Morgunblaðið - 03.07.2012, Side 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012
✝ Gabriel ReynirRagnarsson
fæddist í Keflavík
4. janúar 2011.
Hann lést 21. júní
2012.
Foreldrar hans
eru Sandra Ýr
Grétarsdóttir, f.
1.3. 1993 og Ragnar
Freyr Þórðarson, f.
11.4. 1990. Þau
slitu samvistum.
Foreldrar Söndru eru Þórdís
Daníelsdóttir, f. 11.10. 1972 og
Grétar Valur Schmidt, f. 20.10.
1969. Bræður Söndru: Daníel
Leó Grétarsson, f. 2.10. 1995;
Adam Frank Grétarsson, f.
27.12. 2000. Foreldrar Ragnars
eru Kristín Sigurjónsdóttir, f.
7.2. 1958 og Þórður
Matthías Sigurðs-
son, f. 11.7. 1954.
Systkini Ragnars:
Reynir Davíð Þórð-
arson, f. 26.3. 1972,
d. 5.3. 2005; Eva
Rakel Þórðardóttir,
f. 29.8. 1973; Valur
Smári Þórðarson, f.
7.8. 1974; Róbert
Þórðarson, f. 20.9.
1980; Þórður Matt-
hías Þórðarson, f. 6.3. 1982; Sig-
urjón Veigar Þórðarson, f. 20.8.
1983 og Sigurður Freyr Þórð-
arson, f. 11.4. 1990.
Útför Gabriels Reynis verður
gerð frá Grindavíkurkirkju í
dag, 3. júlí 2012 og hefst athöfn-
in klukkan 15.
Elsku litli drengurinn minn.
Þetta var erfiðasti dagur lífs míns
þegar þú fórst svona skyndilega
frá mér. Það hrundi allt og ég
fékk ekki einu sinni að kveðja þig.
Hjartað mitt er tómt. Yndislegi
drengurinn minn aðeins 17 mán-
aða. Hér sit ég og skil ekki hvað
lífið er grimmt. Ég bíð enn eftir
því að þú komir hlaupandi og
faðmir mömmuhjartað, ég fékk
að hafa þig svo stutt. Það er svo
stutt síðan þú komst í faðm minn,
gullið mitt, og nú er búið að taka
þig frá mér og yfir mig hellast
minningar. Fallegar minningar
sem þú skildir eftir og munu
ávallt vera í hjarta mínu. Gabriel
englinum mínum var greinilega
ætlað mjög stórt hlutverk. Þú
varst mér allt. Brosið þitt og
faðmlag, fyrstu skrefin, fyrstu
orðin, þú varst svo duglegur,
elsku engillinn minn. Þú varst
ekkert hræddur, alltaf brosandi.
Ég man þegar ég fór í fyrsta
skiptið með þig í Húsdýragarð-
inn, þú hermdir eftir öllum dýr-
unum. Hljópst að hestinum og
kysstir hann, kiðlingurinn saug á
þér fingurna og kálfarnir sleiktu
þig í framan, hænurnar stálu salt-
stöngunum úr hendinni á þér. Þú
varst svo mikill vinnumaður, allt-
af að gera eitthvað.
Amma og afi voru alltaf að
kenna honum einhvað nýtt. Hann
fékk það verkefni að taka sína
plastdiska úr uppvöskunarvélinni
og hjálpaði við að ganga frá.
Hann vissi hvert hann átti að
setja diskana sína og glösin.
Hann var alltaf að hjálpa. Gabriel
elskaði að láta lesa fyrir sig, hann
var ákveðinn lítill drengur og
vissi hvað hann vildi. Alltaf bros-
andi, kátur lítill prakkari, var
byrjaður að stríða okkur og hljóp
um og faldi sig og hló. Þessi fal-
legi yndislegi sonur minn elskaði
að borða hjá ömmu sinni, þar sat
hann allan daginn við matarborð-
ið og borðaði góðan mat. Hann
fyllti rýmið alls staðar hjá öllum.
Hann var elskaður af öllum
sem þekktu hann. Engillinn minn
var svo ljúfur og góður. Hann
fékk alla til að brosa, þvílíkt
augnayndi. Þetta er svo sárt og
ég er ekki tilbúin að hann sé ekki
lengur í fangi mínu. Klæða litla
drenginn minn og hátta. Lesa
fyrir hann, syngja fyrir hann,
hafa tilgang sem mamma. Það er
svo erfitt að horfast í auga við að
þú ert ekki lengur hjá mér en ég
veit og trúi að nú sértu á góðum
stað hjá Guði. Ég elska þig svo
mikið og þú ert allaf í hjarta
mínu, mamma elskar þig. Sofðu
rótt.
Sofðu unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar
nætur.
Það er margt, sem myrkrið veit,
– minn er hugur þungur.
Oft ég svarta sandinn leit
svíða grænan engireit.
Í jöklinum hljóða dauðadjúpar
sprungur.
Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun best að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
meðan hallar degi skjótt,
að mennirnir elska, missa, gráta
og sakna.
(Jóhann Sigurjónsson)
Hvíldu í friði. Mamma elskar
þig.
Mamma.
Elsku hjartans Gabríel minn.
Ég trúi því ekki ennþá að þú
sért farinn frá mér úr þessum
heimi sem við þekkjum, þó að ég
viti af þér á öðrum stað þar sem
þér líður vel.
Ég er búinn að upplifa rosa-
lega blendnar tilfinningar síðan
þú fórst svo skyndilega frá mér,
bæði reiði og yfirþyrmandi dep-
urð, en á sama tíma upplifi ég
rosalegt þakklæti fyrir það að
hafa eignast þig og verið faðir
þinn.
Þessi yndislegi gleðigjafi sem
þú varst, Gabríel minn, síbros-
andi, hlæjandi og fyrir mig að sjá
þetta einlæga fallega bros gerði
mig að stoltasta pabba í veröld-
inni, það mun án efa hjálpa mér
að takast á við komandi tíma í
þessari gífurlegu sorg.
Ég gleymi því aldrei að þegar
ég sá og hélt á þér í fyrsta skipti,
þá fyrst skildi ég um hvað lífið
snérist. Þetta var fallegasta
stund sem ég hef upplifað, ég hef
aldrei verið jafn stoltur af mér og
móður þinni sem stóð sig svo vel í
að koma þér í heiminn.
Allt það sem þú gafst mér á
þessum stutta tíma þínum hér hjá
okkur er mér er ómetanlegt og
þú munt ávallt lifa áfram í mínu
hjarta og huga, ég veit að þú
munt fylgja mér í gegnum lífið.
Ég gæti skrifað svo margt um
okkar skemmtilegu stundir,
Gabríel, og vil ég nefna okkar
ógleymanlegu baðferðir, þér
fannst fátt skemmtilegra en að
fara með pabba í bað, leika þér og
sulla út um allt. Oftar en ekki tók
ég þátt í því með þér enda fannst
mér ekkert skemmtilegra en að
heyra þennan fallega hlátur, sjá
þig brosa og vera glaðan. Ég vildi
að ég gæti farið einu sinni enn
með þér í bað og leikið með þér en
ég veit að þú munt upplifa
skemmtilega leiktíma með
Breka, frænda þínum.
Ég elska þig, fallegi sonur, og
mun ávallt minnast þín í mínu
hjarta.
Bless í bili.
Pabbi.
Elsku ömmugullið, hjarta
mínu blæðir, augu mín fljóta í tár-
um og sál mína svíður sárt, þú ert
horfinn, litli drengurinn minn.
Mikið skilur þú eftir þig stórt
skarð hjá öllum sem hafa umvafið
þig á þinni stuttu ævigöngu,
gleðigjafinn okkar og nú er
skelfilega hljótt hjá fjölskyldunni
þinni. Eftir sitjum við og skiljum
ekki tilanginn með brottför þinni,
eftir sitja foreldrar þínir í magn-
vana sorg því þú varst þeim allt.
En við verðum að halda áfram
með lífið, láta þitt litla ljós vísa
okkur veginn til framtíðar með
minningunni um gullfallegan
strákhnokka með prakkarablik í
bláu augunum sínum. Elska þig,
fallegi engillinn minn.
Kristín amma.
Fimmtudagurinn 21. júní verð-
ur lengi í minnum hafður, dag-
urinn þegar þau sorgartíðindi
bárust að litli afadrengurinn
minn, hann Gabríel Reynir, væri
látinn, við höfðum átt margar
ánægjustundir saman.
Var sérstaklega gaman að sjá
þegar hann var að leika við hund-
inn þeirra feðga, hann Golíat, úti í
garði. Vildi drengurinn oftar en
ekki gefa honum að borða og
drekka.
Og þegar inn var komið þá
vildi litli afakútur skoða í allar
skúffur og skápa til að kanna
hvað væri þar að finna, mikið á afi
eftir að sakna þessara stunda
með þér, litli vinur minn.
En nú ert þú farinn og megi
góður Guð geyma þig og styrkja
foreldrana í sinni djúpu sorg.
Afi
Þórður (Doddi).
Ég kveð þig, litli engillinn
minn, með þessu fallega ljóði sem
langalangamma þín Herdís orti
með hjálp Jóhanns langalangafa
þegar vinarhjón okkar langafa
misstu unga dóttur sína.
Undarleg örlaga keðja,
ókleift að skilja hver hjó.
Barnið var brosandi kveðja,
sem barasta lifnaði og dó.
Litlu blómin er sofna sætt,
og sjást ekki lengur hér í dalnum.
Alfaðir getur aftur grætt,
uppi í himnanna dýrðar salnum.
Fram rétt er Jesú hjálpar hönd,
þá hjörtun klökkna og tárin streyma.
Jarðlífsins engin binda bönd,
er burt skal flytja til æðri heima.
(Herdís Þorsteinsdóttir)
Guð geymi þig, litli Gabriel
Reynir, fallegi duglegi langömm-
ustrákurinn minn og þakka ég
fyrir allar stundirnar sem við átt-
um saman á þinni allt of stuttu
ævi.
Langömmukveðja,
Ásdís Magnea
Gunnlaugsdóttir.
Fyrir einu og hálfu ári síðan
fæddist ljós í myrkri, litli engill-
inn okkar, hann Gabríel Reynir.
Því er erfitt að átta sig á þeirri
staðreynd að litli orkuboltinn
með bjarta brosið hafi skyndilega
verið tekinn frá okkur.
Á liðnum dögum hafa minning-
ar verið rifjaðar upp og myndir
skoðaðar og hlegið og grátið í
senn. Við minnumst þess með
mikilli gleði þegar við Rituhöfða-
liðið fórum til Grindavíkur í op-
inbera heimsókn til að máta
Ragnarsson. Allir fengu að máta í
fangið þetta litla undur sem við
vorum svo stolt af og elskuðum
strax af öllu hjarta. Erum við
þakklát fyrir fallegar minningar
um samverustundir, skírn,
Grindavíkurheimsóknir, eins árs
afmæli, Siglufjarðardaga og fjör í
Mosfellsbæ. Ef of langt leið milli
samverustunda átti hann það til
að setja í brýrnar og tók sinn
tíma, en fljótt var hann hrókur
alls fagnaðar og gaf okkur svo
gott knús að viðskilnaði með
prakkarablik í augum.
Elsku Sandra og Raggi, við
biðjum góðan Guð að vaka yfir
litla englinum ykkar og okkur öll-
um hinum, og gefa okkur styrk til
þess að sjá aftur ljósið í myrkr-
inu.
Elsku karlinn okkar, við kveðj-
um þig með þessu litla ljóði frá
Herdísi frænku,
Þú engillinn okkar varst öllum svo kær,
að vaxa og dafna og vera.
Með fallegu augu þín bláu svo skær,
og alltaf svo mikið að gera.
Nú hugsum um stundirnar liðnu
með þér,
og allt sem þú hafðir að gefa.
Gabriel Reynir við kveðjum þig hér,
þín minning í hjörtum mun lifa.
Herdís, Erlendur, Ásdís
Magnea, Sturla Sær
og Sædís Erla.
Elsku litla skinnið mitt, mikið
rosalega sakna ég þín, mikið
rosalega getur lífið verið ósann-
gjarnt að taka þig frá okkur eins
og þú varst mikill gleðigjafi fyrir
alla í kringum þig.
Ég gleymi því aldrei þegar litli
bróðir minn tilkynnti mér það að
hann væri að verða pabbi og hvað
hann var stoltur þegar þú komst í
heiminn, þegar ég kom upp á
fæðingardeild og sá stoltu for-
eldra þína með þig í fanginu, al-
veg gullfallegan lítinn strák sem
lýsti upp allt herbergið. Að sjá
þig taka fyrstu skrefin og róta í
öllum skúffum til að finna eitt-
hvað skemmtilegt og forvitnilegt.
Hvað hann afi þinn hafði enda-
laust gaman af því að sjá þig
grallarast, mikið rosalega hlakk-
aði ég til að fylgjast með þér vaxa
úr grasi og vera hamingjusamt
lítið barn.
Á einni svipstundu ertu farinn
frá okkur og skilur eftir djúpt
skarð í hjarta okkar sem aldrei
verður fyllt. Ég kveð þig með
sorg í hjarta, elsku Gabríel minn,
en veit að þú vakir yfir okkur rétt
eins og englarnir vaka yfir þér.
Þórður (Doddi) frændi.
Elsku litli frændi. Mig skortir
orð. Vegir guðs eru svo sannar-
lega órannsakanlegir. Það er
ótrúlegt að sitja hér og þurfa að
skrifa minningargrein um svo
unga sál og þurfa að horfast í
augu við það að þú sért farinn frá
okkur. Eftir standa stuttar en
margar góðar minningar um fjör-
ugan og lífsglaðan strák sem átti
aldrei í erfiðleikum með að láta
fólk brosa og hlæja með sér. Þú
áttir það til að gera hana Thelmu
æsta í að fara til Grindavíkur í
heimsókn bara til þess eins að
knúsa þig, þessi áhrif hafðir þú á
fólk. Fólk vildi elska þig úr öllum
áttum því þú varst svo yndisleg-
ur. Þú varst alltaf svo hraustur
ungur drengur sem átti eftir að
eiga svo gott líf, mikill töffari og
virkilega úrræðagóður þrátt fyrir
ungan aldur. Þú varst alveg gríð-
arlega efnilegur og áttir eftir að
gera góða hluti. Við verðum að
trúa því að þér hafi verið ætlað að
gera ennþá stærri og betri hluti
þar sem þú ert í dag. Með verk í
hjarta er erfitt að kveðja þig. Þín
verður minnst sem glæsilegs
stráks í alla staði og þín verður
mikið saknað alla tíð.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
Hafðu gát á hjarta mínu
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf, Jesús, vertu hjá mér.
Um þig alltaf sál mín syngi
sérhvern dag, þó eitthvað þyngi.
Gef ég verði góða barnið,
geisli þinn á kalda hjarnið.
(Ásmundur Eiríksson)
Hvíldu í friði, elsku Gabríel
okkar.
Sigurður frændi
(Siggi) og Thelma.
Fæddur drengur, allt var gott og
gaman,
ung var móðir, tók sín fyrstu spor.
Stund á jörð, þó ekki löng var saman,
fljótt varð sorg sem þurfti kjark og þor.
Fjölskyldan nú stendur, brotin, búin,
óraunverulegt svo allt nú er.
Tilveran hún getur verið snúin,
lífið sem hún gaf svo vel af sér.
Nóttin kemur, erfitt er að sofna,
vantar lítinn kút í rúmið sitt.
Best er þá að leyfa sér að dofna,
leyfa sér að langá í barnið sitt.
Lífið áfram heldur segja allir,
erfitt er að hlustá á þessi orð.
Vonandi þó koma fagrar hallir,
sem hjálpa, þegar líf er lagt á borð.
Upplifanir, minningar og draumar,
hrannast upp í huga hvers og eins.
Styrkur, stoð og allra manna straumar,
hjálpa þá að lækna til þess meins.
Ættingja og vina manna kraftur,
hjálpa mannı́að stíga erfið skref.
Við hittumst jú að lokum líka aftur,
og þá alla kossana þér gef.
(Halla Eyberg Þorgeirsdóttir)
Elsku hjartans Sandra, Grét-
ar, Þórdís og aðrir ættingjar og
vinir. Hugur okkar er svo inni-
lega hjá ykkur og megi allt gott
vernda ykkur og elsku Gabríel
Reyni um ókomna tíð. Guð geymi
þig, elsku litli frændi.
Valdimar, Halla, Sveinn
Andri, Ciara Margrét,
Áróra og Jökull.
Gabriel Reynir
Ragnarsson
✝ Rannveig Hall-dórsdóttir iðn-
verkakona fæddist
í Hraungerði í
Álftaveri 1. janúar
1919. Hún lést á
Dvalar- og hjúkr-
únarheimilinu
Grund 21. júní
2012.
Foreldrar henn-
ar voru Halldór
Guðmundsson
bóndi í Hraungerði, f. 26.9.
1872, d. 16.7. 1964, og Sigrún
Þorleifsdóttir kona hans, f.
18.8. 1879, d. 1937. Hún var
yngst sjö systkina, þau voru
Sigmundur, f. 21.12. 1903, d.
29.5. 1993, Guðbjörg (Bagga), f.
13.3. 1905, d. 28.4. 1983, Sig-
urður Rögnvaldur, f. 9.2. 1909,
d. 26.6. 1990, Hall-
grímur, f. 19.5.
1910, d. 30.6. 1996,
Guðbjörg (Stella),
f. 7.3. 1914, d. 14.2.
2010, Sigríður, f.
15.1. 1916, d. 18.8.
1999. Sonur Rann-
veigar með Guð-
mundi Þórðarsyni,
f. 17.6. 1916, d.
11.10. 1984, póst-
afgreiðslumanni,
er Halldór Rúnar, f. 22.3. 1947,
ókvæntur og barnlaus. Hún
vann við hreingerningar og iðn-
að, lengst var hún hjá Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins, hátt í
30 ár.
Útför Rannveigar verður
gerð frá Fossvogskapellu í dag,
3. júlí 2012, kl. 13.
Skaftfellsk byggð í skjóli fjalla,
skrúðgræn tún og engjar fríðar,
þar sem straumhörð fljótin falla
fram úr gljúfrum, niður hlíðar.
Minjar elds og ísa geymir
úfið hraun og gráir sandar.
Ólga þér í æðum streymir
undir jöklum, fram til strandar.
(Eiríkur Einarsson, Réttarholti)
Úr þessu umhverfi var Rann-
veig móðursystir okkar, sem var
yngst sjö systkina frá Hraun-
gerði í Álftaveri, en nú eru þau
öll látin.
Í Hraungerði var víst oft glatt
á hjalla, þrátt fyrir mikla fátækt
og erfiðar aðstæður. Þannig
sagðist Rannveig muna vel, þótt
hún hafi aðeins verið á fjórða
ári, þegar Sigríður systir henn-
ar, þá sex ára, var send í fóstur.
Hún sagðist hafa grátið mikið
þegar Sigga systir var að fara í
burtu.
Þegar Sigrún móðir þeirra dó
58 ára gömul, hafði Halldór fað-
ir þeirra ekki áhuga eða yndi af
því að vera lengur í Álftaverinu,
og fóru þá Halldór og börnin að
vinna hér og þar í nokkur ár.
Síðan stofnuðu fjögur systkinin
heimili saman í Reykjavík.
Fyrsta heimilið sem við munum
eftir var á Smyrilsveginum og
þar var þröngt búið.
Rannveig var dugleg kona og
vann erfiðisvinnu allan sinn
starfsaldur, mest við þrif og
ræstingar, oft á mörgum stöðum
og þar á meðal við þrif hjá
Áfengis- og tóbaksverslun rík-
isins, Alþingi og Heildverslun
Árna Jónssonar.
Það var mikil hamingja fyrir
Rannveigu að eignast Halldór
Rúnar og var hann gleðigjafi
heimilisins. Mikil breyting varð í
lífi Rannveigar og annarra á
heimilinu þegar Rúnar fékk bíl-
próf. Þá var keyptur bíll og nú
gat fjölskyldan ferðast, gjarnan
austur í Álftaver eða upp í Borg-
arfjörð til Siggu systur sinnar,
móður okkar. Oftast voru þau
fjögur til fimm sem komu saman
og þótti okkur systrum það ekki
verra á sumrin að fá þá að sofa
úti í hlöðu. Rannveigu þótti sér-
staklega gaman að koma í heim-
sókn að Ferjubakka þegar sauð-
burður stóð yfir og hún elskaði
að halda á lömbunum. Á efri ár-
um eignaðist Rannveig páfa-
gauk sem hún tók miklu ást-
fóstri við. Páfagaukurinn hét
Gutti og sannarlega var hann
Rannveigu góður félagi, sérstak-
lega þegar hún var ein heima.
Líklega hefur það verið
Rannveigu erfitt þegar Stella
systir hennar flutti til Svíþjóðar,
níutíu og eins árs, þá voru þær
aðeins tvær eftir af systkina-
hópnum. Að endingu viljum við
systur þakka alla þá gestrisni og
hlýju sem við nutum þegar við
komum í heimsókn í Stigahlíð-
ina.
Við og fjölskyldur okkar
sendum Rúnari frænda samúð-
arkveðjur.
Inga og Guðrún (Dúna)
Ferjubakka.
Rannveig
Halldórsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má
finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má
smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi
lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Minningargreinar