SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Page 6
6 15. júlí 2012
Adrian Nastase,
fyrrverandi for-
sætisráðherra
Rúmeníu, sem
er táknmynd
spillingar í
stjórnkerfinu í
Rúmeníu, er
pólitískur upp-
eldisfaðir Vic-
tors Pontas for-
sætisráðherra. Nastase var
dæmdur í tveggja ára fangelsi í
júní fyrir ólöglega fjármögnun
flokks síns. Í fréttaskýringu Die
Zeit segir að sá dómur hafi haft
áhrif: „Hann var lokaviðvörun
stéttar spilltra rúmenskra stjórn-
málamanna og athafnamanna:
Valdbarátta stjórnar Pontas er
þegar öllu er á botninn hvolft til-
raun þessarar valdastéttar til að
undanskilja sig leikreglum lýð-
ræðisins og réttarríkisins.“
Barist um völd
Adrian Nastase,
fyrrverandi for-
sætisráðherra
Rúmeníu.
Rúmenía er í pólitísku uppnámi. VictorPonta forsætisráðherra og TrainBasescu forseti berjast um völdin.Landið er í greipum spilltrar
yfirstéttar.
Ponta var á fimmtudag í Brussel þar sem hann
reyndi að sannfæra leiðtoga Evrópusambandsins
um að tilraun sín til að koma forsetanum frá
ógnaði ekki lýðræði í Rúmeníu.
„Mér er mjög annt um ímynd Rúmeníu sem
lýðræðisríkis, að leysa innri pólitískar deilur með
pólitískum og almennum atkvæðagreiðslum,“
sagði hann á blaðamannafundi í Brussel.
Ponta átti fund með Herman Van Rompuy,
forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins, í Bruss-
el. Var til þess tekið að Rompuy hafði á borði
sínu regluverk sambandsins, Lissabon-sáttmál-
ann, líkt og hann vildi minna á nauðsyn þess að
virða lög og reglur ESB.
Ponta ítrekaði að rúmensk stjórnvöld myndu
afturkalla allar aðgerðir, sem reyndust stangast á
við regluverk ESB. Hann varði einnig tilraun
samsteypustjórnar sinnar til að koma Basescu frá
og benti á að stjórnlagadómstóll landsins hefði
staðfest ákvörðun þingsins í atkvæðagreiðslu um
að víkja forsetanum tímabundið frá störfum. Síð-
an yrði ákveðið í þjóðaratkvæði 29. júlí hvort
hann yrði settur af.
Átökin milli Pontas og Basescus hófust þegar
Ponta komst til valda eftir að fyrri stjórn var felld
í vantraustsatkvæðagreiðslu í maí. Eftir hægri
stjórnina tók við þriggja flokka samband, USL,
sem kennir sig við sósíalisma og frjálslyndi, með
Ponta í broddi fylkingar.
Frá því að Ponta tók við hefur stjórn hans gefið
út hátt á þriðja tug skynditilskipana, sem hafa
lagagildi og þurfa ekki staðfestingu þings fyrr en
eftir á. Þegar Rúmenar gengu í Evrópusambandið
2007 komu fram áhyggjur af því að þeir væru
ekki tilbúnir vegna ólýðræðislegra stjórnarhátta,
ósjálfstæðra dómstóla og rótskotinnar spillingar.
Í fréttaskýringu á vef vikuritsins Die Zeit segir að
nú, fimm og hálfu ári síðar, virðist sem þær
áhyggjur hafi síst verið of miklar. Í átökunum við
Basescu hafi Ponta beitt aðferðum, sem kalla
megi valdaráns-
tilburði, og lýðræð-
isleg og evrópsk
grunngildi hafi verið
virt að vettugi.
Margar skyndi-
tilskipananna hafa
þjónað þeim tilgangi
að tryggja að það
tækist að svipta Ba-
sescu embætti forseta.
Þar hefur þó ekki ver-
ið látið staðar numið
og hefur ríkisstjórnin
til dæmis einnig gefið
út tilskipun um að
stjórnlagadómstóllinn
hafi ekki lengur lögsögu yfir ákvörðunum þings-
ins. Die Zeit bendir á að í samanburði við það séu
það smámunir að með stjórnartilskipun hafi ver-
ið komið í veg fyrir að Ponta yrði sviptur
doktorsnafnbót sinni eftir að í ljós kom að stórir
kaflar í doktorsritgerð hans voru stolnir.
USL kveðst vilja koma Basescu frá til að verja
réttarríkið og sakar forsetann um að hafa tekið
sér meiri völd en stjórnarskráin kveður á um að
hann hafi og skipta sér um of af störfum stjórnar
og þings. Basescu dregur heldur ekki dul á að
hann sé virkur forseti og athafnasamur, en fæstar
ásakanirnar standast gegn honum. Það var að
minnsta kosti niðurstaða stjórnlagadómstólsins.
Hins vegar hafa komið fram efasemdir um
heilindi núverandi stjórnar. Tekið er til þess að í
USL séu sérlega margir sem hafi verið allt frá yf-
irmönnum úr hinni illræmdu öryggisþjónustu
Ceausescus, Securitate, til fyrrverandi forstjóra
úr röðum kommúnista, vellauðugra óligarka og
dæmdra fjárglæframanna.
Í áðurnefndri fréttaskýringu í Die Zeit er því
haldið fram að þar sé á ferð yfirstétt, sem reyni
að verja sitt góss, hafi orðið rík og voldug með
því að misnota embætti, með hálf- eða ólögleg-
um viðskiptum, glæpsamlegri einkavæðingu og
spillingu og líti á völdin sem umboð til rána og
gripdeilda.
Ráðabrugg
í Rúmeníu
Forsætisráðherra vændur um
gerræði í aðför gegn forseta
Viktor Ponta, forsætisráðherra Rúmeníu, svarar spurningum blaða-
manna í Brussel á fimmtudag. Hann hét því að standa vörð um lýðræði.
AFP
Traian Basescu, forseti
Rúmeníu, ávarpar þingið,
sem vill svipta hann
embætti, fyrir viku.
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Gagnrýnendur Victors Pontas,
forsætisráðherra Rúmeníu,
segja að harka dómstóla í
spillingarmálum hafi komið
stjórn hans í uppnám. Stjórn-
völd segjast ekki vera að
reyna að hræða dómstóla og
saksóknara. „Réttarkerfið fer
sína leið óháð því hver er við
völd,“ sagði Titus Corlatean
dómsmálaráðherra.
Þrýst á rétt-
arkerfið?
Titus Corlatean
dómsmálaráðherra.
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Fataskápar í miklu úrvali