Morgunblaðið - 04.07.2012, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012
Opið: mán-fös 12:30 - 18:00 Dalvegi 16a - Rauðu múrsteinshúsunum, 201 Kópavogi - S. 517 7727 - nora.is
Frönsk húsgögn
og búsáhöld
fyrir bústaðinn
og heimilið
Nýjar vörur
í úrvali
Hjólaborð 105.600.-
Opin hilla 26.700.-
Glerskápur með hillu 53.400.-
Stóll 19.500.-Sessur frá 2.990,-
Lampar og skermar
í úrvali
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
Akureyringar þurfa ekki að sýta Evr-
ópumótið í knattspyrnu því um
helgina verður blásið til tveggja fjöl-
mennra fótboltamóta þar í bæ. N1-
mót KA og pollamót Þórs fara bæði
fram um helgina og er von á um tvö
þúsund fótboltaköppum í tengslum
við mótin.
„Gríðarlegt umfang er á móti af
þessu tagi og í mörg horn að líta,“
segir Óskar Þór Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
KA, en N1-mót félagsins fyrir 5. flokk
drengja verður haldið frá fimmtudegi
til sunnudags. Þar keppa 11 og 12 ára
fótboltakappar.
Allt þarf að ganga upp
„Alls eru skráð til leiks 152 lið frá
38 félögum um allt land,“ segir Óskar
Þór en að hans sögn munu alls 1.350
keppendur taka þátt. „Síðan bætist
við mikill fjöldi fararstjóra og þjálf-
ara, svo ekki sé talað um foreldra, svo
í heildina eru þetta nokkur þúsund
manns,“ segir hann.
„Við höfum borið gæfu til að vera
með vaskan hóp fólks sem gengur að
sínum verkum í framkvæmd og
skipulagningu mótsins frá ári til árs
og kann þetta gríðarvel. Öðruvísi
væri þetta einfaldlega ekki mögu-
legt,“ segir Óskar Þór.
„Allt þarf að ganga upp og tíma-
setningar verða að standast til þess
að allt fari ekki úr skorðum,“ bætir
hann við en skipuleggjendur mótsins
sjá einnig keppendum og aðstand-
endum fyrir næringu meðan á því
stendur. „Við berum fram morgunmat
og heitar máltíðir fyrir um 1.700
manns. Matmálstíminn þarf því að
vera vel skipulagður svo að allir fái sitt
og stundataflan haldist,“ segir Óskar
Þór.
Mótið er nú haldið í 26. skipti.
„Þetta er gefandi og skemmtilegt ef
vel gengur,“ segir Óskar Þór. „Það er
ofsalega gaman að upplifa gleðina hjá
krökkunum og stemninguna sem
myndast, sérstaklega ef veður er
gott.“
Að hans sögn nýta margar fjöl-
skyldur mótið sem ástæðu til að skella
sér í frí norður. „Síðdegis á fimmtu-
degi og föstudegi er dagskránni hagað
þannig að keppendur hafi frjálsan
tíma til að verja með fjölskyldum sín-
um. Þær stundir eru gjarnan nýttar til
að gera eitthvað saman, fara út að
borða eða njóta bæjarins,“ segir hann.
Pollamót Icelandair og Þórs er sem
fyrr segir haldið þessa sömu helgi.
Mótið fer fram á Þórsvellinum og er
fyrir 30 ára og eldri. „Þetta eru gamlar
kempur í misgóðu ástandi sem koma
alls staðar að til að sinna aðaláhuga-
málinu,“ segir Aðalsteinn Pálsson, for-
maður knattspyrnudeildar Þórs.
Feðgar mæta til leiks
Hann segir nokkuð algengt að feðg-
ar leggi leið sína norður þessa helgi til
að keppa í fótbolta. „Oft er þetta sam-
einað, menn sem eiga gutta á N1-
mótinu skella sér sjálfir í keppni á
pollamótinu. Úr þessu verður svo
skemmtileg fjölskylduferð,“ segir Að-
alsteinn. „Hér er alltaf mikið um að
vera og líf og fjör í kringum mótið,“
bætir hann við.
Að sögn Aðalsteins eru um 50-60 lið
skráð til leiks, eða um 400-600 kepp-
endur. Skemmtilegir viðburðir eru
haldnir í tengslum við mótið. „Þetta er
í 25. sinn sem mótið er haldið og þess
vegna verður það sérlega veglegt í ár.
Haldin verður grillveisla fyrir alla
bæjarbúa þar sem Ingó veðurguð og
Jónsi í Svörtum fötum munu
skemmta,“ segir Aðalsteinn. „Heið-
ursgestur mótsins í ár verður Ellert B.
Schram, fyrrverandi formaður KSÍ
sem tók þátt í fyrsta mótinu fyrir 25
árum. Ég veit ekki hvort hann mun
reima á sig skóna, það verður að koma
í ljós.“
Tvöföld fótboltaveisla á Akureyri
Ungir og eldri fótboltakappar leggja leið sína norður til að keppa í knattspyrnu Liðlega tvö
þúsund keppendur ásamt fararstjórum og þjálfurum Þriðja stærsta ferðahelgin á Akureyri
Mót Tvö fjölmenn fótboltamót verða haldin á Akureyri um næstu helgi, N1-mót KA og pollamót Þórs.
Ætla mætti að viðbúnaður lög-
reglunnar á Akureyri væri aukinn
í tengslum við þá miklu fólks-
fjölgun sem verður í bænum um
helgina. Að sögn Þórarins Jó-
hannessonar, varðstjóra lögregl-
unnar á Akureyri, gerist ekki þörf
á slíku. „Mótin hafa langoftast
farið friðsamlega fram og engin
þörf á afskiptum. Mikill fólksfjöldi
þarf ekki að þýða aukin vand-
ræði,“ segir Þórarinn. „Menn eru
svo þreyttir eftir allan fótboltann,
að engin orka er eftir til afbrota.“
Orkan fer
í rétta átt
ENGAR FÓTBOLTABULLUR
FYRIR NORÐAN
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson