SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Qupperneq 12
12 15. júlí 2012
Fimmtudagur
Gerður Kristný Greifing-
inn sem býr undir hús-
inu mínu hér í Stokk-
hólmi er hinn rólegasti.
Allt er því með kyrrum
kjörum og ég hef endurnýjað kynni
mín við polkaísinn ljúffenga. Með
honum les ég The Crime Wave at
Blandings eftir P.G. Wodehouse.
Kristinn Hrafnsson Frá-
bær áfangasigur í stríði
gegn makalausri mis-
beitingu valds. Gleður
mitt hjarta að fyrsti sig-
urinn fyrir dómi í slagnum við al-
þjóðlega fjármálarisa skuli vera í
mínu heimalandi. Það verður tekið
eftir þessu.
Kristín Svava Nafn: Guðrún Gríms-
dóttir. Kyn: Kona. Aldur:
47. Staða: Hans kona.
Föstudagur
Kristín Svava Nafn:
Loftur Vigfússon. Kyn: Karl. Aldur:
26. Staða: Böðull, flengimann.
Einar Skúlason
fer grátandi á Fimm-
vörðuháls síðdegis.
Þarf að fórna Vin-
ylplötusölu ársins.
Nema að Arnar Eggert Thoroddsen
sendi þyrlu inn í Mörk á morgun.
Fésbók
vikunnar flett
Meðlimir hljómsveitarinnar The Rolling Stones fagna um þessar
mundir hálfrar aldar starfsafmæli hljómsveitarinnar. Þeir Mick Jag-
ger, Keith Richards, Charlie Watts og Ronnie Wood eru enn að þrátt
fyrir að vera á sjötugsaldri. Af því tilefni gáfu þeir félagar út bók um
feril bandsins og ber verkið titillinn 50. Ný útfærsla á hinu víðfræga
merki hljómsveitarinnar, tungunni, hefur einnig litið dagsins ljós og
mátti sjá því skartað er meðlimir sveitarinnar fögnuðu afmælinu.
Getgátur hafa verið uppi þess efnis að The Rolling Stones muni
ferðast um heiminn á þessu ári, eða því næsta, og halda fjölda tón-
leika. Keith Richards staðfesti fyrir skemmstu að hljómsveitin hefði
vissulega æft sig að undanförnu en vildi þó ekkert tjá sig um það sem
væri framundan. Þess má einnig til gamans geta að ljósmyndasýn-
ing, sem sýnir feril sveitarinnar, hefur verið opnuð í hinu fornfræga
Somerset House í London. Sýningin mun standa frá 13. júlí til 27.
ágúst og er aðgangur ókeypis.
Á ljósmyndasýningunni má sjá myndir frá ýmsum skeiðum The Rolling Stones.
Stones á safni
Charlie Watts, Keith Richards, Ronnie Wood og Mick Jagger hressir.
Sex tónlistarmenn hafa komið að sveitinni fyrir utan hinn endanlega
kvartet. Á mynd á veggnum eru meðlimirnir til að mynda fimm talsins.
AFP