SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Side 17

SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Side 17
15. júlí 2012 17 araðstöðu í háskólanum í Rhode Island, þar sem ég starfaði lengst af.“ Byggð á hættusvæðum Hvað ertu að rannsaka núna? „Ég er meðal annars að rannsaka jarð- fræði Snæfellsnessins. Hluti af rútínu minni er að fara út klukkan sjö á morgn- ana og upp í fjöllin. Ég er þrjá til sex tíma úti einhvers staðar á hverjum degi. Það er eiginlega alveg sama hvernig veðrið er og hvaða árstími er, það er alltaf hægt að finna staði þar sem er skjól. Annars er bara spennandi að vera úti í brjáluðu veðri. Vinna úti í náttúrunni er mikilvæg fyrir jarðfræðinga því þar eru allar upp- lýsingarnar. Þær eru huldar og því oft erfitt að finna þær og maður veit ekki ná- kvæmlega hvað maður finnur fyrr en maður rekst allt í einu á það.“ Þú ert maður sem er á ferð og flugi, er þér kannski nokkurn veginn sama hvar þú býrð meðan þú getur komist út í náttúruna? „Fastur bústaður skiptir ekki svo miklu máli ef ég get verið í nátt- úrumhverfi þar sem eitthvað er að rann- saka, þá aðallega varðandi eldfjöll. Að- alvinnan mín hefur verið á sviði eldfjallarannsókna en ég hef líka unnið á öðrum sviðum, til dæmis hef ég rann- sakað loftsteinaárekstra.“ Hafa víða um heim verið byggðar borgir og mannabústaðir á svæðum þar sem er vitað að mannskæð eldgos muni verða? „Já, því miður. Indónesía er mesta eld- fjallasvæði heimsins. Þar eru 150 virk eldfjöll og gos á hverjum degi og stund- um tvö. Eyjan Java er þéttbýlasta svæði jarðarinnar með fjölda eldfjalla og þar er byggð alveg uppi við eldgígana. Af þessu stafar gríðarleg hætta. Ísland er mjög strjálbýlt en vandinn er að þar verða gos oft á svæðum þar sem hefur ekki gosið áður og því koma upp ný eldfjöll, nýjar sprungur og nýjar gjár. Það er mjög erfitt að segja til um hvenær og hvar gos verði. Það er eiginlega ekki hægt að spá um það nema rétt áður en byrjar að gjósa. Sérðu eitthvað sem bendir til að eld- gos verði fljótlega á Íslandi? „Nei, ekkert sérstaklega. Ég hef bent á Krísuvíkursvæðið, sem ástæða er til að hafa áhyggjur af en þar er sprungukerfi sem Heiðmörk liggur á og Straumsvík er byggð nærri sprungukerfi og ung hraun eru í Hafnafirði og í grennd við Njarðvík- ur, ættuð úr eldstöðvum á Reykjanesi. Það er nokkurn veginn regla að þar sem ungt hraun er mun yngra hraun koma ofan á það. Ytri mörk höfuðborgarsvæð- isins eru að færast upp að Elliðavatni og Heiðmörk og í Hafnarfirði er hún að fær- ast yfir í Kapelluhraunið, þannig að verið er að reisa byggð á hættusvæðum. Í fyrra gáfu Almannavarnir út skýrslu um áhættumat fyrir höfuðborgarsvæðið. Þetta er 65 blaðsíðna skýrsla, unnin af 28 manns, en í þeim hópi var enginn einasti jarðfræðingur, sem mér finnst ein- kennilegt. Á þessum 65 síðum fjallar einn fjórði úr blaðsíðu um eldgosahættu á höfuðborgarsvæðinu. Þetta nær ekki nokkurri átt. Í skýrslunni er kort af hraunum sem hafa runnið umhverfis höfuðborgina og gegnum Hafnarfjörð, en engu er líkara en skýrsluhöfundar stingi höfðinu í sandinn og neiti að viðurkenna að þetta geti gerst aftur eða telji að lík- urnar séu það litlar að hægt sé að lifa með því. Veðurstofan og vísindamenn við Há- skóla Íslands fylgjast vel með sem þýðir að ef til vill verður hægt að sjá fyrir gos á þessum svæðum skömmu áður en þau hefjast en það er þegar búið að byggja á svæðunum. Það verður hægt að bjarga fólkinu og kannski kæliskápnum og hús- gögnum en það verður aldrei hægt að byggja aftur á sumum af þessum svæð- um.“ Af hverju er byggt á hættusvæðum? „Ég held að þarna sé pólitísk pressa, eins og í svo mörgu í okkar landi. Stjórn- málamennirnir lifa fyrir kjörtímabilið og hugsa sem svo: Það gerist ekkert meðan við erum á lífi. Sem getur verið alveg rétt. Þetta er sennilega allt í lagi varðandi verksmiðjuna í Straumsvík því það þarf hvort eða er að byggja nýja verksmiðju eftir fimmtíu ár, þá verður núverandi verksmiðja orðin gamaldags, menn vilja rífa hana og byggja nýja og þá er svo sem allt í lagi að hraunið taki hana. En það er nokkuð annað mál ef þú átt einbýlishús í útjaðri Hafnarfjarðar eða uppi við Elliða- vatn, sem þú varst ekki bara að byggja fyrir þig heldur líka fyrir afkomendur þína. Þér þætti sárt ef það færi undir hraun. Aðalveitur til höfuðborgarinnar eru svo á þessum svæðum, þannig að hraunstraumar á þeim myndu taka út rafmagns- og vatnsveitur, sem myndi skapa mikil vandamál. Ég er ekki að segja að það séu að koma gos. Reyndar hefur verið mikill óróleiki í Krýsuvík þannig að það er fylgst með því svæði.“ Þú talar nokkuð afdráttarlaust um þetta, það eru kannski ekki margir vís- indamenn sem gera það. „Ég er ekki háður styrkjakerfi og er ekki hluti af háskólakerfinu og þess vegna get ég rifið kjaft. En marga kollega mína gruna ég um að passa mjög vel hvað þeir segja vegna þess að þeir starfa innan kerfisins í litlu landi. Þá er stutt í sjálfs- ritskoðun. Menn passa hvað þeir segja. Embættiskerfið og styrkjakerfið þrengja ’ Ég hef búið erlendis í 40-50 ár og þá sér maður hlutina með öðrum augum. Hér á landi virðast menn vera ragir við að stíga fram og vara við náttúruhamförum. Haraldur Sigurðsson. „Vinna úti í nátt- úrunni er mikilvæg fyrir jarðfræðinga því þar eru allar upplýsingarnar. Þær eru huldar og því oft erfitt að finna þær og maður veit ekki nákvæmlega hvað maður finnur fyrr en maður rekst allt í einu á það.“

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.