Morgunblaðið - 16.07.2012, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 16.07.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2012 ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939 Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00 Opið um helgar frá 18:00 - 23:00 frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar ÞRÍR FRAKKAR Café & Restaurant Fersk ÞingvallableikjaVeiðiafli laxveiðiánna er nú óðumað verða aðgengilegur rafrænt á netinu. Nú þegar eru upplýsingar um aflann úr sex laxveiðiám færð- ar daglega inn á vefsíðu Veiði- málastofnunar, en 20-30 í heildina hafa fengið aðgang að kerfinu, að sögn Benónýs Jónssonar, líffræð- ings hjá Veiðimálastofnun. Upplýsingar um aflann eru færðar daglega inn úr eftirtöldum ám: Gljúfurá, Norðfjarðará, Norð- urá, Svalbarðsá, Víðidalsá og Ytri- Rangá. Á vefsíðunni veidibok.fiskistofa- .is er hægt er að nálgast upplýs- ingarnar og sjá hvern veiddan fisk, hvar hann veiddist, hvaða dag, stærð hans og þyngd auk þess veiðarfæris sem notað var. Vef- urinn komst reyndar í gagnið í fyrra, en það er fyrst núna sem notkun hans er að færast í aukana, að sögn Benónýs. Ekki er þó um að ræða neina stórfellda nýjung, aðra en þá að upplýsingarnar eru rafrænar, því um er að ræða ná- kvæmlega sömu upplýsingar og þarf að skrá í veiðibækur á hverj- um stað. „Kostir kerfisins eru helst þeir að auka upplýsingastreymi til veiðimanna, þannig að þeir geti skoðað aflabrögð eftir veiðiám, veiðidögum og veiðistöðum hvenær sem þá lystir. Aðgengi að veiðitöl- um verður þannig stóraukið, öllum til hagsbóta,“ segir á vef Veiði- málastofnunar. Laxveiðin í ár hef- ur víða farið mun betur af stað en í fyrra. Tölurnar eru einkum hærri nú í ám á Vesturlandi auk Rang- ánna. Undantekningar eru þó frá því, bæði varðandi Norðurá og einnig Þverá/Kjarrá. ipg@mbl.is Morgunblaðið/Einar Falur Veiðiupplýsingar Meðal þeirra laxveiðiáa sem veiðitölur birtast daglega rafrænt um er Norðurá í Borgarfirði. Veiðitölur nokkurra laxveiðiáa daglega á netið  Aðgengi að veiðitölum aukið  Laxveiðin er víða betri í ár Burkni Helgason sigraði í þríþraut- inni á Hlaupahátíð Vestfjarða sem fram fór um helgina. Náði hann bestum árangri í sundi, hjólreiðum og hlaupi en samanlagður tími hans í öllum þremur greinum var 4:45:09. Í öðru sæti varð Rúnar Pálmason á tímanum 5:35:05 og í þriðja sæti Guðmundur Þorleifsson á tímanum 5:45:00. Ein kona tók þátt í þríþraut- inni, Clasina Jensen, og var tími hennar 6:11:27. Þátttakendur gátu skráð sig til þátttöku í einni eða fleiri greinum. Keppendur í þríþrautinni syntu 500 metra, hjóluðu 55 km og hlupu 24 km. Boðið var upp á þrjár vega- lengdir í Vesturgötuhlaupinu. Sextíu keppendur hlupu 24 km, þrír hlupu 45 km og um 50 manns hlupu 10 km. Þá tóku um 100 manns þátt í skemmtiskokkinu á Þingeyri á laug- ardag á meðan á hjólakeppninni stóð. Ljósmynd/Hólmfríður Vala Svavarsdóttir Glaðir Sigurvegarar í 24 kílómetra hlaupi karla. Burkni Helgason í 2. sæti, Snorri Gunnarsson í 1. sæti og Rúnar Pálmason í 3. sæti. Hjólað, synt og hlaupið í blíðviðri á Vestfjörðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.