Morgunblaðið - 03.07.2012, Page 31
AF STJÖRNU
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hann á afmæli í dag, Holly-wood-leikarinn og -fram-leiðandinn Tom Cruise.
Tommi á stórafmæli, eins og allir
vita sem fylgst hafa með fréttum af
honum undanfarnar vikur, orðinn
hálfrar aldar. Og hafi menn ekki
heyrt af því að Tommi er á Íslandi við
tökur á rándýrri kvikmynd, Oblivion,
hljóta þeir hinir sömu að hafa dvalið
á afskekktum stað sem fjölmiðlar ná
ekki til. Lúsiðnir papparassar,
laumuljósmyndarar, hafa náð mynd-
um af kappanum í silfurgalla á töku-
stað og á ferðum sínum í þyrlu, m.a.
við eðalbústaðinn Hrafnabjörg í ná-
grenni Akureyrar sem hann mun
hafa fyllt með eigin húsgögnum. Já,
Tommi er moldríkur og gerir hlutina
eftir sínu höfði. Heyrst hefur að á
annan tug stæða fyrir einkaþotur
hafi verið pantaður á Akureyrarflug-
velli og þá líklega fyrir þotur
frægðarmenna sem ætla í fimmtugs-
afmælisveislu (Beckham-hjónin, Will
Smith og Jada Pinkett-Smith
kannski?) en engin staðfesting hefur
fengist á því. Þá hefur einnig heyrst
að eðalvagnar, þ.e. limmósínur, hafi
verið pantaðir norður og þá líklega
til að ferja frægðarmennin í afmæl-
isteitina en ekkert hefur heldur feng-
ist staðfest í þeim efnum. Pappa-
rassar munu án efa sitja um Tomma
og beina að honum myndavélalinsum
á stærð við fallbyssur. Limmur og
einkaþotur fara varla framhjá þeim.
En Tommi er sennilega ekki ímiklu afmælisstuði. Hann
stendur á tímamótum. Eiginkona
hans, Katie Holmes, óskaði eftir
skilnaði í síðustu viku og fullu for-
ræði yfir dóttur þeirra, Suri, skv. er-
lendum f́réttum. Þar með lýkur
þriðja hjónabandi Cruise. Slúður-
miðlar hafa auðvitað velt sér upp úr
þessu, eins ósmekklegt og það nú er
að velta sér upp úr hjónaskilnuðum.
Síðustu ljósmyndirnar sem náðust af
hjónunum voru teknar af ljósmynd-
ara Morgunblaðsins sem sá þau fyrir
tilviljun á gangi í Þingholtunum. Þær
hafa nú verið keyptar af vefnum
Splash og seldar þaðan á ýmsa slúð-
urmiðla, m.a. TMZ. Slúðurmiðlar
þykjast hafa skýringar á því af
hverju Holmes hefur fengið nóg af
Cruise. Hann sé heltekinn af boð-
skap Vísindakirkjunnar, enda hátt-
settur innan hennar og Holmes ótt-
ist að Suri verði soguð inn í þann
einkennilega söfnuð. Skal engan
undra því kenningar þeirrar kirkju
eru vægast sagt undarlegar, þeim er
m.a. lýst svo á Vísindavefnum:
„Samkvæmt kenningum Vísinda-
kirkjunnar er manneskjan hvorki
hugur né líkami heldur andleg vera,
þetan. Hugurinn skiptist í tvennt,
rökræna vitund og svo undirvitund
sem bregst við ýmiss konar áföllum
og áreiti, bæði andlegum og líkam-
legum, sem einstaklingurinn verður
fyrir um ævina. Þetta áreiti er sagt
skilja eftir sig ör, engrams, á und-
irvitundinni og þessi ör eru undirrót
helstu vandamála sem viðkomandi á
við að stríða.“ Einmitt! Og hvernig
losar Vísindakirkjusöfnuðurinn sig
við þau sálrænu ör? Jú, með viðtals-
ferli (e. auditing) en í því er notaður
svokallaður E-mælir sem ku mæla
andlega vanlíðan viðkomandi, nánar
tiltekið rafsegulnám líkamans. Tak-
mark Vísindakirkjufólks sé að verða
„Operating Thetan“ (virkur þetani?)
sem hafi náð fullkomnun og geti
hafið sig yfir efni og orku, tíma og
rúm. Jamm. Þessu trúir sumsé Tom
Cruise og fjöldi frægðarmenna í
kirkjunni. Nema þetta sé allt saman
einn stór brandari? Nei, svo er víst
ekki.
Þessi furðutrú breytir því þóekki að Tommi er stórstjarna
og hvíta tjaldið fer honum vel. Hann
hefur oft hagað sér undarlega í við-
tölum, m.a. glímt við Opruh Winfrey
og hoppað í sófanum hennar og tal-
að gegn notkun lyfja við fæðingar-
þunglyndi. Við skulum samt ekkert
vera að velta okkur upp úr því á af-
mælisdeginum hans. Til hamingju
með afmælið, Tommi og njóttu
dvalarinnar á Íslandi.
Tommi á
tímamótum
Fimmtugur Thomas Cruise Mapother IV, þ.e. Tom Cruise, á fimmtugs-
afmæli í dag. Hér sést kappinn í kvikmyndinni Top Gun frá árinu 1986.
» Papparassar munuán efa sitja um
Tomma og beina að hon-
um myndavélalinsum á
stærð við fallbyssur.
Limmur og einkaþotur
fara varla framhjá þeim.
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012
Kammerkórinn Schola cantorum
mun halda hádegistónleika á mið-
vikudögum í sumar í Hallgríms-
kirkju og hefjast þeir kl. 12. Á
morgun mun kórinn syngja fagra
íslenska og erlenda kirkjutónlist og
verða tónleikarnir um hálftíma
langir. Kórinn var stofnaður árið
1996 af stjórnanda hans, Herði Ás-
kelssyni, kantor við Hallgríms-
kirkju. Kórinn hefur farið víða í
tónleikahaldi innanlands sem utan
og þá m.a. til Þýskalands, Frakk-
lands, Ítalíu og Japan. Þá hefur
hann gefið út marga geisladiska og
starfað með Björk og Sigur Rós .
Morgunblaðið/Golli
Sungið Schola cantorum syngur í Hallgrímskirkju á hádegi á miðvikudögum í sum-
ar. Tónleikarnir hefjast allir kl. 12. Hér sést kórinn á æfingu með stjórnanda sínum.
Schola cantorum
á miðvikudögum
Leikprufur fyrir kvikmyndina
Vonarstræti, sem Baldvin Z mun
leikstýra, fóru fram laugardaginn
sl. og mættu yfir 400 stúlkur í pruf-
urnar en leitað var að efnilegum,
ungum leikkonum í nokkur hlut-
verk í myndinni. Leitað er að stúlk-
um á aldrinum 5-8 ára annars veg-
ar og 13-17 ára hins vegar. Tökur á
myndinni hefjast á næsta ári. Havarí Baldvin Z stóð í ströngu.
400 sóttu prufur
Umhverfisvæn ræsting
með örtrefjum
Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700
raestivorur.is
Ræsting með örtrefjaklútum
og moppum er hagkvæmari
og skilar betri árangri
Þar sem gæðagleraugu kosta minna
ReykjavíkuRveguR 22 • S. 565 5970 • SjonaRholl.iS
SJÓNARHÓLL
4 VERÐ Á
UMGJÖRÐUM
19.900
14.900
9.900
4.900
Nú geta ALLIR keypt sér gleraugu
Sjónmælingar
á staðnum