Morgunblaðið - 03.07.2012, Síða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012
Ari Trausti Guð-
mundsson. Takk fyrir
þitt framlag til styrk-
ingar lýðræðisins.
Öllum er ljóst að á
brattann var að sækja
þegar boðið er fram á
móti sitjandi forseta
og frambjóðanda sem
er vel kynntur í fjöl-
miðlum.
Tveggja turna tal
fjölmiðlanna frá fyrsta
degi kosningabaráttunnar gaf auð-
vitað þann tón að nú skyldi tekist á
um blokkir í stjórnmálum en ekki
um hæfileika einstakra frambjóð-
enda. Þessi staðreynd er auðvitað
okkar stærsta vandamál í stjórn-
málum og stjórnsýslu landsins. Ef
þú ert ekki með mér, þá ertu á móti
mér. Þetta er í reynd lasin hugsun
kjósenda og er að stórum hluta
grunnur að óstöðugleika og þeim
áföllum sem þjóðin hefur mátt þola.
Að vera í vinningsliðinu virðist
vera greypt í þjóðarsálina, þó svo
að vinningsliðið virðist ávallt vera
óánægt með sitt lið. Þetta ástand er
að stórum hluta vegna þess að al-
menningur kýs ekki samkvæmt eig-
in sannfæringu.
Það er gömul og ný saga á Ís-
landi, að kjósendur skiptast í fylgd-
arlið flokka eftir sinni eigin afkomu
og möguleikum til frama. Það er
náttúrulega öllum ljóst, að slíkt fyr-
irkomulag leiðir og hefur leitt til
þeirra áfalla sem við höfum orðið
fyrir. Afleiðing af þessari innstill-
ingu landsmanna er auðvitað sú að
mjög fáir einstaklingar
sem við þurfum á að
halda í stjórnun lands-
ins gefa sig í að taka
þátt og bjóða sig fram
til verka fyrir þjóðina.
Ástandið í þjóðfélag-
inu er þannig, að reynt
fólk í stjórnun fyr-
irtækja og stofnana
hefur ekki áhuga á að
blanda sér í þá úlfa-
gryfju sem umfjöllun
um stjórnmálin er.
Þetta gildir bæði um
stjórnmálamenn og fjölmiðla.
Samkvæmt áratuga siðum á Ís-
landi þá eru þeir sem bjóða sig
fram í andstöðu við stóru fylking-
arnar útskúfaðir. En í öðrum lýð-
ræðisríkjum sem við berum okkur
saman við, þá er þess freistað að
nota starfskrafta fólks sem hefur
lýðhylli og traust til góðra verka.
Við vonum náttúrulega öll að við
séum komin vel á veg hvað þetta
varðar.
Eftir Árna Steinar
Jóhannsson
Árni Steinar
Jóhannsson
» Tveggja turna tal
fjölmiðlanna frá
fyrsta degi kosninga-
baráttunnar gaf auðvit-
að þann tón að nú skyldi
tekist á um blokkir í
stjórnmálum en ekki um
hæfileika einstakra
frambjóðenda.
Höfundur er f.v. alþingismaður.
Takk fyrir þitt fram-
lag, Ari Trausti
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
haltu þér við efnið
í hárið
fæst á hársnyrtistofum
Sérvaldir fræði-
menn stjórnvalda
keppast nú við að lýsa
því yfir að kreppan sé
búin. Fólkið í landinu
man vel eftir sömu
fræðimönnum fara of-
fari við að mæra út-
rásina. Kreppumæl-
ingar eru ónákvæm
vísindi en samkvæmt
hagfræðinni teljast
ríki vera í kreppu ef
samdráttur hagkerfis mælist í
meira en 6 mánuði. Aftur á móti
ef ríki sýna hagvöxt í meira en 6
mánuði teljast þau ekki vera í
kreppu. Ef þessi 3% Hagvöxtur
sem þjóðhagsspá Hagstofunnar
gerir ráð fyrir á þessu ári væri
vegna framleiðsluaukningar myndi
ég taka hattinn ofan fyrir stjórn-
völdum, en svo er ekki. Hagvöxt-
urinn sem við höfum í dag kemur
mestmegnis til vegna aukinnar
einkaneyslu og eins og allir vita er
einkaneysla ekki framleiðsla. Ein-
hver sagði að ef eitthvað er loðið,
með fjóra fætur og geltir, sé það
hundur. Sama á við um efnahags-
batann á Íslandi, hann er ekki
undur hann er hund-
ur.
Ekki dæma bókina
eftir kápunni
Útlendingar hampa
Íslandi sem lýsandi
dæmi um hvernig á
að komast út úr
kreppu, en ef þú
spyrð Íslending um
hvort kreppan sé bú-
in, hlær hann að þér.
Það fylgir nefnilega
aldrei sögunni af ís-
lenska efnahagsundr-
inu, að við erum með gjaldeyr-
ishöft, verðtryggingu á
húsnæðislánum, meira en 1000
milljarða snjóhengju af afla-
ndskrónum, bankakerfi í eigu er-
lendra vogunarsjóða rekið sem
þrotabú og hæstu verðbólgu og
vexti á byggðu bóli. Þetta vita Ís-
lendingar, en útlendingar gera sér
ekki grein fyrir þessu, enda er
þessu ekki haldið á lofti þegar er-
indrekar okkar litla lands tjá sig
við erlenda fjölmiðlamenn um
efnahagsundur vinstri stjórn-
arinnar. En eitt er víst að erlendir
vogunarsjóðir sem eiga og stjórna
íslensku efnahagslífi þurfa ekki að
örvænta þegar þeir hafa mann
eins og Má Guðmundsson sem
Seðlabanakastjóra. Þeir mæra
Má í hástert, en Már, sérstakur
erindreki forsætisráðherra og er-
lendra vogunarsjóða, kyndir und-
ir verðbólgubálinu með hækkun
stýrivaxta til þess að seðja verð-
tryggingar ófreskjuna.
Sögufölsun að
sovéskri fyrirmynd
Samkvæmt Ríkisendurskoðun
tapa skattgreiðendur 25 millj-
örðum á SpKef, 4,8 milljörðum á
Sjóvá og 1,7 milljörðum á öðrum
sparisjóðum. Tapaðar kröfur á
VBS, Aska og Saga Capital nema
52 milljörðum. Þá er eftir a.m.k.
27 milljarða tap af 96,7 milljarða
ríkisábyrgð á eignasafni Dróma.
Samtals eru þetta 110,5 millj-
arðar og þá er ekki allt talið sem
fjármálaráðherra hefur upp á sitt
eindæmi áorkað án samþykkis Al-
þingis. Aðeins á Íslandi er banka-
kerfi rekið sem þrotabú. Þetta er
óheilbrigt fyrir efnahagslífið og
verður að stoppa þessa þróun.
Einnig verður að draga þá aðila
til ábyrgðar sem ollu þessu alls-
herjar klúðri. Heyrir einhver
Landsdómsbjöllurnar klingja! Að
halda því fram að við séum komin
út úr kreppunni er sögufölsun að
sovéskri fyrirmynd, því ef hin
rétta mynd væri dregin upp fyrir
erlenda fræðimenn kæmi annað
hljóð í strokkinn. Konfúsíus
sagði: Að ljúga að öðrum er ljót-
ur vani en að ljúga að sjáfum sér
er hvers manns bani og sóma
þessi orð sér vel sem einkunn-
arorð þessarar ríkisstjórnar sem
nú er við völd.
Efnahagsundur
Eftir Guðmund F.
Jónsson »Einhver sagði að
ef eitthvað er loðið,
með fjóra fætur og
geltir, sé það hundur.
Guðmundur F.
Jónsson
Höfundur er viðskiptafræðingur
og formaður Hægri grænna,
flokks fólksins.
Bréf til blaðsins
Hvort ætli hljómi nú betur „Kína-
ríka“ eða „Evrasía“? Ég veit það
ekki. Hvort Kínverjar bindist
Bandaríkjamönnum ennþá sterkari
böndum í framtíðinni, eða halli sér
heldur að Indverjum og Evr-
ópubúum (auk Afríkana auðvitað),
er nokkuð sem þeir einir munu velja
innan tíðar, býst ég við. Það er
a.m.k. erfitt að komast framhjá Kín-
verjum, þegar reynt er að rýna fram
á veginn.
Ekki má þó gleyma Japönum,
hvað þá Rússum, að ekki sé minnst á
Ísraela, auk vitaskuld Breta sem ég
tel einna fremsta meðal jafningja, þó
dró ég það í lengstu löð að nefna
sjálfa Norðmenn samhliða Svíum
sem ég held að verði að teljast nærri
toppnum, enda búinn sem vera ber
að gera ráð fyrir Færeyingum allra
efst á listanum mínum yfir öndveg-
isþjóðir Jarðar. (Gleymum þó ekki
Grænlandi, Kanada og Ástralíu,
fremur en Nýja-Sjálandi) Ég vona
að Danir búi enn yfir umburðarlyndi
sínu og fyrirgefi mér hálf heila-
þvegna afstöðuna til gömlu herra-
þjóðarinnar blessaðrar (ennþá samt
hataðrar af heimskingjum!)
Við Íslendingar erum kannski
einna næst himnum, þegar allt kem-
ur til alls og upp er staðið, þrátt fyrir
skelfilegt framferði sumra landa
okkar erlendis sem hérlendis í
bankaæðinu og lánasukkinu með
lygaupplýsingunum, upprunnum frá
eigendunum sjálfum og undirferli
hinna fáu innvígðu, samseku. Sem
héldu víst sumir að framferði sitt í
tilteknum „viðskiptum“ væri löglegt
– sem svo kannski var stundum!
Lögin voru bersýnilega einatt ekki í
lagi!
Of mörg loðin lög, samþykkt af
vansvefta fólki í tímaþröng berjast-
andi við svokallaða „bandorma“ á
síðustu dögum og nóttum fyrir lang-
þráð þingfríin – sem nauðsynlegt er
að séu sem lengst, svo blessað fólkið
komist langt í burtu frá illa ígrund-
uðum, flausturslega unnum og all-
vafasömum fjáraukalögum, árleg-
um.
PÁLL PÁLMAR
DANÍELSSON,
leigubílstjóri.
Er Íslendingum óhætt
einum úti í miðju
Norður- Atlantshafi?
Frá Páli Pálmari Daníelssyni
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við-
komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda
og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.