Morgunblaðið - 16.07.2012, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2012
Annríki var hjá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu aðfaranótt
sunnudags. Nokkuð var um útköll
vegna drykkju og hávaða en einnig
höfðu lögreglumenn afskipti af
ökumönnum.
Ökumaður var stöðvaður á Grett-
isgötu skömmu fyrir klukkan eitt
um nóttina og var hann grunaður
um ölvunarakstur. Um klukkan
þrjú í nótt var karlmaður handtek-
inn í Hafnarfirði grunaður um
eignaspjöll. Hann reyndist mjög
ölvaður og látinn sofa úr sér í
fangageymslum.
Þá var karlmaður handtekinn um
kl. hálffjögur í Bankastræti grun-
aður um líkamsárás og var hann
vistaður í fangageymslum. Málið er
í rannsókn en árásarþola var ekið á
slysadeild til aðhlynningar.
Óspektir í
borginni
Ölvunarakstur
og líkamsárás
Morgunblaðið/Júlíus
Ölvun Lögreglan við störf í mið-
bænum. Myndin er úr safni.
Klapparstígurinn hefur tekið
stakkaskiptum og nú er verið að
leggja lokahönd á framkvæmdir
samkvæmt upplýsingum Reykjavík-
urborgar.
„Starfsmenn verktaka eru kröft-
ugir á endasprettinum og gang-
stéttarnar renna fram. Bílaumferð
hefur verið hleypt að nýju á hluta
stígsins og í [þessari] viku verður
hann allur opinn,“ segir í frétta-
tilkynningu um gang fram-
kvæmdanna. Í þessari viku verður
unnið við lokafrágang í Njálsgötu
og smávægilegar viðbætur og
breytingar svo sem að færa ljósa-
staur og lagfæra tröppur. Samhliða
opnun fyrir umferð upp Klappar-
stíginn verður umferð um Vega-
mótastíg og Grettisgötu snúið í
fyrra horf, en þar hafa verið hjá-
leiðir vegna framkvæmdanna.
Kostnaður við endurgerð Klapp-
arstígs frá Laugavegi að Skóla-
vörðustíg er minni en áætlað var.
Kostnaður stefnir í að verða um 100
milljónir króna, en fjárhagsáætlun
gerði ráð fyrir 120 milljónum.
Fyrirhugað er að endurnýja einn-
ig kaflann neðan Laugavegar að
Hverfisgötu í svipuðum dúr og nú
hefur verið gert ofan Laugavegar.
Það verk er í hönnun og er stefnt
að útboði eftir rúma viku. Fram-
kvæmdir gætu þá hafist í ágúst eða
september.
Á endaspretti á Klapparstíg
Morgunblaðið/Golli
Breytt Framkvæmdir hafa verið á umliðnum mánuðum á Klapparstíg.
Verið að leggja lokahönd á umfangsmiklar framkvæmdir
Kostnaður undir kostnaðaráætlun eða alls um 100 milljónir
Nokkur erill var í kringum rokkhá-
tíðina Eistnaflug sem haldin var um
helgina í Neskaupstað en um 1.500
manns voru gestkomandi í bænum í
tengslum við hátíðina. Tvær líkams-
árásir áttu sér stað í gærmorgun.
Önnur var minniháttar að sögn lög-
reglu en í hinu tilfellinu var einn
fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar
en árásarmennirnir voru báðir vist-
aðir í fangageymslum lögreglu.
Heimagemlingar létu
eins og apakettir
Á hátíðinni komu einnig upp fíkni-
efnamál en samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu í gærdag voru málin þá
orðin um 30 talsins og munu það
vera svipað mörg tilfelli og í fyrra.
Um er að ræða minniháttar fíkni-
efnabrot.
Talsvert var um pústra á milli
manna í bænum að sögn lögreglu og
munu þar aðallega hafa verið heima-
menn að verki. Mikill fjöldi fólks
nýtti sér tjaldsvæðið í tengslum við
hátíðina.
„Þetta er það mesta sem ég hef
séð á þessu tjaldsvæði. Annars voru
þessir tjaldbúar alveg til friðs, þetta
voru heimagemlingarnir sem létu
eins og apakettir,“ sagði varðstjóri.
Tvær líkams-
árásir á
Eistnaflugi