Morgunblaðið - 16.07.2012, Side 8

Morgunblaðið - 16.07.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2012 Þegar Gróu vantar viðmælandafær hún sér miða á Saga-klass í von um að þar eigi hún eyra. Páll Vil- hjálmsson litast um á því leiti:    Þorvaldur Gylfa-son grípur til nafnlausra heimilda- manna þegar mikið liggur við.    Þorvaldur óttastað tillögur stjórnlagaráðs, þar sem hann sat, fái ekki þann frama að vera lagðar í þjóð- aratkvæði sökum handvammar meiri- hluta alþingis.    Í stað þess að harma handvömmmeirihlutans bloggar Þorvaldur um ,,þjóðkunnan sjálfstæðismann“ sem vitanlega er nafnlaus og hefur eftir honum samsæri Sjálfstæð- isflokksins gegn stjórnlagaþingi.    Hinn 7. júlí 2005 skrifaði Þorvald-ur í Fréttablaðið að ,,víð- kunnur“ nafnlaus hefði sagt sér að til stæði að ákæra í Baugsmálinu og þau orð hefðu verið sögð áður en ákæra var gefin út. Samsærisstefið var að öfl í Sjálfstæðisflokknum, nema hvað, misnotuðu lögreglu og saksóknara til að berja á Baugsmönnum.    Á þessum tíma var Þorvaldur ívinnu hjá Baugi að skrifa pistla í Fréttablaðið. Í Baugsmálum varð Þorvaldur svo frægur að verjendur báru fyrir sig pistilinn um víðkunnan nafnlausan og sögðu staðfestingu komna á misbeit- ingu opinbers valds.    Nú hljóta menn að rjúka upp tilhanda og fóta og krefjast op- inberrar rannsóknar á áburði Þjóð- þekkts Þorvaldssonar.“ Þorvaldur Gylfason Þau Gróa hittast enn STAKSTEINAR Páll Vilhjálmsson Veður víða um heim 15.7., kl. 18.00 Reykjavík 18 skýjað Bolungarvík 14 léttskýjað Akureyri 11 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 14 rigning Vestmannaeyjar 14 alskýjað Nuuk 16 heiðskírt Þórshöfn 10 skýjað Ósló 13 skúrir Kaupmannahöfn 17 skýjað Stokkhólmur 17 léttskýjað Helsinki 17 skúrir Lúxemborg 15 léttskýjað Brussel 16 léttskýjað Dublin 16 skýjað Glasgow 13 skúrir London 17 heiðskírt París 17 léttskýjað Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 17 skýjað Berlín 18 skýjað Vín 19 skýjað Moskva 18 skúrir Algarve 26 heiðskírt Madríd 31 heiðskírt Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 27 skýjað Róm 30 heiðskírt Aþena 33 heiðskírt Winnipeg 18 skúrir Montreal 27 alskýjað New York 27 heiðskírt Chicago 30 léttskýjað Orlando 30 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 16. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:47 23:22 ÍSAFJÖRÐUR 3:14 24:04 SIGLUFJÖRÐUR 2:56 23:49 DJÚPIVOGUR 3:07 23:00 Guðrún Guðmundsdóttir verkefnastjóri - Æðislegir tímar og aðstaðan er frábær! E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Laugavegshlaupið fór fram síðastlið- inn laugardag í 16. sinn. 301 hlaupari tók þátt en ræst var út frá Land- mannalaugum í góðu veðri. Sigurveg- ari í karlaflokki var Björn Margeirs- son sem kom í mark á nýju brautarmeti 4:19.55. Fyrra metið var frá 2009 en það setti Þorbergur Ingi Jónsson þegar hann hljóp Laugaveg- inn á 4:20:32. Annar í mark var Frið- leifur K. Kristjánsson og þriðji Helgi Júlíusson. Hin skoska Angel Mudge sló einnig brautarmet í kvennaflokki og hljóp á 5:00:55 en fyrra metið átti Helena Ólafsdóttir sem árið 2010 hljóp á tím- anum 5:21:12. Önnur var Valgerður Heimisdóttir og þriðja Susanna Rait- maki. Aðstæður voru fínar þegar kepp- endur lögðu af stað og milt í veðri. Ör- lítið rigndi þegar keppendur komu í mark í Húsadal í Þórsmörk. Í frétta- tilkynningu segir að keppendur hafi haft á orði að vel hafi viðrað á leiðinni. Í Laugavegshlaupinu eru hlaupnir 55 km við fjölbreyttar aðstæður. Laugaveg- urinn tengir saman Landmannalaugar og Þórsmörk á sunnanverðu hálendi landsins. heimirs@mbl.is Settu met í Laugavegshlaupinu Ljósmynd/Ólafur Andri Magnússon Þol Björn Margeirsson kom, sá og sigraði í Laugavegshlaupinu. Lögreglan handtók þrjá menn um borð í erlendu skipi við Miðbakka í Reykjavíkurhöfn í fyrrinótt. Menn- irnir sem eru grunaðir um að hafa ætlað að reyna að koma sér til Am- eríku voru fluttir í fangageymslur. Skömmu síðar var svo maður hand- tekinn um borð í Sæbjörginni. Þar var erlendur karlmaður á ferð og reyndist hann mjög ölvaður. Handteknir um borð í skipum í fyrrinótt Eldur kom upp í íbúðarhúsi á Reyð- arfirði í gærmorgun. Þrír voru inni í húsinu, par og ungt barn. Fjöl- mennt lið slökkviliðs var sent á vettvang en þegar að var komið hafði húsráðandi sjálfur slökkt eld- inn með handslökkvitæki. Skv. upplýsingum slökkviliðs kom eldurinn upp inni á baðher- bergi en þar inni hafði barnið lokað að sér. Foreldrarnir björguðu barninu út úr baðherberginu en eldur hafði læst sig í baðherberg- ishurðina. Húsráðandi kom svo fjöl- skyldu sinni út úr húsinu en sneri aftur inn til að slökkva eldinn. Þeg- ar slökkviliðsmenn bar að hafði eld- urinn verið slökktur. Maðurinn var fluttur á sjúkrahúsið í Neskaupstað vegna gruns um reykeitrun. Eldur kom upp í íbúðarhúsi Tilkynnt var um líkamsárás í Vest- mannaeyjum snemma í gærmorg- un. Að sögn lögreglu voru mörg vitni að atvikinu og hefur árás- armaðurinn játað að hafa lent í ryskingum en mennirnir voru báðir undir áhrifum áfengis. Lögreglan segir atburðarásina liggja fyrir að miklu leyti og telst málið upplýst. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur til Reykjavíkur til frekari aðhlynningar. Að sögn lög- reglunnar í Eyjum blæddi inn á heila fórnarlambsins. Lögreglan í Vestmannaeyjum segir mennina báða á þrítugsaldri. Árásin átti sér stað fyrir utan skemmtistað í bænum. Þegar lög- reglu bar að var árásarmaðurinn horfinn en hann var þó gripinn skömmu síðar. Játaði líkamsárás í Vestmannaeyjum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.