Morgunblaðið - 04.07.2012, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012
● Töluvert dró úr atvinnuleysi á
Spáni í júnímánuði eða um 2,1%.
Alls fækkaði um tæplega 99 þúsund
manns á atvinnuleysisskrá.
Samkvæmt upplýsingum frá
vinnumálaráðuneytinu eru 4,62
milljónir Spánverja án atvinnu. Ekki
hefur fækkað jafn mikið á atvinnu-
leysisskrá á Spáni í júnímánuði frá
því ráðuneytið fór að taka saman
þessar tölur árið 1996. Hvergi í Evr-
ópu er atvinnuleysi jafn mikið og á
Spáni.
Fleiri með vinnu á Spáni
AFP
Spánn Ferðamannatíminn á Spáni er haf-
inn, sem dregur heldur úr atvinnuleysi.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Norskir kaupsýslumenn keyptu 45% í bílaleig-
unni ALP, sem rekur Avis og Budget hér á
landi, í byrjun sumars. Þeir fóru fjárfesting-
arleiðina og því má gera sér í hugarlund hvað
þeir keyptu hlutinn á. Áætla má að þeir hafi
keypt hlutinn á um 614 milljónir króna sem
þýðir að verðmæti ALP er um 1,36 milljarðar
króna. Hafa ber í huga að hér er verið að draga
ályktanir um verðmæti viðskiptanna út frá
skuldabréfi og gengi gjaldmiðla sem sveiflast
nokkuð. Raunverulegar upphæðir gætu verið
aðrar en þetta ætti að gefa grófa mynd af um-
fangi viðskiptanna. Hvorki forsvarsmaður
Norðmannanna né framkvæmdastjóri ALP
vildu tjá sig um kaupverðið.
Viðskiptablaðið sagði frá því í lok maí að
Norðmenn sem reka bílaleigurnar Avis og Bud-
get í Skandinavíu hefðu keypt 45% hlut í ALP.
Norðmennirnir keyptu hlutinn af Inga Guð-
jónssyni og Ársæli Hreiðarssyni. Hjálmar Pét-
ursson, framkvæmdastjóri ALP, fer með 55%
hlut ásamt tveimur öðrum stjórnendum. Fram
kom í fréttinni að ALP væri um 10% af um-
fangi skandinavíska félagsins sé litið til bíla-
fjölda. Þegar hvað mest er að gera í sumar mun
ALP reka um 1.600 bíla.
Dag Andre Gimle Johansen, framkvæmda-
stjóri norska fyrirtækisins RAC Scandinavia
sem rekur bílaleigurnar, segir við Morgunblað-
ið að fyrirtækið sé að fjárfesta í ALP til langs
tíma. Hann segist vera mjög hrifinn af Íslandi
en hann kom fyrst hingað til lands einungis 13
ára gamall og fór í sumarbúðir. Síðan þá hefur
hann komið hingað um það bil 20 sinnum. Og er
afar kátur með að „geta fjárfest í þessu frá-
bæra fyrirtæki sem starfar í frábæru landi“.
því gera ráð fyrir að þeir hafi farið með um það
bil 1,5 milljónir evra í gegnum fjárfestingarleið-
ina. Reglurnar kveða á um að það þurfi að
koma með jafn mikið af fjármagni til landsins á
hefðbundnum kjörum. Gengið er núna 158. Þeir
hafa því komið með aðrar 1,5 milljónir evra til
landsins og keypt krónur fyrir á hefðbundnu
gengi. Það gerir um 244 milljónir, samtals 614
milljónir króna. Samkvæmt þessum forsendum
má áætla að hluturinn hafi kostað um 614 millj-
ónir.
Fjárfestingarleiðin gefur innsýn í kaupin
Norðmennirnir gáfu út skuldabréf fyrir um
370 milljónir í maí. Þess er krafist til að fara
fjárfestingarleið Seðlabankans en hún er liður í
því að vinna á aflandskrónuvandanum. Ef horft
er til gjaldeyrisútboðs Seðlabankans, sem
bankinn sagði frá í frétt 9. maí, var gengi krónu
fyrir hverja evru 239.
Mögulega keyptu Norðmennirnir á öðru
gengi, en það hefur verið á þessu róli. Það má
ALP um 1,3 milljarða virði
Bílaleiga Norðmennirnir fóru fjárfestingarleið Seðlabankans. Hún veitir betri kjör á krónukaupum.
Norðmenn keyptu 45% hlut líklega fyrir rúmar 600 milljónir króna
Reka stóra bílaleigu í Skandinavíu Segjast vera að fjárfesta til langs tíma
● Microsoft tilkynnti í gær um 6,2 millj-
arða dala afskriftir, jafnvirði um 775
milljarða íslenskra króna, vegna áætl-
ana sem gengu ekki eftir um að vera
stór aðili á netauglýsingamarkaði.
Fréttavefur BBC sagði í frétt í gær að
Microsoft hefði þar með viðurkennt að
það byggist ekki við tekjum af slíkum
auglýsingum á næstu misserum.
Gjaldfærslan er sögð tilkomin vegna
kaupa Microsoft á fyrirtækinu Aquan-
tive árið 2007. Kaupverð var þá 6,3
milljarðar dala, sem var kostnaðarsam-
asta yfirtaka Microsoft til þess tíma. Microsoft Lítið um netauglýsingar.
Microsoft afskrifar 775 milljarða króna
● Viðskipti með hlutabréf um það bil
tvöfölduðust milli mánaða. Viðskiptin
námu 9,6 milljörðum í júní eða 456
milljónum á dag. Til samanburðar
nam veltan með hlutabréf í maí 4,7
milljörðum eða 234 milljónum á dag.
Mest voru viðskipti með bréf Ice-
landair Group, 4,3 milljarðar, með
bréf Haga 1,8 milljarðar, og með bréf
Össurar 1,6 milljarðar. Úrvalsvísitalan
(OMXI6) lækkaði um 1,1% milli mán-
aða og stendur nú í 1.057 stigum.
Heildarviðskipti með skuldabréf
námu 234 milljörðum í síðasta mán-
uði sem samsvarar til 11,1 milljarðs
veltu á dag, sama velta var á dag í
maímánuði, segir í tilkynningu.
helgivifill@mbl.is
Meira líf í Kauphöll
Forstjóri Barclays bankans í Bret-
landi, Bob Diamond, sagði af sér í
gærmorgun og hætti störfum þegar í
stað. Þetta kom fram í tilkynningu
sem bankinn sendi frá sér snemma í
gærmorgun. Síðdegis í gær var
framkvæmdastjórinn Jerry del Mis-
sier einnig látinn taka pokann sinn..
Í fyrradag sagði stjórnarformaður
bankans, Marcus Agius, af sér en
Barclays bankinn varð uppvís að því
að hafa haft ólögleg áhrif á milli-
bankavexti (LIBOR) og var í kjölfar-
ið sektaður um 290 milljónir punda,
eða sem svarar 57 milljörðum
íslenskra króna.
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, fagnaði afsögn
Diamonds. Cameron sagði í fyrra-
kvöld að breska þingið myndi hefja
umfangsmikla rannsókn á starfsemi
breskra banka í kjölfar málsins en
efnahagsbrotadeild bresku lögregl-
unnar, SFO, íhugar nú hvort hún
eigi að gefa út ákærur í tengslum við
málið.
Bob Diamond mun mæta fyrir
fjárlaganefnd breska þingsins í dag,
miðvikudag, og svara spurningum
um vaxtamisferli bankans.
Forstjóri Barclays
sagði af sér í gær
Bresk stjórnvöld fagna afsögnum
AFP
Farinn Bob Diamond, forstjóri
Barclays, sagði af sér í gær.
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./+
+01.-
+,/./2
,+.+02
,3.01-
+4.32
+/+.,
+.-105
+03.+
+-2.1+
+,-.1+
+01.04
+,/.2/
,+.,-0
,+.3,2
+4.+,/
+/+.-2
+.-25
+03.12
+-4.3-
,+4.0-4+
+,-.0+
+02.51
+,5.30
,+./,+
,+.340
+4.+21
+/+.05
+.-241
+0+.,5
+-4.50
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Íslenskir neytendur eru nú bjartsýnni
en þeir hafa verið frá því fyrir hrun,
samkvæmt Greiningu Íslandsbanka í
gær.
Þar kemur fram að væntingar til
efnahags- og atvinnulífs séu að aukast
hvort sem litið er til nútíðar eða fram-
tíðar. Væntingavísitala Capacent Gallup
var birt í gærmorgun og var vísitalan
fyrir júnímánuð 79,9 stig en leita þarf
aftur til maí 2008 til að finna hærra
gildi. Vísitalan hækkar um 6,6 stig frá
fyrri mánuði og er 14,5 stigum hærri en
á sama tíma í fyrra. Krónan hefur
styrkst um 3% frá síðustu mælingu,
verðbólgan er að hjaðna, atvinnuleysi
er komið niður í 5,6%, störfum er að
fjölga og kaupmáttur fer vaxandi.
Væntingar íslenskra neytenda að aukast
Bandaríski flugvélaframleiðandinn
Boeing hefur hækkað spá sína um
eftirspurn eftir farþegaflugvélum
næstu tuttugu árin í heiminum.
Spáir Boeing því að seldar verði
34 þúsund farþegavélar á næstu
tuttugu árum og metur þær á 4.500
milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði
562.500 milljarða íslenskra króna.
Fyrri spá Boeing hljóðaði upp á
33.500 vélar og 4 þúsund milljarða
dala, jafnvirði 500.000 milljarða
íslenskra króna.
Reuters fréttastofan greindi frá
þessu í gær. Boeing spáir því að
krafan um endurnýjun flugflotans
heimsins fari vaxandi á næstu árum,
ekki síst í Asíu.
Endurskoð-
ar spána