Morgunblaðið - 03.07.2012, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er nokkur áskorun fólgin í því að
halda væntingunum innan skynsamlegra
marka. Sættu þig við það sem þú færð ekki
breytt.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur tilhneigingu til að halda í hlut-
ina af því að þú færð ekki af þér að losa þig
við þá. Ef þú slakar aðeins á eru miklu meiri
líkur á að þú dettir niður á lausnina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ef maður hugsar of mikið um það
sem er í vændum, hræðir það að líkindum úr
manni líftóruna. Þú verður fyrstur til að fá
merkilegar fréttir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er margt sem gengur þér í hag-
inn þessa dagana. Leyfðu hlutunum að gerj-
ast og taktu svo málið skipulega fyrir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að leysa fjárhagslegt vandamál
sem upp hefur komið, það ætti að ganga vel.
Njóttu þess bara að vera innan um fólk og
láta gott af þér leiða.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú verðurðu að halda þér til hlés og
ýta frá þér fólki sem tekur frá þér orku.
Leyfðu lífsgleði þinni að njóta sín.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einhverjar breytingar eru yfirvofandi svo
láttu hendur standa fram úr ermum í stað
þess að leggjast í kör. Vertu sáttur við sjálfan
þig og haltu glaður fram á veginn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að fá útrás fyrir sköp-
unarþrá þína svo þú kafnir ekki. Skildu af-
stöðu vina þinna og þú verður ríkari af og
færð um leið betri hljómgrunn fyrir þínar
hugmyndir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Farðu varlega í öllum viðskiptum
og þá sérstaklega fasteignaviðskiptum. Að-
stæður eru góðar fyrir allt sem viðkemur út-
gáfu, æðri menntun og lögum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú verður ekki lengur hjá því kom-
ist að ræða málin. Notaðu tímann þinn til að
kynna þér þau mál sem snerta nútíðina svo
ekkert geti komið þér á óvart úr þeirri áttinni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Spennandi atburðum og/eða fólki
skýtur upp. Segðu hug þinn og farðu eftir eig-
in sannfæringu. Miðlaðu góðlátlegum og ein-
lægum orðum til einhvers sem hefur átt í
erfiðleikum að undanförnu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú sérð ekki fram úr augum vegna
anna og þarft að komast frá í smátíma.
Reyndu að dæma aðra með sama umburð-
arlyndinu og þú vilt verða dæmdur með.
Benedikt Jónsson orti á laug-ardag þegar fólk var með
hugann við forsetakosningar og
úrslitaleikinn á Evrópumóti lands-
liða:
Eftir dagsins argaþras
yfir litlu og stóru
ég fús mun styðja Fabregas
og forsetaefnið Þóru.
Friðrik Steingrímsson hafði aðra
sýn á úrslitaleikinn og kosning-
arnar:
Eftir dagsins argaþras
á það máttu stóla,
að fáir styðja Fabregas
og flestir kjósa Óla.
En þegar úrslit voru ráðin orti
Benedikt:
Eftir helgar bauk og bras
og baráttu um stóla.
Frækinn sigur Fabregas
fékk víst, ásamt Óla.
Og Friðrik klykkti út með:
Á því höfðu trölla trú
að tignar næðu stóli.
Fræknum sigrum fagna nú
Fabregas og Óli.
Helgi Seljan hrökk við er honum
barst sú fregn að stuðningsmenn
Ólafs Ragnars væru að fagna í Val-
höll, en þar vísar hann til kosn-
ingavöku ungra sjálfstæðismanna:
Fipaðist ég við fróman lestur,
fann ekki rétta samhengið.
Orðinn í Valhöll æðsti prestur
Óafur Ragnar með sitt lið?
Hallmundur Kristinsson fylgdist
með viðbrögðum frambjóðenda við
úrslitunum:
Þótt frambjóðendur breiða brosið
beri ennþá (næstum frosið)
hefðu sumir kannski kosið
að kætast yfir dálítið fleiri atkvæðum!
Að morgni dags orti Pétur Stef-
ánsson:
Þreytt af syfju þjóðin fagnar
þessum degi, huga glöðum.
Ennþá situr Ólafur Ragnar
í embætti á Bessastöðum.
Ekki fóru úrslitin eins vel í Krist-
ján Gauk Kristjánsson:
Ég daufur og lúinn mig lagði
og lítil var vonanna glóðin,
en eins og hún Ingibjörg sagði,
ekki er ég nú þjóðin.
Þá Jón Arnljótsson:
Hér má fagna happi stóru;
höfðu fáir um það grun
að fólkið myndi fella Þóru
og forða því að yrði hrun.
Kristján Eiríksson var með hug-
ann við aðra keppni um helgina:
Nú frísa og syngja þau fögur vers
og fagna með huga glöðum:
Ólafur Ragnar, ungur og hress,
og Alfa frá Blesastöðum.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af forsetakosningum
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
ÞÁ ER KOMIÐ AÐ UPPÁHALDS
SPURNINGAÞÆTTI ALLRA
„SPYRJIÐ ODDA”
ERTU TILBÚINN AÐ
HEYRA FYRSTU
SPURNINGUNA?
HMMM... ÞETTA VAR
EKKI SPURNINGIN
HVAÐ
VAR
ÞETTA
EIGIN-
LEGA?
ÉG HELD AÐ HRÓLFUR HAFI
VERIÐ AÐ BRJÓTA EITT AF
NÝÁRSHEITUNUM SÍNUM
HVAÐ
ER
ÞETTA?
ÞETTA
ER STAF-
SETNINGAR-
ÆFING
ÞÚ GETUR EKKI SKILAÐ
ÞESSU SVONA. ÆFINGIN ER
ALLTOF SKÍTUG, ÉG HEF
ALDREI SÉÐ ANNAÐ EINS
ÞÚ ÁTT
EFTIR AÐ FÁ
FALLEINKUNN
ÆTLI
ÞAÐ
EKKI
ÁTTU
BLAÐAHREINSI?
ÉG ER EKKERT HRÆDDUR
VIÐ YKKUR, ÞIÐ ERUÐ BARA
LEIKFÖNG OG ÞETTA ER BARA
LEIKFANGABYSSA
VARSTU AÐ
KOMA ÚR
BIKINIVAXI?
KOMDU
MEÐ
BRUNAÁBURÐ,
SVONA VERTU
FLJÓTUR
Víkverja þótti Bjarni Guðjónsson,fyrirliði KR, standa sig ljóm-
andi vel í lýsingum og sparkskýr-
ingum frá Evrópumótinu í knatt-
spyrnu sem lauk um helgina. Hann
bar raunar af öðrum mönnum á
RÚV. Bjarni var mjög öruggur í
öllum sínum aðgerðum, skýr í fram-
sögn, hélt sig við efnið og var fljót-
ur að greina kjarnann frá hisminu.
Það er góður kostur hjá lýsanda.
Bjarni hlýtur á hinn bóginn að
hafa sett Íslandsmet í notkun orða-
sambandsins „í raun og veru“, all-
tént í sjónvarpi. Víkverji hleypti að-
eins brúnum yfir þessu í upphafi en
fór fljótlega að kunna ágætlega við
þennan kæk, „í raun og veru“ er
mun tignarlegri málhækja en til
dæmis „hérna“ eða „sko“.
Bjarni hefur þetta augljóslega
frá föður sínum, hinum skelegga
sparkvísindamanni Guðjóni Þórð-
arsyni en hann hefur mjög líklega
sagt „í raun og veru“ oftar en aðrir
núlifandi menn – jafnvel allir til
samans. Gaman væri að sjá og
heyra oftar í hinum sonum Guðjóns
í sjónvarpi eða útvarpi til að átta
sig á því hvort þeir hafi erft þessa
tignarlegu málhækju líka.
x x x
EM-stofan á RÚV var því miðurekki nægilega vel heppnuð.
Víkverji vonaði nefnilega innilega
að hún yrði góð. Einar Örn Jónsson
er fínn sjónvarpsmaður og gerði
allt sem í hans valdi stóð til að
byggja upp stemningu en allt kom
fyrir ekki. Svörunin var einfaldlega
ekki nægilega góð frá
sérfræðingunum.
Hermann Hreiðarsson átti að
bera stofuna uppi með Einari Erni,
maður sem Víkverji hefur heimildir
fyrir að sé einn sá allra skemmti-
legasti á þessu landi. Það skilaði sér
ekki þarna, Hermann var daufur og
hafði merkilega fátt til málanna að
leggja. Aðrir náðu sér ekki á strik.
Hrapið var mikið enda var EM-
stofan í umsjá Þorsteins Joð á
heimsmælikvarða á síðasta stór-
móti, HM 2010. RÚV þarf að ganga
strax til samninga við Þorstein
vegna næsta stórmóts!
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í saman-
burði við þá dýrð, sem oss mun opin-
berast. (Rm. 8, 18.)
Síðumúla 16 ~ 108 Reykjavík ~ Sími: 580 3900 ~ fastus.is
Bjóðum upp á margar gerðir
af rafskutlum
Hafðu samband og við hjálpum þér að finna rafskutlu við hæfi
Fjölbreytt úrval
af rafskutlum
Njótum lífsins
Fastus til framtíðar