Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 4
kjörnum, þar sem þátttakendur eru eldri og
þurfa meiri aðstoð, höfum við ekki breytt
miklu.“
Spurð hvort breytingarnar hafi skilað
sparnaði sem sóst var eftir með þeim svarar
Hulda að þær hafi gert það að einhverju
leyti. „Ef maður horfir á tölurnar hefur
kostnaður haldið áfram að aukast. Árið 2010
kostaði félagsstarf í borginni 528 milljónir,
2011 545 milljónir og 2012 er það áætlað
563 milljónir. Það er mjög miklu varið í
þetta starf.“
Breytingar hafa gengið misvel eftir
Borgin gerir úttekt á breytingum á félagsstarfi aldraðra í Reykjavík
Breytingarnar í vetur áttu að hvetja til aukinnar þátttöku og aukins vals
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Ráðhús Reykjavíkur Sigurður Már Helgason afhendir Björk Vilhelmsdóttur undirskrifta-
listann í ráðhúsinu í gær. Björk er formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar.
BAKSVIÐ
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Reykjavíkurborg er með í gangi úttekt á
þeim breytingum sem voru gerðar í vetur
á félagsstarfi eldri borgara í Reykjavík.
„Til þess að meta breytingar þarf að
hlusta á reynsluna,“ segir Hulda Dóra
Styrmisdóttir, skrifstofustjóri velferð-
arsviðs Reykjavíkurborgar. „Það er í gangi
úttekt sem byrjaði í mars á þessum breyt-
ingum, henni er ekki lokið. Sendir voru
spurningalistar til starfsfólks og þátttak-
enda í félagsstarfinu, sem er eftir að vinna
úr og við höfum talað við notendur og
heyrt af reynslunni. Þegar við fáum nið-
urstöður úr þessari úttekt er hægt að
meta stöðuna.“
Eins og kom fram í Morgunblaðinu ný-
verið skoraði stjórn Félags eldri borgara í
Reykjavík á borgaryfirvöld að endurskoða
þá ákvörðun sína að draga verulega úr fé-
lagsstarfi aldraðra í félagsmiðstöðvum
borgarinnar. Með breytingunum sem tóku
gildi í vetur stefnir borgin á aukna sjálf-
stýringu og sjálfbærni í félagsstarfinu með
aukinni þátttöku notenda í skipulagi
starfsins. Dregið var úr skipulögðum nám-
skeiðum á vegum borgarinnar og samn-
ingum við hluta launaðra starfsmanna sagt
upp í kjölfarið. Þess í stað er gert ráð fyrir
að leiðbeinendur geti starfað sjálfstætt að
því að setja upp námskeið í takt við þarfir
og vilja notenda og að sjálfboðaliðar standi
launalaust að námskeiðum. Þetta hefur
ekki gengið nægilega vel eftir og því hefur
dregið úr framboði á námskeiðum sam-
kvæmt heimildum Félags eldri borgara.
Tekið tillit til aðstæðna
„Það er náttúrlega verið að gera breyt-
ingar á starfsemi á mörgum stöðum og það
er mismunandi hvernig það gengur eftir.
Breytingarnar voru gerðar með það í huga
að hvetja til aukinnar þátttöku og aukins
vals. Það eru enn 46 ráðnir leiðbeinendur í
borginni svo mjög víða eru námskeið í boði
með ráðnum leiðbeinendum en ekki bara
sjálfstætt starfandi, sem voru 18 í maí sl.,“
segir Hulda. „Reynt var að taka tillit til
aðstæðna á hverjum stað með útfærslur á
breytingunum. Félagsstarfið er á sextán
stöðum og það eru mismunandi hópar sem
sækja það. Til dæmis í þjónustuíbúðar-
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012
Aflþynnuverksmiðja Becromal í
Krossanessi við Akureyri er
ekki sú eina sem hefur fundið
fyrir niðursveiflunni í Evrópu.
Þannig hefur evrukreppan
tafið fyrir áformum um kísil-
málmverksmiðju á Grundar-
tanga og var óvissan um fram-
vindu mála á Spáni sögð vera
meginástæðan.
Fram kom í Morgunblaðinu í
júní sl. að þar væri rætt um
fjárfestingu upp á sem svarar
129 milljörðum króna. Var haft
eftir Einari Þorsteinssyni, for-
stjóra Elkem á Íslandi, að ef
það hægði frekar á efnahags-
lífi Evrópu myndi það hafa
bæði áhrif á magn og gæði á
þessum markaði. Kínverska
ríkið á 80% í móðurfélagi El-
kem.
Tefur líka
sólarkísilinn
ÁHRIF ÓRÓANS Í EVRÓPU
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er ánægjulegt hvað við höfum
lagt til þjóðarbúsins á erfiðum tím-
um þann stutta tíma sem verksmiðj-
an hefur verið
starfrækt, en
væntanlega verð-
ur einhver sam-
dráttur hjá okkur
í ár, án þess að ég
geti fullyrt
hversu mikill
hann verður. Nið-
ursveiflan í Evr-
ópu er megin-
skýringin,“ segir
Rúnar Sigur-
pálsson, fjármálastjóri Becromal,
um ganginn hjá aflþynnuverksmiðj-
unni í Krossanesi við Akureyri.
„Vörur okkar fara í rafmagnsþétta
sem eru mikið notaðir af orkugeir-
anum, bæði sólarorku og vindorku.
Ástandið í Evrópu er erfitt um þess-
ar mundir en við erum farin að sjá
hægan bata á mörkuðunum. Til þess
að mæta samdrættinum fækkuðum
við um nokkur stöðugildi í mars og
apríl en líkur eru á því að við getum
fjölgað stöðugildum fljótlega að
nýju, jafnvel á þessu ári,“ segir Rún-
ar um stöðuna í dag.
Stækkuninni frestað
Fram kom í Morgunblaðinu í mars
í fyrra að eigendur verksmiðjunnar
hefðu uppi áform um að stækka hana
og skapa þannig 30-50 störf til fram-
búðar.
Rúnar segir erfitt árferði í Evrópu
tefja þessi áform.
„Það hefur ekki verið hætt við
stækkunina, henni hefur verið frest-
að, en ætlunin var að stækka verk-
smiðjuna um 60-70%.
Um þessar mundir framleiðum við
um 6,5-7 milljónir fermetra á ári sem
eru rúmlega 70% af fullri afkasta-
getu verksmiðjunnar. Við gætum
framleitt um 9 milljónir fermetra
miðað við fulla afkastagetu verk-
smiðjunnar.“
Spurður hvort verksmiðjan geti
ekki einfaldlega einbeitt sér að Asíu-
markaði, eða öðrum hratt vaxandi
mörkuðum á meðan fjármálafárviðr-
ið gengur yfir í Evrópu, segir Rúnar
málið ekki svo einfalt.
Engin uppsveifla í Asíu
Ástandið í Evrópu hafi áhrif víðar.
„Við höfum selt inn á Asíumarkað.
Þar er hins vegar engin uppsveifla
og á því eru nokkrar skýringar. Kína
er í ákveðnu frosti vegna forseta-
kosninga í nóvember. Japanir eru
ekki búnir að jafna sig á náttúru-
hamförum og það sama má segja um
Taíland. Stundum er sú ályktun
dregin að niðursveifla á einum mark-
aði leiði af sér uppsveiflu á öðrum.
Það er hins vegar ekki þannig enda
má segja að ástandið í Evrópu hafi
neikvæð áhrif á markaði annars
staðar.“
Um 110 manns starfa hjá verk-
smiðju Becromal á Íslandi og var
veltan 78 milljónir evra á síðasta
uppgjörsári, eða 12.361 milljón kr. á
gengi gærdagsins. Er uppgjörsárið
frá apríl 2011 til mars 2012.
Verksmiðjan kostaði um 10 millj-
arða í núverandi mynd. Stækkun var
talin kosta nokkra milljarða króna
en samningar um frekari orku eru
fyrir hendi.
Evrukreppan setur stækkunina á ís
Samdráttur hjá Becromal vegna niðursveiflunnar í Evrópu Verksmiðjan keyrð á 70% afköstum
Til stóð að auka hana um 60-70% í milljarðaframkvæmd Halda á óbreyttum starfsmannafjölda
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Á Norðurlandi Verksmiðjan er í Krossanesi við Akureyri.
Rúnar
Sigurpálsson
Sigurður Már Helgason er eldri borgari
í Reykjavík og sækir félagsstarfið í
Gerðubergi. Hann hefur staðið fyrir
undirskriftasöfnun, ásamt fleirum, til
að mótmæla niðurskurði í félagsstarfi
eldri borgara. „Nokkur hundruð eldri
borgara hafa skrifað undir bænaskjal
til borgarinnar um að draga þessar
breytingar til baka,“ segir Sigurður, en
hann fór í gær á fund borgarfulltrúa
Reykjavíkur og afhenti þeim bænaskjal-
ið. „Dropinn holar steininn og nú er
bara spurning hvort þau hlusti á okkur
og taki okkar málflutning til greina,“
segir Sigurður og bætir við að hann sé
sæmilega bjartsýnn á framtíð Gerðu-
bergs.
„Félagsstarfið er okkar skjól og við
óskum eftir því að það verði sama starf
aftur í boði sem hefur verið mjög blóm-
legt í Gerðubergi. Þeir eru með þá
hugsun að við förum í sjálfboðavinnu,
eldri borgarar, við að sjá um fé-
lagsstarfið. Að við snúum til baka og
gerumst leiðbeinendur, ég hélt ég væri
búinn með þann pakka,“ segir Sigurður.
„Borgin ætlast til þess að haltur leiði
blindan. Þú verður að hafa orku í þetta.
Þeir eru að tala um eldri borgara 50-65
en það er fólk í fullu fjöri og hefur öðr-
um hnöppum að hneppa en að leið-
beina í sjálboðavinnu enn eldra fólki.“
Sigurður segist finna mikið til með
fólkinu sem er að missa sitt fé-
lagsstarf. „Það er mikil sorg og
óánægja með þetta. Færri námskeið
eru í boði og svo hefur verði fyrir nám-
skeið hjá leiðbeinanda borgarinnar ver-
ið stillt í hóf en þegar fyrirtæki koma
inn skeður eitthvað annað. Menn verða
að fá eitthvað í vasann fyrir sína vinnu
en það er takmarkað sem eldri borg-
arar geta borgað.“
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg
kemur fram að nú standi yfir mat á því
hvernig til hafi tekist með breyting-
arnar í Gerðubergi og að bænaskjalið
verði nú hluti af því mati.
Með bæna-
skjal til
borgarinnar
ELDRI BORGARI