Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012
Sigyn Jónsdóttir
sigyn@mbl.is
J
ógakennarinn Ragnheiður
Ýr Guðmundsdóttir sendi
frá sér á dögunum bókina
Útijóga – Náttúruleg orka
með útiveru og æfingum.
Ragnheiður hefur kennt jóga frá
árinu 2007 en ásamt því að vera
jógakennari er hún einnig sjúkra-
þjálfari og tölvunarfræðingur.
„Ég byrjaði með útijóga haust-
ið 2007,“ útskýrir Ragnheiður en
með útijóga er átt við jóga sem er
stundað úti, gjarnan í tengslum við
gönguferðir eða aðra útiveru. „Mér
fannst það vanta í íslenska jóga-
menningu og vissi ekki um neinn
sem var með það í boði,“ bætir hún
við.
Jóga í snjó
„Mér finnst passa rosalega vel
að gera jóga úti í náttúrunni. Flestir
eru mikið inni stóran part dagsins
vegna vinnu og því er gott að kom-
ast út eftir vinnudaginn, gera jóga
og fá súrefni í leiðinni,“ segir Ragn-
heiður en hún hefur séð um útijóga-
hópa yfir vetrartímann. „Ég hef eig-
inlega verið í pásu alltaf yfir
sumartímann sem er kannski pínu-
lítið öfugsnúið,“ segir hún hlæjandi.
„Þá er fólk í sumarfríi og erfitt að
vera með hópa. Ég hef reyndar boð-
ið upp á jóga í Viðey einu sinni á
hverju sumri en annars hef ég byrj-
að með hópana í lok ágúst og verið
með þá út nóvember. Svo tek ég frí
yfir dimmustu mánuðina, desember
og janúar, og byrjað aftur í febr-
úar,“ útskýrir Ragnheiður en oft
hefur verið erfið færð í útijógatím-
um yfir háveturinn.
„Það eru oft langskemmtileg-
ustu tímarnir þegar er snjór því þá
er fólk að vinna sjálft sig, drífa sig
af stað í kolvitlausu veðri,“ segir
Ragnheiður og bendir á að oft fækki
heldur mikið í hópnum þegar líða
tekur á veturinn. „Margir byrja á
haustin en svo detta alltaf einhverjir
út þegar fer að kólna,“ segir hún en
bendir á að þó séu 10-15 manns sem
mæti galvaskir allan veturinn.
„Svo hef ég líka verið með
þetta í boði fyrir til dæmis vinnu-
staði eða aðra hópa sem vilja bara
einn tíma. Þá geta þetta verið allt
upp í 50 manns,“ segir Ragnheiður
og bætir við að það sé alltaf nóg
pláss fyrir jógaiðkendur úti í nátt-
úrunni.
Standandi æfingar
Hefðbundið útijóga saman-
stendur af upphitunaræfingum,
gönguferð með nokkrum stoppum
þar sem gerðar eru jógaæfingar og
svo teygjum og slökun. „Við förum í
Jóga úti í náttúrunni
allan ársins hring
„Mér finnst passa rosa-
lega vel að gera jóga úti í
náttúrunni,“ segir Ragn-
heiður Ýr Guðmunds-
dóttir sem gaf nýverið út
bók um útijóga og ýmis-
legt sem því tengist.
Ljósmyndir/Úr bókinni Úitjóga
Hálfmáni Ragnheiður sýnir hinar ýmsu jógaæfingar og teygjur í bókinni.
Náttúra Íslands býður upp á ýmis úti-
vistarævintýri önnur en fjallgöngur
eins og til dæmis að klífa kletta og
fjöll. Á vefsíðunni Klifur.is má finna
upplýsingar um klifursvæði á Íslandi,
búnað sem þarf til að klifra og ým-
islegt fleira tengt klifri. Það er hörku-
púl að klifra og mikilvægt er að fá
leiðsögn þegar klifrað er í fyrsta
skipti. Á síðunni má finna lista yfir
klifurleiðir og einkunn sem reyndir
klifrarar hafa gefið þeim. Leiðirnar
bera margar hverjar skemmtileg nöfn
en þar ber helst að nefna Múffuna,
Flengda apann og Ógeðsleiðina. Einn-
ig er skemmtilegt að glugga í orða-
bók síðunnar sem útskýrir meðal
annars klifurhugtakið fingraklifur en
þar er átt við lítil grip sem reyna mik-
ið á fingurgómana. Vonandi lenda
fæstir byrjendur í Elvisnum svo-
nefnda en þá skjálfa fæturnir
óstjórnlega í klifri vegna áreynslu.
Vefsíðan www.klifur.is
Morgunblaðið/Ernir
Klifur Sumir klifra í klettum, aðrir láta sér nægja himinháa klifurveggi.
Forvitnilegar klifurleiðir
Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa
og Átaks verðbréfa verður haldið
fimmtudaginn 5. júlí og hefst keppni
kl. 20:00. Keppt er í þremur vega-
lengdum: 5 km, 10 km og hálf-
maraþoni. Rás- og endamark er við
líkamsræktarstöðina Átak og er
hlaupið um eyrina og fram í Eyja-
fjörð svo hlaupaleiðin er marflöt og
vænleg til góðra afreka.
Keppt verður í þremur aldurs-
flokkum í 5 og 10 km hlaupi
og tveimur aldursflokkum í hálf-
maraþoni. Skráning í hlaupið fer
fram á vefsíðunni hlaup.is en opið er
fyrir skráningu til kl. 20:00 miðviku-
daginn 4. júlí. Þátttökugjald er eft-
irfarandi,
5 km hlaup kr. 1.500, 10 km hlaup
kr. 2.000 og hálfmaraþon kr. 3.000.
Veittur er fjölskylduafsláttur
þannig að fjölskylda (foreldrar og
börn) greiðir ekki meira en kr. 5000.
Kort af leiðinni má einnig sjá á
hlaup.is fyrir þá sem vilja kynna sér
hana betur.
Endilega
…hlaupið Akureyrarhlaup
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyrarhlaup Keppt verður í þremur aldursflokkum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Það var kannski eins gott að hinn
þýski Faris al Sultan fengi stóran
drykk eftir þrekraun sína um helgina
en hann fór með sigur úr býtum í
þýska Járnkarlinum 2012. Keppnin
felur í sér að synda 3,8 km, hjóla 180
km og hlaupa 42,1 km frá Klagenfurt
til Wörthersee. Vinningshafinn hefur
örugglega skolað þessu niður eins og
ekkert væri eftir erfiðið.
AFP
Glúgg Faris al Sultan var þyrstur.
Afar þyrstur
járnkarl
Tilvalið fyrir heimilið og sumarbústaðinn
PLÍ-SÓL
GARDÍNUR
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Ef þú staðg
reiðir
sendum vi
ð frítt
hvert á lan
d sem er