Morgunblaðið - 03.07.2012, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012
S
alome fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hún lauk
prófum frá Kvennaskól-
anum í Reykjavík 1945.
Auk húsmóðurstarfa
stundaði Salome skrifstofustörf við
Heildverslun Daníels Ólafssonar og
Co 1945-46, hjá atvinnudeild HÍ
1946-47 og hjá Mosfellshreppi 1967-
79, þar af aðalgjaldkeri hreppsins
1972-79.
Hún var varaoddviti Mosfells-
hrepps 1978-81 og oddviti þar 1981-
82, var landskjörinn alþm. Reykja-
neskjördæmis fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn 1979-83 og alþm.
Reykjaneskjördæmis 1983-95, var
forseti sameinaðs þings 1991 og for-
seti Alþingis 1991-95.
Salome var stjórnarformaður
Tjaldanesheimilisins 1974-80, var
varaformaður Kvenfélags Lágafells-
sóknar 1974-77, sat í hreppsnefnd
Mosfellshrepps 1966-82 og átti sæti í
ýmsum nefndum sveitarfélagsins,
var formaður Samtaka sveitarfélaga
í Reykjaneskjördæmi 1975-79, sat í
stjórn sjálfstæðisfélagsins Þorsteins
Ingólfssonar 1969-76, var formaður
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Kjósarsýslu 1972-80, sat í stjórn
Sjálfstæðisfélags Mosfellinga 1976-
78, sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins 1973-87 og 1989-96, var formaður
Samtaka eldri sjálfstæðismanna, var
formaður nefndar menntamála-
ráðherrra um heimili og skóla 1983-
87, var fulltrúi Íslands í Þingmanna-
samtökum Norður-Atlantshafsríkj-
Salome Þorkelsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis 85 ára
Hjónin Salome og eiginmaður hennar, Jóel Kristinn Jóelsson garðyrkjubóndi sem lést 2007. Myndin var tekin 2005.
Alltaf jafn pólitísk
Forsetainnsetning 1992 Frá vinstri: Vigdís Finnbogadóttir, forseti lýð-
veldisins, Davíð Oddsson forsætisráðherra, Guðrún Erlendsdóttir, forseti
Hæstaréttar, og Salome Þorkelsdóttir, forseti Alþingis.
Ég hélt reyndar upp á afmælið fyrir viku og var með létt boðfyrir vini og vandamenn sem heppnaðist vel. Ástæðan fyrirþví er að það er lítil stelpa á leiðinni á heimilið og því
ákváðum við að flýta afmælinu aðeins,“ segir Ágúst Guðmundsson,
slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, en hann fagnar fertugsafmæli
sínu í dag. Stúlkan sem von er á er annað barn Ágústs og Karólínu
Natalíu Karlsdóttur og þriðja barn Ágústs. Fjölskyldan er dugleg að
halda upp á afmæli stór og smá að sögn Ágústs og hún hafi meira að
segja haldið veislu fyrir hundinn. Gestirnir þar hafi þó flestir verið
tvífætlingar. „Þetta er félagsskapurinn. Það þarf ekki alltaf að vera
haugur af mat heldur bara að sýna sig og sjá aðra,“ segir hann.
Þó að Ágúst sé búinn að halda upp á afmælið með pompi og prakt
segir hann að það verði klárlega kökur á boðstólum í dag. Hann
verði að koma með köku í vinnuna fyrir samstarfsfélagana.
„Það verður að minnsta kosti eins og ein múffa. Maður verður að
fita félagana aðeins!“ segir hann.
Ágúst hefur starfað hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í að
verða fimm ár og lætur hann vel af starfinu. „Þetta er frábær vinnu-
staður, góðir félagar og starfið er skemmtilegt og krefjandi. Ég
stefni á að klára starfsferilinn þar. Það er orðið svo lítið eftir af ár-
unum,“ segir Ágúst og hlær dátt. kjartan@mbl.is
Ágúst Guðmundsson er fertugur í dag
Ágúst Hélt létt boð fyrir vini og vandamenn í síðustu viku.
Afmæli flýtt fyrir
komu lítillar stelpu
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Sigvaldi
Jóhannsson
er áttræður í dag
3. júlí, hann er
fæddur á Syðra-
Lágafelli á Snæ-
fellsnesi, en hef-
ur búið í Reykja-
vík síðan 1967.
Eiginkona Sigvalda er Helga Guðjóns-
dóttir, og eiga þau þrjú uppkomin
börn, 5 barnabörn og 1 barna-
barnabarn.
Árnað heilla
80 ára
Jasmín Fortes Traustadóttir, Eydís Kristinsdóttir og Rakel Lind Kristinsdóttir
hönnuðu og perluðu lukkupáfagauka og bjuggu til öskjur utan um þá. Þær seldu
svo fuglana í Spönginni í Grafarvogi og söfnuðu með því 11.411 kr. sem þær gáfu
Rauða krossi Íslands.
Söfnun
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður