Morgunblaðið - 04.07.2012, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012
Það verðurekki afþeimMúgsefj-
unarmönnum skaf-
ið að þeir gera hlut-
ina eftir eigin höfði. Nýjasta plata
þeirra er lítt til þess fallin að unga út
smellum fyrir síbyljustöðvarnar en
þess líklegri að falla þeim í geð sem
kjósa eilítið efnismeiri músík til að
fóðra eyrun með. Platan, sem er sam-
nefnd sveitinni og önnur plata þeirra
fimmenninga, er kaflaskipt 13 laga
verk og hér er samið af metnaði,
kveðið af íþrótt og flutt af hæfi-
leikaríku harðfylgi. Fyrsti þriðj-
ungur plötunnar samanstendur af
vísnaskáldapoppi með háfleygum
ádeilutextum og margslungnum
hljómum. Þar stendur upp úr lagið
Sendlingur og sandlóa, sem er feiki-
gott. Þá tekur við sá hluti plötunnar
sem hvað mest fútt er í,
proggskotinn og göróttur. „Ferkönt-
uð sólin“ er til dæmis frábært lag
sem byrjar eins og eitthvert hljóm-
borðadrama með Rick Wakeman, til-
komumikið og voldugt. „Þórðargleði“
gæti næstum verið ævagamalt
Queen-lag, þar sem kúplað er milli
mismunandi hrynjandi fram og til
baka, og rólegu lögin sem platan end-
ar á virka eins og sögulok á langri og
mikilli frásögn.
Þar sem platan hverfist um ákveð-
ið konsept (góðæris- og hrunuppgjör,
mestanpartinn) og hefur nokkuð
skipulega framvindu virkar hún heil-
steypt áheyrnar og eitt leiðir mjög
skipulega af öðru. Sem fyrr segir er
auðheyrilega vandað mjög til verka,
hvert sem litið er, en stundum mús-
íkin rennur engu að síður hjá án þess
að hreyfa tiltakanlega við hlustanda;
það vantar eitthvað sem tekur í og
sleppir ekki strax. Sjálfsagt munu
hárbeittir textarnir þjóna þeim til-
gangi í einhverjum tilfellum en það
hefði ekki sakað að mjaka lagasmíð-
unum í nokkrum tilfellum upp um
þrep eða tvö. Þá er hætt við því að
mörgum þyki kreppuádeilan orðin
fullkveðin vísa núorðið. Það breytir
þó engu um að platan er metn-
aðarfullt og eftir því þakklátt innlegg
í innlenda plötuútgáfu í sumar.
Heilsteypt Þar sem plata Múgsefjunar hverfist um ákveðið konsept og hefur
nokkuð skipulega framvindu virkar hún heilsteypt, að mati gagnrýnanda.
Gáfumannapopp
Geisladiskur
Múgsefjun - Múgsefjun bbbmn
JÓN AGNAR
ÓLASON
TÓNLIST
Breska hljómsveitin Blur frumflutti
í fyrrakvöld tvö ný lög á vefnum
Twitter sem streymdi flutningnum
í beinni. Síðasta plata hljómsveit-
arinnar kom út fyrir níu árum og
aðdáendur því farið að þyrsta í ný
lög. Lögin tvö heita „Under the
Westway“ og „The Puritan“ og lék
hljómsveitin þau á þaki ónefndrar
byggingar. Lög-
in samdi Blur
fyrir fyrirhug-
aða tónleika sína
í Hyde garðinum
á lokaathöfn Ól-
ympíuleikanna.
Blur lék fyrir
fimmtíu boðs-
gesti á þakinu og
rigndi á hljóm-
sveitina. Hljóm-
sveitin hélt síðast tónleika árið
2009 á Glastonbury.
Blur frumflutti tvö
lög á Twitter
Damon Albarn
The Amazing Spider-Man
Kóngulóarmaðurinn snýr aftur í
kvikmyndinni The Amazing
Spiderman, eða Hinn ótrúlegi
köngulóarmaður. Hér er á ný sögð
saga ofurhetjunnar, hvernig mið-
skólaneminn Pétur Parker öðlaðist
krafta kóngulóar þegar hann var
bitinn af einni slíkri og það geisla-
virkri. Leikstjórinn Sam Raimi tók
það efni fyrir í kvikmynd sinni um
Kóngulóarmanninn frá árinu 2002.
Að þessu sinni er það leikstjórinn
Mark Webb sem tekst á við hetjuna
vinsælu. Nýja myndin mun þó sýna
áður ókannaðar hliðar á sögu-
persónunni.
Með aðalhlutverk fara Andrew
Garfield, Emma Stone, Irrfan
Khan, Martin Sheen, Rhys Ifans og
Sally Field.
Metacritic: 67/100
Rotten Tomatoes: 77%
Bíófrumsýning
Enn segir
af Lóa
Kónguló Andrew Garfield fer með
hlutverk Kóngulóarmannsins.
Stiklu úr næstu
kvikmynd leik-
arans Toms
Cruise, Jack
Reacher, hefur
verið sleppt á
netið, á sama
tíma og fréttir af
skilnaði Cruise
og Katie Holmes
fara sem eldur í
sinu um netið.
Framleiðandi Jack Reacher,
Paramount, ætlar þrátt fyrir þetta
ekki að breyta markaðsherferð
sinni fyrir myndina og segir störf
leikarans vera það sem máli skipti.
The Hollywood Reporter greinir
frá því að hæstráðendur í fyrirtæk-
inu hafi enga trú á því að skilnaðar-
fréttirnar komi niður á aðsókn að
myndinni.
Óttast ekki
fjölmiðlafár
Tom Cruise
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THE AMAZING SPIDERMAN 3D Sýnd kl. 4 - 7 - 10 (Power)
INTOUCHABLES Sýnd kl. 4 - 8 - 10:20
MADAGASCAR 3 3D Sýnd kl. 4 - 6
WHAT TO EXPECT... Sýnd kl. 8 - 10:15
Ein vinsælasta sögupersóna
veraldar snýr aftur í
sumarstórmynd ársins
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
Einstök perla sem er orðin
langaðsóknarhæsta mynd
allra tíma, af þeim sem eru
ekki á ensku.
ÍSL TEXTI
Salome Þorkelsdóttir
framkvæmdastjóri
- Þetta er minn staður!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
MYNDIN SEM ALLIR
ERU AÐ TALA UM!
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
SPIDERMAN 3D KL. 5.40 - 8 - 10.30 10
WHAT TO EXPECT WHEN... KL. 5.45 - 8 - 10 L
PIRANHA 3D KL. 10.20 16
SPIDER-MAN 3D KL 6 - 9 12
INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 – 10.30 10
STARBUCK KL 5.30 - 8 L
WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING KL 10.20 L
SPIDER-MAN 2D KL. 5 -8 - 10.50 10
SPIDER-MAN 3D LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.50 10
SPIDER-MAN 3D KL. 4 - 5 - 8 - 10.50 10
PROMETHEUS 3D KL. 8 - 10.30 16
MADAGASCAR 3D ÍSL.TAL KL. 3.40 - 5.50 L
WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING KL. 8 - 10.25 L
EIN VINSÆLASTA
SÖGUPERSÓNA VERALDAR
SNÝR AFTUR Á HVÍTA TJALDIÐ
Í SUMARSTÓRMYND ÁRSINS
EKKI MISSA AF ÞESSARI!
HLUTI AF
HVERJUM
SELDUM
BÍÓMIÐA
ALLAN JÚLÍ
- rennur til
Barnaheilla