Morgunblaðið - 03.07.2012, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Yfirmaður þýsku innanríkisleyniþjónustunnar, Heinz
Fromm, sagði af sér embætti í gær vegna raða mistaka
sem stofnunin gerði í rannsókn á hryðjuverkahópi
nýnasista sem myrtu tíu manns. Í síðustu viku varð stofn-
unin meðal annars uppvís að því að hafa eytt mikilvægum
gögnum sem tengjast málinu.
Morðæði NSU-hryðjuverkahópsins hófst árið 2000 en
það kom ekki í ljós fyrr en í nóvember í fyrra að einn og
sami hópurinn hefði staðið að þeim. Málið hefur valdið
hneykslan þýsks almennings og hafa yfirvöld sætt mikilli
gagnrýni fyrir það hvernig staðið hefur verið að rannsókn
Segir af sér vegna mistaka
Þýska leyniþjónustan eyddi gögnum um nýnasistahóp sem myrti tíu manns
þess. Þýska lögreglan hefur meðal annars viðurkennt að
rannsókn morðmálanna hafi liðið fyrir skort á samhæf-
ingu og alvarleg afglöp.
Fromm er hæst setti embættismaðurinn sem hefur
þurft að víkja vegna hneykslisins en áður hafði yfirmanni
þeirrar deildar leyniþjónustunnar sem rannsakar hægri-
öfgastarfsemi verið sparkað úr starfi.
Í yfirlýsingu frá Fromm sem þýska blaðið Spiegel birti
í gær viðurkennir hann að alvarleg mistök hafi verið gerð,
ekki síst þegar gögnum um hægriöfgahóp sem síðar varð
að NSU var eytt skömmu eftir að komst upp um starf-
semi hryðjuverkahópsins.
„Þetta hefur leitt til verulegs trúnaðarbrests og skaðað
orðspor stofnunarinnar alvarlega,“ sagði Fromm.
NSU-hópurinn
» Hryðjuverkahópurinn
NSU var skipaður þremur ein-
staklingum auk nets sam-
verkamanna.
» Myrti tíu manns: níu búðar-
eigendur af tyrkneskum og
grískum uppruna og eina lög-
reglukonu.
Indverskir hindúar sitja í kerjum fylltum með
vatni og blómablöðum og fara með bænir til að
friða regnguðina í hofi í útjaðri borgarinnar
Ahmedabad. Bið hefur orðið á að árlegar
monsúnrigningar berist til norðurhluta landsins
og óttast bændur, sem eru um 70% allra íbúa
landsins, að uppskera þeirra bresti í miklum
þurrki. Á sama tíma glíma íbúar í norðaustur-
hluta landsins við mestu flóð í manna minnum.
AFP
Biðja regnguðina um að sýna miskunn
Nýr leiðangur
sem ætlað er að
varpa ljósi á af-
drif bandarísku
flugkonunnar
Amelíu Earhart
lét úr höfn á
Havaí í gær en
þá voru 75 ár lið-
in frá því að hún
hóf sig á loft í
hinstu flugferð
sína.
Earhart öðlaðist heimsfrægð
þegar hún varð fyrsta konan til að
fljúga ein þvert yfir Atlantshafið
árið 1932. Talið er að hún og sigl-
ingarfræðingur sem var með henni
í för hafi látist þegar flugvél henn-
ar fórst í Kyrrahafinu þegar hún
reyndi að fljúga umhverfis jörðina
um miðbaug árið 1937. Margir sér-
fræðingar telja að villa í stefnuút-
reikningum hafi orðið til þess að
vélin varð eldsneytislaus á hafi úti.
Leiðangursmenn ætla meðal ann-
ars að kafa í sjónum í kringum eyði-
eyjuna Nikumaroro til að leita vís-
bendinga um hvað gerðist.
Kenningar eru uppi um að Earhart
hafi hrapað þar og lifað af á eyjunni
í marga daga.
Alþjóðlegur hópur sem helgar
sig leit að sögufrægum flugvélum
stendur að leiðangrinum. Þetta er í
tíunda sinn sem hópurinn leitar
merkja um flugkonuna fræknu á
Kyrrahafseyjunni.
kjartan@mbl.is
Leita vísbendinga
um afdrif Earhart
Amelia Earhart
stígur um borð í
flugvél sína.
Nærri því milljón Bretar fara í
vinnuna með einhvers konar eit-
urlyf enn í líkamanum ef eitthvað
er að marka nýja rannsókn á fíkni-
efnanotkun á breskum vinnustöð-
um. Samkvæmt henni hefur neysl-
an aukist um 43% á aðeins fimm
árum og reynist nú einn af hverjum
30 starfsmönnum með eiturlyf í
líkamanum í vinnunni.
Í rannsókninni voru 1,7 milljónir
lyfjaprófa á 856 vinnustöðum
greindar. Kannabis, kókaín og ópí-
umefni eru vinsælustu eiturlyfin en
starfsmenn á aldrinum 25-34 ára
eru líklegastir til að vera á hörð-
ustu efnunum. kjartan@mbl.is
Milljón Breta á eit-
urlyfjum í vinnunni
Taustir lásasmiðir í yfir 24 ár
Verslun, Laugavegi 168 • www.neyd.is • laugavegur@neyd.is
s: 510 8888 • Opið alla virka daga 8:00-18:00
Einn lykill -
endalausir möguleikar
Við smíðum og þjónustum
lyklakerfi fyrir fyrirtæki og hús-
félög. Hringdu og fáðu ráðgjafa
í heimsókn.
Lyklakerfi
=
Sami lykill að
öllum lásum
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þegar meirihluti atkvæða í mexí-
kósku forsetakosningunum sem
fóru fram á sunnudag hafði verið
talinn í gær var Enrique Peña
Nieto, frambjóðandi PRI-flokksins,
með um 38 prósenta fylgi og fimm
prósenta forskot á næsta keppinaut
sinn, Andrés López Obrador frá
PRD-flokknum.
PAN-flokkur Felipe Calderóns,
fráfarandi forseta, virðist hafa feng-
ið um fjórðung atkvæða og viður-
kenndi Josefina Vázquez Mota,
frambjóðandi flokksins, ósigur þeg-
ar á sunnudagskvöld.
López Obrador lýsti því hins veg-
ar yfir að hann myndi ekki viður-
kenna ósigur fyrr en öll atkvæði
hefðu verið talin og farið hefði verið
yfir framkvæmd kosninganna, sjálf-
sagt minnugur þess þegar hann
tapaði forsetakosningunum árið
2006 gegn Calderón með eins pró-
sents mun. Þá voru háværar raddir
uppi um að svik hefðu verið í tafli í
kosningunum.
Þar með er ljóst að PRI-
flokkurinn tekur aftur við stjórnvel-
inum í Mexíkó eftir tólf ára fjarveru
en þar áður hafði flokkurinn verið
við völd í 71 ár samfleytt.
Áratugalöng valdatíð flokksins
þótti einkennast af spillingu, þjónk-
un við stórfyrirtæki og gerræðis-
hneigð. Þegar Peña Nieto lýsti yfir
sigri þegar fyrstu opinberu tölurnar
voru birtar á sunnudagskvöld lagði
hann mikla áherslu á að kveða í
kútinn ótta margra landsmanna við
að flokkurinn tæki upp þráðinn þar
sem frá var horfið.
„Forsetatíð mín verður lýðræðis-
leg. Við erum ný kynslóð og það
verður ekkert afturhvarf til for-
tíðar,“ sagði Peña Nieto í ræðu
sinni en hann verður settur í emb-
ætti hinn 1. desember í vetur.
„Ekki
horfið til
fortíðar“
AFP
Nýkjörinn Enrique Peña Nieto
ásamt hluta fjölskyldu sinnar.