Morgunblaðið - 03.07.2012, Síða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Þrjár hljómsveitir mæta aftur til
leiks eftir nokkurra ára hlé á Bestu
útihátíðina 2012, helgina 5.-8. júlí.
Það eru töffararnir í 200.000 nagl-
bítum, konungar sveitaballanna í
Sóldögg og rokkararnir í Botnleðju.
Endurkomu þessara hljómsveita
hefur verið beðið í áraraðir en
Botnleðja hélt sína fyrstu tónleika
til margra ára á Gamla Gauknum
15. og 16. júní sl. Hljómsveitirnar
munu flytja öll sín þekktustu lög á
föstudags- og laugardagskvöld.
Rappkonungur Íslands, Blaz
Roca, ætlar einnig að trylla lýðinn.
Ein vinsælasta hljómsveit landsins
þessa dagana, Blár Ópal, mun
koma fram og flytja lagið „Stattu
upp“ sem var hársbreidd frá því að
verða framlag Íslands í Evróvisjón
í ár og hinn dularfulli Gabríel mun
einnig láta sjá sig ásamt Opee en
saman hafa þeir átt tvö af vinsæl-
ustu lögum landsins það sem af er
ári. Hinn umdeildi Gísli Pálmi mun
að sjálfsögðu ekki láta sig vanta,
ekki heldur Páll Óskar, Ingó og
Veðurguðirnir, Sykur, Ourlives,
Agent Fresco, Á móti sól og margir
fleiri.
Besta útihátíðin er haldin í þriðja
sinn, í annað skipti á Gaddstaða-
flötum á Hellu en landsmót hesta-
manna hafa mörg hver verið haldin
á þessu svæði og nægt rými ætti að
vera fyrir áætlaðan fjölda sem er í
kringum 6-8 þúsund manns. Í fyrra
mættu rúmlega 10 þúsund manns.
Instagram-myndakeppni
Boðið verður upp á ofurhljóð-
kerfið Funktion One á hátíðinni en
það mun vera hið stærsta sinnar
tegundar á landinu og ku vera líkt
og Rolls Royce. Eigendur þess
fagna tveggja ára afmæli hljóð-
kerfisins og bættu við það til að
halda sérstaklega upp á það. Kerf-
ið verður í sér tjaldi þar sem
plötusnúðarnir Óli Ofur, Mr. Cu-
ellar, Ghozt og Droog þeyta skíf-
um en þeir munu ríða á vaðið á
fimmtudagskvöld þegar svæðið
verður opnað.
Instagram-myndakeppni verður
haldin þar sem fólk er hvatt til að
senda inn alls kyns stemnings-
myndir af hátíðinni. Veitt verða
þrenn verðlaun fyrir þemun vin-
sælasta, besta og skemmtilegasta
myndin. Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem slík keppni er haldin.
Fólk tekur mynd, sendir hana og
henni verður varpað upp á alla
skjái á svæðinu og tónlistarfólk af
hátíðinni verður í dómnefnd.
Kristinn Bjarnason, markaðsstjóri
hátíðarinnar, segir að myndunum
verði ritstýrt og því birtist ekki
hvað sem er á skjánum.
Ekkert rusl að þessu sinni
Í fyrra á Bestu útihátíðinni var
talsvert af rusli og drasli eftir
skemmtanahaldið á Gadd-
staðaflötum. Aðstandendur voru
mjög lengi að tína saman rusl af
svæðinu og skila því í viðunandi
ástandi. Haraldur Ási Lárusson,
skipuleggjandi hátíðarinnar, seg-
ir, „að breytt skipulag verði að
þessu sinni, fleiri koma að því þar
sem hver og einn hafi afmarkaðra
hlutverk en áður. Einn umsjón-
armaður verður með hverju
svæði.“ Að þessu sinni verður
„ruslavakt“ allan daginn en ekki í
afmarkaðan tíma eins og síðast
sem var ein helsta ástæðan fyrir
útganginum. Einnig verður betra
aðgengi að ruslagámum. „Ég má
ekki hafa ruslatunnur á svæðinu,
vegna íkveikjuhættu. Þess vegna
fer þetta eins og það fer, alveg
eins og á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum,“ segir Haraldur.
Alltaf hægt að
gera betur
„Lögreglan verður með meiri
mannskap í gæslunni en í fyrra
þó hún hafi verið góð en það var
engin nauðgun tilkynnt og ekki
mikið um líkamsárásir miðað við
10 þúsund manns á svæðinu. Við
getum alltaf gert betur,“ segir
Haraldur. Á hátíðinni er einnig
vísað í kjörorðið „Karlmenn segja
nei við nauðgunum.“
Endurkomur á Bestu útihátíðinni
200.000 naglbítar, Botnleðja og Sóldögg halda tónleika eftir langt hlé Stærsta hljóðkerfi landsins
Yfir 50 atriði á dagskránni 6-8 þúsund manns áætlaður fjöldi Öflugri gæsla í ár
Kroppur Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, á Bestu útihátíðinni í fyrra með hljómsveit sinni Í svörtum fötum.
bestautihatidin.is.
Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á
Bestu útihátíðinni 2012 á Gaddstaðaflötum á
Hellu. Veislan hefst fimmtudagskvöldið 5. júlí og
lýkur á sunnudaginn. Troðið verður upp á fjórum
sviðum og þar af verður eitt aðalsvið.
Á föstudagskvöldið á aðalsviðinu hefur Stuðla-
bandið upp fjörið og sveitaballahljómsveitirnar Á
móti sól og Selfyssingarnir úr Skítamóral hita
upp áður en Beggi og félagar í Sóldögg spila.
Rokkararnir úr Botnleðja taka því næst við og
þá Ingó og Veðurguðirnir en Blaz Roca slær botn-
inn í föstudagskvöldið.
Hljómsveitin GusGus mun spila á laugardagskvöld á eftir dans-
poppsveitinni Sykri og poppkónginum Páli Óskari. 200.000 naglbít-
ar taka svo við keflinu og rokka fram í nóttina en Plugg’d mun ljúka
fjörinu.
Fjölbreytt tónlist við allra hæfi
TÓNLISTARVEISLA Á GADDSTAÐAFLÖTUM
Blaz Roca
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
WHAT TO EXPECT... Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15
MADAGASCAR 3 3D Sýnd kl. 4 - 6
MADAGASCAR 3 2D Sýnd kl. 4
INTOUCHABLES Sýnd kl. 4 - 8 - 10:20
SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN Sýnd kl. 7 -10
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þriðjudagstilboð
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
Einstök perla sem er orðin
langaðsóknarhæsta mynd allra tíma,
af þeim sem eru ekki á ensku.
ÍSL TEXTI
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MYNDIN SEM ALLIR
ERU AÐ TALA UM!
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
WHAT TO EXPECT WHEN... KL. 5.45 - 8 - 10 L
PIRANHA 3D KL. 10.20 16
PROMETHEUS KL. 5.45 - 8 16
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS
“HEILLANDI LEIKUR OG FALLEG SAGA.”
- H.S.S, MBL
- ROGER EBERT
STARBUCK KL. 5.30 - 8 - 10.20 L
WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING KL. 5.35 - 8 - 10.25 L
INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
PROMETHEUS 3D KL. 6 - 9 16
“BÆTIR, HRESSIR OG KÆTIR.”
- H.V.A., FBL
WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING KL. 5.35 - 8 - 10.25 L
WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING LÚXUS KL. 5.35 - 8 L
MADAGASCAR 3D ÍSL.TAL KL. 3.40 - 5.50 L
MADAGASCAR 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 L
PROMETHEUS 3D KL. 5.20 - 8 - 10.30 16
PROMETHEUS 3D LÚXUS KL. 10.30 16
PROMETHEUS 2D KL. 10 16
MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10
PIRANHA 3D KL. 8 16