Morgunblaðið - 04.07.2012, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012
Júlía Margrét Alexandersdóttir
julia@mbl.is
Flestar ef ekki allar þær hátíðir
sem eru á dagskrá í sumar eru ár-
viss atburður í viðkomandi bæjum
eða héruðum. Heimafólk, brott-
fluttir sem og einfaldlega áhuga-
samir ferðamenn sækja bæi heim
til að hafa það notalegt saman og
hlusta á tónlist, taka þátt í leikj-
um, borða góðan mat og spjalla.
Þá er stærri hátíðir gjarnan að
finna um verslunarmannahelgi þar
sem aðkomufólk er í meirihluta.
Af nógu er að taka og hér má
sjá lista yfir rúmlega áttatíu hátíð-
ir en þess má geta að listinn er
ekki tæmandi heldur gefur ein-
hverja mynd af því sem er um að
vera og þá má geta þess að dag-
setningar geta stundum breyst.
Fyrir þá sem hyggjast sækja
hvers kyns hátíðarhöld er best að
tryggja áður, sérstaklega ef um
minni hátíðir er að ræða, að dag-
setningar standist. Það má gera
með því að hringja í viðkomandi
sveitarfélag og svo eru landshlut-
arnir allir með sína ferðavefi sem
finna má inni á is.visiticeland.com.
Verslunarmannahelgin
Ein með öllu er fjölsótt fjöl-
skylduhátíð á Akureyri sem í ár er
haldin á 150 afmælisári bæjarins.
Fastir liðir eur meðal annars
Kirkjutröppuhlaup og Dynheima-
ball svokallað sem og tónleikahald
á leikhúsflötinni.
Fjölskylduhátíð SÁÁ er að þessu
sinni haldin á tjaldsvæðinu að
Laugalandi í Holtum á Hellu. Fjöl-
breytt fjölskyldudagskrá er í boði
með leikjum, tónlist, listasmiðjum
og fleiru.
Fjölskyldudagar á Stokkseyri eru
árviss atburður. Söfnin á staðnum
verða opin, tilboð í gangi, ýmiss
konar viðburðir og tónlistarflutn-
ingur.
Innipúkinn er tónleikahátíð sem
haldin er í miðbæ Reykjavíkur um
verslunarmannahelgi. Þverskurður
af því sem er að gerast í íslensku
tónlistarlífi, hátt í þrjátíu hljóm-
sveitir troða upp og flestir tónleik-
arnir fara fram í Iðnó.
Írskir dagar á Akranesi eru bæj-
arhátíð fyrir alla fjölskylduna. Af
dagskrárliðum í ár má nefna ljós-
myndasýningar, tívolí, litboltavöll
og lifandi tónlistaratriði. Þá er
írskt stuðball um helgina.
Kántrýdagar á Skagaströnd eru
útihátíð með kúrekabrag fyrir fjöl-
skylduna með margvíslegum at-
burðum þar sem kántrýið er í önd-
vegi. Hátíðin hefur notið mikilla
vinsælda enda dagskráin afar fjöl-
breytt, leikir, tónlist, útigrill o.fl.
Mýrarboltinn er á léttum nótum
kallað Evrópumeistaramót í mýr-
arbolta en keppt er í Tunguskógi í
Skutulsfirði. Yfirskriftin er
„Drullumall á daginn, stanslaust
stuð á kvöldin“. Í keppnisgreinar
er alla jafnan 18 ára aldurstak-
mark. Ýmiss konar afþreying er í
boði meðan á mótinu stendur sem
og lokahóf.
Síldarævintýri á Siglufirði er sér-
stök fjölskylduskemmtun um
verslunarmannahelgina en hátíðin
hefur verið haldin í yfir 20 ár. Í ár
troða upp listamenn eins og Jógv-
an, hljómsveitin Upplyfting, Frið-
rik Ómar og Eva Karlotta.
Sæludagur í sveitinni eru sveita-
hátíð á laugardegi í Hörgársveit
sem haldin hefur verið undanfarin
ár. Uppákomur eru í boði fyrir alla
fjölskylduna á Hjalteyri, á Möðru-
völlum og víðar um daginn og um
kvöldið er dansleikur.
Sæludagar í Vatnaskógi eru fjöl-
skylduhátíð sem Skógarmenn
KFUM og KFUM og KFUK á Ís-
landi standa að. Hátíðin er vímu-
efnalaus og dagskráin er fjöl-
skylduvæn með fjölbreyttum
viðburðum.
Unglingalandsmót UMFÍ á Sel-
fossi er árviss fjölskyldu- og
íþróttahátíð þar sem unga fólkið
og fjölskyldur þess eru í aðal-
hlutverki. Hátíðin er vímuefnalaus.
Börn og unglingar á aldrinum 11 -
18 ára geta reynt með sér í fjöl-
mörgum íþróttagreinum og auk
þess er boðið upp á ýmiss konar
leiki og skemmtun fyrir fjölskyld-
una.
Verslunarmannahelgin á Flúðum
er skemmtun fyrir fjölskyldufólk
um verslunarmannahelgina sem
haldin hefur verið í fjölmörg ár.
Leikir og tónlist setja svip sinn á
hátíðina.
Þjóðhátíð í Eyjum er líklega ein
stærsta útihátíðin. Fjölmargir tón-
listarmenn og hljómsveitir troða
upp í Eyjum og þeirra frægust að
þessu sinni er líklega Ronan Keat-
ing. Þá mun Bubbi Morthens og
hollenska rapphljómsveitin Dope
DOD stíga á svið. Sérstök barna-
dagskrá verður líka í boði með
söngvakeppni barna, barnaballi,
Brúðubílnum ásamt söngvakeppni
barna.
Hrafnkelsdagurinn er skemmti-
dagskrá með sögulegu ívafi. Boðið
er upp á rútuferð með leiðsögn um
Fljótsdal og yfir í Hrafnkelsdal og
þaðan er farið að Aðalbóli og
formleg dagskrá hefst. Dagurinn
er haldinn í minningu Hrafnkels
Freysgoða.
Hátíðahöld um landið allt í sumar
Ýmiss konar hátíðahöld munu setja svip sinn á íslenska sumarið Fjölmargar
bæjar-, héraðs- og tónlistarhátíðir verða haldnar um allt land í júlí og ágúst
Drullumall Mýrarboltinn á Ísafirði er ekki fyrir snyrtipinna.
Mýrarbolti
Kántrýdagar
Ein með öllu
Sæludagar í Vaglaskógi
Síldarævintýri
Sæludagar í sveitinni
Unglingalandsmót UMFÍ
Verslunarmannahelgin á Flúðum
Þjóðhátíð í Eyjum
Innipúkinn
Írskir dagar
Fjölskyldudagar á Stokkseyri
Hrafnkelsdagur
Loftmyndir ehf.
Útihátíðir um verslunarmannahelgina
Vandvirkir Apparat á Innipúkanum.
Söngvaskáldin góðu er yfirskrift
Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði sem
hefst í dag og stendur til sunnudags.
„Við leggjum áherslu á fjölbreytileik-
ann og að engin tónlistarstefna sé yfir
aðra hafin. Þannig er hátíðin opin öll-
um sem vilja vinna með þjóðlagaarf-
inn,“ segir Gunnsteinn Ólafsson sem
stofnaði Þjóðlagahátíðina árið 2000 og
hefur verið listrænn stjórnandi henn-
ar frá upphafi.
Að sögn Gunnsteins hefur hátíðin
vaxið og dafnað frá stofnun. „Fyrstu
árin voru að jafnaði 8-10 tónleikar, en í
ár eru þeir 18. En við bjóðum ekki
bara upp á tónleika heldur líka leik-
sýningar og námskeið bæði tónlist-
arlegs eðlis og í handverki. Svo má
ekki gleyma að við erum með Þjóð-
lagaakademíu sem er námskeið á há-
skólastigi í íslenskri þjóðlagatónlist,“
segir Gunnsteinn.
Alls koma um 160 listamenn fram á
hátíðinni í ár, þar af taka ríflega
hundrað manns þátt í konsert-
uppfærslu á Don Giovanni eftir
Mozart sem flutt verður í íþróttahús-
inu á Siglufirði 8. júlí kl. 14, en nánari
umfjöllun um uppfærsluna verður hér
á síðum blaðsins þegar nær dregur.
Spurður hvað beri hæst á hátíðinni í
ár segir Gunnsteinn ómögulegt fyrir
hann að velja á milli. „Við erum að fá
frábæra listamenn frá Svíþjóð, þau
Mariu og Olof
Misgeld sem
kenna sænska
þjóðlagatónlist við
Tónlistarháskól-
ann í Stokk-
hólmi,“ segir
Gunnsteinn, en
María sem er
söngkona og Olof
sem er fiðluleikari
munu vera með
námskeið á hátíðinni og halda tón-
leika í Bátahúsinu í kvöld kl. 21.30.
„Einnig verð ég að nefna samíska
ljóðskáldið Niillas Holmberg og selló-
leikarann Roope Mäenpää sem flytja
munu söngva frá Samabyggðum,“
segir Gunnsteinn en tónleikar þeirra
verða í Bátahúsinu annað kvöld kl.
21.30.
Að sögn Gunnsteins hefur aðsókn-
in á hátíðina verið gríðarlega góð síð-
ustu ár og iðulega uppselt á tónleika.
„Við eigum von á því að selja um þrjú
þúsund sæti á hátíðinni sem dreifast
á marga tónleika,“ segir Gunnsteinn
og bendir á að margir hátíðargestir
nýti sér það að kaupa skírteini sem
veiti aðgang að öllum tónleikum há-
tíðarinnar.
Allar nánari upplýsingar um hátíð-
ina má finna á: www.folkmusik.is/is/
page/thjodlagahatidin-2012.
Áherslan er
á fjölbreytileika
Þjóðlagahátíðin haldin í tólfta sinn
Gunnsteinn
Ólafsson
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 10-18, LAUGARDAGA: LOKAÐ
MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM
SJÓNMÆLINGAR– LINSUMÁTANIR
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í YFIR 1
5 ÁR
T I L B O Ð
GLERAUGU
FRÁ 19.900,-
DAGLINSUR
FRÁ 2.500,-
PAKKINN