Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 14
STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Veiðin hefur farið afar vel af stað í Veiðivötnum í ár. Í fyrstu vikunni veiddust rúmlega 3000 silungar og á upplýsingasíðu Veiðivatna kemur fram að fara þarf níu ár aftur í tím- ann til að sjá jafngóðar tölur eftir fyrstu vikuna. Í aflanum voru 1843 urriðar og 1232 bleikjur. Í dag er von á tölum eftir tvær veiðivikur en veiðimenn sem hafa verið í vötn- unum snúa ánægðir heim. „Það getur verið mjög ævin- týraleg veiði hérna en stundum fiskast minna, eins og gengur,“ sagði Bryndís Magnúsdóttir í gær, en hún hefur um árabil þjónustað veiðimenn á svæðinu. Mest var veiðin í Stóra- Fossvatni, þar sem aðeins er veitt með flugu, og í Snjóölduvatni. Veitt er með 100 dagstöngum á svæðinu og eru því venjulega vel á annað hundrað manns við Veiðivötn. Sá stærsti rúm níu pund Ágæt urriðaveiði hefur verið á sil- ungasvæðunum í Laxá í Þingeyj- arsýslu undanfarið. Erlendum veiði- mönnum fjölgar nú þegar líður á sumarið og að sögn Bjarna Hösk- uldssonar veiðieftirlitsmanns hafa Bretar verið á þurrfluguveiðum í Laxárdal og gengið vel; þeir hafa tekist á við stóra fiska og meðal ann- ars fengið tvo 59 cm langa. „Á dögunum voru Ítalir að veiða á Staðar- og Múlatorfu og voru með 30 eftir daginn, allt upp í 57 cm fiska,“ segir Bjarni. „Þá hefur verið ágæt veiði í Mývatnssveitinni en svolítið hefur borið á minni fiski en síðustu sumur, sem er bara jákvætt, hann verður orðinn stærri næsta ár. Veiðimaður sem var að veiða við Arnarvatn í gær sagði allt hafa kraumað hjá sér en það gekk illa að fá þá stóru til að taka, en hann sá þá svo sannarlega og sýndi þeim allar flugur í boxinu.“ Stærsti urriði sumarsins í Laxá það sem af er vó rúm níu pund og veiddist í Miðkvísl, þar sem stíflan var sprengd um árið. Annar stór- fiskur tók þar nokkrum dögum síð- an, hjá frönskum veiðimanni. „Það var ekki sá sami, því sá fyrri var drepinn. Þessi lét veiðimanninn hafa mikið fyrir sér og sást vel áður en hann kvaddi. Það eru stórir fiskar í þessari á,“ sagði Bjarni. Það fréttist af góðri bleikjuveiði í vötnum víða, meðal annars í Hrauns- firði á Snæfellsnesi þar sem hópar þriggja og fjögurra veiðimanna hafa fengið tugi fiska. Í Þingvallavatni hafa menn líka veitt vel und- anfarið, sumir veiði- menn jafnvel tíu, tutt- ugu vænar bleikjur, fyrir utan murtuna sem gleður ungviðið. „Það eru stórir fiskar í þessari á“  Ágæt urriðaveiði í Laxá  Afar góð byrjun í Veiðivötnum 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012 Betri heimtur á meðlagsgreiðsl- um árið 2011  Greiðslugeta meðlagsgreiðenda eykst AFP Börn Heildarupphæð meðlagskrafna hefur hækkað jafnt og þétt frá 1993. BAKSVIÐ Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Heimtur upp í meðlagskröfur voru mun betri árið 2011 en árin á undan en mismunur milli krafna og greiðslna var rúmar 753 milljónir í fyrra, samanborið við 934 milljónir 2010 og 944 milljónir 2009. Forstjóri Innheimtustofnunar sveitarfélaga segir að svo virðist sem ákveðinn stöðugleiki sé að komast aftur á en margir samverkandi þættir spili inn í þessa jákvæðu þróun. Kröfur vegna meðlaga námu rúm- um 3,2 milljörðum árið 2011, 3,17 milljörðum 2010, 3,25 milljörðum 2009 og 2,95 milljörðum 2008. Tæp- lega 2,46 milljarðar fengust greiddir upp í kröfurnar í fyrra, sem er eins og fyrr segir nokkuð meira en und- anfarin ár. Jón Ingvar Pálsson, for- stjóri Innheimtustofnunar, segir að merkja megi á greiðslugetu með- lagsgreiðenda að minna rót sé á tekjum og atvinnu en síðustu miss- eri. „Svo er ýmislegt annað sem kem- ur til,“ segir Jón Ingvar. „Við erum til dæmis búin að setja í góðan far- veg aðhald að vinnuveitendum varð- andi kröfur í laun. Síðan má ekki gleyma að fullt af fólki flutti til Norð- urlandanna og það eru að farnar að skila sér greiðslur til okkar þaðan, sem betur fer. Og það munar um minna; þarna er fólk sem er komið með góðar tekjur og hefur meiri greiðslugetu, en þetta er fólk sem var hér á atvinnuleysisskrá eða með lágar tekjur,“ segir Jón Ingvar. Hann segir hugsanlegt að þarna spili einnig inn í ákvörðun, sem tekin var á síðasta ári, um að skuldajafna meðlagskröfur við útborgaðar inn- eignir vegna vaxtabóta hjá öllum skuldurum, líka þeim sem höfðu gert ívilnunarsamninga við Innheimtu- stofnun. Þeim sem sækja um slíka ívilnun- arsamninga hefur þó ekki fækkað, þrátt fyrir að greiðslugeta virðist al- mennt hafa aukist, en Jón Ingvar segir að á milli 150-250 manns sæki um undanþágur í hverjum mánuði. „Þetta er töluverður fjöldi sem sækir um, sumir í örfáa mánuði vegna tímabundinna erfiðleika en aðrir sækja um til langframa. Þannig að fjöldinn getur sveiflast talsvert til,“ segir hann. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveit- arfélaga sendi í síðustu viku bréf til nokkurra sveitarfélaga þess efnis að skuldir þeirra væru of háar og að þörf væri á áætlun um niðurgreiðslu þeirra. Þetta varð niðurstaða nefnd- arinnar að lokinni yfirferð ársreikn- inga ársins 2011 og fjárhagsáætlana vegna áranna 2012-2013. Um er að ræða þau sveitarfélög sem skulda yf- ir 150% af reglulegum árstekjum. Í bréfinu er tekið fram að sveitar- félögin standist ekki fjárhagsleg við- mið skuldareglu sveitarstjórnarlaga en þar eru ákvæði um að slík sveit- arfélög setji sér áætlun um niður- greiðslu skuldanna. Í bréfi eftirlitsnefndarinnar er sveitarfélögum gefinn frestur til 1. september til þess að senda inn áætlun viðkomandi sveitarstjórna um niðurgreiðslur skulda. Reynt var að afla upplýsinga um fjölda sveitarfélaga sem hefðu feng- ið bréf send að þessu sinni, en starfs- maður eftirlitsnefndarinnar hjá innanríkisráðuneytinu neitaði að upplýsa blaðið um fjöldann, að sinni. Vilja að skuldsett sveitarfélög geri áætlun um niðurgreiðslur Morgunblaðið/Eggert Skuldir Reykjavíkurborg er í hópi nokkurra skuldugra sveitarfélaga.  Fengu bréf í síðustu viku frá eftirlitsnefndinni Skuldug sveitarfélög » Frá 1. janúar 2012 mega skuldir sveitarfélaga ekki vera yfir 150% af árstekjum. » Þau sem skulda meira fengu bréf frá eftirlitsnefnd með fjár- málum sveitarfélaga í síðustu viku þar sem frestur var veittur til 1. september til að senda inn áætlun um niðurgreiðslur. Veiði hófst 1. júlí í þeim lax- veiðiám sem síðast eru opn- aðar. Víða hefur frést af ágætri byrjun, til að mynda í Miðá í Döl- um. Einn veiðimaður fékk fimm laxa þar á þeim klukkutíma sem hann veiddi á sunnudagskvöldið og morguninn eftir veiddust 11. Veiðin hófst formlega í Eystri-Rangá á sunnudag og veiddust þá 30 laxar, mest stór- lax fyrir klakkisturnar. Með klakveiði sem stunduð var seinni hluta júnímánaðar, eins og síðustu ár, hafa þá veiðst um 150 laxar, sem er mun meira en áður á þeim tíma, en þá hafa mest 72 verið komnir í veiðibókina, að sögn Einars Lúðvíkssonar. Níu laxar veiddust í Breiðdalsá fyrsta veiðidag- inn, og var sá stærsti 90 cm langur. Eystri-Rangá byrjar vel LAXVEIÐIÁR OPNAÐAR Veiðimaður með laxa úr Eystri-Rangá. Morgunblaðið/Einar Falur Sporðadans Urriði hefur tekið flugu veiðimanns í Laxárdal. Vænir fiskar hafa veiðst á svæðinu undanfarið. 24.230 er fjárhæð meðlags. 20.844 er sá fjöldi barna sem greitt var meðlag með. Hann var 21.203 árið 2010. 10.747 meðlagsgreiðenda eru karlmenn en 541 kona. 687 móttakendur meðlagsgreiðslna voru fæddir árið 1972 og er það stærsti aldurshópurinn meðal þeirra. ‹ MEÐLAG 2011 › » Landsins mesta úrval af laxa- og silungaflugum Frí flugubox Krókar fylgja öllum túpum www.frances.is Heimsþekktar flugur atvinnumanna         

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.