Morgunblaðið - 04.07.2012, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 186. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Egill kærir stúlkuna
2. Lífið var eins og hryllingsmynd
3. Tom Cruise farinn heim
4. Dóttir Cruise komin til landsins
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hinsegin kórinn heldur sumar-
tónleika sína í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur í dag kl. 18.30. Kórinn er
áhugamannakór og var stofnaður í
fyrra. Á efnisskrá eru fjölbreytt, fær-
eysk og íslensk lög, klassísk kóralög í
bland við dægurflugur. Stjórnandi er
Helga Margrét Marzellíusardóttir.
Hinsegin kórinn
syngur í Tjarnarsal
Bláa lónið hefur
fengið listakon-
una Kitty von
Sometime til að
taka upp þátt eða
stuttmynd í til-
raunalistverkefni
sínu, The Weird
Girls Project, í
lóninu. Þátturinn
verður tekinn upp 28. júlí næstkom-
andi og að venju mun Kitty hóa sam-
an konum fyrir tökurnar sem vita
ekki hvað bíður þeirra.
Bláa lónið greiðir
fyrir Weird Girls-þátt
Vefurinn Freisting greinir frá því
að kanadíska tónlistarkonan Shania
Twain og eiginmaður hennar Fré-
déric Thiébaud hafi ver-
ið í hestaferð hér á
landi og snætt
mat frá Kaffi
Grund á Flúðum.
Þar hafi kokkurinn
Berglind Ósk
Loftsdóttir mat-
reitt ofan í þau og
síðasta kvöldið eldað
fyrir þau ein.
Eldaði fyrir Shaniu
Twain á Flúðum
Á fimmtudag Hæg vestlæg átt og skýjað, víða dálítil rigning eða
smáskúrir, en yfirleitt þurrt og bjart suðaustantil. Hiti 11 til 16 stig.
Á föstudag Hæg suðvestanátt og skýjað að mestu. Hlýtt veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dálítil rigning norðan- og vestanlands, víða
léttskýjað suðaustanlands en þurrt austanlands fram eftir degi.
Hiti 8 til 16 stig, svalast við austurströndina.
VEÐUR
Logi Gunnarsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, er að
hefja sitt ellefta tímabil í at-
vinnumennsku erlendis. Nú
hefur hann sagt skilið við
Solna Vikings í Svíþjóð og er
kominn til Frakklands á ný
þar sem hann hefur skrifað
undir samning við Angers.
„Það var stefna mín að fara
aftur til Suður-Evrópu, ann-
aðhvort til Ítalíu eða Frakk-
lands, þó að mér líkaði mjög
vel í Svíþjóð,“ segir Logi. »1
Logi til Frakk-
lands á nýjan leik
Óskar Örn Hauksson er drjúgur við að
leggja upp mörk fyrir KR-inga en
finnst hann ekki skora nógu mikið
sjálfur. Hann var maðurinn á bak við
þrjú marka KR gegn Grindavík í 9.
umferð Pepsi-deildarinnar í
fótboltanum en
segir að KR-
liðið eigi
ennþá mik-
ið inni og
sé eig-
inlega
ennþá
bara í öðr-
um gír. »
2-3
Leggur upp mörkin en
skorar ekki nóg sjálfur
Þór/KA náði tveggja stiga forystu í
Pepsi-deild kvenna í fótboltanum í
gærkvöld með öruggum sigri á Sel-
fossi, 6:2. Breiðablik komst í annað
sætið með því að sigra Val, 1:0, þar
sem Rakel Hönnudóttir skoraði sig-
urmarkið. ÍBV vann upp tveggja
marka forskot Stjörnunnar og liðin
skildu jöfn, 2:2, í Vestmannaeyjum.
»2-3
Þór/KA með tveggja
stiga forystu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Óskar Magnússon
om@mbl.is
„Ég er búin að selja 307 hamborg-
ara á tveimur vikum og strax komin
með einn fastakúnna sem er búinn
að borða tólf, “ sagði Mía á Sveita-
grilli Míu við sundlaugina á Hellu í
samtali við Morgunblaðið. „Þetta er
fljúgandi bisness. Það gæti verið að
ég yrði forrík.“
Stolt í sólinni
Mía heitir fullu nafni Stefanía
Björgvinsdóttir og kemur úr Kópa-
voginum austur í Rangárþing: ,,Ég
vann á Hilton hóteli í Reykjavík og
svo bauðst mér og manninum mín-
um vinna á Hótel Rangá hér fyrir
austan.
„Ég varð náttúrlega ófrísk í
sveitaloftinu, hætti á Rangá og
langaði til að gera eitthvað sjálf,“
sagði Mía veitingakona og stillti sér
stolt upp í sólinni í litríkri svunt-
unni fyrir framan atvinnutækið.
Vagninn er ekta amerískur og
greinilega kominn nokkuð til ára
sinna. Sumar áletranir eru á ensku,
Mia‘s Country Grill hljómar eins og
áratuga gamalt fyrirtæki með stóra
markaðshlutdeild og marga kúnna
og á einni hliðinni stendur: Take
me back to the 50‘s.
Einfalt og snjallt
Mía segist hafa leitað á netinu að
brúklegum vagni en flestir hafi ver-
ið pylsuvagnar: „Ég hafði ekki
áhuga á að selja pylsur, mig langaði
til að reyna eitthvað nýtt. Þennan
vagn rak á fjörur mínar norður á
Hólmavík og ég sló strax
til. Hann var ekki
dýr en við erum
búin að taka
hann algjörlega
í gegn.“ Í
Sveitagrilli Míu
ræður einfald-
leikinn ríkjum.
Ekki er fyrir að fara flóknum eld-
húsbúnaði heldur hefur gömlu Char
Broil-grilli verið komið fyrir í öðr-
um enda vagnsins. Önnur eld-
unartæki eru ekki sjáanleg og
franskar kartöflur ekki á
boðstólum.
Allir eru ánægðir
Salerni er ekki á staðnum, hvað
þá búningsklefi eða sturta. Hvað
sagði heilbrigðiseftirlitið við þess-
um einfaldleika?
,,Þeim fannst þetta æðislegt,
bæði Vinnueftirlitið og Heilbrigð-
iseftirlitið voru ánægð með þetta
hjá okkur, þau voru mjög fín, alveg
frábær. Þau vita líka að það eru
bæði klósett og sturtur í
sundlauginni,“ sagði Mía.
Fastakúnninn búinn með tólf
Sveitagrill Míu
í amerískum
grillvagni á Hellu
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Samhent hjón Mía ásamt manni sínum, Stefáni Ólafssyni, sem stendur vaktina í vagninum með konu sinni.
Stefanía Björgvinsdóttir, áður á
Hilton, síðan á Rangá og nú Mía á
Sveitagrillinu, telur sundlaugar-
gesti ákjósanlegan viðskipta-
mannahóp. „Bæði Íslendingar
og erlendir ferðamenn
koma hér frískir og ban-
hungraðir úr sundinu.“
Matseðillinn er einfald-
ur, aðallega hamborg-
arar og samlokur en
athygli vekur að á
hamborgurunum eru þunnskornar
venjulegar kartöflur sem gefa
þeim sérstakt bragð. „Við bjóðum
auðvitað upp á gos að drekka en
litlar fernur með prinsessudjús
eru vinsælastar, sérstaklega hjá
ungum stúlkum.“ Sveitagrillið
lagar afgreiðslutíma sinn að leik-
skólanum og hefur opið frá
klukkan 11 til 16.30 en einmitt á
þeim tíma er dóttir Míu í leikskól-
anum.
Koma alveg banhungraðir
SUNDLAUGARGESTIR ERU ÁKJÓSANLEGIR VIÐSKIPTAVINIR