpiewska Elín Ragnarsdóttir Hilda Rós Pálsdóttir Kristinn Magnússon Sandra Rut Þorgeirsdóttir Til hamingju með daginn 40 ára Elín er fædd og uppalin í Áshól í Ásahrepp og er búsett að Riddara- garði. Hún vinnur hjá Rík- isskattstjóra á Hellu. Maki Árni Pálsson, f. 1974, verktaki. Börn Alexandra Lind, f. 1990, Svanhildur Sigríður Mar, f. 1995, Thelma Lind, f. 2008 og Víkingur Almar, f. 2010. Foreldrar Almveig Lára Bergrós Kristjánsdóttir Röðull, f. 1945, húsmóðir í Áshól og Grétar Geirsson, f. 1937, harmonikku snill- ingur og frístundabóndi. Elín Grétarsdóttir 30 ára Eyjólfur Júlíus Pálsson er borinn og barnfæddur Hafnfirð- ingur. Hann rekur fisk- verslunina Hafið í Kópa- vogi. Maki Kristín Björg Flygenring, f. 1983, hjúkrunarfræðingur. Börn Salka Líf Eyjólfs- dóttir, f. 2006 og Sölvi Snær Eyjólfsson, f. 2010 og eitt á leiðinni. Foreldrar Páll Breiðfjörð Eyjólfsson, f. 1954, skip- stjóri og Svava Hlíf Svav- arsdóttir, f. 1955, nuddari. Eyjólfur Júlíus Pálsson 50 ára Snjólaug H. Ósk- arsdóttir er fædd á Kald- árhöfða í Grímsnesi og er búsett í Reykjavík. Snjó- laug starfar sem dag- mamma og hefur gert síðustu 25 árin. Maki Elvar Harðarson, f. 1962, bifvéla- og rafvirkja- meistari. Börn Óskar Páll, f. 1984, ljósmyndari og Hulda Björg, f. 1986, versl- unarstjóri Subway. Foreldrar Óskar Ög- mundsson, f. 1923, d. 1997 og Pálína Þorsteins- dóttir, f. 1927, d. 2008. Snjólaug H. Óskarsdóttir Draghálsi 14 - 16 110 Reykjavík Sími 4 12 12 00 www.isleifur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.