SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Síða 13
15. júlí 2012 13
Vatnsskortur er ekki vandamálá Íslandi. Það er þó vandamálsem Íslendingar, ásamt allriheimsbyggðinni, ættu að vera
mjög vakandi fyrir. Vandamál sem gæti
valdið alvarlegum deilum á komandi ár-
um.
Ania Grobicki þekkir það að lifa við
vatnsskort. Í heimalandi hennar, Suður-
Afríku, er farið afar sparlega með vatn.
Hún er einn helsti sérfræðingur heimsins
í vatnsrannsóknum.
Þurrkur, fellibylir og flóð
Ania Grobicki nam hagfræði og efna-
verkfræði í heimalandi sínu. Hún hlaut
doktorsgráðu í líftækni frá Líftæknihá-
skólanum í London. Grobicki er fram-
kvæmdastjóri samtakanna Global Water
Partnership, GWP, sem stofnuð voru árið
1996. Samtökin vinna að rannsóknum
vatnsauðlinda, þróun og stefnumótun
vatnsbúskapar. Höfuðstöðvar GWP eru í
Stokkhólmi en þau eru í samvinnu við
1.600 félagasamtök um allan heim.
Markmið félagsins er að ná jafnvægi og
öryggi í vatnsbúskap heimsins.
Að vekja athygli á vandamálum
vatnsbúskaparins segir Grobicki afar
mikilvægt.
„Gróðurhúsaáhrifin og hitabreytingar
hafa áhrif á alla heimsbyggðina. Áhrifin
eru ólík í mismunandi heimshlutum. Á
meðan sum lönd standa frammi fyrir
miklum þurrkum munu önnur upplifa
ofsaveður, til dæmis flóð, fellibyli og
þrumur og eldingar. Þetta eru öfgar í
báðar áttir,“ segir hún. Hún segir áhrifin
hafa sýnt sig nú þegar og bendir á Mar-
okkó máli sínu til stuðnings. Loftslag í
Marokkó er mjög þurrt en landið upplifir
fyrstu flóð í sögu landsins. „Í Bandaríkj-
unum hafa skógareldar aukist sem
gleypa heimili fólks. Ég sá í gær að um-
hverfissérfræðingar í Bandaríkjunum
segja að þessir eldar tengist beint gróð-
urhúsaáhrifunum og loftslagsbreyting-
unum.“ Grobicki er sannfærð um að
þegar fólk fer að finna fyrir afleiðing-
unum á eigin skinni muni það vakna til
lífsins. „Það mun sýna frumkvæði til
þess að ráðast gegn vandamálinu á sínu
svæði. Einnig er mjög mikilvægt að fjöl-
miðlar séu vakandi og fjalli um þessi al-
varlegu mál.“ Lausn vandamálsins segir
hún að liggi í rannsóknum á hitabreyt-
ingum og gróðurhúsaáhrifum. „Við hjá
GWP leggjum mikið upp úr rann-
sóknum. Til þess að skilja vandamálið
þarf að leggja meira fjármagn til rann-
sókna.“
Að virkja stjórnvöld telur hún afar
mikilvægt en hún segir að þau sofi á
verðinum. „Í rauninni eru einkafyrirtæki
virkari. Þau hugsa fram í tímann og
leggja meira upp úr sjálfbærri þróunn.“
Og umræðan er mikilvæg. „Málið er tví-
hliða: Það verður að minnka mengun og
finna leið til þess að aðlagast breyttum
heimi. Þjóðarleiðtogar verða að taka
höndum saman og finna grundvöll til
þess að búa til stefnumótun.“ Hún bend-
ir á að vatn sé mjög pólitískt málefni og
miklir hagsmunir í húfi.
Ísland í fremstu víglínu
Á ráðstefnunni Rio +20, sem haldin var í
Barsilíu í júní, var vatnsbúskapur meðal
annars á dagskrá. Þrátt fyrir góða um-
ræðu vonast Grobicki til þess að hún
aukist í framtíðinni. „Við erum að slá
hitamet í sögu jarðarinnar. Það eru til
mjög góð gögn sem sýna fram á að þessi
hækkun hitastigsins orsakast af gróður-
húsaáhrifunum. Jöklarnir bráðna vegna
lofthitabreytinganna. Sjávarborðið
hækkar í samræmi við bráðnun jökl-
anna. Rannsóknir benda til að lofthitinn
muni aukast meira í framtíðinni.“
Hún telur Ísland geta gegnt mikilvægu
hlutverki í umræðunni um bráðnun
jökla. Hún er mjög hrifin af íslenska
frumkvæðinu Vox Natura eða Rödd jök-
ulsins. Haustið 2013 mun Rödd jökulsins
lýsa upp Svínafellsjökul til þess að vekja
athygli á bráðnun jökulsins. „Þetta verð-
ur flottur viðburður sem mun án efa
vekja umræðu um vatnsbúskap.“ Hún
segist nota hvert tækifæri sem henni
gefst til þess að tala um íslenska frum-
kvæðið. „Ég minntist á verkefnið á ráð-
stefnu í Durbin og á ráðstefnunni Rio +
20 í Brasilíu.“ Og verkefnið hefur fengið
mjög góðar viðtökur á ráðstefnunum.
Ania Grobicki telur að verkefnið muni
skipa Íslandi í fremstu víglínu í um-
ræðunni um bráðnun jökla. Hún hvetur
Íslendinga til þess að kynna sér málið og
stjórnvöld til þess að vera vakandi fyrir
vandamálinu. „Hvað er Ísland án íss?“
segir hún og hlær.
Grobicki telur að Ísland geti skipað mikilvægan sess í að vekja umræðu um bráðnun jökla.
Hvað er Ísland
án íss?
Á umhverfisráðstefnunni Rio +20 var rætt um
framtíð umhverfismála og hvernig má viðhalda
sjálfbærri þróun auðlinda. Doktor Ania Grobicki,
sérfræðingur í vatnsrannsóknum, ræddi um
mikilvægi Íslands í umræðunni um bráðnun
jökla.
Ingibjörg Friðriksdóttir if@mbl.is
’
Málið er tvíhliða: Það
verður að minnka
mengun og finna leið
til þess að aðlagast breytt-
um heimi. Þjóðarleiðtogar
verða að taka höndum
saman.“
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
A81
Hönnuðir: Atli Jensen og
Kristinn Guðmundsson
Verð frá: 27.800,-
www.facebook.com/solohusgogn