Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 185. DAGUR ÁRSINS 2012 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Andlát: Einar Jónsson 2. Murdoch tjáir sig um Tom Cruise 3. Gengu illa um á Flúðum 4. Tóku áhættu sem borgaði sig »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hljómsveitin Stilluppsteypa mun í kvöld kl. 20 flytja hljóðverk í Ný- listasafninu og er flutningurinn hluti af hljóðverkadagskrá safnsins í tengslum við sýningu bandarísku listamannanna Melissu Dubbin og Aaron Davidson, Volumes for Sound. Morgunblaðið/Golli Stilluppsteypa á Volumes for Sound  Fjórða myndin í Mystery Film Ex- periment Sigur Rósar var frum- sýnd í gær. Mynd- in, sem er eftir leikstjórateymið Árna og Kinski, er við lagið Rembi- hnút sem finna má á nýjustu plötu sveitarinnar, Valt- ara. Hægt er að horfa á myndina á sigur-ros.co.uk. Næsta mynd verður frumsýnd 16. júlí. Fjórða myndin við lag af Valtara frumsýnd  Ný þáttaröð af Með okkar augum hefst í Ríkissjónvarpinu annað kvöld að loknum kvöldfréttum og verða þættirnir sýndir einu sinni í viku fram í ágúst. Fyrsta þátta- röðin var sýnd í fyrra en í henni fékk fólk með þroskahömlun að spreyta sig í sjónvarpi með undirbúningi, kennslu og aðstoð fagmanna. Með okkar augum snýr aftur á RÚV Á miðvikudag Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og skúrir, eink- um á N-landi, en léttskýjað á suðaustanverðu landinu. Hiti víða 10 til 15 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu og víða skúrir en bjartviðri austanlands. Hiti 8 til 16 stig, svalast við austurströndina. VEÐUR Stjörnumenn eru komnir í þriðja sæti Pepsi-deildar karla í fótboltanum eftir sig- ur á Fram í bráðfjörugum leik í Garðabænum í gær- kvöld, 4:2. Framarar töpuðu hins vegar fjórða leiknum í röð og sitja áfram í næst- neðsta sætinu með aðeins sex stig. Varamaðurinn Jó- hann Þórhallsson tryggði Fylki jafntefli, 1:1, gegn Breiðabliki í Árbænum með marki seint í leiknum. »2-4 Stjarnan komin í þriðja sætið „Hér hjá Helsingborg hafa menn ver- ið uppteknir af þjálfaraskiptunum en ég á von á að nú verði farið í viðræður fljótlega og málin skýrist á næstu 2-3 vikum. Óvissan er óþægileg en ég reyni að einbeita mér bara að fótbolt- anum. Ég spila einhvers staðar eftir 15. ágúst,“ segir Alfreð Finnbogason sem skoraði þrennu í sænsku úrvals- deildinni í gærkvöld. »1 Alfreð segir að óvissan sé óþægileg ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is „Ég er nú bara að saga framan af einum hérna,“ segir Einar Mikael töframaður þegar blaðamaður spyr hvað hann hafi fyrir stafni þessa stundina. Einar nýtir nú hverja lausa stund í æfingar fyrir þátttöku sína í heimsmeistaramóti töfra- manna í Blackpool á Englandi sem fram fer um næstu helgi. „Þetta eru í raun ólympíuleikar töframanna, mótið er haldið á þriggja ára fresti og keppt er í átta flokkum. Þangað koma helstu stjörnurnar í galdra- heiminum, meðal annarra David Blaine, David Copperfield og Dar- ren Brown því að þarna er eini séns- inn þeirra til að láta plata sig al- mennilega,“ segir Einar Mikael. Lokað leynisamfélag Helstu flokkarnir á mótinu eru sjónhverfingar, spilagaldrar, hugs- analestur, sviðstöfrabrögð, kænsku- töfrabrögð og fleira. Ekki er hlaupið að því að hljóta þátttökurétt á mótinu. „Nauðsynlegt er að fá ákveðna menn til að veita manni keppnisrétt, en galdraheimurinn er leynisamfélag sem erfitt er að kom- ast inn í. Skilyrði fyrir þátttöku er að hafa náð árangri í töfrum í heima- landi sínu og að hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins. Þá er átt við að taka þátt í góðgerðarsýn- ingum, sýna á almannafæri og annað slíkt,“ segir Einar en hann hefur gert talsvert af hvoru tveggja. Með þátttökunni brýtur Einar Mikael blað í íslenskri galdrasögu, en hann er fyrsti Íslendingurinn til að spreyta sig á mótinu. Aðspurður hvort hann setji markið hátt segir hann svo vera: „Ég hef unnið að þessu í heilt ár og fer með atriði sem ég veit að er einstakt og á heims- mælikvarða, þannig að ég vonast eft- ir góðum árangri.“ Sérgreinar Ein- ars eru ekki af verri endanum. „Ég fæst við hluti sem ekki hafa sést áð- ur á Íslandi, ég er til dæmis mikið í því að láta fólk svífa og saga framan af fólki sem nennir ekki að fara í ræktina,“ segir Einar Mikael og hlær. Hann mun svo snúa aftur á klakann með glæný brögð uppi í erminni. „Mig langar að opna þennan ynd- islega heim fyrir þjóð- inni og leyfa henni að upplifa þessa ótrúlegu hluti í enn ríkari mæli.“ Hann er með mörg járn í eldinum. „Ég er að klára að setja saman átta stór sjónhverfingaatriði sem verður gaman að sýna Íslendingum eftir keppnina,“ segir Einar að lokum. Sagar fólk og lætur það svífa  Keppir á ólympíuleikum töframanna Morgunblaðið/Eggert Dáleiðandi Einar Mikael lætur sig ekki muna um að snúa á þyngdarlögmálið með lágmarksfyrirhöfn. Atriði Einars Mikaels á heims- meistaramótinu er ekki af verri endanum. „Ég er með gegnheilt mahóníborð sem svífur í lausu lofti. Svo hef ég þjálfað fugl til að sitja á borðinu á meðan það svíf- ur.“ Einar segir svif í lausu lofti vera tryggingu fyrir góðum ár- angri. „Ef maður getur látið eitt- hvað fljúga þá er maður í nokkuð góðum málum,“ segir hann og hlær. Einar hefur galdrað frá 12 ára aldri. „Ég sá þá galdra- mann í Bandaríkjunum og þótti magnað að sjá sjón- hverfingarnar og vildi prófa sjálfur.“ Hann menntaði sig svo í faginu. „Ég fór í nám í Hogwarts-galdraskólanum í Englandi og er um þessar mundir að klára meistara- gráðu í töfrafræðum, 70 ein- ingar í fjarnámi,“ segir Einar. Meistaragráða í töfrafræðum MIKLU MEIRA EN ÁHUGAMÁL „Ég hélt það fyrir helgi að ég væri nokkuð öruggur inn en svo var birtur listi sem ég var ekki inni á þannig að maður var bara búinn að bóka sér flug heim. Síðan hefur eitthvað breyst og ég fékk bara að vita í há- deginu að ég hefði komist inn. Maður er því alveg búinn að fara allan skal- ann hvað tilfinningarnar varðar,“ sagði Jakob Jóhann Sveinsson sund- kappi í gær en hann er á leið á sína fjórðu Ólympíuleika. »1 Jakob Jóhann var búinn að panta flugið heim VEÐUR » 8 www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.