Morgunblaðið - 03.07.2012, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012
Fjölhæfasti starfskrafturinn
Fjölnota vinnuþjarkur sem höndlar hátt í 100 verkfæri
▪ Lágur rekstrarkostnaður
▪ Einstaklega lipur í notkun
▪ Vökvaknúinn í aldrifi
▪ Sjá nánar á VBL.is - myndbönd o.fl.
630
28 hö Kubota díeselmótor
með 44 lítra vökvadælu, 200 bar
Hæð 209 cm
Lengd 255 cm
Breidd 99 - 129 cm
Þyngd 1350 kg
Lyftihæð 282 cm
Lyftigeta 1400 kg
Fáanlegur með húsi
Í drifbúnaði eru engar reimar,
kúplingsdiskar né drifsköft.
STUTTAR FRÉTTIR
● Vextir Seðlabankans hafa verið
hækkaðir um 1% það sem af er ári en í
lok ársins 2011 voru þeir 4,75%. Verð-
bólguhorfur hafa versnað frá áramótum
og horfur eru á að verðbólga verði leng-
ur fyrir ofan verðbólgumarkmið en
ásættanlegt er, einkum ef gengi krón-
unnar helst áfram lágt, að því er segir í
skýrslu peningastefnunefndar til
Alþingis.
Raunvextir eru nú -0,3% miðað við
núverandi verðbólgu og -0,2% miðað
við meðaltal ólíkra mælikvarða á verð-
bólgu og verðbólguvæntingar eða 0,2
prósentum hærri en í lok desember
2011.
Verðbólguhorfur versna
● Atvinnuleysi á evrusvæðinu var í
maímánuði 11,1%, sem jafngildir því að í
evrulöndunum 17 voru 17,56 milljónir
manns án atvinnu.
Þetta er mesta atvinnuleysi sem
mælst hefur, frá því mælingar hófust
1995, samkvæmt upplýsingum frá
Eurostat í gær.
Á sama tíma dróst framleiðsla sam-
an á svæðinu og mældist 45,1 stig í
júnímánuði, en þegar framleiðslu-
vísitalan fer niður fyrir 50, þá þýðir það
samdrátt.
Atvinnuleysi á evru-
svæðinu komið í 11,1%
Stjórnarformaður breska bankans
Barclays, Marcus Agius, hefur
ákveðið að segja af sér í kjölfar rann-
sóknar sem leiddi í ljós að bankinn
hefði haft ólögleg áhrif á gengi milli-
bankavaxta, bæði LIBOR og EURI-
BOR. Fréttavefur breska ríkis-
útvarpsins, BBC, greindi frá þessu á
sunnudag.
Stjórn Barclays bankans staðfesti
í gær að stjórnarformaður bankans,
Marcus Agius, hefði ákveðið að segja
af sér. Barclays bankinn var sekt-
aður í síðustu viku eftir að rannsókn
leiddi í ljós að bankinn hafði haft
ólögleg áhrif á millibankavexti.
Mikill þrýstingur hefur verið á
forstjóra Barclays, Bob Diamond og
stjórnarmenn Barclays vegna máls-
ins enda er talið að bankinn hafi orð-
ið fyrir miklum skaða. Talið er að
það yrði til að endurreisa orðspor
bankans á alþjóðavettvangi ef æðstu
starfsmenn segja af sér.
Athæfið kostaði Barclays jafnvirði
57 milljarða íslenskra króna í sekt.
Upplýst var um það í gærmorgun
að Skotlandsbanki, The Royal Bank
of Scotland, hefði vikið fjórum
starfsmönnum úr starfi vegna aðild-
ar þeirra að málinu. Er það talið
renna frekari stoðum undir þær
grunsemdir, að málið sé umfangs-
meira en í fyrstu hafi sýnst.
AFP
Þrýstingur Öll spjót standa nú á Bob Diamond, forstjóra Barclays.
Hættir í stjórn
Bankahneyksli skekur Barclays
banka Hagræddu vaxtaupplýsingum
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
„Við erum laus og liðug og til í slag-
inn að byggja sterkt félag,“ segir
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fast-
eignafélagsins Regins. Hann segir að
félagið geti nú horft til vaxtar eftir að
hafa verið alfarið í eigu Landsbank-
ans. Tvennt kemur til: Félagið var
tímabundið í eigu banka og þurfti því
að lúta ýmsum ákvæðum frá Sam-
keppniseftirliti og Fjármálaeftirliti.
Það hefti starfsemina. Auk þess sem
markmið Landsbankans var að gera
félagið söluvænlegt en slíkt fer ekki
alltaf saman við að byggja upp öflugt
fasteignafélag til langs tíma.
Fasteignafélagið var skráð á
hlutabréfamarkað í gær og saman-
stendur af eignum sem Landsbank-
inn fékk í fangið eftir bankahrunið.
Stærstu eignir Regins eru Smára-
lind og Egilshöll. Eftir útboð á félag-
inu skömmu fyrir skráningu var
markaðsvirðið 10,6 milljarðar króna.
Lífeyrissjóðir eru áberandi á hlut-
hafalista fyrirtækisins. Páll Harðar-
son, forstjóri Kauphallarinnar, segir
að þetta séu ákveðin tímamót í sögu
Kauphallarinnar, því þetta er fyrsta
fasteignafélagið sem skráð er í
Kauphöllina, og fyrsta skráning árs-
ins.
Þetta er önnur skráningin hjá
Kauphöllinni eftir bankahrun en í lok
síðasta árs var verslunarsamsteypan
Hagar skráð á markað.
Páli þykir skráningin táknræn fyr-
ir ákveðnar breytingar á hlutabréfa-
markaðnum. Tvennt kemur til: Eign-
arhaldið er dreifðara en á árunum
fyrir hrun og fjórir af fimm stjórn-
armönnum Regins eru konur. Nú er
hlutfall kvenna í stjórnum skráðra
félaga í Kauphöll 35% en var 10% á
vordögum 2008. Hlutfallið er innan
við 15% í Evrópu.
Helgi segir að það sé mikilvægt að
bankar vinni vel að því að selja fyr-
irtæki sem falla í faðm þeirra, því
annars er hætta á stöðnun og doða í
atvinnulífinu, þar sem þeir horfi með
öðrum augum á svona eignarhald en
fjárfestar. Hagsmunir banka með
eignarhaldinu séu til skamms tíma
en hagsmunir fjárfesta séu til lengri
tíma.
Stjórnendur Regins vilja stækka
fasteignafélagið um 30% á tveimur til
þremur árum með því að kaupa fast-
eignir. Ekki er stefnt að því að greiða
arð á næstu árum heldur að nýta féð
til vaxtar. Í framtíðinni, þegar það er
komið jafnvægi á reksturinn, vilja
stjórnendurnir greiða arð.
Helgi segir að fram að þessu hafi
almennt fjárfestingar í fasteignum
að mestu verið í litlum einingum, en
ekki þeim stærri.
Aðspurður hvort hann óttist bólu-
myndun, í ljósi þess hve margir virð-
ast áhugasamir um fasteignir, segist
hann ekki óttast það. Hann segir að
fasteignaverð sé svo lágt, að við
séum á botninum. Fasteignamark-
aðurinn með atvinnuhúsnæði
þurfi að styrkjast verulega til að
hætta sé á bólumyndun.
Mikið af atvinnuhúsnæði sé í
eigu banka, fjármálastofnana,
laskaðra félaga sem geta sig
hvergi hreyft og jafnvel kröfu-
hafa. Því segir hann aðspurður að
það séu margir viljugir selj-
endur fasteigna á landinu.
Reginn reiðubúinn í vöxt
eftir sölu Landsbankans
Önnur skráningin á hlutabréfamarkað frá hruni Vilja vaxa hratt á næstunni
Bjallan Forstjóri Regins hringdi bjöllunni rétt áður en viðskipti með bréf
félagsins hófust í Kauphöll í gær, eins og venja er við skráningu á markað.
Morgunblaðið/Kristinn
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+01./2
+,,.21
,+.+0-
,3.0+
+/.3+4
+5+.+-
+.142+
+/0.2+
+12.10
+,1.+0
+04.51
+,5.++
,+.,14
,3.02,
+/.340
+5+.1+
+.12+2
+03.,/
+1/.35
,+/.1552
+,1.-0
+04./5
+,5.-2
,+.5+/
,+.35-
+/.+,,
+5+.//
+.1245
+03./1
+1/.-2
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Landsbankinn heldur eftir rúm-
lega 25% hlut í fasteignafélag-
inu Reginn og stefnir að því að
selja bréfin eftir tíu mánuði,
að sögn Steinþórs Pálssonar
bankastjóra. Áður átti bankinn
allt félagið. Hann segir í sam-
tali við Morgunblaðið að þá
verði komin góð reynsla á fé-
lagið á markaði og að vonandi
myndist hópar sem vilji leiða
það. Í ljósi þess að bankinn
haldi utan um fjórðungshlut
geti nýir hluthafar hæglega
gert sig gildandi í félaginu.
Steinþór segir að það að fleyta
Reginn á markað sé stór
áfangi fyrir Landsbankann því
nú á hann ekki lengur ráðandi
hlut í neinu félagi. Bankinn
eigi minni hluti í félögum, eins
og til dæmis Regin og innan
við 30% hlut í fasteignafélag-
inu Reitum en hann vonar að
það fari á markað í vetur.
Landsbankinn hefur áhuga á
að selja sem mest af sínum
hluta í Reitum en það á
enn eftir að móta hvern-
ig að því verður staðið.
Landsbankinn á 26%
í Regin en mun nota 1%
til að sinna við-
skiptavakt, sem tryggir
að það sé ákveðin
velta með þau.
Selur eftir
tíu mánuði
LANDSBANKI Á 26% HLUT
Steinþór
Pálsson